Vísir - 24.07.1980, Blaðsíða 6
Víkingur ut
Eftir að við fengum á okkur
markið strax i upphafi siðari
hálfleiks, sem við fengum á mjög
slæmum tima, þá misstum við
tökin á leiknum og reyndum að
verjast, sagði Marteinn Geirs-
son fyrirliði Fram eftir leik Fram
og Vikings I Bikarkeppni KSI i
gærkvöldi.
Það er hægt að taka undir þetta
með Marteini, þeir léku mjög vel i
fyrr hálfleik og sundurspiluöu þá
oft Vikingana enda sigruðu þeir
2-1 og slógu þar með Vikingana út
Ur bikarkeppninni.
Hinrik Þórhallsson stóö þó einn
á markteig á 3. min. en skaut
beint á Guðmund markvörð og
fékk boltann aftur og skaut, en
Guðmundur „slengdi fætinum I
boltanh'oghættunni var bægt frá.
Fyrsta mark leiksins kom á 37
min. fyrri hálfleíks. Ragnari
Gislasyni urðu þá á mikil mistök,
er hann hætti við bolta, sem hann
auðveldlega átti að geta tekið og
Pétur Ormslev náði boltanum og
iék á tvo varnarmenn og gaf bolt-
ann til GUstafs Björnssonar, sem
skoraði laglega af markið.
Aðeins minUtu siðar bættu
Framarar við öðru marki, það
varðásvipaöanháttog það fyrra.
Pétur fékk boltann, lék á tvo
varnarmenn og sendi hann siðan
Ut til hægri, þar sem Guðmundur
Torfason var á auðum sjó og
skoraði.
En dæmið sneri heldur betur
við I seinni hálfleik, þá hdfu Vik-
ingar stórsókn að marki Fram og
það leið ekki á löngu áður en þeir
uppskáru mark.
Er fimm min. voru liðnar af
siöari hálfleik, var dæmd auka-
spyrna á Fram rétt fyrir utan
þeirra eigin vitateig. Gunnar
Gunnarsson tók aukaspyrnuna og
sendi háan bolta inn I vitateiginn
þar sem Heimir Karlsson var og
sendi hann boltann i markið.
Eins og áður sagði skiptist
leikurinn alveg i tvo hluta.
Framarar voru alsráöandi i
fyrri hálfleik en Vikingar i þeim
seinni. Þrátt fyrir það var sigur
Fram ekki ósanngjarn. röp—.
SIGUR FH GAT
VERID STÆRRI
FH tryggði sér rétt til þátttöku I
4-liöa úrslitum Bikarkeppni KSt
með naumum sigri yfir II deild-
arliöi Þróttar frá Neskaupstað.
Lokatölur leiksins, sem leikinn
var á Kaplakrikavelli i Hafnar-
firði, uröu 1-0, en sigur FH heföi
þó allt eins getað orðiö mun
stærri, miðaö við marktækifæri.
Þótt ekkert mark væri skoraö i
fyrri hálfleik, var hann fjörugur
og mjög góð tækifæri beggja.
Flest þeirra áttu FH-ingar, sem
sýndu oft á tiöum ágæta knatt-
spyrnu. Þróttarar börðust hins
vegar vel og hættulegasta færið
kom frá þeim skömmu fyrir leik-
hlé, þegar þrumuskot glumdi á
stöng FH-marksins innanveröri,
en þaðan hrökk boltinn út i teig-
inn.
FH-ingar tóku hins vegar öll
völd i sinar hendur I siöari hálf-
led^o^Jáva^fti^nnað^mátti^
Austfirðingarnir taka á honum
stóra sinum til að koma i veg fyrir
mark.. Rétt fyrir miöjan hálfleik-
inn urðu þeir þó að sjá á eftir bolt-
anum I netiö. Pálmi Jónsson náði
að gefa góða sendingu fyrir
markið frá endamarkaiinu, og
Valur Valsson, sem var vel stað-
settur fyrir miðju marki, skallaði
laglega I netið. Þróttarar réttu
örlitið úr kútnum rétt undir leiks-
lok, en allt kom fyrir ekki, FH-
ingar stóðu upp sem sigurveg-
arar, þegar hinn ágæti dómari
leiksins, Ingi Jónsson, flautaöi til
leiksloka.
Bæöi liöin börðust vel i þessum
leik eins og titt er I bikarleikjum,
og þjálfarar liðanna, gömlu
félagarnirúr Fram, Ásgeir Elias-
son, FH og Sigurbergur Sigsteins-
son, Þrótti, drifu samherja slna
áfram með góöum leik.
____________________________G.Sv.
1 rll |si
1 dl ld
A þessari myndasyrpu Friðþjófs ljósmyndara sést Gústaf Björnsson
skora fyrsta mark Fram Ileiknum á móti Vikingi igærkvöldi.
