Morgunblaðið - 17.07.2002, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 17.07.2002, Qupperneq 9
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLÍ 2002 9                       36 erlendir skiptinemar koma til Íslands í ágúst nk. Þau bíða spennt eftir að heyra frá íslensku fósturfjölskyldunum sínum. Er fjölskylda þín ein af þeim? Viljið þið kynnast,..... .....nýjum viðhorfum? .....framandi menningu? .....nýrri sýn á land og þjóð? Ef svo er, þá gefst ykkur færi á að taka á móti erlendum skiptinema í 5—10 mánuði. KRISTINN Magnússon sundkappi synti Viðeyjarsund í þriðja sinn á laugardaginn. Hann hóf sundið frá bryggjunni í Viðey og tók land í Reykjavíkurhöfn við Suð- urbugt, sem er á milli Miðbakk- ans og Ægisgarðs. Sundið er 5,1 km og var hann eina klukkustund og 25 mínútur á leiðinni. Hann ætlar að synda frá Vestmanna- eyjum til lands um miðjan ágúst í sumar, en það hafa aðeins tveir menn gert áður, þeir Eyjólfur Jónsson og Axel Kvaran árið 1960. Kristinn segir að sundið á laug- ardaginn hafi verið nokkuð átaka- lítið. „Ég ætlaði reyndar að bæta metið mitt frá því fyrir fjórum ár- um, en var svo ekkert að æsa mig yfir því enda er það enn í minni eigu,“ sagði Kristinn, sem var 3 mínútur frá meti sínu. Sjórinn var um 10 stiga heitur og synti Krist- inn ósmurður í sundskýlu einni fata eins og hann er vanur. Ein af sjö sundleiðum í sumar Viðeyjarsundið er ein af sjö sundleiðum í sjó sem hann ætlar að fara í sumar. Hann synti fyrr í sumar Engeyjarsund og yfir Hval- fjörð. Næsta verkefni hans er Drangeyjarsund um næstu helgi. Þá ætlar hann að synda yfir Þing- vallavatn og frá Kjalarnesi og inn í Reykjavíkurhöfn, sem er um 10 km leið. Lokasundspretturinn verður frá Vestmannaeyjum til lands, alls um 13 km leið, um miðjan ágúst í sumar. Kristinn er 35 ára sjúkraþjálf- ari og hefur stundað sjósund frá því 1998. Hann syndir í sjónum nær alla daga vikunnar yfir sum- armánuðina og þá helst í Naut- hólsvík. Þá æfir hann sund með Sundfélagi Hafnarfjarðar. Hann segist aldrei hætta sér í sjósund nema bátur fylgi honum eftir. Menn úr Björgunarsveitinni í Hafnarfirði hafa fylgt honum eft- ir í sumar. Hann segir það mikla áskorun við náttúruna að stunda sjósund. „Ég tek aldrei neina áhættu í þessu. Aðalmálið er að öryggið sé í lagi. Ég veit alveg hvað ég má ganga langt í þessu, enda er ég sjúkraþjálfari og þekki vel líkama minn,“ segir hann. Þreytti Viðeyjar- sund í þriðja sinn Hyggst synda frá Eyjum til lands í ágúst Morgunblaðið/Júlíus Kristinn kemur að landi í Reykjavíkurhöfn. JÓHANNES Davíðsson gullsmið- ur, sem búsettur er í Danmörku, segist ætla að kæra þann úrskurð sem stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna hefur fellt í máli hans, en árið 1999 sótti Jóhannes um undanþágu frá endurgreiðslu námslána vegna veikinda og ör- orku. Í bréfi sem stjórn LÍN sendi Jóhannesi nú í júlí, kemur fram að stjórnin samþykki að Jóhannes eigi rétt á undanþágu frá endur- greiðslu námslána ársins 1999. Segir í bréfinu að undanþágan sé veitt vegna skyndilegra og veru- legra breytinga sem orðið hafi á högum Jóhannesar milli áranna 1998 og 1999 sbr. 9. grein reglu- gerðar um LÍN. Undanþágan sé háð því að Jóhannes komi náms- láni sínu í skil og sendi sjóðnum staðfestar upplýsingar um tekjur á árunum 2000 og 2001. Fram að þeim tíma er Jóhannesi jafnframt boðið að leita samninga við sjóðinn um skuldbreytingu vanskilanna. Jóhannes sótti um undanþágu frá afborgun námslána vegna breytinga sem urðu á högum hans vegna mænusiggssjúkdóms sem veldur því að hann getur ekki sinnt starfi sínu, en stjórn LÍN hafnaði beiðninni. Málskotsnefnd LÍN staðfesti úrskurð lánasjóðsins í ársbyrjun 2000. Í framhaldi af því leitaði Jóhannes til umboðs- manns Alþingis. Umboðsmaður sendi frá sér álit í maí 2001 þar sem hann komst að þeirri niður- stöðu að afgreiðsla stjórnar LÍN og síðar málskotsnefndar LÍN hefði ekki verið í samræmi við lög. Beindi hann þeim tilmælum til málskotsnefndar að hún tæki mál- ið aftur til skoðunar. Í mars á þessu ári staðfesti stjórn LÍN fyrri niðurstöðu sína frá því í nóv- ember 1999. Jóhannes kærði úr- skurðinn til málskotsnefndar og felldi nefndin hann úr gildi í sum- arbyrjun. Stjórn LÍN hefur nú samþykkt að Jóhannes fái und- anþágu frá greiðslu námslána árs- ins 1999, eins og fyrr segir. Fer fram á að fá námslánin felld niður „Nú mun ég kæra þennan úr- skurð enn einu sinni og fara fram á það sem ég hef gert allan tím- ann, að fá námslánin felld niður, frá þeim tíma sem ég varð öryrki. Ég kem til með að hafna þessu til- boði framkvæmdastjórans og sendi málið til málskotsnefndar enn einu sinni og sé þá að málið er enn farið í sama farveginn,“ sagði Jóhannes. Hann segist fara fram á að LÍN noti í fyrsta sinn ákvæði sem sé að finna í lögum um Lánasjóðinn og kveður á um að verði einstaklingur fyrir alvarlegum veikindum eða slysi, sé hægt að fá endurgreiðslu námslána fellda niður. Hann segist hafa þá sem hugsanlega eigi eftir að lenda í vandræðum með þessi mál í framtíðinni í huga, en gengið sé á ábyrgðarmenn lána hjá fólki sem kannski hafi lent í slæmum veikindum. Að hans mati sé furðu- legt að nauðsynlegt sé að hafa ábyrgðarmenn á íslenskum náms- lánum, slíkt tryggi ekki jafnrétti til náms. Hyggst kæra úr- skurð stjórnar LÍN

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.