Morgunblaðið - 28.05.2002, Page 3
25.maí2002
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 2002 B 3
Kópavogur
Gunnar I. Birgisson D-lista
Sex bæjar-
fulltrúar
óraunhæft
markmið
„VIÐ héldum fimm bæjarfulltrú-
um,“ segir Gunnar I. Birgisson, odd-
viti Sjálfstæðisflokks í Kópavogi.
„En það sem við erum óhress með er
að við héldum að við fengjum meira
fylgi í prósentum,“ segir hann en
flokkurinn fékk 37,7% fylgi.
„Það er ljóst að Framsóknarflokk-
urinn nýtur ávaxta af góðu starfi
meirihlutans sem við höfum verið
drifkrafturinn í. Hræðsluáróður
þeirra um að við værum að fá sex
menn virðist hafa dugað, við næstum
töpum fimmta manninum af þeim
sökum. Annars hefur meirihlutinn í
heild sinni aukið fylgi sitt, vinstri-
menn tapa einum manni.“ Gunnar
segir fylgið minna en hann hafi búist
við fyrirfram. „Við héldum að við
værum með yfir 40% fylgi. En við
höldum okkar fimm mönnum, sex
menn voru óraunhæft markmið.“
Guðmundur G. Gunnarsson
D-lista
Óvenju
skarpar línur
„VIÐBRÖGÐIN eru eðlilega mjög
góð. Mér skilst að það hafi verið um
það bil 13% munur á milli D og Á,“
segir Guðmundur G. Gunnarsson,
oddviti D-lista sjálfstæðismanna í
Bessastaðahreppi, og vill jafnframt
skila þakklæti til samstarfsfólks og
íbúanna fyrir stuðninginn við fram-
boðið. Hann telur línurnar hafa verið
óvenju skarpar og að það hafi virki-
lega verið kosið um tiltekin málefni.
„Við fengum þennan góða stuðning
og það er aldeilis frábært. Það er
gríðarleg aukning kjósenda í Bessa-
staðahreppi frá því fyrir fjórum ár-
um, þannig að við gátum ekkert gef-
ið okkur fyrirfram hver úrslitin
yrðu, það er aldrei hægt. En þetta
var óskaplega skemmtileg stemning
og mikil upplifun að fara í gegnum
þetta eina ferðina enn.“
Guðmundur bendir á að úrslitin
hafi verið mjög afgerandi og gott sé
að hafa þetta mikinn mun. Að hans
sögn lagði D-listinn fram mjög sterk
málefni, eins og að á árunum 2004–
2006 kæmi 8.–10. bekkur inn í
grunnskólann og einnig að byggðar
yrðu smærri íbúðir fyrir ungt fólk og
eldra fólk sem vildi minnka við sig.
Hann segist lesa það út úr kosn-
ingaúrslitunum að þetta sé eitthvað
sem kjósendur hafi samþykkt.
Bessastaðahreppur
Flosi Eiríksson S-lista
Samfylkingin
getur vel
við unað
„ÞETTA er þokkalegur árangur
hjá Samfylkingunni í Kópavogi,“
sagði Flosi Eiríksson, fyrsti mað-
ur á lista Samfylkingingarinnar
sem fékk þrjá bæjarfulltrúa
kjörna. „Auðvitað hefðum við vilj-
að að þetta gengi betur. Við fáum
tæp 30% atkvæða en þetta er í
fyrsta sinn sem Samfylkingin býð-
ur fram í bænum. Það er ljóst að
með framboði VG er meirihlut-
anum tryggður einn bæjarfulltrúi
til viðbótar,“ segir Flosi.
„Okkur var ekki spáð nema
tveimur mönnum og miðað við
kannanir höfum við bætt við okk-
ur 6–7% á viku. Við erum við það
að ná inn okkar fjórða manni sem
hefði verið frábær árangur. Það
hefði verið betra fyrir okkur ef
kosið hefði verið tveimur dögum
seinna. Ég tel að menn hafi fundið
það að það ágæta fólk sem skipar
listann með mér þyrfti að koma að
stjórn bæjarins,“ segir Flosi um
fylgisaukningu Samfylkingarinnar
undanfarnar vikur.
„Ég held að fólk finni að ann-
arra áherslna í stjórnun bæjarins
sé þörf og það hafi styrkt okkur.
Við hefðum þurft örlítið meiri
tíma til að koma þeim skilaboð
sterkar til skila. En ég tel að
Samfylkingin geti þokkalega vel
við unað.“
Ólafur Þór Gunnarsson
U-lista
Slæmt að
rödd umhverf-
issinna heyr-
ist ekki
ÓLAFUR ÞÓR GUNNARSSON,
oddviti Vinstrihreyfingarinnar –
græns framboðs í Kópavogi, segir
hræðsluáróður Samfylkingar og
Framsóknarflokks hafa orðið til
þess að lausafylgi fór til þessara
tveggja flokka frekar en U-lista.
