Vísir - 28.07.1980, Blaðsíða 1

Vísir - 28.07.1980, Blaðsíða 1
ASl og VMSS: Fundur í dag Samningafundum ASI og VMSS veröur fram haldiö i dag klukkan 16.00. I samtali viö Visi fyrir helgi, sagöi Hallgrimur Sigurösson for- maöur Vinnumálasambandsins aö hann teldi tvo fundi, eftir fund- inn I dag, nægja til þess aö úr þvi yröi skoriö hvort af samningum yröi. Asmundur Stefánsson taldi hinsvegar of marga enda lausa, til þess aö hægt væri aö segja nokkuö um þaö mál. —AS Akureyringar fá skattinn á morgun Skattaálagningu er nú um þaö bil lokiö hjá Skattstofu Noröur- landsumbæmis eystra og veröa á- lagningarseölar sendir út þriöju- dag og miövikudag, að sögn Halls Sigurbjörnssonar, skattstjóra. Gögnin, sem hafa verið i tölvu- vinnslu I Reykjavik, eru komin þaðan, þannig aö ekkert er þvi til fyrirstööu aö seölarnir veröi sendir út. Skattskráin veröur hins vegar ekki lögö fram i byrjun á- gúst, eins og venja hefur veriö, heldur i haust þegar búiö er aö úr- skuröa kærur, sagði Haíiur Sigur- björnsson. Kærufrestur er einn mánuður frá þvi aö álagningu lýkur og hefur skattstjóri siðan tvo mánuöi til aö úrskuröa kærur. Má þvi bú- ast viö, aö um þrir mánuðir liöi, þar til skattskráin verður lögö fram og birtur veröur listi yfir hæstu greiöendur. —KÞ Rannsóknarlögreglan kannar skemmamar á Hellnum: Hundrað.stöplar gralnlr i skurð Rannsóknarlögreglu- menn frá Rannsóknar- lögreglu ríkisins eru nú á leiö vestur að Hellnum til að rannsaka dularfulit hvarf 100 stöpla undir sumarbústaði Landsam- bands fslenskra útvegs- manna/ en eins og fram hefur komið i Vísi, þá hurfu þessir stöplar i síð- ustu viku. Rikharöur Másson fulltrúi sýslumanns i Stykkishólmi, sagöi aö áreiö heföi veriö á staöinn á föstudag og virtist sem til verksins heföu veriö not- aöar stórvirkar vinnuvélar. Rikharöur sagöist álita aö þaö heföi veriö margra tima verk aö draga stöplana upp. Hann kvaö nokkrar yfirheyrslur hafa fariö fram yfir bændum og búaliðien ekkert komiö i ljós enn hverjir væru valdir aö verknaöinum. Stöplarnir 100 eru meö öllu horfnir, en rutt hefur veriö ofan i skurö sem þarna var og geta menn sér þess til aö þar muni þeir geymdir. _óm Þaö hvilir rósemd yfir þessu fallega pari þar sem þau njóta góöa veöursins i garöinum í Laugardal i gær. Hvaö skyldu þau annars vera aö hugsa? (Vfsism.GVA). „NIÐURTALNINGIN ER RULL” - SEGIR LÚDVÍK „Engar hókus-pókus aðferöir duga gegn verðbólgu. Niðurtaln- ing, sem framkvæmd er meö hækkun vaxta, og hækkun á hækkun ofan, er bull”, segir Lúö- vik Jósepsson, formaður Alþýöu- bandalagsins i grein i Þjóðviljan- um á laugardaginn. Lúövik ræöst harkalega gegn stefnu rikisstjórnarinnar i vaxta- málum, kjaramálum, sjávarút- vegsmálum og niöurtalningu, sem er efnahagsstefna rikis- stjórnarinnar. Hann segir m.a.: „Þeir hag- fræöingar og svonefndir sérfræð- ingar, sem ráöiö hafa stefnunni um skeiö i efnahagsmálum, hafa haft rangt fyrir sér og viröast bera iitinn skilning á þarfir undir- stöðu framleiöslulifsins”. Eftir aö hafa talaö um „skýr- ingar ýmissa Ihalds- og aftur- haldsmanna um aö orsakir verö- bólgunnar liggi i of háu kaupi og sifelldum kauphækkunum”, bein- ir hann spjótum sinum aö hinum ogsegir: „Og svo koma þeir.sem betur ættu að vita og gjarnan titla sig doktora eöa sérfræöinga og tala um of mikiö peningamagn i umferö, um neikvæöa raunvexti, um ofþenslu eöa annað i þeim dúr. I beinu framhaldi af rugli af þessu tagi koma svo tiliögur um hækkun vaxta, um samdrátt á lánum, um niðurskurð I landbún- aöi, um bann viö endurnýjun fiskiskipta, um stöövun fiskiflot- ans og stöövun á þvi aö laun hækki til samræmis við hækkandi verölag”. Oll þessi atriöi, og mörg fleiri i stefnu rikisstjórnarinnar telur Lúövik öfugmæli. Alvarlegt svífflugslys nálægt Sandskeíði: Reyndl nauðlend- ingu en fiugan skaii tn jarðar Svifflugvél hrapaöi viö Sand- skeiö um kl. 14.30 á laugardag. Slysiö mun hafa oröið meö þeim hætti, aö vélin lenti i svonefndu „gati” og fékk ekki byr undir vængina. Viö þaö stakkst vélin niöur og geröi flugmaöurinn þá tilraun til lendingar á gamla Suöurlandsveginum skammt frá veginum upp i Jósefsdal. Vélin brotlenti þar og slasaðist flug- maöurinn allmikið. Aö sögn Slysavaröstofunnar er hann illa brotinn á báöum fótum, mikið skorinn i andliti og hrygg- brotinn. Hann hefur þó ekki lam- ast og var viö sæmilega liöan i gærkvöldi. Aögeröin sem gerö var á flugmanninum á Slysavarö- stofunni tók 10 til 12 tima og stóö langt fram á nótt. Eins og Visir skýröi frá s.l. þriöjudag.þá varö annaö svifflug- slys s.l. mánudag og slasaöist flugmaöurinn þar einnig mjög mikiö. Hann mun hafa lamast litillega en er á batavegi. —ÓM I

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.