Vísir - 12.09.1980, Qupperneq 1

Vísir - 12.09.1980, Qupperneq 1
Skuld Lanflsbankans við Seölabankann er nær 14 milljarðar: Staða bankanna versnaði um 30 mllliarða á árinul „Að minu mati eru peningamálin veikasti hlekkurinn i baráttunni gegn verðbólgu”, sagði Gunnar Thoroddsen forsætisráðherra i samtali við Visi i gær. Um siöustu áramót var staða bankann gagnvart Seðlabanka hagstæð um 5 milljarða króna, en nú i lok ágústmánaðar er hún orðin óhagstæð um 24 milljarða. „Þar er staða Landsbankans sýnu verst, en skuld hans við Seðlabankann er 13,8 milljarðar kr.” A sama tima og staðan i rikis- fjármálunum er góð, stefna bankarnir i þveröfuga átt. A þessu verður að taka. Það er ljóst að refsivextir eða aðrar slikar aðgerðir hafa ekki borið tilætlaðan árangur”, sagði for- sætisráðherra. Þess má geta, að bankar greiða nú 72% refsivexti vegna yfirdráttar hjá Seðlabankanum. J Kauplr Háskóilnn Reyklavíkurapótek? Visismynd: Ella. Stund milli striða við Sundahöfn. „Gæli orðiö um næslu áramóT „Það er rétt að Háskólinn hefur óskað eftir þvi aö gerast eigandi Reykjavikurapóteks. Þetta mál en enn á umræðustigi,” sagði Sig- urður ólafsson, lyfsali, i morgun er hann var spuröur um fréttir þess efnis að Háskólinn hafi óskaö eftir að taka við rekstri apóteks- ins. Þegar Sigurður var spuröur hvort liklegt væri að af þessu yrði, sagði hann, að það gæti al- veg eins orðið. Aðspurður sagöist hann ekki vera svo mikið á móti þvi enda hefði hann ekki farið út i viðræður um málið, ef hann hefði veriö það. Sigurður sagði, aö ef af eig- endaskiptunum yrði gætu þau oröið um áramótin, en þar sem málið væri enn á umræðustigi, væri ekki séð fyrir endann á þvl. AB. „Storf efnahagsnefndar- innar liggja nú niðri” „Það má segja, að starf efna- hagsnefndar liggi niöri. Við erum búnir að halda einn fund nú upp á siðkastiðog biðumennþá eftir, að ráðherranefndin skili af sér”, sagði Jón Ormur Halldórsson, formaður efnahagsmálanefndar rikisstjórnarinnar, i samtali við Visi i morgun, en samkvæmt fyrri upplýsingum Visis hafði rikis- stjórnin beðið eftir nánari út- færslu frá efnahagsmálanefnd. „Ráðherranefndin er enn aö fjalla um tillögur okkar, en við höfum fengið mjög litinn hluta af tillögunum til baka, svo að við er- um ennþá i biðstöðu”, sagði Jón Ormur. Samkvæmt áreiðanleg- um heimildum Visis munu tillög- ur þær, sem nefndin hefur aftur fengiö, varða nánari útfærslu á gjaldmiðilsbreytingunni um ára- mót og ýmsar aðgeröir tengdar henni. Einnig er um aö ræða nán- ari útfærslu á ákveðnum atriðum varðandi „sjálfvirknina i verö- bólgukerfinu”, eins og heimildar- maður Visis komst að orði. .„ öll völd í íypk- landi í nótl Herinn tók stjórnina i sinar hendur i Tyrklandi i nótt.og virð- ist valdaránið hafa gengið blóðs- úthellingalaust. Skriðdrekar og brynvaröir vagnar voru á flestum meiri- háttar gatnamótum i Ankara i morgun og hervörður viö útvarpsstöðvar og aðrar mikil- vægar byggingar, eins og flokks- skrifstofur. — Yfir höfuðborginni sveimuðu herþyrlur i eftirliti. 1 útvarpstilkynningu byltingar- foringja lýsti „þjóöaröryggis- ráðiö” (sem herforingjar hafa stofnað i nótt) þvi yfir, að rikis- stjórnin og þingiö hefðu veriö leyst upp. Þinghelgi hefur veriö aflétt og herlög leidd i gildi um allt land. ___ Sja nánar á dls. 5

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.