Vísir - 26.08.1980, Síða 9

Vísir - 26.08.1980, Síða 9
VÍSIR Þriöjudagur 26. ágúst 1980 I fróðlegri blaöagrein á dög- unum greindi Jóhanna Kristjónsdóttir, blaðamaður, einn af máttarstólpum þjóð- félagsins, frá þeim sköttum sem henni er ætlað að bera f ár. Ef ég man rétt, fékk hún 36 þúsund kronur útborgaðar um siðustu mánaðamót, eftir að haldið hafði verið eftir af launum hennar til greiðslu á sköttum. Og þá mánuði sem eftir eru árs- ins, verða teknar af launum hennar um 400 þúsund krónur á mánuði. Jóhanna er ein af þeim.sem er svo heppin, eða ættum viö frekar að segja óheppin, að vinnuveitandi hennar heldur eftir af launum hennar fyrir sköttum. Og hún er lika svo lán- söm, að laun hennar duga rétt fyrir sköttum. Hefði eftirvinna hennar Jóhönnu verið lltið eitt minni f júlimánuði, hefði hún vel getað lent I þvi sama og fjöl- margir aðrir, hvort sem þeir vinna hjá öðrum eða starfa sjálfstætt, að geta ekki alltaf greitt skattana sfna á réttum tfma. Dráttarvaxtatölur. Og þá er ég kominn að þvi sem ég vildi vekja athygli á með þessum linum, en það eru ákvæði skattalaga um dráttar- vaxtatökuaf skattskuldum. Þau eru að dómi undirritaðs algjör óhæfa og alþingismönnum til * vansæmdar. Ákvæði hér að lút- andi er bæöi að finna i lögum nr. 40/1978 um tekjuskatt og eignarskatt og f lögum nr. 8/1972 um tekjustofna sveitar- félaga (útsvar). 1 báðum þessum lögum segir, að van- greiðsla skatta að hluta, valdi þvi að skattar gjaldandans falli I eindaga 15 dögum eftir gjald- dagann, þó ekki fyrr en 15. næsta mánuð eftir að álagningu er lokið. Sé skattur ekki greiddur innan mánaðar frá gjalddaga, skal greiða dráttar- vexti af þvf sem ógreitt er, talið frá og með gjalddaga. Hvað merkir þetta i raun og veru? Tökum dæmi af Jóhönnu Kristjónsdóttur. Skv. upplýs- ingum hennar sjálfrar, bar henni að greiða i opinber gjöld kr. 661.000 þann 1. ágúst og siðan 400.000 þann l. september, 1. október, 1. nóvember og 1. desember. Setjum nú sem svo, að launin hennar Jóhönnu fyrir júlimánuð hefðu ekki dugað alveg fyrir sköttum, þau hefðu t.d. numið kr. 600.000 og að sjálfsögðu öll verið látin ganga upp i opinber gjöld. Þótt aðeins hefði vantað 61 þúsund krónur upp á að hún stæði i skilum með ágústgreiðsluna, hefðu skv. fyrrgreindum lögum, allar eftirstöðvar skattanna, eða kr. 1.600.000 gjaldfallið þann 15. ágúst. (Þessa dagana eru að birtast f dagblöðum lögtaksúrskurðir vegna slikra gjaldfellinga). Er þetta verjandi? Væri Jóhanna ekki búin að greiða þessa fjárhæð alla þann 15. september n.k. yrðu reikn- aðir og innheimtir dráttarvextir af þeim hluta allrar f járhæðar- innar, sem ógreiddur væri á hverjum tlma, allt frá 15. ágúst og þar til öll skuldin heföi verið greidd. Og dráttarvextir af 61.000 krónum, sem ógreiddar voru af ágústgreiðslunni reikn- ast frá 1. ágúst.væri sú upphæð ekki greidd fyrir 1. september. Jafnvel þótt haldið væri eftir af ágústlaunum Jóhönnu, bæði fyrir eftirstöðvum ágústgreiðsl- unnar og þvi sem greiða ber 1. september (61 þús. og 410 þús.kr.), þannig að Jóhanna væri þann 1. september i raun búin að gera skil á því, sem henni bar þá að vera búin að greiöa, skv. álagningunni I júli, breytir þaö ekki þvi, að áfram myndu reiknast dráttarvextir af kr. 1.200.000 þar tilsú skuldhefði verið greidd niður og sfðan jafnan af þvi, sem eftir stæði ógreitt af þeirri fjárhæð. Dráttarvextir fyrir hvern byrjaðan mánuð eru nú 4.75% eða kr. 57 þúsund á mánuði af kr. 1.200.000. Ef við gefum okkur aö Jóhönnu hefði vantað 61 þús und