Morgunblaðið - 03.08.2002, Síða 32

Morgunblaðið - 03.08.2002, Síða 32
UMRÆÐAN 32 LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ Málrækt er einum þræðibarátta og á það sam-merkt með margriannarri að ekki er alltaf ljóst við hvern barist var og um hvað. Það getur jafnvel komið á daginn að enginn hafi barist á móti. Þó hjó maður sannanlega á báðar hendur, er lítt sár en ákaf- lega móður. Vígamönnum þykir hneisa að lenda í slíku. Þeir eru vandir að virðingu sinni. Minni kempur og sveigjanlegri geta hins vegar haft sigur í svona viðureign. Það kem- ur þá í ljós að maður hefur barist við sjálfan sig og komist til nokk- urs þroska. Málræktin er orðin mannrækt. Ég hefði getað sagt að vinir málsins berðust oft við vindmyll- ur. Íslensk vindmyllumenning náði aldrei blóma. Það vantaði bæði spýtur og korn. En myndina af þessum mannvirkjum og hólm- göngunni við þau heyjuðum við okkur í sögunni af Don Kíkóta. Og það er nóg, því hólmurinn er í huganum. Enn er dýru púðri eytt á þá sem vilja veita fé í þágufalli. (Þó ætti það að vera betra fallið: sælla er að þiggja fé en gefa. Þolfallið er auðvitað ágætt líka; hvað er ljúf- ara en þola fjárveitingu?) Sjálfur hef ég bæði veitt þeim og veitt yfir þá háði og spotti. En hyggjum að. Í Orðabók Menningarsjóðs er 2. merking sagnarinnar að veita sögð „láta renna í þar til gerðum skurði: veita vatni á engjar “ og þar fram eftir götunum. Alþýða manna virðist hafa tekið þessum möguleika fegins hendi, því hún veitir fjármagni út og suður. Þetta hefur mörgum vandlætara mis- líkað. (Og það eru allir málrækt- armenn. Hvers konar ræktun væri það að góna á sjálfsprottinn akur og fylgjast bara með því hvernig gróðrinum reiddi af?) Þeir hafa einblínt á aðra merkinguna, þolfallsiðjuna að „afhenda e-ð, láta e-ð í té“ o.s.frv. en viljað einskorða þágufallið við það að veita vökvum og vessum. Ég er hræddur um að stíflan sé brostin. Tímarnir eru breyttir. Vera kann að fé hafi verið fast hér áður fyrr, en það er orðið fljótandi núna. Við þetta bætist að fé er ekki lengur sáldrað yfir lýðinn þegar kóngurinn ekur hjá, eins og í ævintýrunum. Því er einmitt veitt eins og veita á í þágufalli – það er látið renna í formlegum farvegi sem grafinn er samkvæmt þéttriðnum lögum og reglum. Þegar hið opinbera veitir fé víkur það ekki lítilræði að þurfalingi, það veitir fjármagni, beinir fjár- straumi hingað eða þangað eftir „þar til gerðum skurði“. Reyndar hefur fé runnið lengi. Þegar sauðfé kom af fjalli rann safnið niður hlíðarnar, og var un- un yfir að líta. Það hefur líka þótt gott mál að fé rynni í vasa braskara og ekki spillti að eitthvað rynni til þurfamanna. Fjárstraumur hefur lengi legið úr landi og nú hefur bæst við fjárstreymi, sjóðstreymi og gegnumstreymi fjár. Ef eitt- hvað skyldi þá vera eftir má ræsa það fram með peningaflæði. Þetta er þungur straumur, hreinasti flaumur og ég er hættur að svamla gegn honum. Eins og sönnum mál- vöndunarmanni sæmir tók ég þó ekki sönsum fyrr en ég sá að mig hafði borið aftur á bak niður allt fljót og út í sjó. – – – Sá sem hraðast ók var mældur á 143 km hraða. Allt í senn hættulegt, ólöglegt og tilgangslaust. Á þessum hraða er loftkæling svo öflug að hita- mælir væri hrímaður. Hins vegar er tilvalið að mæla hraðann á þessari ferð. 143 kíló- metrar sjást örugglega á mæli. Mælingin er satt að segja óþörf. Sá sem hraðast ók var á 143 