Morgunblaðið - 21.05.2002, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 21.05.2002, Blaðsíða 40
DAGBÓK 40 ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Í dag eru væntanleg Black Prince, Örfirisey RE, Goðafoss og Arnarfell. Hafnarfjarðarhöfn: Í dag er Viking vænt- anlegt. Fréttir Kattholt. Flóamarkaður í Kattholti, Stangarhyl 2, opinn þriðju- og fimmtudaga kl. 14–17. Mæðrastyrksnefnd Kópavogs, Hamraborg 20a. Fataúthlutun í dag kl. 17–18. Mannamót Aflagrandi 40. Kl. 9 vinnustofa, leirkera- smíði, kl 10 boccia, kl. 10 enska, kl. 11 enska, kl. 13 vinnusofa, bað. Árskógar 4. Kl. 9 bók- band og öskjugerð, kl. 13 opin smíðastofa. All- ar upplýsingar í s. 535 2700. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8 hárgreiðsla, kl. 8.30 böð- un, kl. 9–9.45 leikfimi, kl. 9–12 tréskurður, kl. 9–16 handavinna, kl. 10– 17 fótaaðgerð, kl. 10 sund, kl. 13 leirlist. Eldri borgarar, Mos- fellsbæ, Kjalarnesi og Kjós. Félagsstarfið á Hlaðhömrum er á þriðju- og fimmtudögum kl. 13–16.30, spil og föndur. Lesklúbbur kl. 15.30 á fimmtudögum. Jóga föstudaga kl. 11. Kóræfingar hjá Vorboð- um, fimmtudaga kl. 17– 19. Uppl. hjá Svanhildi í s. 586 8014 kl. 13–16. Uppl. um fót-, hand- og andlitssnyrtingu, hár- greiðslu og fótanudd, s. 566 8060 kl. 8–16. Fræðslufundur um beinvernd í umsjá Hall- dóru Björnsdóttur verð- ur í Dvalarheimilinu Hlaðhömrum miðviku- daginn 22. maí kl. 20. Lyfja mun kynna bein- þéttnimælingu (ómskoð- un). Félagsstarfið, Dalbraut 18–20. Kl. 9–12 aðstoð við böðun, kl. 9–16.45 hárgreiðslustofan opin, kl. 10 samverustund, kl. 14 félagsvist. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl. 10 hársnyrting, kl. 13 föndur og handavinna. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði, Glæsibæ. Kaffistofan opin virka daga frá kl. 10–13. Kaffi, blöðin og matur í hádegi. Þeir sem hafa skráð sig í Vestfjarðaferð 18.–23. júní og Vestmannaeyjar 11.–13. júní þurfa að staðfesta ferðina fyrir 18. maí. Dagsferð 27. maí Hafn- arfjörður-Heiðmörk. Kaffi og meðlæti. Leið- sögn: Páll Gíslason og Pálína Jónsdóttir, brott- för frá Ásgarði, Glæsibæ, kl. 13, skrán- ing hafin á skrifstofu FEB. Fræðslunefnd FEB stendur fyrir ferð í skrúðgarða Reykjavíkur 29. maí. Brottför frá Ás- garði, Glæsibæ, kl. 13.30, skráning á skrif- stofu FEB. Silfurlínan er opin á mánu- og miðviku- dögum frá kl. 10–12. í s. 588 2111. Skrifstofa fé- lagsins er flutt í Faxa- fen 12, sama símanúmer og áður. Félagsstarfið er áfram í Ásgarði, Glæsibæ. Upplýsingar á skrifstofu FEB. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Í dag þriðjudag: Brids, nýir spilarar velkomnir, saumur undir leiðsögn og frjáls handavinna kl. 13.30. Spænskukennsla kl. 16.30. Á morgun, miðvikudag, línudans kl. 11. Pílukast kl. 13.30. Glerskurður kl. 13. Vestmannaeyjaferð 2.–4. júlí. Rúta, Herj- ólfur, gisting í 2 nætur. Frekari upplýsingar og skráning í Hraunseli í síma 55-0142. