Vísir - 24.07.1980, Blaðsíða 14
vism
Fimmtudagur 24. júll 1980
Eins og endurfluttar stólræður
„Allt fram streymir
endalaust — ár og dagar liöa.”
Mér skilst, aö þeir stundi
samæfingu á þessu ágæta
islenska ljóöi á rlkisstjórnar-
fundum, «en annaö gera' þeir
vist ekki.
„Hvar skyldiannars þetta allt
saman enda?” spyrja borgar-
arnir um þessae mundir, sem
ekki hafa slegiö vandamálunum
upp I kæruleysishjal.
Er ekki ráöamönnum ljóst,
hverslags endemis vitleysa
ýmsir þættir i stjórnkerfinu
eru? Hversvegna gera þeir
ekkert?
Visitölufjölskyldan er sett hér
i Reykjavlk og þess vegna
veröur aö reka Hitaveitu
Reykjavikur meö bullandi tapi
til þess aö hún hækki ekki hita-
veitugjöld,sem kæmi þá niöur á
visitölufjölskyldunni og þvi
framfærsluvisitölunni. Frekar
er almenningur látinn lifa I
blekkingum, svo aö skriöan fari
ekki af staö.
Sama er um brauöin. Þau sér-
stöku brauö sem sett eru I visi-
töluna, má ekki hækka og er þvi
sama uppi á teningnum þar og
hjá hitaveitunni. Veröiö er
blekking, sem enginn stendur
undir. önnur brauö eru mun
dýrari, liklega meö rétt verö —
en almenningur hefur ekki efni
á aö kaupa þau, þvl aö fram-
færsluvisitalan hækkar ekki i
hlutfalli viö almennan matar-
kostnaö.
Þá er þaö blessaö kindakjötiö.
Mér skilst, aö þaö áé á algjöru
botnverihjá kaupmönnum, sem
er svo bent á aö selja bara
annað kjöt dýrara. Svo hrópa
fyrirmenn þessa þjóðfélags, aö
það veröi aö gera eitthvaö fyrir
svina-og kjúklingabændur um
leiö og þeir auka fóöurgjald á
þá.
Þaö er ljóst aö hér minntist ég
aöeins á þætti, sem viö höfum
nýlega heyrtaf, en þaö er einnig
ljóst aö þessi visitölu fjölskylda
hlýtur aö tilheyra fjölskyldu,
sem liföi á kreppuárunum viö
fábreytta kjötfæöu, vatn og
brauö.
Tugþúsundir bila eru I landinu
og sifellt hækkándi bensinverö,
-þökk sé sköttunum, - gerir þaö
aö verkum, aö menn geta ekki
leyft sér ökuferö út úr bænum
um helgar. Allur hinn gifurlegi
kostnaöur, sem fylgir einka-
bilismanum er hvergi nefndur
hjá þessum háu herrum, sem
leika sér aö þvi aö blekkja sjálfa
sig I kokteilboðum og samæfing-
um I kjólfatnaöi vegna þess, aö
þeir þora ekki aö takast á viö
vandann eins og hann er og ger-
breyta stefnunni. Þetta eru svo
sem alltaf sömu mennirnir, sem
stjórna. Einhvern tima var
mikiö grin gert aö presti fyrir
noröan, sem leitaöi i koffortinu
sinu aö gömu stólræöunum og
endurflutti meö vissu millibili.
Mér sýnist full ástæöa til þess aö
væna þessa háu herra um það
sama — en þaö er bara ekkert til
þess aö hlæja aö.
Þaö er kominn timi fyrir nýtt
blóö inn I þetta bákn, sem
streymir fram siaukiö og aö þvi
er viröist endalaust. Æöarnar
eru I góöu lagi og heilsuvon er
mikil, ef stjórnmálamenn og af-
ætuhópar þeirra geta brotist
undan viðjum klikuskapar og
gengiö til verka af dugnaöi og
skynsemi. Þá þýöir ekkert
froöusnakk um dug og djörfung,
visku og drenglyndi — nú þurf-
um viöhæfa menn.
Skúli Guömundsson.
„Þetta eru svo alltaf sömu mennirnir sem stjórna”, segir bréfritari.
Skoöanakðnnun
M
um bjórinn!
