Vísir - 13.10.1980, Blaðsíða 1

Vísir - 13.10.1980, Blaðsíða 1
WW/í sS s> Stærr a og betp a Mánudagur 13. október 1980, 239. tbl. 70. árg. GuDmundur J. Guðmundsson, formaður Verkamannasamöandsins: i „VIL AD SATTATILLAGAN I VERÐI LÖGLEIDD STRAX” S „Tillagan skraddarasaumuð utan um pessar úskir”, ■ segir Þorsteinn Pálsson, tramkvæmdastjóri vsí ,,Já þaö geri ég ef það er gert strax”, var svar Guömundar J. Guðmundssonar formanns Verkamannasambandsins, viö spurningu Visis um hvort hann teldi aö sú sáttatillaga sem lögö var fyrir ASl og VSl á laugar- daginn, sé hæf til þess aö veröa lögfest af Alþingi. VSl hafnaöi tillögunni sem umræöugrund- veili en ASÍ kvaö sig tilbúið aö ræöa hana. „Þaö eru til ótal dæmi þess aö sáttatillaga hafi veriö tekin og lögfest. Ég tel sáttatillögu þessa aö ýmsu leyti ósanngjarna en þaö er fráleitt aö neita henni sem umræöugrundvelli.” sagöi Guömundur. „Þessi tillaga er fullkomlega sambærileg og samningar BSRB, hvaö varöar launaþáttinn” sagöi Guömund- ur ennfremur. „Vinnuveitendasambandinu sýnist alveg augljóst að þessar sifelldu kröfur af hendi forystu- manna ASI, um lögfestingu, slöustu daga, sýni þaö ótvirætt að viöræöurnar hafa tafist af þvi að þeir hafa aldrei ætlaö sér aö semja” sagöi Þorsteinn Pálsson i samtali viö Visi á sunnudag. Þeir hafa ætlaö sér aö notfæra pólitiska stöðu sina til þess aö knýja samninga á i gegnum lög- gjöf og þessi ummæli sýna ein- ungis það, aö tafirnar i samn- ingaviöræöunum stafa af þess- um sökum. Sáttatillagan er eins og hún sé skraddarasaumuð ut- an um þessar óskir” „Þá er þaö alveg ljóst aö sáttatilíagan þýöir meiri launa- hækkun en i BSRB samningun- um. Viö erum ekki búnir aö reikna þaö endanlega út en tölu- lega mun þetta liggja fyrir á morgun,” sagði Þorsteinn Páls- son framkvæmdastjóri VSÍ. Guölaugur Þorvaldsson rikis- sáttasemjari kvaöst ekkert geta um þaö sagt hvert yröi næsta skref i samningamálunum, er Visir ræddi viö hann i gær. Enn fremur kvaöst hann ekki vilja kveða upp úr um þaö hvort tii- lagan fæli i sér meiri eöa minni launahækkun en i BSRB samn- ingunum. „Viö leggjum hana bara fyrir eins og hún er” sagði Guðlaugur Þorvaldsson. Sjá ennfremur viötal við Ásmund Stefánsson bls 35. J Mun meiri snjór er nú fyrir noröan en hér syöra og krakkarnir fyrir noröan á fleygiferö á snjóþotum sinum. Myndin var tekin um helgina á Akureyri. VIsismynd:GS Fjárlagafrumvarpið: Nýbygglngargjald felll niður en aðrir skattar óbreyttir Samkvæmt íjárlagaírumvarp- inu, sem lagt er fram á Alþingi i dag.er gert ráð fyrir að allir fyrri skattar haldi sér, nema nýbygg- ingargjald sem fellt veröur niður. Beinir skattar eru áætlaöir 91,5 milljarður króna en voru á þessu ári 64 milljarðar. 1 aðalatriðum er fjárlagafrum- varpið framreikningur frá fjár- lögum þessa árs, miðað við 42% veröbólgu. Niðurstööutölur eru 530 milljarðar króna. Mikil leynd hefur hvilt yfir efni fjárlagafrumvarpsins, og hefur fjárveitingarnefnd ekki fengið frumvarpiðihendurfyrren i dag. Samkvæmt upplýsingum sem blaöið hefur aílað sér mun vera litið um nýmæli i frumvarpinu aö ööru leyti en þvi, að gert er ráð fyrir að verja 12 milljörðum króna til „sérstakra efnahags- ráöstafana”. Fjölmargir útgjaldaliöir eru stórlega vanáætlaðir, en greiösiu- afgangur mun vera 3 millj. kr. Samkomulag i Slálfstæðls- flokknum um nefndakjör: i HELMINGASKIPTI STJðRNAR- r UBA OG STJÚRNARANDSTÖBU Sterkar líkur viröast nú fyrir þvi, aö samkomulag takist inn- an Sjálfstæöisflokksins um nefndakjör á alþingi i dag, cftir aö sjálfstæöismenn I rikisstjórn hafa slakaö á þeirri kröfu sinni aö fá menn i allar þingnefndir. Samkvæmt heimildum Visis byggir þessi tilslökun meðal annars á þvi, aö þeir Albert Guðmundsson og Eggert Hauk- dal voru ekki reiöubúnir til þess að setjast i allar þær nefndir sem þurft heföi, sem fulltrúar sjálfstæðismanna i rikisstjórn. Liklegt er að stjórnarliöar i Sjálfstæðisflokknum fái einn mann i um helming þeirra sjö manna nefnda, sem kosið verður i i dag. „Viö höfum ekki verið aö semja upp á það, aö sjálfstæöis- menn i rikisstjórn fái menn i all- ar nefndir, en ég er bjartsýnn á að samkomulag náist”, sagði Ólafur G. Einarsson, formaður þingflokks Sjálfstæöisflokksins, þegar blaðamaöur Visis haföi samband viö hann i morgun. Annaö fékkst ólafur ekki til aö segja, en þingflokkurinn kom saman til ákvaröanatöku klukk- an ellefu i morgun. Visir hafði samband viö Gunnar Thorodd- sen, forsætisráöherra, i gær- kvöldi, en hann vildi ekki segja annað en það, að hann vonaðist fastlega til þess aö samkomulag næðist. Samkvæmt heimildum blaðs- ins hefur Gunnar Thoroddsen gert þá kröfu, aö Eggert Hauk- dal taki sæti Friöjóns Þóröar- sonar i fjárveitinga nefnd, og er þá liklegt aö Guömundur Karls- son veröi aö vikja úr nefndinni, þar sem ekki þykir hæfa að tveir menn frá sama landshluta sitji þar sem fulltrúar sama flokks. Stjórnarliöar höföu ekki geng- iö endanlega frá þvi i morgun hver tæki sæti Eiðs Guönasonar sem formaöur i fjárveitinga- nefnd, en lfklegast þykir aö þaö veröi annar tveggja Geir Gunn- arsson eöa Halldór Asgrimsson. —P.M./AS.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.