Morgunblaðið - 01.08.2002, Side 18
AKUREYRI
18 FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRARBÆR
Skóladeild
Glerárgötu 26, 600 Akureyri
Brekkuskóli
Laus er staða forstöðumanns skólavistunar
Í öllum sex grunnskólum Akureyrar eru starfræktar skólavistanir
fyrir börn í 1.-4. bekk. Skólavistun er tilboð til foreldra um
öruggan stað fyrir börnin eftir að kennslu lýkur á daginn. Þar
hafa börnin aðstöðu til fjölbreyttra leikja og eiga kost á að velja
um margvísleg verkefni og tómstundastörf.
Forstöðumaður skólavistunar ber ábyrgð á starfinu, sér um
skipulag og sinnir verkstjórn starfsmanna. Starfið krefst
skipulags- og stjórnunarhæfileika ásamt hæfni í mannlegum
samskiptum. Uppeldismenntun er æskileg.
Upplýsingar gefur skólastjóri Sigmar Ólafsson í síma 462 2525
og í vasasíma 897 3233 eða Skóladeild í síma 460 1463.
Giljaskóli
Laus er 60% staða skólaliða/stuðningsfulltrúa
Upplýsingar gefur skólastjóri Halldóra Haraldsdóttir
í síma 462 4820 eða Skóladeild í síma 460 1463.
Upplýsingar einnig veittar á starfsmannadeild
Akureyrarbæjar í síma 460 1000.
Umsóknum skal skilað í upplýsingaanddyri í Geislagötu 9
á eyðublöðum sem þar fást. Einnig er hægt að sækja um á
heimasíðu Akureyrarbæjar - www.akureyri.is
Umsóknarfrestur er til 9. ágúst 2002
eru þrjár stangir
dagana 5.-7. ágúst
í Svalbarðsá
í Þistilfirði
Upplýsingar veittar
í síma 892 5394
LAUSAR
Akureyrarliðin Þór og KA mætast
í Símadeild karla í knattspyrnu í
kvöld á Akureyrarvelli. KA-menn
eru í toppbaráttu deildarinnar en
Þórsarar neðstir, en þrátt fyrir
það má reikna með því að hart
verði barist og leikurinn spennandi
eins og jafnan þegar félögin eigast
við. Veður hefur verið gott í bæn-
um síðustu daga og ljóst að verði
gæði leiksins ekki mikil verður
slæmum aðstæðum ekki um að
kenna. Kristinn Geir Aðalsteins-
son, starfsmaður Akureyrarvallar,
og samstarfsmenn hans voru í óða
önn að klæða völlinn í sparifötin
þegar Morgunblaðið leit við síðari
hluta gærdagsins – Kristinn ók
sláttuvélinni í hringi þannig að
völlurinn á að vera fallegur í
kvöld. Reiknað er með margmenni
á völlinn, en þess má geta að grill-
veisla verður fyrir yngri flokka og
stuðningsmenn félaganna við hvort
félagsheimilið, Hamar þeirra Þórs-
ara og KA-heimilið, klukkan 5 og
síðan verður gengið fylktu liði að
vellinum þegar allir eru orðnir
mettir. Flautað verður til leiks kl.
19.15.
Bæjarslagur
á „teppinu“
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
KARLMAÐUR á fertugsaldri hef-
ur í Héraðsdómi Norðurlands
eystra verið sýknaður af ákæru
vegna kynferðisbrots gagnvart
ungri stúlku og skaðabótakröfu
hennar var vísað frá dómi.
Ríkissaksóknari höfðaði mál á
hendur manninum í febrúar síðast-
liðnum fyrir kynferðisbrot gagn-
vart stúlku sem fædd er árið 1987.
Maðurinn var sundþjálfari stúlk-
unnar og íþróttakennari við grunn-
skóla þann er hún stundaði nám
við. Var hann ákærður fyrir að
hafa í nokkur skipti á heimili sínu
og einu sinni í íþróttahúsi skólans
káfað á brjóstum stúlkunnar, á
tímabilinu frá september árið 2000
til janúar 2001. Einnig að hafa
kysst stúlkuna og haft við hana
kynmök.
Stúlkan krafðist miska- og þján-
ingabóta að upphæð tæplega 1,1
milljón króna.
