Morgunblaðið - 18.09.2002, Page 2
ÍÞRÓTTIR
2 B MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Önnur umferð er leikin á föstu-dag en þá leikur Ísland við
Sviss í Keflavík og Ísrael mætir
Armeníu í Garði. Loks leikur Ísland
við Armeníu í Víkinni á sunnudaginn
og þá leika Ísrael og Sviss á Fylk-
isvelli.
„Þetta er mjög sterkur riðill og
það má segja að við höfum verið afar
óheppnir með andstæðinga. Ísrael
og Sviss eru með mjög öflug lið og
Ísrael vann t.d. England fyrr á þessu
ári, 3:1. Við vitum minna um styrk-
leika Armena,“ sagði Freyr Sverr-
isson, aðstoðarþjálfari drengja-
landsliðsins, við Morgunblaðið í gær.
Íslenski hópurinn er skipaður eft-
irtöldum leikmönnum:
Markverðir: Jóhann Ólafur Sig-
urðsson, Selfossi, og Guðmundur
Þórðarson, Keflavík.
Aðrir leikmenn: Aron Bjarnason,
Hrólfur Örn Jónsson og Kristján
Hauksson úr Fram, Kjartan Ágúst
Breiðdal og Ragnar Sigurðsson úr
Fylki, Hilmar T. Arnarsson úr
Haukum, Hafþór Vilhjálmsson og
Kristinn Darri Röðulsson úr ÍA,
Ólafur Þór Berry úr ÍBV, Helgi Örn
Gylfason úr ÍR, Kjartan Finnboga-
son úr KR, Ingólfur Þórarinsson úr
Selfossi, Guðjón Baldvinsson og Sig-
urbjörn Ingimundarson úr Stjörn-
unni, Þórður S. Hreiðarsson úr Val
og Hjálmar Þórarinsson úr Þrótti
R., sem er fyrirliði.
Í liðið vantar einn af lykilmönnum
þess, Ágúst Örlaug Magnússon úr
ÍA, sem slasaðist í úrslitaleik 3.
flokks fyrir skömmu.
Drengirnir mæta
Ísrael á Akranesi
DRENGJALANDSLIÐ Íslands í knattspyrnu, Norðurlandameist-
ararnir 2002, leikur í dag klukkan 16 við Ísraelsmenn á Akranesi.
Þetta er fyrsti leikurinn í undanriðli Evrópukeppninnar í þessum
aldursflokki, þar sem leikmenn eru undir 17 ára aldri, en riðillinn er
allur leikinn hér á landi á næstu dögum. Hin tvö liðin í riðlinum eru
Sviss og Armenía og þau mætast á sama tíma í dag á Kópavogsvelli.
HANDKNATTLEIKUR
1. deild karla, Essodeildin:
Ásvellir: Haukar – Grótta/KR ..................20
KNATTSPYRNA
Evrópukeppni 17 ára liða:
Akranes: Ísland – Ísrael ............................16
Kópavogur: Sviss – Armenía.....................16
Í KVÖLD
ÚRSLIT
KNATTSPYRNA
Meistaradeild Evrópu
A-RIÐILL:
Arsenal - Dortmund .............................2:0
Bergkamp 62., Ljungberg 77.
Auxerre - PSV Eindhoven...................0:0
Staðan:
Arsenal 1 1 0 0 2:0 3
Auxerre 1 0 1 0 0:0 1
PSV 1 0 1 0 0:0 1
Dortmund 1 0 0 1 0:2 0
B-RIÐILL:
Basel - Spartak Moskva .......................2:0
Hakan Yakin 50., Rossi 55.
Valencia - Liverpool .............................2:0
Aimar 20., Baraja 38.
Staðan:
Basel 1 1 0 0 2:0 3
Valencia 1 1 0 0 1:0 3
Liverpool 1 0 0 1 0:2 0
Spartak M. 1 0 0 1 0:2 0
C-RIÐILL:
Roma - Real Madrid .............................0:3
Guti 41., 74., Raul 56.
Genk - AEK ...........................................0:0
Staðan:
Real Madrid 1 1 0 0 3:0 3
Genk 1 0 1 0 0:0 1
AEK 1 0 1 0 0:0 1
Roma 1 0 0 1 0:3 0
D-RIÐILL:
Ajax - Lyon............................................2:1
Ibrahimovic 11., 34. - S. Anderson 84.
Rosenborg - Inter Mílanó ....................2:2
Karadas 52., 65. - Hernan Crespo 33., 79.