km hraða. Það hlýtur að hafa verið mælt. Enginn giskar á eða finnur á sér 143 km hraða. Hraðinn, sem maðurinn í bílnum var á, mældist 143 km. Hraðamælingar geta sem sagt verið hættulegur leikur. En sumir fá aldrei nóg: Stöðvaður á 143 km hraða. Í huganum tekur maður fyrir augun. Ef ökumaðurinn fengi að draga úr hraðanum þar til hann stæði kyrr gæti hann kannski gef- ið skýringu á bráðlætinu og tekið út refsingu. Annars held ég hann gerði best í því að gefa í, þegar hann ræki augun í vegartálmann, og hefja sig til flugs. – – – Menn geta dottið allavega. Þar á meðal með höfuðið á undan og er það sjálfsagt einn af verstu kost- unum. Þó kannski misslæmt eftir því hve langt höfuðið er á undan. Ég hef brotið heilann um þetta og held að það gæti dregið úr spjöll- um, amk. málspjöllum, að steypast eða stingast – á höfuðið. Það losn- ar þá ekki af. En auðvitað kemur það fyrst niður. Ekki verður á allt kosið. – – – Og þá er það maðurinn sem lék á als oddi á dánarbeðinu. Mér finnst orðið gott og ég hef reynt að finna því hlutverk. Ég hugsa mér kart- öflubeð. Kartöflurækt á Íslandi var til skamms tíma harmsaga. Nægir að tilfæra það sem Gísli Jónsson hafði eftir Hólmgrími í Ystuvík: „Sá sem einu sinni hefur sett niður kartöflur lítur aldrei framar glaðan dag.“ Menn urðu til dæmis að vera snöggir að taka upp, bölvaðar gærurnar sneru upp löppunum um leið og þær sáu að vetur fór í hönd. Í beðinu okkar er hvert gras fallið eftir fyrstu frost- nóttina. Það er þá orðið dánarbeð. Hins vegar er til orðið beður og þýðir fyrst og fremst rúm. Hver er sá sem stynur þar á beð? spyr Matthías Jochumsson. Svarið er Hallgrímur Pétursson. Hann lá í rúminu. Að vísu var Matthías slík- ur fítonsandi að hann hefði getað náð sér á flug út af manni sem lá stynjandi í blómabeði. En Hall- grímur var líkþrár og lá á karl- kynsbeði: sjúkrabeði og dánar- beði, öðru nafni banabeði. Víst má segja að maður fari síð- asta spölinn af dánarbeðnum út í dánarbeðið. Þau eru þá mörg í hverjum garði. Þar er sett niður, rétt eins og í matjurtagarði, og munar engu nema því að maður vonar að ekkert komi upp. Það er mein- hollt að berjast við vindmyllur asgeir@mbl.is ÍSLENSKT MÁL Ásgeir Ásgeirsson ÞAÐ bar til um líkt leyti og ríkisvaldið sleppti hendi af grunn- skólanum að metnaður fyrir hönd þess skóla- stigs varð stórum meiri en verið hafði um langt árabil. Allt í einu lá mönnum svo á að bæta grunnskólann að stund- um var líkt og vinstri höndin væri ekki alveg með það á hreinu hvað sú hægri væri að bar- dúsa. Skólaárið lengd- ist svo snögglega að víða voru menn varla búnir að átta sig á því til hvers væri hentug- ast að nota þessa viðbót. Manni fannst stundum að aðalhugsunin að baki henni væri sú að auka viðveru kennara til þess að réttlæta það að sumir þeirra hófust af bónbjarga- stiginu þótt tæpast næðu þeir bjarg- álnum. En þótt það þé óneitanlega nokkuð kátlegt að sjá hve metnaður- inn eykst fyrir hönd grunnskólans hjá ráðamönnum menntamála þegar þeir bera ekki lengur ábyrgð á því að borga reikninginn ætla ég að vona að á næstu misserum skili þessi lenging sér með batnandi árangri og vaxandi vinnugleði í skólum landsins. En ein er sú stofnun sem sat eftir hjá ríkinu þegar grunnskólinn flutti yfir til sveitarfélaganna, en það er Námsgagnastofnun; sú stofnun sem sjá á grunnnskólum landsins fyrir náms- efni. Og því miður verður að segjast