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Kl. 9–16.30 vinnustofa, tréskurður, kl. 9–13 hárgreiðsla, kl. 10 leikfimi, kl. 12.40 Bónusferð, kl. 13.15 bókabíll. Opið sunnu- daga frá kl. 14–16 blöðin og kaffi. Gerðuberg, félagsstarf. Kl. 9–16.30 vinnustofur opnar, frá hádegi spila- mennska, kl. 13 boccia Veitingar í Kaffi Berg. Á morgun leikhúsferð í Borgarleikhúsið á Kryddlegin hjörtu. Nokkrir miðar eftir. Upplýsingar um starf- semina á staðnum og í s. 575 7720. Gjábakki, Fannborg 8. Kl. 9.05 og kl. 9.50 leik- fimi, kl. 9.30 gler- skurður, kl. 10 handa- vinna, kl. 14 þriðjudagsganga og boccia, kl. 19 brids. Hvassaleiti 56–58. Kl. 9 böðun, kl. 9.45 banka- þjónusta, kl. 13 handa- vinna, kl. 13.30 helgi- stund. Fótaaðgerð, hár- snyrting. Allir velkomnir. Hraunbær 105. Kl. 9 postulínsmálun, kl. 9 glerskuður og trémálun, kl. 10 boccia, kl. 11 leik- fimi, kl. 12.15 versl- unarferð í Bónus, kl. 13 myndlist, kl. 13–17 hárgreiðsla. Háteigskirkja, eldri borgarar. Á morgun, miðvikudag, samvera, fyrirbænastund í kirkj- unni kl. 11, súpa í Setr- inu kl. 12, spil kl. 13. Norðurbrún 1. Kl. 9– 16.45 tréskurður og opin vinnustofa, kl. 10 boccia, kl. 9–17 hárgreiðsla. All- ir velkomnir. Tómstundastarf eldri borgara í Reykjanesbæ. Sýning á handverki eldri borgara dagana 26.–31. maí, að báðum dögum meðtöldum. Kaffihúsastemmning og lifandi tónlist. Tekið á móti munum á sýn- inguna í dag 21. maí í Selinu. Vesturgata 7. Kl. 9 fóta- aðgerðir og hárgreiðsla, kl.9.15–16 bútasaumur, kl. 9.15–15.30 handa- vinna, kl. 11 leikfimi, kl. 13 spilamennska. Vitatorg. Kl. 9 smíði og hárgreiðsla, kl. 9.30 glerskurður og morg- unstund, kl. 10 fótaað- gerðir og leikfimi, kl. 11 boccia, kl. 13 hand- mennt og körfugerð, kl. 14 félagsvist. Vor- og sumarfagnaður verður haldinn fimmtudaginn 30. maí kl. 17. Matur, gleði, söngur, gaman. Allir velkomnir. Upplýs- ingar í síma 561-0300. Bridsdeild FEBK, Gjá- bakka. Brids í kvöld kl. 19. Félag áhugafólks um íþróttir aldraðra, leik- fimi kl. 11 í Bláa saln- um. Félag ábyrgra feðra. Fundur í Shell-húsinu, Skerjafirði, á mið- vikudögum kl. 20, svar- að í s. 552 6644 á fund- artíma. Minningarkort Heilavernd. Minning- arkort fást á eftirtöldum stöðum: í síma 588- 9220 (gíró) Holtsapóteki, Vesturbæjarapóteki, Hafnarfjarðarapóteki, Keflavíkurapóteki og hjá Gunnhildi Elíasdótt- ur, Ísafirði. Parkinsonsamtökin. Minningarkort Park- insonsamtakanna á Ís- landi eru afgreidd í síma 552-4440 frá kl. 13–17. Eftir kl. 17 s. 698-4426 Jón, 552-2862 Óskar eða 563-5304 Nína. Minningarkort Sam- taka sykursjúkra fást á skrifstofu samtakanna, Tryggvagötu 26, Reykjavík. Opið virka daga frá kl. 9–13, s. 562- 5605, bréfsími 562-5715. Krabbameinsfélagið. Minningarkort félagsins eru afgreidd í síma 540 1990 og á skrifstofunni í Skógarhlíð 8. Hægt er að senda upplýsingar