Vísir - 29.08.1980, Page 1

Vísir - 29.08.1980, Page 1
 wgl || pn : FÁAR ÞJÓÐIR LEGGJA ! EINS MIKIÐ UPP ÚR i HEIMILINU OG VIÐ! Meíra úorið í hús og húsúúnað á íslandi en víðast annars staðar Fáar þjóðir leggja eins mikið upp úr heimilinu og útliti þess og við islendingar. Þessi um- gjörð fjölskyldunnar þjónar lika mikilvægara hlutverki hjá okk- ur en i flestum öðrum löndum, þar eð veöurfar okkar býður okkur að vera innan dyra fieiri daga ársins en viðast tiökast annars staðar. Sú staðreynd, að I okkar hús og húsmuni er meira borið, þýðir aö mikla vinnu og yfirvinnu þarf aö leggja af mörkum, svo þvi takmarki sé náö sem viðunandi heimilisum- gjörö útheimtir. Ekki verður þvi neitaö að ÖII sú auösöfnun, sem fólgin er i uppbyggingu islensks heimilis samkvæmt okkar eigin nútima kröfum, kemur niöur á öðrum þáttum fjölskyldulifsins a.m.k. á meðan uppbyggingar- starfið fer fram. Foreldrarnir vinna gjarna bæði hörðum höndum og börnin vaxa á stofn- unum á meðan. Þó barna- heimilin og dagheimilin séu með ágætum hér á landi og hjálpi ungviði okkar til þroska, þá er það oft sem viö foreldrar söknum þess, að geta ekki eytt fleiristundum meðbörnumokkar Meö þetta allt I huga hlýtur okkur að finnast það atdeilis frábært, þegar vel skipulagðar sýningar fara fram i Laugar- dalshöllinni, þar sem ungir og gamlir geta fariö hönd i hönd sér til upplýsingar og dægra- styttingar. Heimiliö '80 er ein- mitt svona sýning, þar sem fjöl- skyldan getur sett lit á hvers- dagsleikann og upplifað gagn og gaman. Svona sýning hefur lika áhrif á fleiri en kjarnafjölskyldurnar, þar eð þarna geta verslunar- og iðnaöarmenn komið vörum sin- um á framfæri með þeim hætti, aö sýningargestir geta fengið á þeim að þreifa og spurt þá spjörunum úr. Sá stórhugur sem einkennir einstaklinga þjóðfélagsins og þar með heimilisuppbygginguna kemur lika fram hjá atvinnurekendum á svona sýningum. Það er ekki minnimáttarkennd né svart- sýni, sem svona stór og viða- mikil sýning endurspeglar. Þess vegna hlýtur Heimilið '80 að vera hvetjandi og hollur minnis- varði um okkar eigin getu. Þetta framtak teygir Ilka anga sina og áhrif i margar fleiri áttir og nægir þar að nefna þetta aukablaö Visis, sem lesandinn hefur I höndunum. Þessu blaöi er ætlað að koma á framfæri upplýsingum og fræðslu um þá framleiöslu, sem er á boðstólum hjá fyrirtækjum landsins i dag. Keynt hefur verið að kynna fyrirtæki og framleiöslu bæöi innan sýningarinnar og utan hennar. Þó ekki sé hægt að gera ölium hlutum tæmandi skil i svona aukablaði, þá er það von aðstandenda, að það sé Iieimilissýningunni og neytend- um þessa lands til aukinnar heimilishlýju. Ekki er ætlunin að lýsa sýningunni i þessum stutta pistli, en okkur þótti ástæða til þess að skreyta forsiöuna með mynd frá tivoli-deildinni á úti- svæði Laugardalshallarinnar, þar sem ungir og gamlir hafa skemmt sér konunglega undan- farna viku. Viljum viö hvetja fólk til að nota sér þessi ágætu leiktæki á næstu dögum, þvi gangi sá rekstur sýningarinnar vel má ætla að framtaksamir menn fari að huga að þvi i al- vöru að koma upp nýju tivoli á islandi, sem svo lengi hefur vantaö. H.P. 1 Texti: Hrafn Pálsson Myndir: Gunnar V. Andrésson.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.