eins og er að metnaður sá fyrir hönd grunnskól- ans sem þrútnaði með ráðamönnum er þeir losnuðu við að greiða rekstrarkostnað hans, hann hefur ekki látið á sér kræla vegna Námsgagnastofnunar enda er hún kostuð af ríkissjóði. Dregið úr fjár- veitingum Árið l986 var fjár- veiting til námsefnisgerðar kr. 9.228 á hvern grunnskólanemanda (á verð- lagi ársins 2002) en er í ár krónur 7.280. Að auki var virðisaukaskattur lagður á námsefnisgerð árið 1993 en sú ráðstöfun olli því að það fé sem stofnunin hefur raunverulega til ráð- stöfunar hefur dregist mun meira saman en áðurnefnd krónutala gefur til kynna. Það segir sig sjálft að þegar nýjar námsgreinar eru teknar upp svo sem lífsleikni og upplýsinga- og tækni- mennt þá kallar slíkt á nýtt námsefni fyrir tíu árganga. Þegar skólatími lengist og valgreinum fjölgar kallar slíkt líka á aukið námsefni. Háværar kröfur eru uppi um úrval námsefnis í öllum greinum. Nútímakennslu- hættir eru ekki miðaðir við eina grunnbók eins og fyrrum heldur þurfa nemendur fjölbreytt úrval efn- is á bókum, myndböndum, forritum eða vef. Að ekki sé talað um ítarefni og kennsluefni fyrir nemendur með sérþarfir. Til að mæta þessum vaxandi þörf- um er eins og áður sagði brugðist við á þann undarlega hátt að draga úr fjárveitingum til Námsgagnastofn- unar. Afleiðingin af þessu ráðslagi er að sjálfsögðu sú að ekki er komið til móts við þarfir nemenda og þótt kennarar rembist eins og rjúpur við staura við að framleiða eigið náms- efni hrekkur slík viðleitni hvergi nærri til. Hitt kann að hugnast fjár- veitingarvaldinu að reikningurinn fyrir vinnu þúsund kennara sem standa við þúsund ljósritunarvélar er sendur sveitarfélögunum en ekki ríkissjóði. Það segir sig hins vegar sjálft að slík vinnubrögð eru ekki hagkvæm hvorki fyrir nemendur, kennara eða sveitarfélög. Stór hluti þeirra fjárveitinga sem Námsgagnastofnun fær, er nemur fyrir árið 2002 320.3 milljónum, fer til þess að endurprenta og viðhalda því námsefni sem þegar hefur verið gefið út. Sé allt endurprentað sem skólarnir hafa þörf fyrir er of lítið fjármagn eftir til að fara af stað með ný verkefni. Aldrað námsefni Í nágrannalöndum okkar er víðast litið svo á að námsefni ætti ekki að vera í notkun lengur en í tíu ár. Hér má nefna sem dæmi að nú er verið að semja nýtt námsefni í stærðfræði sem koma á í stað tuttugu ára gam- als kennsluefnis. Stundum heyrir maður foreldra og jafnvel kennara hneykslast á því hvað námsefni hér á landi sé gamalt og oft óaðlaðandi. Slík gagnrýni kemur einkum frá þeim sem kynnst hafa námsefni í nágrannalöndunum. Gjarnan er svo hnýtt aftan við að nær væri að bjóða námsefnisgerð út eða selja einhverju bókarforlagi stofnunina en þess háttar þykir ýms- um þessa dagana vera þjóðráð. Ég kannaði fyrir nokkrum árum hvað Danir verðu miklum peningum til námsefnisgerðar. Í ljós kom að sú upphæð var á hvern nemanda þrisv- ar sinnum hærri en hér. Mér er nær að halda að þetta hlutfall hafi lítið breyst til batnaðar síðan. Hér á Ís- landi er nemanda í 10. bekk úthlutað námsefni fyrir rúmlega 7.000 kr. eins og áður sagði. Ári síðar, þegar þessi sami nemandi hefur nám í framhaldsskóla og þarf að kaupa námsefni sitt á frjálsum markaði, greiddi hann síðastliðið haust, sam- kvæmt mati DV, 50–60 þúsund krón- ur. Hinn frjálsi markaður er því tæp- ast góð lausn við þessum vanda, að minnsta kosti ekki fyrir heimilin