í tölvupósti (minning@- krabb.is). Minningarkort Sjálfs- bjargar, félags fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu, eru afgreidd í síma 551- 7868 á skrifstofutíma og í öllum helstu apótek- um. Gíró- og kred- itkortagreiðslur. Minningarkort For- eldra- og vinafélags Kópavogshælis fást á skrifstofu endur- hæfingadeildar Land- spítalans Kópavogi (fyrrverandi Kópavogs- hæli), síma 560-2700 og skrifstofu Styrktar- félags vangefinna, s. 551-5941 gegn heim- sendingu gíróseðils. Félag MND-sjúklinga selur minningarkort á skrifstofu félagsins á Norðurbraut 41, Hafn- arfirði. Hægt er að hringja í síma 565-5727. Allur ágóði rennur til starfsemi félagsins. Í dag er þriðjudagur 21. maí, 141. dagur ársins 2002. Orð dagsins: Ofmetnaður hjartans er undanfari falls, en auðmýkt er undanfari virðingar. (Orðskv. 18, 12.) 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 LÁRÉTT: 1 kirtil, 4 hljóðfæri, 7 var- kár, 8 ófrægjum, 9 dæg- ur, 11 sá, 13 lögun, 14 út- gjöld, 15 þarmur, 17 ekki fær um, 20 bókstafur, 22 búpening, 23 klaufdýr, 24 ráfa, 25 nákominn. LÓÐRÉTT: 1 himneska veru, 2 skjálfi, 3 uppspretta, 4 mjór gangur, 5 loftgatið, 6 rekkjan, 10 kjánar, 12 ræktað land, 13 eldstæði, 15 spakur, 16 streymi, 18 byrði, 19 efnislítinn, 20 skriðdýr, 21 úrkoma. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 gáskafull, 8 ábati, 9 lærði, 10 púl, 11 telpa, 13 ausan, 15 gróða, 18 ragna, 21 lúi, 22 brand, 23 trauð, 24 gatnamóta. Lóðrétt: 2 áfall, 3 keipa, 4 fella, 5 lurks, 6 sárt, 7 eign, 12 peð, 13 una, 15 gabb, 16 ómaga, 17 aldin, 18 ritum, 19 glatt, 20 auðn. K r o s s g á t a Víkverji skrifar... MEÐAL þeirra frumvarpa semsamþykkt voru á Alþingi á síð- ustu dögum þingsins í vor var frum- varp umhverfisráðherra um nýja Umhverfisstofnun, sem taka á til starfa í Reykjavík um næstu áramót þegar lögin taka gildi. Þá munu sam- einast undir einu þaki Hollustuvernd ríkisins, Náttúruvernd ríkisins, Veiðistjóraembættið, Hreindýraráð og Dýraverndarráð. Víkverji rakst á dögunum á heimasíðu Sambands dýraverndunarfélaga Íslands og þar segir að samþykkt frumvarpsins sé óheillaskref og lögin útiloki Sam- band dýraverndunarfélaga Íslands, Bændasamtök Íslands, Hið íslenska náttúrufræðifélag og Dýralækna- félag Íslands frá ákvarðanatöku um dýraverndarmál en færi hana í hend- ur embættismönnum. „Frumvarp þetta, sem kom fram á allra síðustu dögum Alþingis, hefur nú verið samþykkt óbreytt. Sam- kvæmt því á að leggja Dýravernd- arráð niður en færa starfsemi þess til Umhverfisstofnunar. Þetta er mikið áfall fyrir dýraverndarstarf hinna óháðu dýraverndarsamtaka, sem samkvæmt lögum um dýra- vernd hafa átt rétt til að tilnefna einn mann í Dýraverndarráð frá árinu 1959 en verða nú útilokuð. Sama er að segja um Bændasamtök Íslands, Hið íslenska náttúrufræðifélag og Dýralæknafélag Íslands. Þessir að- ilar fengu ekki frumvarp