Staðan:
Ajax 1 1 0 0 2:1 3
Rosenborg 1 0 1 0 2:2 1
Inter 1 0 1 0 2:2 1
Lyon 1 0 0 1 1:2 0
UEFA-bikarinn
1. umferð, fyrri leikir:
Viktoria Zizkov (Té) - Rangers (Sk) .. 2:0
Aberdeen (Sk) - Hertha Berlín (Þý) .. 0:0
Austria Wien (Aus) - Shakhtar (Úkr) 5:1
Bordeaux (Fra) - Puchov (Slóvak)...... 6:0
Leixoes (Por) - PAOK (Grikk) ............ 2:0
Vitesse (Holl) - Rapid Búk. (Rúm)..... 1:1
England
1. deild:
Brighton - Stoke....................................1:2
Burnley - Millwall..................................2:2
Crystal Palace - Derby .........................0:1
Leicester - Bradford .............................4:0
Portsmouth - Wimbledon......................4:1
Preston - Watford .................................1:1
Sheffield United - Grimsby ..................2:1
Walsall - Rotherham .............................3:4
Staða efstu liða: Portsmouth 25, Leic-
ester 22, Sheffield Utd. 17, Norwich 15,
Rotherham 15, Watford 14, Coventry 13,
Gillingham 13, Derby 12, Bradford 12,
Wolves 11, Nottingham F. 10, Reading
10, Wimbledon 10, Ipswich 9, Preston 9,
Crystal Palace 9, Millwall 9, Stoke 8.
2. deild:
Barnsley - Blackpool .............................2:1
Cardiff - Brentford................................2:0
Cheltenham - Swindon..........................2:0
Chesterfield - Stockport .......................1:0
Luton - Mansfield..................................2:3
Northampton - Colchester....................4:1
Oldham - Bristol City ...........................1:0
Peterborough - Plymouth .....................2:0
Port Vale - Notts County .....................3:2
QPR - Huddersfield ..............................3:0
Tranmere - Wigan.................................0:2
Wycombe - Crewe .................................1:2
Staða efstu liða: Wigan 19, QPR 17,
Oldham 17, Cardiff 17, Crewe 16, Bristol
City 15, Blackpool 15
KÖRFUKNATTLEIKUR
Reykjanesmót karla
Keflavík - Njarðvík .......................... 77:63
Haukar - Grindavík .......................... 73:74
Staðan:
Njarðvík 3 2 1 240:222 4
Grindavík 3 2 1 239:246 4
Keflavík 2 1 1 158:156 2
Breiðablik 2 1 1 147:159 2
Haukar 2 0 2 146:148 0
Reykjavíkurmót karla
ÍR - Valur.......................................... 93:85
Ármann/Þróttur - KR......................72:130
Darrell Flake lék fyrsta leik sinn með
liði KR og skoraði Bandaríkjamaðurinn
41 stig og tók 16 fráköst í leiknum. Her-
bert Arnarson og Skarphéðinn Ingason
skoruðu 19 stig fyrir KR.
Staðan:
ÍR 2 2 0 215:159 4
KR 1 1 0 130:72 2
Valur 2 1 1 163:149 2
Ármann/Þróttur 2 0 2 128:208 0
Fjölnir 1 0 1 74:122 0
Reykjavíkurmót kvenna
KR - ÍR ............................................. 91:33
ÍS - ÍR ............................................... 61:56
HANDKNATTLEIKUR
Grótta/KR - Fram 21:21
GRÓTTA/KR fór illa að ráði sínu er liðið
tók á móti Fram í fyrstu umferð 1. deild-
ar karla í handknattleik. Heimamenn
höfðu þriggja marka forystu þegar þrjár
mínútur voru eftir af leiknum en gest-
irnir gáfust ekki upp heldur skoruðu síð-
ustu þrjú mörkin og kræktu sér í eitt
stig.
Heimamenn byrjuðu miklu betur og
höfðu frumkvæðið lengst af í leiknum,
staðan 11:7 í leikhléi en eftir að það tók
það Fram tæpar sjö mínútur að komast
á blað og fyrstu 20 mínúturnar gerði lið-
ið aðeins þrjú mörk úr 16 sóknum. Sókn-
arleikur Fram var á þessum tíma ótta-
legt hnoð sem lítið kom út úr en á sama
tíma gerðu leikmenn Gróttu/KR sjö
mörk og allt annað var að sjá sókn-
artilburði þeirra.
Upphaf síðari hálfleiks var talsvert ann-
að en þess fyrri því eftir átta mínútna
leik var staðan allt í einu orðin jöfn,
13:13. Framarar klipptu á Alexanders
Petersons í sókninni og það áttu gest-
gjafarnir mjög erfitt með að leysa.
Með samstilltu átaki tókst þeim þó að ná
undirtökunum aftur, 18:15, og síðan
21:18 en misstu það niður í jafntefli á
óttalega klaufalegan hátt, gerðu aðeins
þrjú mörk í síðustu 12 sóknunum.