99
"Öllari hringdi: efnir Visir ekki til viötækrar
„Hvers vegna i ósköpunum skoöanakönnunar um þaö hvort
leyfa skuli sölu á almennilegum
bjór á Islandi? Blaöiö sér
ástæöu til aö kosta stórfé i aö
komast aö þvi hvaöa pólitikus sé
vinsælastur, hversu margir eru
hlynntir rikisstjórninni og þar
fram eftir götunum, en lætur sig
engu varöa mannréttindamál á
borö viö bjórinn. Ég er ekki I
nokkrum vafa um aö yfirgnæf-
andi meirihluti Islendinga vill
fá aö ráöa þvi sjálfur hvort
kneifa skal öl eöa ekki, og slik
niöurstaöa úr skoöanakönnun
myndi styrkja baráttuna fyrir
þessu réttlætismáli.
Þaö má lika skjóta þvi aö rit-
stjórum VIsis, aö þaö er til litils
að gaspra um frelsi einstakl-
ingsins og sjálfsákvöröunarrétt
borgaranna i ritstjórnargrein-
um, ef menn þora siðan ekki, af
ótta viö nokkur kvenfélög og
Halldór bannpostula á Kirkju-
bóli, aö taka afstööu i „prinsipp-
máli” sem þessu.
Giæstir
slgrar
,/ Knattspyrnufan"
skrifar:
Einhver furöufugl skrifaöi
lesandabréf I þennan dálk, á
dögunum og geröi þaö aö tillögu
sinni aö viö legöum niöur Is-
lenska landsliöiö I knattspyrnu,
hvorki meira né minna.
Ekki veit ég hvort þessi
maöur er meö „allt I lagi á efri
hæöinni” þvi hann fullyrðir aö
landsliöiö veröi sér ávallt til
skammar i keppni. Þessum
furöufugli er hægt aö benda á
marga glæsta sigra okkar
manna i landsleik, og er
skemmst aö minnast sigursins
yfir A-Þjóðverjunum hérna um
áriö.
sandkorn
Jól í mlðrl vlku
I nýjasta hefti blaösins Hús
og hlbýli er margt efni létt,
lipurt og giska gott. Meöai
annars fjailar Auöur nokkur
Haralds, sem aldrei hefur ver-
iö minnst á áöur, á nýstár-
legan hátt um matarupp-
skriftir. Henni farast svo
orö: — Menn hafa oft falliö
fram og tilbeöið brúnuöu
kartöflurnar minar, og þótt
þaö sé oft óviðkunnanlegt aö
hafa fólk flatmagandi á eld-
húsgólfinu i miöri máltlö, þá
fylgir levndarmáliö hér: Maö-
ur tekur þrjár mjög vel rúnn-
aöar matskeiöar af sirópi,
kemur þeim fyrir á heitri
pönnu ásamt tveim matskeiö-
um af smjöri, hellir niöur-
skornum kartöflum úti, stráir
salti yfir og veltir þessum fit-
andi ósóma vel. Þetta er eins
og jól I miöri viku. —
Fer vai-
björn ekkl?
Nokkur áhöld munu nú vera
um þaö hvort margfaidur
heimsmeistari öldunga, Val-
björn Þorláksson, komist á
Evrópumeistarakeppnina fár.
Ástæöan er sögö einhver mis-
skilningur milli KR, félags
Valbjörns. og Frjálsiþrótta-
sambands isiands um þátt-
tökutilkynningu. KR mun hafa
ætlaö FRt aö tilkynna þátttök-
una, en FRÍ taldi KR eiga aö
sjá um þaö. Nú er veriö aö
vinna I þvf aö koma þessu máli
f höfn, þrátt fyrir aö frestur sé
útrunninn. Lagiegt maöur, ef
sjálfur heim sm eista rinn
kæmist ekki vegna misskiln-
ings!
SunnudagsölaD
Þióðviljans
Nú mun afráðiö ,aö Guöjón
Friöriksson blaöamaöur á
Þjóöviljanum taki viö svo-
nefndu sunnudagsblaöi þess
blaðs. Þórunn Siguröardóttir
hefur séö um biaöiö i sumar,
en ekki var gert ráö fyrir frek-
ara framhaldi á þvi enda hún
bara I sumarvinnu hjá Þjóö-
viljanum. Guöjón er penni
ágætur og veröur gaman aö
fylgjast meö blaöinu undir
hans handleiöslu.
Þess má annars geta, aö
sunnudagsblaöiö kemur út á
laugardögum.