Morgunblaðið - 28.05.2002, Síða 14
25.maí2002
14 B ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Hveragerði
Árni Magnússon B-lista
Margt sem
lagðist á eitt
ÁRNI Magnússon, oddviti Fram-
sóknarflokksins segir ekki hægt að
útskýra fylgisaukningu listans með
einföldum hætti. „Það er margt
sem leggst á eitt. Okkur tókst vel
til við uppstillingu á lista og höfð-
um mikið af ungu fólki með okkur.
Við fundum að við höfðum meðbyr
alla kosningabaráttuna og síðan
virðist Framsóknarflokkurinn
koma vel út á landsvísu sem hefur
sjálfsagt skilað okkur einhverju,“
segir Árni.
Framsóknarflokkurinn og Sam-
fylkingin fengu tvo fulltrúa hvor
og þar með féll meirihluti sjálf-
stæðismanna. Um kosninganóttina
ræddu framsóknarmenn og sam-
fylkingarfólk um meirihluta-
samstarf og náðist samkomulag
um öll meginatriði. „Það voru eng-
in grundvallaratriði sem við voru
ósammála um í kosningabarátt-
unni, þannig að þetta var til-
tölulega einfalt,“ segir Árni. Í ljósi
úrslitanna hafi það verið metið svo
að meirihluti kjósenda vildi slíkt
samstarf.
Eitt fyrsta verk nýs meirihluta
verður að ráða nýjan bæjarstjóra
sem verður að sögn Árna ekki ráð-
inn á pólitískum forsendum.
Þorsteinn G. Hjartarson
S-lista
Vinstrisveifla
sýnir vilja til
breytinga
ÞAÐ var svo mikið líf á skrifstofunni
okkar á kjördag og okkur fannst
sem allt gæti gerst,“ sagði Þorsteinn
G. Hjartarson, oddviti S-lista, í sam-
tali við Morgunblaðið.
Síðast buðu vinstrimenn fram H-
listann í Hveragerði og fengu þá
15,3% atkvæða. Undir merkjum S-
lista Samfylkingar og óháðra juku
þeir fylgið um rúmlega 10% sem er
heldur meira en Þorsteinn hafði gert
sér vonir um. Árangurinn þakkar
hann góðum og samstilltum hópi
frambjóðenda og hafi listinn verið
skipaður reynslumiklu fólki og nýju í
bland.
„Við háðum mjög málefnalega og
jákvæða kosningabaráttu sem hefur
greinilega skilað sér,“ segir hann.
Hvergerðingar séu frekar þekktir
fyrir að vera hægrimenn þannig að
þessi mikla vinstrisveifla hljóti að
vera til marks um að kjósendur hafi
viljað breyta til.
Aðspurður segir Þorsteinn að
verkefni nýs meirihluta Framsókn-
arflokks og Samfylkingar vera á
sviði fjármálastjórnar og í að marka
stefnuna til framtíðar. Þá verði hlúð
að fyrirtækjum í bænum og reynt að
laða fleiri að. Stefnt sé að því að
fjölga bæjarbúum og auka þjónustu
við þá. „Við viljum efla Hveragerði
sem fjölskylduvænan heilsubæ,“
segir Þorsteinn.
Cecil Haraldsson T-lista
Ákvörðun
um viðræður
tekin á
félagsfundi
DRAGA þurfti seðil úr kassa með
tveimur seðlum í til að skera úr um
hvort annar maður á T-lista eða
fyrsti maður á Þ-lista kæmist inn í
bæjarstjórn á Seyðisfirði. T-listinn
varð hlutskarpari og létti Cecil Har-
aldssyni, oddvita listans, talsvert við
það.
T-listi, Tinda, jafnaðar- og vinstri-
manna og óháðra bauð fram í fjórða
skipti á Seyðisfirði. Útkoman nú var
heldur lakari en síðast eða 22,8% í
stað 28,7% árið 1998. Cecil segist
hafa búist við að fylgið myndi
minnka en kom á óvart hversu mik-
ið. Hefði hann t.a.m. talið að T-
listinn yrði stærri en Framsókn-
arflokkurinn og einnig kom honum á
óvart hve mikið fylgi Sjálfstæð-
isflokkurinn hlaut. Cecil segist
ímynda sér að mikið af fylgistapi
Tinda hafi skilað sér til Þ-listans
sem bauð fram í fyrsta skipti nú.