Petersons var mest ógnandi í sókn
Gróttu/KR, Alfreð Finnsson átti þokka-
legan leik á miðjunni og Hlynur Mortens
í markinu.
Hjá Fram átti Þorri B. Gunnarsson fínan
leik í hægra horninu, Valdimar Þórsson
átti mjög góða spretti og Níels P. Bene-
diktsson er efnilegur strákur sem sýndi
góð tilþrif. Bestur var þó fyrirliðinn Seb-
astian Alexandersson.
Framarar geta vel við unað og í raun
verið ánægðir, þeir gáfust aldrei upp þó
á brattann væri að sækja og uppskáru
eitt stig.
Skúli Unnar Sveinsson
Umsögnin um leikinn féll út úr þriðju-
dagsblaðinu vegna mistaka.
Inter frá Mílanó, í d-riðli meistara-
deildar Evrópu en bæði lið skoruðu
tvö mörk í leiknum. Árni Gautur
mátti sjá á eftir knettinum í netið er
argentínski landsliðsmaðurinn
Hernan Crespo skoraði á 32. mínútu,
en Azar Karadas skoraði í tvígang
fyrir heimamenn í síðari hálfleik.
Hernan Crespo jafnaði hins vegar
leikinn undir lok leiks.
„Ég var óheppinn að verja ekki
fyrra skot Crespo“
Þetta er áttunda árið í röð sem
Rosenborg er með í riðlakeppninni
og voru leikmenn og þjálfarar ósáttir
við að hafa ekki náð að sigra ítalska
liðið. „Við yfirspiluðum Inter á
heimavelli og það er ástæða til þess
að brosa aðeins yfir því þótt sigurinn
hafi ekki náðst,“ sagði Árni Gautur
Arason í gær við Morgunblaðið. „Ég
var óheppinn að verja ekki fyrra
skotið frá Crespo, en boltinn fór af
varnarmanni og inn. Í síðara mark-
inu var ég með höndina á boltanum
en skotið var fast og frá markteig.
Við mætum Lyon á útivelli í næstu
viku og ég finn að sjálfstraustið í
okkar liði er mikið eftir leikinn gegn
stórliði Inter,“ sagði Árni Gautur.
Nils Arne Eggen, þjálfari norska
liðsins, sagði leikinn þann besta hjá
Rosenborg á tímabilinu en Eggen
hélt upp á 61 árs afmæli sitt í gær.
Liðin eru í d-riðli ásamt Ajax sem
lék á heimavelli gegn Lyon þar sem
sænski landsliðsmaðurinn Zlatan
Ibrahimovic skoraði tvívegis fyrir
Ajax, en Anderson minnkaði muninn
fyrir Lyon undir lok leiks.
Róma hóf leiktíðina á Ítalíu meðósigri gegn Bologna um sl.
helgi en saknaði þess greinilega að
Totti, Batistuta og Brasilíumaðurinn
Francisco Lima tóku út leikbann
vegna slagsmála sem brutust út sl.
vor í leik gegn Galatasaray frá Tyrk-
landi, en leikurinn fór fram í Róm.
Fabio Capello, þjálfari Roma, var
einnig fjarverandi vegna leikbanns.
Brasilíski landsliðsmaðurinn Ron-
aldo var ekki í liði Real að þessu sinni
en hann er líklegur til þess að leika
sinn fyrsta leik með liðinu í meist-
aradeildinni gegn Genk á Santiago
Bernabeu í næstu viku, en hann var
keyptur á dögunum frá ítalska liðinu
Inter.
„Við unnum sigur í frábærum leik
en þetta er aðeins einn leikur af
mörgum,“ sagði franski landsliðs-
maðurinn Zinedine Zidane leikmað-
ur Real. „Í síðari hálfleik var lið
Róma ekki eins sterkt og í þeim
fyrri,“ bætti Zidane við.
Liðin léku einnig í meistaradeild-
inni í fyrra hinn 11. september og var
það einn af fáum íþróttaviðburðum
sem fram fóru þann daginn í Evrópu
vegna hryðjuverkanna í Bandaríkj-
unum þann sama dag. Real og Róma
leika 30. okt. á Spáni að nýju. Genk
og gríska liðið AEK skildu jöfn í
markalausum leik í Belgíu í hinni
rimmu C-riðilsins.
Árni Gautur Arason stóð sig vel í
marki Rosenborg gegn ítalska liðinu
Real Madrid
sýndi mátt
sinn í Róm
EVRÓPUMEISTARALIÐ sl. árs – Real Madrid frá Spáni, sýndi mátt
sinn gegn Róma á Ítalíu og sigraði 3:0, í c-riðli meistaradeildar Evr-
ópu. Jose Maria Guti var í aðalhlutverki og skoraði fyrra mark sitt á
41. mínútu, Raúl González bætti við öðru marki á þeirri 55. og Guti
var aftur á ferðinni á 74. mínútu.
