Vísir - 15.10.1980, Qupperneq 1
Miðvikudagur 15. október 1980/ 241. tbl. 70. árg.
Fannst
látinn
Jóhann Eyvindsson úr Kópa-
vogi. sem saknað var frá þvi á
mánudag, fannst látinn i bil sin-
um i sjónum utan við Kársnes-
bryggju um hádegi i gær.
Menn Ur Björgunarsveit Ing-
ólfs og Hjálparsveit skáta i Kópa-
vogi hófu leit i fyrradag og fljót-
lega þötti liklegt, aö bifreiö Jó-
hanns hafi ekiö fram af Kársnes-
bryggju, þar sem trékantur á
henni var nýbrotinn.
Froskmenn Ur Björgunarsveit
Ingólfs köfuðu við bryggjuna þá
um kvöldið, en urðu einskis varir,
þótt vel væri leitað við bryggjuna.
Um hádegisbiliö 1 gær hófu
froskmenn leit að nýju við
bryggjuna, en nú utar.
Jóhann fannst þá látinn i bil
sinum 40 metra frá bryggjusporð-
inum, á um 10 metra dýpi.
AS
Tillaga 7-manna-nefndar flSl um aðgerðlr:
ALLSHERJARVERK-
■
■
FALL UM NÆSTU
MANABAMÚT?
43|a manna nefndin fekur endanlega ákvörðun i dag
■
■
■
7 manna nefnd Al-
þýðusambands íslands
kom saman til fundar i
gær. Voru þar ákveðin
drög að tillögum um
aðgerðir til að knýja á
um samninga. Sam-
kvæmt heimildum,
sem Visir hefur aflað
sér, snúast tillögurnar
um allsherjarverkfall,
en ekki var sett fram á-
kveðin timasetning að
svo stöddu.
Allflest verkalýðsfélög i land-
inu munu nU bUin að afla sér
heimildar til vinnustöðvunar, en
þó munu nokkur þeirra haida
fundi nU i vikunni til að afla sér
slikrar heimildar. Að henni
fenginni, er lögfestur frestur til
vinnustöðvunar sjö dagar frá
boðun aðgerðanna. Það fer þvi
nokkuð eftir samþykktum trUn-
aðarmannaráðanna um aðgerð-
ir i hverju félagi, hvenær verk-
fall getur hafist. 7 manna nefnd
mun hins vegar leggja á það á-
herslu i tillögum sinum, að sam-
ræmdar aðgerðir geti hafist
sem fyrst, jafnvel um mánaða-
mót.
14 manna nefnd ASl kom
saman til fundar kl. 10 i morg-
un, til að ræða ofangreinda til-
lögu. A fundi 43ja manna nefnd-
ar, sem hefst kl. 14 i dag veröur
svo tekin endanleg ákvöröun
um, hvort farið verður að þess-
ari tillögu. Einnig tekur nefndin
ákvörðun um, hvernig staðið
veröur aö aögerðum, og beinir
siðan áskorun það að ltitandi til
verkalýðsfélaganna i landinu.
—JSS
■
■
I
■
4» W. : _____>* 'l&SI/t
Björgunarmenn sjást hér draga bifreiðina upp á bryggjuna I Kópavogi.
Visismynd: ÞL
r-
Er gamla SYR
að kveðja?
Flugvélafloti Landheigisgæslunnar: Fokker vélarnar TF-SVR, sem á aðselja, og TF-SÝN, eru aftar á
myndinni, en fyrir framan þyrlurnar TF-RAN ogTF-GRO. Vfsismynd: Baldur Sveinsson.
A fjárlögum fyrir þetta ár var
heimiluö sala á TF-SÝR Fokk-
ervél Landhelgisgæslunnar og
innstreymistölur i rikissjóð
vegna sölunnar voru áætlaðar
um 345 milljónir króna.
Ekki varö úr sölu, svo að enn
kemur flugvélin i fjárlög fyrir
árið 1981.
Að sögn Guðmundar Kjærne-
sted, skipherra hjá Landhelgis-
gæslunni, hafa fyrirspurnir
borist varöandi vélina, en Guð-
mundur kvað enn fremur ljóst,
að þeim tilboöum hafi ekki verið
tekið.
„Vélar, sem þessar er þó ekki
nokkur vandi að selja”, sagði
Guðmundur, svo aö öllum
likindum kveöurgamla Fokker-
vélin flotann á næsta ári.