Kynni tókust með stúlkunni og
manninum haustið 2000 þegar
hann hóf kennslu við grunnskólann
sem hún stundaði nám í. Voru
samskipti þeirra allmikil næstu
mánuði vegna kennslu- og þjálf-
unarstarfa mannsins og einnig tók
stúlkan að sér að gæta barna á
heimili mannsins. Stúlkan var þá
13 ára en maðurinn 33 ára.
Stúlkan upplýsti í janúar 2001
að maðurinn hefði viðhaft kynferð-
islega háttsemi gagnvart henni.
Fram kemur í niðurstöðu dómsins
að stúlkan hafi viljað draga ásak-
anir sínar til baka um vorið það ár
og er það í samræmi við bréf
hennar þar að lútandi sem og seg-
ulbandsupptöku af símtali sem
maðurinn lagði fram. Eins kemur
fram að stúlkan hafi ítrekað reynt
að hafa samskipti við manninn og
fjölskyldu hans með SMS-skila-
boðum. Fyrir dómi í janúar síðast-
liðnum hélt stúlkan því hins vegar
fram að vilji hennar til að draga
ásakanirnar til baka hafi verið
runninn undan rifjum mannsins.
Átti stúlkan í tilfinningalegum erf-
iðleikum allt síðasta ár. Maðurinn
neitaði sök við alla meðferð máls-
ins og þótti frásögn hans í aðal-
atriðum staðföst og trúverðug. Í
dómnum segir að stúlkan sé í raun
ein til frásagnar um atburði og
vitnisburður vinkvenna hennar
styðji ekki frásögn hennar um að
maðurinn hafi sýnt af sér um-
rædda háttsemi. Því er það álit
dómsins að ekki hafi tekist að
sanna, gegn neitun mannsins, að
hann hafi gerst sekur um háttsemi
þá er honum var gefin að sök. Því
beri að sýkna hann og vísa bóta-
kröfu frá dómi.
Dómurinn var fjölskipaður, Ólaf-
ur Ólafsson héraðsdómari var
dómsformaður en meðdómendur
voru Ásgeir Pétur Ásgeirsson hér-
aðsdómari og Freyr Ófeigsson
dómstjóri. Sigríður J. Friðjóns-
dóttir saksóknari sótti málið en
verjandi mannsins var Brynjar
Níelsson hrl.
Héraðsdómur Norðurlands eystra
Sýknaður af
kynferðisbroti
gegn stúlku
LÖGREGLAN á Akureyri verður
með aukinn viðbúnað um komandi
helgi, verslunarmannahelgina, en í
bænum fer fram fjölskylduhátíðin
„Ein með öllu“ líkt og á síðasta ári.
„Við gerum ráð fyrir að þetta
verði með svipuðu sniði og í fyrra-
sumar og höfum bætt við okkur
mannskap umfram það sem er um
venjulega helgi,“ sagði Daníel Guð-
jónsson, yfirlögregluþjónn á Akur-
eyri. Hann sagði að eftirlit á vegum
kringum bæinn yrði aukið og þá
yrði einnig meiri viðbúnaður í bæn-
um sjálfum en vant er. Bifreiðar á
vegum ríkislögreglustjóra útbúnar
myndavélum til að mæla hraða bif-
reiða verða á ferðinni bæði innan-
og utanbæjar. „Við erum að búa
okkur undir all mikla umferð og
eigum von á fjölda góðra gesta til
bæjarins,“ sagði Daníel. Hann
gerði ráð fyrir að samsetning gesta
yrði með svipuðum hætti og á liðnu
ári, þ.e. að mest yrði um fjölskyldu-
fólk og eins að bæjarbúar sjálfir
tækju virkan þátt í hátíðarhöldun-
um.
Haraldur Ingólfsson hjá Fremri
kynningarþjónustu, sem hefur um-
sjón með „Einni með öllu“, sagði að
nú í vikunni hefðu fyrirspurnir auk-
ist mjög. „Fólk er í auknum mæli
að hringja og spyrjast fyrir um þá
dagskrá sem í boði verður. Góð
veðurspá fyrir þennan landshluta
virðist hleypa auknum krafti í þetta
og ekki ólíklegt að straumurinn
liggi norður,“ sagði Haraldur.
Tjaldsvæðin sem Skátafélagið
Klakkur rekur að Hömrum og við
Þórunnarstræti verða opin, en ung-
mennum undir 18 ára aldri verður
ekki hleypt inn á tjaldsvæðin nema
í fylgd með foreldrum eða forráða-
mönnum. Engin sérstök unglinga-
tjaldsvæði verða í boði líkt og var
þegar hátíðin Halló Akureyri var
og hét.