Gunnar Þór í
banni á móti ÍA
Á fundi aganefndar KSÍ í gær voru
tíu leikmenn úr Símadeild úrskurð-
aðir í leikbönn og missa þeir allir af
leikjum liða sinna í lokaumferð Ís-
landsmótsins á laugardaginn.
Gunnar Þór Pétursson, vinstri bak-
vörður Fylkismanna, sem leikið hef-
ur alla leiki Árbæjarliðsins í sumar,
verður að bíta í það súra epli að fylgj-
ast með sínum mönnum úr áhorf-
endastúkunni í leiknum mikilvæga á
móti ÍA en hann var dæmdur í eins
leiks bann sem og þjálfari Fylk-
ismanna, Aðalsteinn Víglundsson.
Eyjamenn verða án þriggja fasta-
manna í leiknum við FH en Bjarni
Geir Viðarsson, Ingi Sigurðsson og
Kjartan Antonsson fengu allir eins
leiks bann vegna fjögurra gulra
spjalda sem og einn af lykilmönn-
unum í liði FH-inga, Heimir Guð-
jónsson.
Bjarni Hólm Aðalsteinsson og Sæv-
ar Guðjónsson, báðir úr Fram, taka
út leikbann þegar Framarar sækja
KA heim en hjá norðanmönnum
verður Dean Martin í leikbanni.
Kristján Helgi Jóhannsson Keflvík-
ingur tekur út eins leiks bann í leikn-
um við Grindvíkinga í leik sem sem
er að duga eða drepast fyrir Keflvík-
inga og sömu sögu er að segja af
Þórsaranum Óðni Árnasyni sem
missir af leiknum við KR í Frosta-
skjóli.
Úr 1. deildinni voru eftirtaldir leik-
menn úrskurðaðir í leikbönn sem
taka gildi á næsta tímabili: Árni Guð-
mundsson, Hermann Albertsson og
Jón Örvar Eiríksson allir úr Leiftri/
Dalvík, Jakob Hallgeirsson, ÍR,
Gunnar Ingi Valgeirsson, Sindra,
Arnór Gunnarsson, Val, og Charles
Philip McCormick, Þrótti.
BJÖRGVIN Sigurbergsson, kylfing-
ur úr Keili, lauk fyrsta degi á úrtöku-
mótinu fyrir evrópsku mótaröðina á
Five Lakes-vellinum á pari eða 72
höggum. Keppnin fer fram á Eng-
landi og eru 120 kylfingar sem berj-
ast um 15 efstu sætin á þessum velli,
en keppt er á fimm völlum á fyrsta
stigi úrtökumótsins og komast 65
kylfingar af völlunum fimm á annað
stig úrtökumótsins sem fram fer á
Spáni í nóvember. Björgvin í 44.–55.
sæti eftir gærdaginn en 43 kylfingar
léku undir pari í gær, enginn þó bet-
ur en Englendingurinn Gary Marks
sem lék á níu höggum undir pari.
Björgvin fékk þrjá fugla í gær, þrett-
án pör, einn skolla og einn skramba.
Hann hitti tíu brautir af fjórtán og
tíu flatir af átján á réttum högga-
fjölda og notaði hann 29 pútt.
Björgvin
á pari
TVÆR knattspyrnukonur fá
gullskó Adidas í ár. Ásthildur
Helgadóttir og Olga Færseth
gerðu báðar 20 mörk í deildinni og
fá báðar gullskó.
Venjan er sú að skori tveir eða
fleiri leikmenn jafn mörg mörk
fær sá gullskóinn sem leikið hefur
færri leiki og því skorað fleiri
mörk að meðaltali. Þegar þetta
var athugað í sambandi við Ást-
hildi og Olgu kom í ljós að þær
höfðu báðar leikið jafnmarga leiki.
Þá er gripið til þess ráðs að at-
huga hversu margar mínútur þær
léku og þar var sama niðurstaða,
þær hafa leikið jafn margar mín-
útur í deildinni í sumar. Því var
ekki annað að gera en búa til
aukaskó, þannig að þær fá báðar
gullskóinn.
Tveir áratugir eru liðnir síðan
Ingi Björn Albertsson, leikmaður
Vals, tók við fyrsta gullskónum
frá Adidas og um 50 leikmenn
hafa fengið gull-, silfur- eða
bronsskó fyrir að skora mörk síð-
an haustið 1983.
Tvær fá gullskó Adidas