Morgunblaðið - 03.08.2002, Side 1
180. TBL. 90. ÁRG. LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 3. ÁGÚST 2002
BANDARÍKJAMENN og Bretar efast um heil-
indin á bak við tilboð stjórnar Saddams Husseins
Íraksforseta um viðræður er miði að því að af-
vopnunareftirlit Sameinuðu þjóðanna hefjist á ný
eftir nokkur ár. Talsmaður Kofi Annans, fram-
kvæmdastjóra SÞ, sagði í gær að Annan fagnaði
tilboðinu en bætti við að hugmyndirnar sem reif-
aðar væru í bréfi frá Naji Sabri, utanríkisráðherra
Íraks, rækjust á skilyrði sem sett væru í ályktun
öryggisráðs SÞ frá 1999. Þá var Írökum sagt að ef
þeir leyfðu eftirlitsnefnd SÞ ótakmarkaðan að-
gang að grunsamlegum stöðum myndi alþjóðleg-
um refsiaðgerðum gegn ríkinu verða hætt.
Rússar fögnuðu í gær stefnubreytingu Sadd-
ams og töldu hana geta leitt til þess að deilurnar
um meinta framleiðslu Íraka á gereyðingarvopn-
um yrðu ef til vill leystar með friðsamlegum hætti.
Frakkar virtust einnig vera jákvæðir gagnvart til-
lögu Íraka en talsmaður breskra stjórnvalda sagði
að Saddam hefði á ferli sínum oft reynt að beita
brögðum og reynslan sýndi að hann sviki loforð.
Segir stefnu Bandaríkjanna óbreytta
Stjórn George W. Bush Bandaríkjaforseta
íhugar að gera innrás í Írak með það að markmiði
að steypa Saddam af stóli en talsmenn hennar
neita því að búið sé að gera nákvæmar áætlanir í
þá veru. Bush forseti tjáði sig ekki sjálfur um bréf-
ið frá Sabri en Sean McCormack, talsmaður for-
setans, sagði í gær að Saddam yrði að samþykkja
undanbragðalaust eftirlit „hvenær sem er, hvar
sem er“ en ekki leggja til samningaviðræður.
McCormack benti á að vopnaeftirlitið væri ekki
markmið í sjálfu sér. „Stefna okkar er óbreytt.
Hún hefur verið óbreytt frá 1995 – stjórnarskipti
[í Írak],“ sagði talsmaðurinn.
Í bréfi Sabris á fimmtudag til Annans er lagt til
að Daninn Hans Blix, yfirmaður eftirlitsnefndar-
innar, komi til Bagdad til að ræða við írösk stjórn-
völd um tæknileg atriði í sambandi við eftirlit.
Forveri nefndarinnar yfirgaf Írak árið 1998 vegna
samvinnutregðu Íraka.
Er samið var um vopnahlé í stríði bandamanna
við Íraka 1991 var kveðið á um vopnaeftirlit en að
sögn breska embættismanna hafa Írakar þver-
skallast við að uppfylla 23 af alls 27 sérstökum
skilyrðum sem öryggisráð SÞ hefur samþykkt að
þeir skuli fullnægja.
Annan segir viðræðutilboð
Íraka rekast á skilyrði SÞ
SÞ, Washington, London. AP, AFP.
DÓMARI fyrir alríkisrétti í Banda-
ríkjunum úrskurðaði í gær að Banda-
ríkjastjórn væri skylt að gefa upp
innan 15 daga nöfn allra þeirra sem
sætu í varðhaldi í tengslum við rann-
sókn á hryðjuverkaárásunum 11.
september sl. Sagði dómarinn, Glad-
ys Kessler, að rök stjórnvalda fyrir
því, að gefa nöfnin ekki upp, væru
ófullnægjandi.
„Enginn vafi leikur á því að réttur
borgaranna til að vita hverjir það eru,
sem sitja í varðhaldi, skiptir sköpum
ef mögulegt á að vera að sannreyna
hvort stjórnvöld hegða sér í samræmi
við lög eður ei,“ sagði í úrskurðinum.
Alls hafa um 1.200 manns verið
handtekin vegna rannsóknar á árás-
unum en Bandaríkjastjórn upplýsti í
júní að 147 sætu enn í varðhaldi. Þar
er ekki um að ræða þá sem haldið er í
Guantamo-herstöðinni á Kúbu.
Hafa stjórnvöld sagt að með því að
gera þessi nöfn opinber sé verið að
hjálpa hryðjuverkamönnum annars
staðar í heiminum að kortleggja
hvernig rannsókninni gangi fram.