Aðspurður um meirihluta-
viðræður sagði Cecil að oddvitar
beggja síðastnefndu flokkanna
hefðu haft samband við sig. Fram-
sóknarmenn hefðu orðið fyrri til en
varla væri þó hægt að segja að við-
ræður væru hafnar. Ákvörðun um
við hvorn flokkinn yrði rætt yrði tek-
in á almennum félagsfundi.
Seyðisfjörður
Jóhann P. Hansson B-lista
Vonbrigði
að fá ekki
meira fylgi
ODDVITI Framsóknarflokksins á
Seyðisfirði, Jóhann P. Hansson,
segir það vera vonbrigði að flokk-
urinn hafi ekki bætt við sig nema 12
atkvæðum frá síðustu kosningum
en þá hrundi fylgið af flokknum.
Engu að síður bæta framsókn-
armenn við manni í bæjarstjórn og
eru með tvo fulltrúa. „Þetta lítur
ágætlega út,“ sagði Jóhann í sam-
tali við Morgunblaðið á sunnudag.
Hann hafði þá hitt efsta mann á T-
listanum en viðræður um samstarf
væru þó í raun ekki hafnar. Að-
spurður sagði hann samstarf við T-
lista vera fyrsta kost en ekki væri
hægt að útiloka samstarf við sjálf-
stæðismenn. Ýmislegt hefði þó
komið upp á, m.a. í kosningabarátt-
unni, sem drægi úr líkum á því.
Framsókn og Sjálfstæðisflokkurinn
hefðu hins vegar verið saman í
meirihluta síðustu 24 árin þar á
undan.
Framsóknarmenn gagnrýndu
sjálfstæðismenn fyrir að fara mikið
fram úr fjárhagsáætlun bæjarins,
hefði framúrkeyrslan numið um 90
milljónum á síðustu tveimur árum.
Jóhann segir að af þessum sökum
sé fjárhagsstaðan þröng og lítið
svigrúm til annars en að halda
áfram með þær framkvæmdir sem
þegar eru hafnar. „Við tökum ekki
við jafn góðu búi og við fórum frá,“
sagði Jóhann.
Adólf Guðmundsson D-lista
Munurinn lítill
en úrslitin
vonbrigði
ADÓLF Guðmundsson, fyrsti mað-
ur á D-lista á Seyðisfirði, segir vissu-
lega vonbrigði að hafa tapað fjórða
manni af listanum yfir til Fram-
sóknar og þar með meirihlutanum í
bæjarstjórn. Hann segist þó ánægð-
ur með að munurinn hafi verið sára-
lítill, einungis hefði munað tæplega
20 atkvæðum að fjórði maðurinn
næði inn. Sjálfstæðisflokkurinn fékk
211 atkvæði eða 42,1% í kosning-
unum á laugardag, en fyrir fjórum
árum var fylgið 49,6%.
Adólf segir nýtt framboð Þ-listans
sem fékk 57 atkvæði að nokkru
skýra fylgistapið, einnig hafi Fram-
sókn bætt við sig 12 atkvæðum.
„Okkar málefnastaða var sterk og
mikil vinna að baki, en við unnum
stóran og glæstan sigur fyrir fjórum
árum og það hefur eitthvað af því
fylgi gengið til baka,“ segir Adólf.
„Það er engin launung á því að það
eru vonbrigði.“
Ásgeir Logi Ásgeirsson
K-lista
Misstu fylgi
unga fólksins
ÁSGEIR Logi Ásgeirsson, bæj-
arstjóri Ólafsfjarðar og efsti maður á
K-lista, framboði Sjálfstæðismanna
og annarra framfarasinna í Ólafs-
firði, segir ástæðu þess að listinn
tapaði einum manni og þar með
meirihlutanum yfir til Ó-lista marg-
þætta. Bæjarstjórn hafi þurft að tak-
ast á við nokkur þung mál á kjör-
tímabilinu.