þetta til umsagnar enda þótt þeim hafi alltaf verið gefinn kostur á að tjá sig um lagabreytingar, sem snerta dýr á einhvern hátt. Hinsvegar fékk Dýra- verndarráð einn dag til að gera at- hugasemdir við frumvarpið […] Samband dýraverndunarfélaga styður þessar athugasemdir heils- hugar enda virðast lög þessi vægast sagt vanhugsuð og nánast hrákasmíð hin mesta og mun fjöldi vandamála sigla í kjölfar þeirra, þegar fara á að framkvæma þau,“ segir á heimasíð- unni. x x x FLEIRA forvitnilegt er að finna áheimasíðu dýraverndunarfélag- anna og þar er m.a. vitnað í bréf sem Samband dýraverndunarfélaga Ís- lands hefur sent landbúnaðarráðu- neytinu, þar sem eindregið er varað við innflutningi á krókódílum af teg- undinni Alligator mississippiensis, sem Húsavík hefur sótt um leyfi fyr- ir. Tilgangurinn er að nota krókó- dílana, sem „lífrænar sorpkvarnir“, sem taki við matarúrgangi frá fisk- eldi, fiskvinnslu og kjötvinnslu á Húsavík. Í bréfi Sambands dýra- verndunarfélaga Íslands til ráðu- neytisins segir m.a. að vegna þess- arar umsóknar vilji Samband dýraverndunarfélaga Íslands taka fram að það hafi alltaf verið stefna dýraverndarsamtaka á Íslandi að vernda villt dýr gegn hverskonar föngun og innilokun, sem stríði gegn eðli þeirra og þörfum. Jafnframt sé það staðreynd að frelsisþörf dýranna sé svo sterk að ekki hafi enn tekist að koma í veg fyrir að þau sleppi út í náttúruna með hörmulegum afleið- ingum fyrir villt íslenskt fugla- og dýralíf, eins og t.d. minkurinn. Þá er einnig bent á að áhyggjur fari víða vaxandi vegna innflutnings á svo- kölluðum „exotiskum“ dýrum, svo sem slöngum, eðlum, krókódílum og þess háttar, sem verið er að flytja inn sem gæludýr, og hafi Danir t.d. hert mjög allt eftirlit með innflutn- ingi á þessum dýrum. Að athuga verðið ÉG SÁ í Hagkaups-blaðinu (tilboðsblaðinu þeirra, þar sem þeir auglýsa fatnað mat o.fl.) bol sem mig langaði í. Í blaðinu stóð að bolurinn kostaði 999 krónur, svo fór ég í Hagkaup í Kringlunni og keypti bolinn. Svo þegar ég kem heim uppgötvaði ég að ég hafði borgað 1.999 krónur fyrir bolinn. (Sem sagt 1000 kr. of mikið). Ég hringdi í Kringluna og benti þeim á þetta, að þessi bolur væri auglýstur hjá þeim í blaðinu á 999 en mér var sagt að þetta væri vitlaust verð og að það væri annar bolur sem væri aug- lýstur á þessu verði (ekki þessi sem ég hafði keypt). Til hvers er Hagkaup að setja vörur á lægra verð og svo kemur allt annað í ljós? Þetta er bara svindl. Mér finnst þetta lélegt af Hag- kaupum í Kringlunni. Ég vil benda fólki á að at- huga verðið áður en það greiðir fyrir vöruna. Kt. 260376-6169. Betri dagskrá MÉR finnst dagskrá ríkis- sjónvarpsins léleg, það er of mikið um fótbolta um helg- ar og svo finnst mér ekki ganga að vera með endur- sýndar myndir á laugar- dagskvöldum. Finnst mér að bæta megi dagskrána svo fólk fái eitthvað fyrir skylduáskriftina. Eins finnst mér að hafa eigi íþróttir á sérrásum. ÁH. Ekki úti í kuldanum ÉG ER eldri borgari í Reykjavík og vil ég mót- mæla harðlega auglýsingu sjálfstæðismanna í Dag- blaðinu sl. laugardag 11. maí þar sem nokkrum eldri borgurum er raðað upp fyr- ir framan Ráðhúsið undir fyrirsögninni: „Eldri borg- arar úti í kuldanum.