„Við urðum auðvitað fyrir von-
brigðum að koma ekki inn manni,
en hins vegar erum við að byrja án
eldri uppbyggingar og var í upphafi
spáð engu fylgi. Að fara úr engu
fylgi í 6% fylgi er í sjálfu sér ekk-
ert slæmt, en það virðist vera sem
hræðsluáróður Samfylkingarinnar
sérstaklega og Framsóknar í raun
líka síðustu dagana fyrir kosningar,
hafi haft áhrif á lausafylgi sem varð
til þess að það fór á þá tvo flokka
frekar heldur en okkur. Þeir voru
greinilega með digrari kosn-
ingasjóði, í það minnsta eyddu þeir
meiru í auglýsingar og útgáfu en
við höfðum efni á. Þar munar
sennilega því að við erum að mæl-
ast með mann inni í könnunum rétt
fyrir kosningar, en lausafylgið talið
það öruggara fyrir atkvæði sitt að
fara annað.
Við lítum á þetta sem ágætis
byrjun og erum alls ekki svartsýn.
En það er slæmt að rödd umhverf-
issinna skuli ekki heyrast í bæj-
arstjórn.“
ÓLAFUR F. Magnússon, borg-
arfulltrúi Frjálslyndra og óháðra,
segist hrærður og þakklátur þeim
stuðningi sem F-listinn hafi fengið
í borgarstjórnarkosningunum en
listinn hlaut 6,1% atkvæða og einn
mann kjörinn í borgarstjórn. Sam-
kvæmt fyrstu tölum, sem gefnar
voru um kl. 22 á laugardagskvöld,
voru Frjálslyndir og óháðir með
5,4% atkvæða, og því ekki með
mann inni. Það var ekki fyrr en
um kl. tvö um nóttina eða þegar
aðeins átti eftir að telja vafa-
atkvæði og um 7000 utankjörfund-
aratkvæði sem tölur gáfu til kynna
að F-listinn hefði náð inn manni í
borgarstjórn með 6,1% atkvæða.
Þar með var níundi maður R-
listans, Helgi Hjörvar, dottinn út
sem borgarfulltrúi.
Ólafur segist hafa verið vongóð-
ur um að komast inn í borg-
arstjórn framan af kvöldi en um
eittleytið um nóttina hafi hann eig-
inlega verið búinn að gefa upp alla
von. Þá mætti hann í Kastljósið í
Sjónvarpinu með öðrum frambjóð-
endum í Reykjavík og í lok þátt-
arins þakkaði hann Ingibjörgu
Sólrúnu Gísladóttur borgarstjóra
fyrir samstarfið í borgarstjórn.
„Þegar Kastljósinu lauk kvaddi ég
Ingibjörgu Sólrúnu sem borg-
arfulltrúi og þakkaði henni fyrir
samstarfið. Ég varð því meira en
lítið hissa rúmlega klukkustund
síðar, þegar ég var heima að hvíla
mig áður en ég færi á kosn-
ingavöku F-listans á ný, og fékk
þær fréttir að við værum að öllum
líkindum komin inn með mann í
borgarstjórn,“ segir Ólafur. Eftir
að hann fékk þessar fréttir fór
hann aftur á kosningavöku F-
listans, á veitingastaðnum Vídalín
við Aðalstræti og segist hafa feng-
ið mjög góðar móttökur frá stuðn-
ingsmönnum F-listans. „Þessi nótt
var stórkostleg í einu orði sagt.“
Tvöfaldur bunki
Ólafur segir skýringuna á því að
hann hafi „dottið inn“ svo skyndi-
lega í borgarstjórn seint um nótt
að bilun hafi orðið á talningavél-
inni í Ráðhúsinu. „Um nóttina
komu upp vandræði með taln-
ingavélina einmitt þegar átti að
telja bunka af atkvæðum F-listans.
Af þessum sökum lumuðum við á
tvöföldum bunka í síðustu talningu
fyrir talningu utankjörfund-
aratkvæðanna.“ Ólafur segir að
um kl. tvö um nóttina hafi F-
listinn því verið kominn í stöðu
sem tryggði honum sigurinn. „Ég
var búinn að lýsa mig sigraðan en
fékk þarna endurreisn sem borg-
arfulltrúi,“ segir hann. Ólafur seg-
ir árangur F-listans stórkostlegan
því það þurfi meira en lítið til „til
að klifra upp á milli stóru fylking-
anna og ná inn manni í borg-
arstjórn“.