Ásgeir Logi nefnir málefni
íþróttahreyfingarinnar og að at-
vinnuleysi í Ólafsfirði sé umfram at-
vinnuleysi á landsvísu. „Eins tókum
við á skuldastöðu sveitarsjóðs, sem
er mikil, og til að vinna á henni
hækkuðum við m.a. gjaldskrá hita-
veitunnar. Það var svo sem vitað að
það var ekki líklegt til að afla okkur
vinsælda á kosningaári, en við horfð-
um þannig á að ábyrgðin að takast á
við vandann væri okkar. Við stóðum
og féllum með því og því fór sem
fór,“ segir Ásgeir Logi.
Hann segir að í aðdraganda kosn-
inganna hafi menn fundið að brugðið
gat til beggja vona. Hann segir að K-
listinn og Ó-listinn, óháð framboð,
hafi sitt ákveðna fastafylgi og kosn-
ingar ráðist af lausafylginu. „Það er
svona 40 manna sveifla sem við miss-
um frá okkur sem gerir það að verk-
um að við missum meirihlutann,“
segir Ásgeir Logi. Vegna atvinnu-
ástandsins hafi K-listinn misst fylgi
unga fólksins. Hann segir að ágætar
horfur séu í atvinnumálum núna þar
sem mikið hafi verið unnið að því á
kjörtímabilinu. „Það sem búið er að
sá í akurinn er ekki enn farið að spíra
almennilega,“ segir Ásgeir Logi.
Ólafsfjörður
Jóna Vilhelmína Héðins-
dóttir Ó-lista
Verðum að
taka á fjár-
málunum
JÓNA Vilhelmína Héðinsdóttir,
oddviti Ólafsfjarðarlistans, óháðs
framboðs, var að vonum ánægð með
sigurinn en Ó-listinn hlaut 56,3% at-
kvæða og fær því fjóra bæjarfull-
trúa af sjö.
„Ég átti nú svona frekar von á
þessu,“ sagði Jóna enda hafði hún
heyrt það á bæjarbúum að þörf væri
á breytingum. Bæjarstjórinn á
Ólafsfirði var jafnframt efsti maður
á K-listanum og því einsýnt að nýr
maður verði ráðinn. Hver það verð-
ur veit enginn því eftir er að aug-
lýsa stöðuna en það verður vænt-
anlega gert fljótlega.
Sjálfstæðismenn hafa verið í meiri-
hluta á Ólafsfirði í sextán ár og því
var sigurinn á laugardag einkar
sætur.
Þrír af fjórum bæjarfulltrúum Ó-
listans eru nýir í bæjarstjórn. Jóna
segir að það liggi fyrir að úttekt
verði gerð á rekstri bæjarfélagsins.
Þegar nýtt fólk taki við sé nauðsyn-
legt að slík úttekt fari fram svo
staðan sé öllum ljós. „Við verðum að
taka vandlega á fjárhagshliðinni
hérna því við erum ekki í góðri
stöðu. Svo ríður á að fylgjast vel
með atvinnumálum og slíku,“ segir
hún.
Sveitarfélagið Skagafjörður
Snorri Styrkársson S-lista
Vissum að það
yrði á bratt-
ann að sækja
SNORRI Styrkársson, efsti maður á
Skagafjarðarlistanum, sem býður
fram í Skagafirði, segir ljóst að erfið
verkefni hafi blasað við listanum
þegar hann kom inn í samstarf við
Framsóknarflokk á miðju síðasta
ári. Það eigi þátt í að skýra fylgistap
flokksins.
„Við blöstu mjög erfið verkefni
sem við töldum að þyrfti að ráðast í
vegna fjárhags sveitarfélagsins. Það
hefur verið ráðist hart á þessi verk-
efni af Sjálfstæðisflokknum og ekki
síður Vinstri grænum.“
Snorri bendir á að Vinstri grænir
séu að hluta til klofningur úr Skaga-
fjarðarlistanum.
„Við gerðum okkur grein fyrir því
að það yrði að nokkru leyti á bratt-
ann að sækja þó að við hefðum ekki
átt von á þessari miklu sveiflu.“
Gísli Gunnarsson D-lista
Óánægðir
til Vinstri
grænna
GÍSLI Gunnarsson, efsti maður á
lista Sjálfstæðisflokks í Skagafirði,
segist þokkalega sáttur við nið-
urstöðu kosninganna þrátt fyrir
verulegt fylgistap. Einungs níu at-
kvæði vantaði upp á að Sjálfstæð-
isflokkur kæmi inn fjórða manni.