í landinu. Lausn vandans Lausnin er einfaldlega sú að fjár- veitingar til námsefnisgerðar þurfa að hækka til frambúðar og þær þarf að binda við nemendafjölda þannig að upphæðin sem er til ráðstöfunar fyrir hvern nemanda verði mun hærri en hún er nú og helst sam- bærileg við þau lönd sem við helst berum okkur saman við. Upphæð fjárveitingar ráðist því hverju sinni af fjölda nemenda. Í grein í Morgunblaðinu laugar- daginn 27. þ.m. kemst fyrrverandi menntamálaráðherra, Björn Bjarna- son, að þeirri niðurstöðu að skyn- samlegustu leiðirnar til að efla skólastarf í þágu nemenda séu m.a. að ráðstafa fjármunum í samræmi við þarfir þeirra. Fjárveitingarvald- ið mætti gjarnan hafa þessi vísdóms- orð í huga varðandi úthlutun fjár- magns til Námsgagnastofnunar. Námsefnisgerð í þágu nemenda Sigríður Jóhannesdóttir Námsefni Fjárveitingar til námsefnisgerðar þurfa að hækka til frambúðar, segir Sigríður Jóhannesdóttir, og þær þarf að binda við nemendafjölda. Höfundur er alþingismaður Sam- fylkingar í Reykjaneskjördæmi. ÞAÐ var einstak- lega fróðlegt viðtalið sem Agnes Braga- dóttir blaðakona átti við Sigurð G. Guð- jónsson, forstjóra Norðurljósa, í Morg- unblaðinu 27. júlí sl. Af mörgu væri að taka, en í þessu grein- arkorni verður aðeins bent á eitt atriði, þ.e. laun þess umtalaða manns Jóns Ólafsson- ar, aðaleiganda Norð- urljósa. Blaðakonan spyr: „Er það rétt að aðal- eigandi félagsins hafi fengið um 70 milljónir króna á ári fyrir ráðgjafastörf? Hvað segir forstjóri Norðurljósa um slíkt?“ – Og nú ættu menn að lesa með at- hygli stutt svar forstjórans, en svarið er orðrétt: „Ég hef bara ekkert við þessar greiðslur að at- huga og hef aldrei öfundast út í það þótt menn fái vel greitt fyrir sína vinnu.“ – Sannarlega hið ágætasta svar, en er málið þar með afgreitt? Öðru nær. Maður fær greiddar í laun tæpar 6 millj- ónir króna á mánuði fyrir ráð- gjafastörf, eða 70 milljónir á ári. Sá hinn sami hlýtur eðli málsins samkvæmt að greiða samfélaginu töluverða skatta, já reyndar marg- ar milljónir í skatta af launum sín- um fyrir ráðgjafastörfin. Og nú kemur ósjálfrátt upp í hugann gamla orðatiltækið með hann Jón annars vegar og séra Jón hins veg- ar, því meðan allur almenningur á Íslandi greiðir 38,54% af launum sínum í skatta er fullyrt að Jón Ólafsson greiði ekki af sínum laun- um eyri til samfélagsins. Hvernig má slíkt vera? – Jú, samkvæmt skattskrá kvað blessaður mað- urinn aðeins hafa laun í jaðri skattleysis- marka. Nú myndi ein- hver spyrja: Hvað segja skattayfirvöld? Hvað segir öll alþýða manna? Og hverjir skyldu hafa notið góðs af? Sumir stjórnmála- flokkar á vinstri armi stjórnmálanna kann- ast ef til vill við smá- aura úr þessum skatt- lausa potti, og „húsbóndinn“ á Bessastöðum blessar vafalítið frá fyrri tíð öðlinginn Jón Ólafsson. Eru engin takmörk fyrir því hvað einstakir fjármálasnillingar – ef snillinga skyldi kalla – geta gengið langt á kostnað hins al- menna skattborgara? Það virðist sem orðatiltækið gamla um Jón og séra Jón hafi snúist í andhverfu sína – fengið sérkennilega, en jafnframt dapur- lega nýja merkingu. Jón – eða aðeins séra Jón? Magnús Erlendsson Höfundur er ellilífeyrisþegi á Sel- tjarnarnesi. Skattgreiðslur Það virðist sem orða- tiltækið gamla, segir Magnús Erlendsson, um Jón og séra Jón hafi snúist í andhverfu sína.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.