upp á að greiða ágúst- greiösluna fyrir 15. ágúst, en myndi sfðan greiða hana plús HARDNESKJULEG DRAfTARVAXTATAKA SKATTYFIRVALDA septembergreiðsluna af launum sinum f ágúst og svo 400 þús. i október, nóvember og desem- ber, þ.e. eins og gert var ráð fyrir skv. álagningarseðli, 'neöonmals Baldur Guðlaugssori/ héraðsdómslögmaður, bendir á i þessari f róðlegu grein hvernig löggjafinn níðist á skattgreiðand- anum og kallar það vald- níðslu af verstu gerð. myndu dráttarvaxtareglur þær. sem nú hefur verið lýst, engu að siður gera þaö aö verkum aö hún þyrfti fram til næstu ára- móta aö greiða aukalega hvorki meira né minna en kr. 171 þús- und I dráttarvexti. Mánaðar- dráttur á greiðslu skatta að fjárhæð kr. 61 þúsud myndi sem sé valda þvi, að Jóhanna Krist- jónsdóttir eða hver, sem lfkt væri ástatt um, þyrfti að greiða 171 þúsund krónur i dráttarvexti fram til næstu áramóta. Er þetta verjandi? Tómlæti löggjafans. A sviði fjármunaréttarins er stundum um það að ræöa, að skuld sem greiða ber með afborgunum á lengri tima, telst öll I gjalddaga fallin, ef ein greiðsla lendir f vanskilum. Þetta gildir t.d. iðulega um skuldabréf. Hins vegar er nær undantekningarlaust, að skuldareigendur samþykki að falla frá gjaldfellingu allrar skuldarinnar, ef skuldari greið- ir þann hluta hennar, sem einn væri gjaldfallinn, ef staöið hefði verið f skilum, ásamt áföllnum dráttarvöxtum. En löggjafinn islenzki sér ekki ástæöu til aö skattgreiðendum séu gefin nein grið. Lendi þeir i minnstu vanskilum, eftir að álagningu er lokið, eru allir álagðir en ógreiddir skattar gjaldfelldir og þá verður ekki aftur snúið. Menn verða þá að greiða háa dráttarvexti af öllum eftirstöðvum, þótt þeir taki sig á og greiði þær greiðslur, sem þeir áttu skv. álagningu að vera búnir að greiða. Þessi óbilgirni lagasetningar- valdsins er þeim mun furðulegri þegar haft er I huga, aö I byrjun þessa árs urðu nokkrar umræður á Alþingi um dráttar- vaxtatöku hins opinbera af skattskuldum. t kjölfar þeirrar umræðna var gerð breyting á frumvarpi til laga um greiöslu opinberra gjalda fyrri hluta ársins 1980, sem einmitt fói I sér aö dráttarvextir af gjaldföllnum en ógreiddum fyrirframgreiðslum til rikis- sjóðs á þessu ári,reiknuðust ein- vöröungu af þvf, sem gjaldfallið var en ekki af öllum ógreiddum álögðum eftirstöðvum. Þetta var þýðingarmikil, þörf og sanngjörn réttarbót fyrir skatt- greiðendur. En viti menn. Að- eins vikum eftir samþykkt þessa frumvarps, afgreiddi Al- þingi breytingar, bæði á lögum um tekjuskatt og eignarskatt og lögum um tekjuskatt og eignar- skatt og lögum um útsvar, sem innihéldu gagnstæð ákvæði, þ.e.a.s. okurvaxtastefnu þá, sem lýst hefur verið hér að framan. Valdníðsla. Þvi miður virðist stundumsvo sem þingmenn gæti þess lítt, aö samræmi sé i ákvöröunum sinum frá einum tima til ann- ars, eða hugleiöi nægjanlega inntak og afleiðingar þess sem þeir samþykkja. Það er ekki flókið mál, eða margbrotið að gera breytingar á skattalögum sem leiddu til þess að greiða bæri dráttarvexti af þeim opin- beru gjöldum sem á hverjum tima væru gjaldfallin en ógreidd. Slik viðurlög eru eðli- leg og sjálfsögð. En núverandi tilhögun, þ.e. gjaldfelling allra álagöra skatta og taka dráttar- vaxta af allri upphæöinni við minnstu vanskil, er valdniðsla af verstu gerð, er ekkert á skylt við deilur um skattprósentur og skattstiga. Það er almennt réttlætismál, að á þessu verði gerðar breytingar þegar á næsta þingi.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.