Spjöldln voru
óspart notuð
- pegar ÍBV sló ÍBK út úr blkarkeppnínni
Mikil baráttuleikur var háður i
Keflavik i gærkvöldi, en þar átt-
ust við IBK og IBV i 8-liða úrslit-
um bikarkeppninnar. Leiknum
lauk með sigri Vestmannaeyinga
3-2, eftir aö staðan hafði veriö 1-11
hálfleik.
Fyrsta mark leiksins kom á 12.
min. Keflvikingar fengu auka-
spyrnu, sem ölafur Júliusson tók
og sendi boltann beint til Björns
Ingólfssonar, sem afgreiddi hann
snyrtilega i netið.
Hilmari Hjálmarssyni urðu á
mikil mistök á 23. min. er hann
ætlaði að senda boltann aftur til
Jóns örvars, en sendingin var of
laus, og Sigurlás Þorleifsson, sem
fylgdi af harðfylgi, tókst að jafna
metin.
Eftir markið sóttu Keflvikingar
mjög stift en þeim gekk erfiðlega
að eiga við Pál Pálmason I mark-
inu, hann hreinlega lokaöi þvi
með stórleik, en á 52. min. siðari
hálfleiks tókst Keflvikingum að
taka forystuna.
Ragnar Margeirsson lék þá
skemmtilega á tvo varnarmenn
og skoraði úr mjög þröngri stööu.
Stuttu siðar komst Hilmar
Hjálmarsson einn innfyrir vörn
Vestmanneyinganna, en Páll
bjargaöi mjög vel með úthlaupi.
En Vestmanneyingar voru ekki
búnir aö segja siðasta orðið. A 68.
min. var dæmd hendi á Jón
örvar, markvörð Keflvikinga og
Ómar Jóhannsson skoraöi beint
úr aukaspyrnunni. Þetta jöfn-
unarmark hleypti miklu lifi i leik-
inn og þá færöist einnig mikil
harka I hann og varð dómarinn að
gripa til gulu spjaldanna og er
þaö dugði ekki, þá var gripiö til
þess rauöa.
Þóröur Hallgrimsson, fyrirliði
Vestmanneyjaliðsins, var búinn
aö fá þaö gula og er hann braut
mjög gróflega á einum Keflvik-
ingnum, þá var hann rekinn af
leikvelli.
Eftir þetta þá „pökkuðu” Vest-
manneyingar i vörn og reyndu
skyndisóknir og úr einni þeirra
tókst þeim að skora sigurmarkiö
og var Sigurlás þar að verki.
Hann fékk stungusendingu inn-
fyrir vörn Keflavikur og skaut, en
Jón örvar varði en hélt ekki bolt-
anum, sem fór til Sigurlásar og
hann átti nú ekki I vandræðum
með að skora.
Páll Pálmason var hetja Vest-
manneyinganna I þessum leik.
Hann varði oft á ótrúlegan hátt.
Hjá Keflvlkingunum var Kári
Gunnlaugsson besti maðurinn, si-
vaxandi leikmaður og lék nú sinn
besta leik.
Sig.St/röp—.
verðlaunin:
iSovét-
imenn
> í sér-
i flokki
IÞegar keppni er lokið i 34
greinum á Olympluleikunum i
Closkvu, er staðan i
aráttunni um gullpeningana
tröin þannig, að sovéska
veitin hefur tekið afgerandi
Sorustu, hefur hlotiö nákvæm-
ega helming allra gullpen-
Hinganna eöa 17 talsins. Pi
hafa Sovétmenn einnig hlotið
10 silfurveröiaun og 5 brons.
A-Þýskaland kemur i næsta
sæti meö 6 gull, 13 silfur og 7
brons, en aörar þjóöir, sem
hafa hlotiö gullverölaun, eru
Ungverjaland 3, Sviþjóö 2,
Búlgaria 2, Bretland 1, Kúba
1, ítalia 1 og Grikkland 1.
I
Lyftingar:
IVö heims-
metog
eitt gull
Búlgarinn Yanko Roussev
setti tvö heimsmet i lyftingum
i 67,5 kg flokknum i gær, um
leiö og hann tryggöi sér
ólymplugullið örugglega.
Hann lyfti 195 kg i jafnhött
un og bætti eldra met sitt um 5
kg, og I samanlögöum árangri
úr snörun og jafnhöttun var
hann meö 342,5 kg, sem er
einnig 5 kg betra en eldra
heimsmetið, sem hann átti
reyndar sjálfur.
gk —
Kdrfuknattleikur:
Svíarnlr
tapa enn
Sviar tapa enn i körfuknatt
leikskeppninni I Moskvu, töp
uöu I gær fyrir Ástraliu 55:6'
og eru enn án stigs I keppn
inni.
Sovétmenn eru hinsvegar
taplausir, unnu Tékka i gær
auðveldlega eins og alla aöra
andstæðinga sina meö 99:82
önnur úrslit uröu þau aö Júgó
slavar unnu Spánverja 95:91
en bæöi liöin eru komin í milli-
riöil, og ttalir unnu Kúbumenn
79:72.
gk-
;1