Vísir - 27.08.1980, Síða 1

Vísir - 27.08.1980, Síða 1
1 I i I I I I B I ■ I B B fl B B B J VERSLUNARSTJÚRI FRÍ- HAFNARINNAR AKÆRÐUR Meðai ákæruatríða að álengi hali verið selt á of náu verðí og vörurýrnun falin með aukagjalúi á vodkaflöskur Visir hefur nú loks fengið hjá lögreglustjóra- embættinu á Keflavíkurflugvelii upplýsingar um þau atriði, sem felast i ákæru saksóknara rikisins i Frihafnarmálinu. Kemur þar glöggiega fram, að öll þau atriði, sem komu fram i skrifum blaðsins á sinum tima, hafa verið staðfest i rannsókninni. Akæran i Frihafnarmálinu hefur nú formlega veriö birt en hún er gefin út á Ólaf A. Jóns- son, verslunarstjóra Frihafnar- innar. Akæran er i sex liðum og er byggð á 139. og 141. grein hegningarlaganna, sem kveða á um misnotkun á stöðu og stór- fellda eða itrekaða vanrækslu eða hirðuleysi i starfi. 1 ákæruliðunum er m.a. kveð- ið á um, að starfsfólk hafi neytt af vörubirgðum, að áfengi og sælgæti hafi verið óverðmerkt og selt á hærra verði en verð- skrá sagði til um. Þá er i ákæru- liðum nefnt, að verðskrá hafi ekki verið tiítæk öllu starfsfólki og viðskiptamönnum, svo og óeðlilega vörurýrnun, sem m.a. var falin með þvi að leggja aukagjald á vodka. Það var Benedikt Gröndal, þáverandi utanrikisráðherra, sem fyrirskipaði rannsókn Fri- hafnarmálsins i nóvember árið 1978. Var sú ákvörðun ráðherr- ans tekin eftir að Visir hafði um skeið birt rökstuddar upp- lýsingar um, að misferli ætti sér stað i Frihöfninni. Við yfirheyrslur yfir tugum manna komu fram játningar um, að upplysingar Visis hefðu við rök að styðjast, en það hefur nú verið opinberlega staðfest meö ákærunni á hendur versl- unarstjóra fyrirtækisins. —Sv.G. Lausn í skólastjóra- deilunni í Grundarfírði Orn veröur áfram - en kona hans vlkur úr yfir- kennarastöðunni „Það er fagnaöarefni.að þessu lauk svona,” sagði Ingvar Gisla- son menntamálaráðherra i morg- un viðVisi um skólastjóradeiluna i Grundarfirði, sem til lykta var leidd I gær. Málalok urðu á þann veg, aö bæöi skólastjórinn, Orn Forberg, og óánægöu kennararn- irmunustarfa samani vetur. örn verður áfram skólastjóri og einn úr kennarahópnum, Birgir Guömundsson, verður yfirkenn- ari. GuðrUn Agústa Guðmunds- dóttir, eiginkona Arnar, sem gegnt hefur starfi yfirkennara, lætur hins vegar af þeim starfa og er það i samræmi við tillögu hreppsnefndar Eyrarhrepps til lausnar deilunni. Frá þeirri til- lögu skýrði Visir frá á mánudag. I samkomulaginu sem gert var I gær segir jafnframt að starfs- hættir siðastliðins vetrar, er Orn var I ársleyfi, muni setja mark sitt á skólastarfið á komandi vetri. Skólastjóri og kennarar á- kváöu i gær að láta ekkert hafa eftir sér um samkomulagið, en visuöu á fréttatilkynningu hreppsnefndar. Þar er kennurum m.a. þakkað sérstaklega að hafa látið eigin hagsmuni vikja fyrir hagsmunum nemenda og skólans. „Ég læt ekki skýringar þeirra duga ef þær verða á þann veg að mér liki þær ekki,” sagði Ingvar Gislason menntamálaráöherra i morgun, en i Grundarfiröi hafa ymsir verið óánægðir með þátt menntamálaráðherra i málinu. „Ég hef hins vegar enga ástæðu t’il þess að jagast við þessa menn og hvort þeir fara að metast eitt- hvað um þaö viö mig. hvernig lausnin var fundin, það skiptir engu máli fyrir mig.” Lesiarmenn vio utskipun neysins logou niour vinnu I gær en exki synlst verkfallsfólkiðf slæmu skapi af þeim sökum. Mynd G.S. Akureyri. 500 lonn af hevi lestuð á Akureyri: „EKKI KOSTNAÐAR- VERB FVRIR HEYKT' „Ef alít gengur að óskum, þá ljúkum við útskipun á heyinu i kvöld”, sagði Ævarr Hjartarson, búnaðarráðunautur á Akureyri, i samtali við VIsi, en siðan á mánu- dag hefur Mælifell lestað hey frá eyfirskum bændum á Akureyri, sem sent hefur verið til Noregs. „Þetta verða 500 tonn, sem Mælifelliö tekur,” sagði Ævarr. „Norðmennirnir borga um 140 krónur fyrir kilóiö, en ekki er endanlega séö fyrir, hvað eftir verður til bóndans, þegar flutn- ingsgjöld hafa veriö greidd. Við vonumst þó til, að það verði ekki undir 80 til 85 krónum á kilóið, sem er nærri áætluðu kostnaöar- verði á heyinu heima á túni,” sagöi Ævarr. Bændumir verða sjálfir aö greiða kostnaðinn viö aö koma heyinu aö skipshliö. Hefur þaö oröið mörgum dýrara en ætlað var, þar sem heyflutningabflarnir hafa þurft aö biða lengi eftir losun. „Við fáum ekki kostnaðar- verð fyrir heyið, þar sem flutn- ingarnir veröa okkur dýrir,” sagði einn bóndinn, sem Visir hitti á bryggjunni i gær. Lestarmenn við útskipunina fóru I verkfall I gær. Vildu þeir fá á hreint, hvert væri „premlu- álag” við lestunina, en það er nokkurs konar uppmæling. Var þeim að lokum lofað fimmtiu pró sent álagi á timakaupiö á trygg- ingu, þar til endanlegt uppgjör vegaa heyflutninganna liggur fyrir. GS Akureyri/ — KÞ.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.