Morgunblaðið - 21.09.2002, Síða 2
FRÉTTIR
2 LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isKvennalandsliðið með
„herlúður“ í Birmingham/B1
Stjörnumenn og FH-ingar
fögnuðu sigri/B2
4 SÍÐUR16 SÍÐUR
Sérblöð í dag
Á LAUGARDÖGUM L a u g a r d a g u r21.
s e p t e m b e r ˜ 2 0 0 2
HEIMILISLÆKNAR á heilsu-
gæslustöðinni Sólvangi í Hafnarfirði
hafa hafið undirbúning að opnun
læknastofa sem ráðgert er að verði
opnaðar 2. desember nk.
Að sögn Emils L. Sigurðssonar,
yfirlæknis á Sólvangi, er búið að
finna hentugt húsnæði miðsvæðis í
Hafnarfirði. Eftir er að ganga til
samninga við eigendur húsnæðisins
um hvort það verði leigt eða keypt.
„Við höfum fengið tilboð í tæki en
höfum ekkert farið að skoða það af
alvöru hvernig það lítur út. Við vor-
um að vona í lengstu lög að ráðu-
neytið myndi verða við okkar ósk-
um,“ segir Emil.
Að óbreyttu munu heilsugæslu-
læknar á heilsugæslustöðinni Sól-
vangi leggja niður störf 30. nóvem-
ber.
Á nýja staðnum verða læknastofur
fyrir níu lækna.. Ungbarnaeftirliti,
mæðravernd, heimahjúkrun, öldrun-
arþjónustu og skólaskoðunum verð-
ur ekki sinnt á stofunum heldur ein-
göngu þeirri þjónustu sem hægt er
að veita fólki sem á þess kost að
koma á stofurnar. Emil segir að
sennilega verði þó boðið upp á vitj-
anaþjónustu handa þeim sem eru
mikið veikir.
Að sögn Emils er önnur þjónusta í
uppnámi. Hann bendir á að sam-
kvæmt lögum eigi íbúar rétt á ákveð-
inni læknisþjónustu.
„Það er þá handhafi framkvæmda-
valds, í þessu tilfelli heilbrigðisráð-
herra, sem á að sjá um þá þjónustu.
Hvernig hann ætlar að útfæra það,
veit ég ekki,“ segir Emil.
Einungis gerðir
samningar við LR
Heilsugæslulæknar á Sólvangi
skrifuðu heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytinu bréf 6. júní sl. þar
sem óskað var eftir að samningur
yrði gerður við þá um að læknisþjón-
usta yrði greidd niður fyrir þá sem
þangað leita, eins og gildir um þjón-
ustu annarra heilbrigðisstarfs-
manna. Svar frá samninganefnd
HTR barst í fyrradag þar sem er-
indinu er hafnað. Í bréfinu segir m.a.
að rétt sé að geta þess að samninga-
nefnd HTR hafi einungis gert samn-
inga við LR fyrir hönd tiltekinna sér-
greinafélaga. Þó að sú venja bindi
ekki hendur samninganefndar til að
gera samninga við einstaka lækna sé
ekki ástæða til að bregða frá þeirri
venju í þessu tilviki.
Að sögn Emils hefur svarbréf
samninganefndar engin áhrif á
áform heilsugæslulæknanna um að
fara út í einkarekstur. Hann segir að
læknarnir séu með lækningaleyfi og
sé heimilt að opna læknastofur en að
sjúklingar muni þó koma til með að
greiða hærra gjald fyrir þá þjónustu
sem þeir muni bjóða.
Heimilislæknar á heilsugæslustöðinni Sólvangi
Ráðgera að opna
læknastofur 2. des. LYFTARAGEYMSLA viðfrystihús Tanga á Vopnafirði
eyðilagðist í eldsvoða í gær. Í
fyrstu var talið að kviknað
hefði í út frá rafmagni en nú er
ljóst að eldurinn kviknaði af
fikti þriggja ungra pilta með
eld.
Þetta var tíunda útkall
slökkviliðs Vopnafjarðar það
sem af er þessu ári og mun það
vera metfjöldi.