Kessler sagði þessa skýringu hins
vegar rökleysu. Stjórnvöld reyndu
sjaldnast í þeim gögnum, sem þau
hefðu lagt fram, að sýna fram á tengsl
þessara einstaklinga við hryðjuverk-
in. Hún úrskurðaði þó að heimilt
verði að leyna áfram nöfnum þeirra,
sem sjálfir fara fram á það. Þá komi
til greina að halda nafni einstaklings
leyndu ef sýnt þyki fram á að viðkom-
andi sé mikilvægt vitni í rannsókn yf-
irvalda á hryðjuverkunum.
Rannsókn vegna árásar á Bandaríkin 11. september sl.
Gefi upp nöfn þeirra
sem sitja í varðhaldi
Washington. AP.
TYRKNESKA þingið samþykkti í
gær að afnema dauðarefsingar í
landinu en breytingin er liður í um-
bótum sem ætlað er að auka líkur á
að Tyrkland fái aðild að Evrópu-
sambandinu. Vonast Tyrkir til þess
að formlegar aðildarviðræður geti
farið af stað á næsta ári.
Þingmenn Framtakssinnaða
þjóðernisflokksins, sem aðild á að
samsteypustjórn Bulents Ecevits
forsætisráðherra, börðust hat-
rammlega fyrir því í gær að laga-
breytingunni, sem hefur í för með
sér afnám dauðarefsinga, yrði
sleppt úr umbótaáætlun stjórnar-
innar. 256 þingmenn reyndust
engu að síður fylgjandi breyting-
unni en 162 á móti.
Er gert ráð fyrir að umbótaáætl-
unin verði tekinn til atkvæða-
greiðslu í heild sinni í dag.
Breytingin hefur í för með sér að
í stað dauðadóms verði menn
dæmdir í lífstíðarfangelsi. Lög
munu þó áfram gera ráð fyrir að
hægt verði að beita dauðarefsingu
á stríðstímum.
Öcalan sleppur við líflát
Þjóðernissinnar beittu einkum
þeim rökum við umræður á tyrk-
neska þinginu í gær að ef menn
samþykktu þessa breytingu þýddi
það að Kúrdaleiðtoginn Abdullah
Öcalan, sem dæmdur var til dauða
af dómstóli í Tyrklandi árið 1999,
slyppi lifandi. Sökuðu þeir umbóta-
sinna um að svíkja ættmenni þess
fólks sem látist hefði í hryðjuverk-
um frelsissamtaka, sem Öcalan
veitti forystu á sínum tíma.
Umbótasinnar lögðu aftur á
móti áherslu á að breytingin væri
nauðsynleg ef Tyrkland ætti nokk-
urn tíma að fá aðild að ESB.
Átján ár eru liðin síðan dauða-
dómi var síðast framfylgt í Tyrk-
landi en dómstólar dæma menn þó
engu að síður enn til dauða og bíða
um 50 menn þess að verða teknir af
lífi.
Dauðarefsing
verður afnum-
in í Tyrklandi
Ankara. AP.
FIMM Palestínumenn biðu bana í
hernaðaraðgerðum Ísraela í gær,
þ.á m. einn liðsmanna Hamas-
samtakanna, en þau höfðu lýst á
hendur sér ábyrgð á sprengju-
tilræði í Jerúsalem fyrr í vikunni,
þar sem sjö manns biðu bana. Ísr-
aelsher lagði undir sig borgina
Nablus á Vesturbakkanum og
mætti þar lítilli mótspyrnu en
meira en eitt hundrað skriðdrekum
var beitt í aðgerðunum. Gengu her-
menn hús úr húsi og yfirheyrðu
fólk og um 20 Palestínumenn voru
handteknir. „Nablus er hryðju-
verkahöfuðborgin, hinsti viðkomu-
staður manna sem hyggja á sjálfs-
morðsárás,“ sagði Binyamin Ben
Eliezer, varnarmálaráðherra Ísr-
aels í gær, er hann varði þá hörku,
sem ísraelski herinn hafði sýnt.
AP
Gengu hús úr húsi í Nablus
RÚSSNESKUR slökkviliðsmaður
hallar sér yfir vatnsslöngu, sem gat
hefur komið á, og kælir sig þannig
eftir að hafa tekið þátt í að slökkva
mikinn eld sem kviknað hafði á úti-
markaði í Moskvu í gær. Engar
fréttir bárust af alvarlegum bruna-
sárum en útimarkaðurinn er undir
hraðbraut í borginni.
Kælir sig
eftir átök
við eldinn
AP