Strætisvagnar Akureyrar verða
með ferðir milli miðbæjar og tjald-
svæðisins að Hömrum á hálf tíma
fresti frá kl. 19 til 0.30 á föstudag
og um helgina, laugardag og
sunnudag frá kl. 12.30 til 0.30. Á
mánudag verða ferðir frá kl. 12.30
til 15.
Hátíðin verður sett á Ráðhús-
torgi annað kvöld, föstudagskvöld,
kl. 21. Fjölbreytt dagskrá verður á
Ráðhústorgi á laugardag og eins
um kvöldið, þar verður einnig dag-
skrá á sunnudag. Unglingadans-
leikur með Sálinni verður í KA-
heimilinu á laugardagskvöld.
Skrúðgöngur verða frá verslunum
Bónuss, Hagkaupa og 10–11 á
sunnudagskvöld sem renna svo
saman í eina, en ferðinni verður
heitið á Akureyrarvöll þar sem boð-
ið verður upp á skemmtun, brekku-
og stúkusöng. Björgunarsveitin
Súlur efnir til flugeldasýningar þar
kl. 23.30.
Búist við fjölda fólks á Eina með öllu
Aukinn viðbúnað-
ur lögreglu inn-
an- og utanbæjar
ALLS bárust 34 umsóknir um
stöðu deildarstjóra íþrótta- og
tómstundadeildar Akureyrarbæjar
en umsóknarfrestur er nýlega
runninn út. Þeir sem sóttu um eru:
Árni Birgisson Selfossi, Björgúlfur
Þórðarson Akureyri, Einar Birgir
Kristjánsson Akureyri, Einar Þór
Karlsson Kópavogi, Finnur M.
Gunnlaugsson Akureyri, Finnur V.
Bjarnason Akureyri, Gísli Bald-
vinsson Akureyri, Guðfinnur H.
Þorkelsson Kópavogi, Guðmundur
Ævar Oddsson Akureyri, Helga
Björg Ragnarsdóttir Reykjavík,
Hjalti Sigurbergur Hjaltason Ak-
ureyri, Hulda Sigríður Guðmunds-
dóttir Akureyri, Jón Rúnar Hilm-
arsson Keflavík, Jón Skjöldur
Karlsson Akureyri, Jónas Egilsson
Reykjavík, Kjartan Emil Sigurðs-
son Reykjavík, Kristinn H. Svan-
bergsson Akureyri, Kristín Ragna
Pálsdóttir Garðabæ, María
Tryggvadóttir Akureyri, Ómar
Kristinsson Akureyri, Pétur
Maack Þorsteinsson Reykjavík,
Samúel Grímsson Keflavík, Sif
Ólafsdóttir Borgarnesi, Soffía
Gísladóttir Húsavík, Stefán Ing-
ólfsson Akureyri, Tómas Veigar
Sigurðarson Akureyri, Tómas Þór
Eiríksson Grindavík, Vala Björk
Valgeirsdóttir Reykjavík, Valbjörg
Bergland Fjólmundsdóttir Akur-
eyri, Viðar Sigurjónsson Akureyri,
Vignir Þór Jónsson Reykjavík, Vil-
hjálmur Þ. Vilhjálmsson Reykja-
vík, Þorvaldur Makan Sigbjörns-
son Akureyri og Þorvaldur
Þorsteinsson Akureyri.
Deildarstjóri hefur umsjón með
rekstri íþrótta- og tómstunda-
mannvirkja, samskiptum við fé-
lagasamtök og fleira. Velta deild-
arinnar er um 530 milljónir króna
á ári og stöðugildi um 50. Akureyr-
arbær er aðili að Vetraríþrótta-
miðstöð Íslands og er skrifstofa
miðstöðvarinnar á Akureyri.
Eiríkur B. Björgvinsson, sem
gegnt hefur stöðunni síðustu ár,
hefur verið ráðinn bæjarstjóri á
Austur-Héraði. Hann tekur við því
starfi 1. september næstkomandi.
Íþrótta- og tómstundaráð mun
væntanlega koma saman til fundar
13. ágúst þar sem fjallað verður
um tillögur að ráðningu nýs deild-
arstjóra.
Alls bárust
34 um-
sóknir um
stöðuna
Deildarstjóri íþrótta-
og tómstundadeildar