Morgunblaðið - 18.08.2002, Síða 7

Morgunblaðið - 18.08.2002, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. ÁGÚST 2002 C 7 endurskoðun og reikningsskil rekstrar- og stjórnunarráðgjöf skattaráðgjöf fjármálaráðgjöf www.kpmg.is Egilsstaðir og Sauðárkrókur ©2002 KPMG Endurskoðun hf., aðili að KPMG International. KPMG hyggst ráða einstaklinga til starfa á skrifstofum félagsins á Egilsstöðum og Sauðárkróki. Óskað er eftir umsóknum frá aðilum sem hafa mikla starfsreynslu við bókhald og uppgjör. Leitað er eftir viðskiptafræðingum af endurskoðunarsviði eða fólki með sambærilega menntun. Starfið gerir kröfur um sjálfstæð vinnubrögð, dugnað og samskipahæfni. Hafir þú áhuga hvetjum við þig til að hafa samband við Andrés Guðmundsson starfsmannastjóra, agudmundsson@kpmg.com, sími 545 6000, Kristján Jónasson löggiltan endurskoðanda á Sauðárkróki, kjonasson@kpmg.com, sími 453 6070 eða Guðlaug Sæbjörnsson á Egilsstöðum, gsaebjornsson@kpmg.com, sími 471 1112. Fjármálastjóri Tækniháskóla Íslands Tækniháskóli Íslands óskar eftir að ráða fjár- málastjóra. Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Starfssvið: ● Fjármálastjóri sér um gerð áætlana, uppgjör, bókhald og reikningshald. Einnig kemur hann að vinnu við stefnumótun og samskipti við aðila innan- og utanhúss. Menntunar- og hæfniskröfur: ● Háskólamenntun á sviði viðskipta eða rekstrar. ● Reynsla af fjármálastjórn, áætlanagerð og uppgjöri. ● Þekking á rekstrarhugbúnaði. ● A.m.k 3 ára starfsreynsla af sambærilegu starfi. ● Góð kunnátta í talaðri og ritaðri íslensku og ensku. ● Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð. ● Hæfni í mannlegum samskiptum. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum ríkisins og viðkomandi stéttarfélags. Umsóknir, með ferilsskrá og meðmælendum, berist til Tækniháskóla Íslands, Höfðabakka 9, 110 Reykjavík, merktar „fjármálastjóri” eða í tölvupósti á netfangið rektor@ti.is . Nánari upplýsingar veitir Stefanía K. Karlsdótt- ir, rektor Tækniháskóla Íslands (rektor@ti.is), í síma 577 1400. Umsóknarfrestur rennur út kl. 12.00 mánudaginn 26. ágúst 2002. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörð- un hefur verið tekin um ráðningu. Tækniháskóli Íslands er háskóli atvinnulífsins og býður upp á nám á sviði tæknifræði, heilbrigðisvísinda og viðskiptafræða í öflugu samstarfi við íslenskt atvinnulíf. Ós er foreldrarekinn leikskóli fyrir 26 börn á aldrinum tveggja til sex ára. Skólinn starfar í anda Hjallastefnunnar sem byggir á einfaldleika, skýru og rólegu umhverfi, einbeitingu og friði. Ímyndun, sköpun og skynjun barnanna sjálfra er í fyrirrúmi. Dagskrá er skýr, skipuleg og aldurs- og kynjaskipt hluta úr degi. Störf í boði á Ósi Leikskólakennarar óskast í 100% stöðu og stuðningskennari í 50% stöðu nú þegar. Í boði eru krefjandi og uppbyggileg störf í heimilislegu umhverfi þar sem gleðin ræður ríkjum. Umsækjendur eru velkomnir í heimsókn og allar nánari upplýsingar veitir Hrefna Gunnarsdóttir leikskólastýra í síma 552 32 77. Ryðfrí stálsmíði Við óskum eftir að ráða málmiðnaðarmenn vana ryðfrírri stálsmíði eða smíði í þunnum plötum. Einungis vanir menn sem geta unnið sjálfstætt og hafa áhuga á vönduðum vinnu- brögðum koma til greina. Einnig getum við bætt við okkur manni í kæli- deild með reynslu í rafmagni. FROSTVERK ehf., Skeiðarási 8, 210 Garðabæ, sími 565 7799. FRÁ HJALLASKÓLA • Þroskaþjálfi óskast í fullt starf við Hjallaskóla. Launakjör skv. kjarasamningum Þroskaþjálfa- félags Íslands eða Sf.K. og Launanefndar sveitar- félaga. Konur jafnt sem karlar eru hvött til að sækja um starfið. Umsóknarfrestur er til 23. ágúst nk. Upplýsingar gefur Guðlaug Snorradóttir í síma 554 2033. Starfsmannastjóri KÓPAVOGSBÆR FRÁ SALASKÓLA Salaskóli auglýsir eftir eftirfarandi starfs- fólki: • Tónmenntakennara í hlutastarf, tvo morgna í viku, til að kenna yngstu nem- endum skólans, m.a. forskólaefni tón- listarskóla. Fámennir hópar, frábær aðstaða. • Íþróttakennara til stundakennslu tvo morgna í viku. Kennt í íþróttahúsinu Smáranum. Launakjör skv. kjarasamningum KÍ og Launa- nefndar sveitarfélaga. • Starfsfólki til ýmissa starfa m.a. í dægradvöl. Launakjör skv. kjarasamningum Starfsmanna- félags Kópavogs og Launanefndar sveitarfélaga. Karlar jafnt sem konur eru hvött til að sækja um störfin. Salaskóli er að hefja sitt annað starfsár. Þar ríkir góður starfsandi í áhugasömum hópi nemenda og starfsfólks. Nemendur eru um 200 á aldrinum 6 til 12 ára. Nánari upplýsingar gefa Hafsteinn Karlsson skólastjóri og Hrefna Björk Karlsdóttir aðstoðarskólastjóri í síma 570 4600. Heimasíða skólans er www.salaskoli.is og netfangið er salaskoli@salaskoli.is Starfsmannastjóri KÓPAVOGSBÆR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.