Vísir - 27.08.1980, Blaðsíða 1
1
I
i
I
I
I
I
B
I
■
I
B
B
fl
B
B
B
J
VERSLUNARSTJÚRI FRÍ-
HAFNARINNAR AKÆRÐUR
Meðai ákæruatríða að álengi hali verið selt á of náu verðí og vörurýrnun falin með aukagjalúi á vodkaflöskur
Visir hefur nú loks fengið hjá lögreglustjóra-
embættinu á Keflavíkurflugvelii upplýsingar um
þau atriði, sem felast i ákæru saksóknara rikisins
i Frihafnarmálinu.
Kemur þar glöggiega fram, að öll þau atriði,
sem komu fram i skrifum blaðsins á sinum tima,
hafa verið staðfest i rannsókninni.
Akæran i Frihafnarmálinu
hefur nú formlega veriö birt en
hún er gefin út á Ólaf A. Jóns-
son, verslunarstjóra Frihafnar-
innar. Akæran er i sex liðum og
er byggð á 139. og 141. grein
hegningarlaganna, sem kveða á
um misnotkun á stöðu og stór-
fellda eða itrekaða vanrækslu
eða hirðuleysi i starfi.
1 ákæruliðunum er m.a. kveð-
ið á um, að starfsfólk hafi neytt
af vörubirgðum, að áfengi og
sælgæti hafi verið óverðmerkt
og selt á hærra verði en verð-
skrá sagði til um. Þá er i ákæru-
liðum nefnt, að verðskrá hafi
ekki verið tiítæk öllu starfsfólki
og viðskiptamönnum, svo og
óeðlilega vörurýrnun, sem m.a.
var falin með þvi að leggja
aukagjald á vodka.
Það var Benedikt Gröndal,
þáverandi utanrikisráðherra,
sem fyrirskipaði rannsókn Fri-
hafnarmálsins i nóvember árið
1978. Var sú ákvörðun ráðherr-
ans tekin eftir að Visir hafði um
skeið birt rökstuddar upp-
lýsingar um, að misferli ætti sér
stað i Frihöfninni.
Við yfirheyrslur yfir tugum
manna komu fram játningar
um, að upplysingar Visis hefðu
við rök að styðjast, en það hefur
nú verið opinberlega staðfest
meö ákærunni á hendur versl-
unarstjóra fyrirtækisins.
—Sv.G.
Lausn í skólastjóra-
deilunni í Grundarfírði
Orn
veröur
áfram
- en kona hans
vlkur úr yfir-
kennarastöðunni
„Það er fagnaöarefni.að þessu
lauk svona,” sagði Ingvar Gisla-
son menntamálaráðherra i morg-
un viðVisi um skólastjóradeiluna
i Grundarfirði, sem til lykta var
leidd I gær. Málalok urðu á þann
veg, aö bæöi skólastjórinn, Orn
Forberg, og óánægöu kennararn-
irmunustarfa samani vetur. örn
verður áfram skólastjóri og einn
úr kennarahópnum, Birgir
Guömundsson, verður yfirkenn-
ari. GuðrUn Agústa Guðmunds-
dóttir, eiginkona Arnar, sem
gegnt hefur starfi yfirkennara,
lætur hins vegar af þeim starfa og
er það i samræmi við tillögu
hreppsnefndar Eyrarhrepps til
lausnar deilunni. Frá þeirri til-
lögu skýrði Visir frá á mánudag.
I samkomulaginu sem gert var
I gær segir jafnframt að starfs-
hættir siðastliðins vetrar, er Orn
var I ársleyfi, muni setja mark
sitt á skólastarfið á komandi
vetri. Skólastjóri og kennarar á-
kváöu i gær að láta ekkert hafa
eftir sér um samkomulagið, en
visuöu á fréttatilkynningu
hreppsnefndar. Þar er kennurum
m.a. þakkað sérstaklega að hafa
látið eigin hagsmuni vikja fyrir
hagsmunum nemenda og skólans.
„Ég læt ekki skýringar þeirra
duga ef þær verða á þann veg að
mér liki þær ekki,” sagði Ingvar
Gislason menntamálaráöherra i
morgun, en i Grundarfiröi hafa
ymsir verið óánægðir með þátt
menntamálaráðherra i málinu.
„Ég hef hins vegar enga ástæðu
t’il þess að jagast við þessa menn
og hvort þeir fara að metast eitt-
hvað um þaö viö mig. hvernig
lausnin var fundin, það skiptir
engu máli fyrir mig.”
Lesiarmenn vio utskipun neysins logou niour vinnu I gær en exki synlst verkfallsfólkiðf slæmu skapi af þeim sökum. Mynd G.S. Akureyri.
500 lonn af hevi lestuð á Akureyri:
„EKKI KOSTNAÐAR-
VERB FVRIR HEYKT'
„Ef alít gengur að óskum, þá
ljúkum við útskipun á heyinu i
kvöld”, sagði Ævarr Hjartarson,
búnaðarráðunautur á Akureyri, i
samtali við VIsi, en siðan á mánu-
dag hefur Mælifell lestað hey frá
eyfirskum bændum á Akureyri,
sem sent hefur verið til Noregs.
„Þetta verða 500 tonn, sem
Mælifelliö tekur,” sagði Ævarr.
„Norðmennirnir borga um 140
krónur fyrir kilóiö, en ekki er
endanlega séö fyrir, hvað eftir
verður til bóndans, þegar flutn-
ingsgjöld hafa veriö greidd. Við
vonumst þó til, að það verði ekki
undir 80 til 85 krónum á kilóið,
sem er nærri áætluðu kostnaöar-
verði á heyinu heima á túni,”
sagöi Ævarr.
Bændumir verða sjálfir aö
greiða kostnaðinn viö aö koma
heyinu aö skipshliö. Hefur þaö
oröið mörgum dýrara en ætlað
var, þar sem heyflutningabflarnir
hafa þurft aö biða lengi eftir
losun. „Við fáum ekki kostnaðar-
verð fyrir heyið, þar sem flutn-
ingarnir veröa okkur dýrir,”
sagði einn bóndinn, sem Visir
hitti á bryggjunni i gær.
Lestarmenn við útskipunina
fóru I verkfall I gær. Vildu þeir fá
á hreint, hvert væri „premlu-
álag” við lestunina, en það er
nokkurs konar uppmæling. Var
þeim að lokum lofað fimmtiu pró
sent álagi á timakaupiö á trygg-
ingu, þar til endanlegt uppgjör
vegaa heyflutninganna liggur
fyrir.
GS Akureyri/ — KÞ.