“ Þetta er alhæfing um alla eldri borgara í Reykjavík. Þetta eru hrein ósannindi. Við erum síður en svo úti í kuldanum í Reykjavík. Það er með ólíkindum að Sjálfstæðisflokkurinn skuli nota öryrkja og eldri borg- ara sem einhverjar tálbeit- ur í kosningabaráttunni eins og þeir hafa komið mál- um eldri borgara fyrir í rík- isstjórn. Mundu eldri borgarar af landbyggðinni koma til Reykjavíkur ef þeir ætluðu að vera þar í trekk og kulda? Ætli það sé ekki m.a. vegna þess að þeir vita að þar er mjög góð þjónusta. Kjósum R-listann og Ingi- björgu. Sigríður Skarphéðinsd. Kettir á næsta kjörtímabili ÉG ER að velta því fyrir mér hvort næsti borgar- stjóri, hvor sem það nú verður, hafi það nokkuð á stefnuskrá sinni að ofsækja ketti á næsta kjörtímabili? Kattavinur. Tapað/fundið Bækur í poka í óskilum GAMLAR bækur í poka eru í óskilum hjá Blómaverk- stæði Binna, Skólavörðu- stíg 12. Uppl. á staðnum eða í síma 551 9090. Dýrahald Kanínuunga vantar heimili 8 kanínuunga vantar að komast á góð heimili. Upp- lýsingar í síma 554 2602. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15. Netfang velvakandi@mbl.is VELVAKANDA barst eft- irfarandi bréf frá Dýra- verndunarfélagi Reykja- víkur: „Hópur 8 kennara í Reykjavík, sem var á göngu hinn 18. apríl sl. rétt hjá Maríuhellum í Heið- mörk sá stóran jeppa, mik- ið upphækkaðan með afar breiðum dekkjum koma ak- andi og voru tveir hundar á miðjum veginum, fyrir framan og til hliðar við jeppann, götumegin. Voru þær allar að furða sig á þessu óábyrga hátta- lagi og því að bílstjóri jepp- ans, sem var á fremur hægri ferð, gat engan veg- inn séð til hundanna því að þeir voru svo nálægt bíln- um. Skipti engum togum að í því fóru báðir hundarnir fram fyrir jeppann og urðu þær allar vitni að því þegar hægri fram- og afturhjól hans óku yfir kvið annars hundsins. Bílstjórinn varð sýnilega ekki var við slysið og stans- aði ekki fyrr en hann sá viðbrögð áhorfendanna en hundurinn lá greinilega stórslasaður fyrir aftan jeppann. Þær sem horfðu á þetta hræðilega atvik voru allar bæði hryggar og reiðar vegna þessa og vilja koma á framfæri viðvörun til þeirra hundaeigenda, sem ætla að spara sér eigin göngutúr með því að láta hundana hlaupa með bíln- um. Finnst þeim það jafnast á við að reka dýrin út í op- inn dauðann. Þetta er ekki í fyrsta sinn, sem þær hafa orðið varar við slíkt kæru- leysi, því þetta mun vera nokkuð algengt á Geirsnefi og víðar þar sem hundar mega hlaupa frjálsir. Víti til varnaðar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.