Aðspurður segist Ólafur telja að
F-listinn sækti fylgi sitt helst til
aldraðra, öryrkja, sjúkra og fatl-
aðra vegna stefnu listans í velferð-
armálum. „Ég tel að ég hafi fengið
fylgi bæði frá hægri og vinstri og
úr öllum flokkum,“ segir hann, en
telur jafnframt að listinn hafi
fengið akvæði frá þeim sem ekki
hafi áður séð ástæðu til að greiða
ákveðnu framboði atkvæði sitt,
þ.e. þeim sem áður hefðu skilað
auðu.
Sigruðum í skoðanakönnunum
Ólafur telur að óbilandi trú og
þrautseigja þeirra sem stóðu að F-
listanum hafi reynst hræðsluáróðri
gegn listanum yfirsterkari. „Versti
áróðurinn gegn okkur var sá að
með því greiða okkur atkvæði
væri fólk hugsanlega að kasta at-
kvæði sínu á glæ. Okkur hefur
greinilega tekist að snúa þessu
við.“ Þegar hann er spurður um
skoðanakannanir fyrir kosning-
arnar, en engar þeirra gáfu til
kynna að F-listinn myndi ná inn
manni, segir Ólafur þetta eitt:
„Við unnum skoðanakannanirnar.“
En hvað fóru miklar peningar
hjá F-listanum í kosningabarátt-
una? „Við gerum ráð fyrir að hafa
varið fimm milljónum kr. til þess-
arar kosningabaráttu. Við munum
gefa upp allan kostnað á næstunni
eins og við lýstum yfir fyrir kosn-
ingarnar. Ég vona að önnur fram-
boð eigi eftir að taka það til fyr-
irmyndar.“
Hvað um framhaldið; heldur þú
að þú munir halla þér að annarri
hvorri fylkingunni, þ.e. R- eða D-
lista í borgarstjórn? „Það er allt
óákveðið en við hljótum að reyna
að láta okkar rödd heyrast og hafa
þau áhrif sem við mögulega get-
um.“
Hvaða málefni ætlar þú helst að
leggja áherslu á í borgarstjórn?
„Ég mun leggja áherslu á að
bregðast ekki því trausti sem okk-
ur hefur verið sýnt. Einkum mun
ég leggja áherslu á velferðarmálin,
þ.e. málefni aldraðra og öryrkja,“
segir hann m.a.
Að lokum vill Ólafur koma á
framfæri sérstökum þökkum til
allra þeirra sem unnu óeigingjarnt
starf fyrir F-listann og studdu
hann í kosningunum.
Morgunblaðið/Sverrir
Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi F-listans, með stuðningsmönnum sínum eftir að
ljóst var að hann næði kjöri.
Ólafur F. Magnússon borgarfulltrúi F-listans
Hrærður og
þakklátur fyrir
stuðninginn
FRAMSÓKNARMENN í Kópavogi
eru mjög ánægðir með úrslit kosn-
inganna að sögn Ómars Stef-
ánssonar, þriðja manns á lista, en
flokkurinn bætti við sig manni frá
síðustu kosningum og fékk þrjá
menn kjörna nú.
„Ég tel nokkra þætti hafa orðið
þess valdandi að við jukum fylgi
okkar eins og raun ber vitni,“ segir
Ómar. „Flokkurinn er mjög sam-
heldinn, hann skipar gott og reynt
fólk sem vinnur mjög vel saman.
Sigurður Geirdal [oddviti flokksins
og bæjarstjóri Kópavogs] er mjög
vinsæll meðal bæjarbúa og mikill
meirihluti þeirra vill hafa hann
áfram sem bæjarstjóra. Þá tel ég
skipta mjög miklu máli að við fram-
sóknarmenn í Kópavogi höfum
treyst ungu fólki til að taka ábyrgð
og sitja í nefndum, en það hafa hinir
flokkarnir einfaldlega ekki gert.
Ungt fólk veit þetta og við fundum
mjög jákvæða strauma frá því í
kosningabaráttunni.“
Ómar segist hafa fundið fyrir því
að flokkurinn væri í sókn. „Við von-
uðum að úrslitin færu á þennan veg
en hversu öruggt þetta var kom okk-
ur á óvart. En við framsóknarmenn
erum ótvíræðir sigurvegarar í kosn-
ingunum.“
Ómar segir meirihlutaviðræður
standa yfir milli oddvita flokkanna.
Ómar Stefánsson B-lista
Samheldni
flokksins
skipti sköpum
FRAMSÓKNARMENN í Kópavogi
voru kampakátir með úrslitin, enda
bætti flokkurinn nokkuð við sig fylgi
og bætti við sig manni. Framsókn-
arflokkurinn hefur því þrjá menn í
nýrri bæjarstjórn. Hér fagnar bæj-
arstjórinn, Sigurður Geirdal, úrslit-
unum ásamt kátum framsókn-
arkonum í Kópavogi á kosninganótt.
Morgunblaðið/Sverrir
Framsóknarmenn fagna