„Ef við hefðum náð fjórða manni
inn hefðum við litið á það sem góðan
sigur. Við erum alveg þokkalega sátt
en hitt hefði verið mjög ánægjulegt,“
segir Gísli.
Hann segir ýmis mál hafa verið í
deiglunni sem íbúar hafi ekki verið á
eitt sáttir með, til dæmis sala á
Steinullarverksmiðjunni og Rafveitu
Sauðárkróks. Óánægjufylgið hafi
hins vegar farið fram hjá D-lista og
yfir til Vinstri grænna.
„Við vorum á móti sölunni en fylg-
ið virðist samt fara yfir til Vinstri
grænna. Ég kann engar skýringar á
því.“
Að sögn Gísla mun D-listi byrja á
að ræða við Vinstri græna um mögu-
lega myndun meirihlutastjórnar.
Aldís Hafsteinsdóttir D-lista
Deilur sjálf-
stæðismanna
veiktu
framboðið
ALDÍS Hafsteinsdóttir, oddviti D-
listans í Hveragerði, segist ekki efast
um að deilur innan Sjálfstæðisfélags-
ins í bænum hafi veikt framboð þess
en meirihluti sjálfstæðismanna féll í
kosningunum á laugardag. Sjálfstæð-
isflokkurinn fékk þrjá menn núna en í
síðustu kosningum buðu sjálfstæð-
ismenn fram í tveimur framboðum,
Bæjarmálafélagið fékk fjóra menn og
Sjálfstæðisfélagið Ingólfur einn
mann. Síðasta sumar samþykktu fé-
lögin að ganga sameinuð til kosninga
en flokkurinn klofnaði á sínum tíma
vegna ágreinings um ráðningu í störf
hjá bæjarfélaginu.
„Ég held að þessar uppákomur
sem verið hafa hjá Sjálfstæð-
isflokknum í Hveragerði hafi veikt
þetta framboð, ég held að það sé al-
veg óumdeilt,“ segir Aldís.
Hún segir að enginn hafi búist við
að sjálfstæðismenn myndu halda sín-
um fimm mönnum inni. Það hafi verið
óraunhæft en sjálfstæðismenn hefðu
vonast til að halda meirihlutanum og
segir Aldís að flokkurinn hafi ekki
verið svo langt frá því marki. Hefði
D-listinn fengið 30 af atkvæðum
Samfylkingarinnar hefði meirihlutinn
haldið.
Aldís segir að þrátt fyrir deilur á
kjörtímabilinu hafi mikil eining ríkt
meðal sjálfstæðismanna fyrir kosn-
ingar. „Nú er bara að bretta upp
ermar og halda áfram. Það koma
kosningar eftir þessar,“ segir Aldís
og bætir við að sjálfstæðismenn muni
á kjörtímabilinu fyrst og fremst
byggja upp innra starf í félaginu.
„Auðvitað eru þetta vonbrigði.
Maður fer ekki í kosningar með það
fyrir augum að tapa, en Sjálfstæð-
isflokkurinn er búinn að vera með
einum eða öðrum hætti í stjórn bæj-
arfélagsins síðustu átta ár og ósk-
uðum við eftir því að fá umboð til að
halda áfram þeirri uppbyggingu sem
verið hefur. Þetta er bara eitthvað
sem maður verður að kyngja, svona
er þetta í kosningum, sumir vinna og
aðrir tapa,“ segir Aldís.
ÞEIR STILLTU saman klukkur
sínar þeir Pétur Sveinsson lögreglu-
varðstjóri og Eiríkur Tómasson, for-
maður yfirkjörstjórnar í Reykjavík,
upp á það hvenær talningarmenn í
Ráðhúsinu skyldu lokaðir inni. Allt
varð að vera eftir settum reglum,
enda mikilvægt að talning atkvæða
fari fram á réttan og löglegan hátt.
Morgunblaðið/Júlíus
Klukkur stilltar fyrir talningu