Slökkviliðið var kallað út kl.
14.22 og var komið á vettvang
um sex mínútum síðar. Jón
Sigurðsson varaslökkviliðs-
stjóri segir að slökkvistarf hafi
gengið mjög vel. Örlítill reykur
hafi borist inn í frystihúsið en
Jón telur að ekki hafi hlotist
skemmdir af. Tjónið sé þó tals-
vert, auk lyftarageymslunnar
hafi fiskikör í og við geymsluna
brunnið. Geymslan hefur hýst
tvo lyftara en hvorugur var í
geymslunni þegar eldurinn
braust út.
Fikt ungra
pilta olli
eldsvoða
NORSKI rækjutogarinn Volstad
Viking sökk síðdegis í gær um 50 sjó-
mílur undan strönd Austur-Græn-
lands og hvílir nú á 1.400 metra dýpi.
Varðskipi Landhelgisgæslunnar
sem var lagt af stað áleiðis til togar-
ans var því snúið við.
Enginn var um borð í togaranum
þegar hann sökk en 13 manna áhöfn
skipsins og grænlenskum eftirlits-
manni hafði verið bjargað um borð í
norska togarann Sæviking. Á vefsíðu
norska dagblaðsins Sunnmørsposten
kemur fram að sjór hafi tekið að leka
inn í lestarrúmið snemma á þriðju-
dagsmorgun. Í fyrstu var talið að
dælur skipsins myndu hafa undan en
fljótlega varð ljóst að lekinn var of
mikill og var skipið því yfirgefið. Sæ-
viking var með skipið í togi áleiðis til
Grænlands þegar það sökk um
klukkan 17.30 í gær.
Ekki tókst
að draga
norskan tog-
ara til hafnar
ÖKUFERÐ réttindalauss öku-
manns á óskráðu ökutæki við höfn-
ina í Borgarnesi um miðnætti í fyrri-
nótt lauk með því að bíllinn valt og
endaði á hliðinni úti í fjörunni. Að
sögn lögreglunnar í Borgarnesi hafði
ökumaður ekki aldur til að aka bíl.
Tilkynnt var um atvikið til lögreglu í
gegnum Neyðarlínuna kl. 00:20.
Lögregla segir það hafa verið öku-
manninum til happs að það var fjara
en bíllinn hafnaði í aurdrullu í fjör-
unni.
Viðstaddir unglingar létu vita af
slysinu en ökumaður var einn í bíln-
um. Hann skorðaðist fastur í bílnum
við veltuna og var því heppinn að
ekki var flóð. Lögregla gat losað öku-
manninn og slapp hann ómeiddur.
Velti óskráð-
um bíl
við höfnina
Borgarnes
NORSKA umhverfisráðuneytið hef-
ur úrskurðað að olían um borð í Guð-
rúnu Gísladóttur KE 15, sem sökk við
strendur Noregs í júní síðastliðnum,
skuli fjarlægð eigi síðar en 15. októ-
ber næstkomandi og að flakið skuli
fjarlægt af hafsbotni fyrir 1. maí á
næsta ári. Ráðuneytið birti úrskurð
sinn í gær en í síðasta mánuði skaut
eigandi skipsins, útgerðin Festi hf.,
ákvörðun Mengunarvarna norska
ríksins, um að flakið skyldi fjarlægt
fyrir 15. október, til ráðuneytisins.
Trond Eilertsen, lögmaður Festar
hf., segir að útgerðin standi nú
frammi fyrir tveimur möguleikum.
„Annars vegar að reyna að láta dóm-
stóla skera úr um einhverja hámarks-
upphæð sem Festi greiði og stjórn-
völd geti notað til að fjarlægja flakið
og olíuna um borð. Hins vegar munu
eigendurnir íhuga þann möguleika að
fara eftir þessum skilmálum ráðu-
neytisins,“ segir Eilertsen. Hann seg-
ir að útgerðin sé að skoða af mikilli al-
vöru hvernig hún geti farið að
fyrirmælum ráðuneytisins.
Á vef norska umhverfisráðuneytis-
ins er haft eftir Børge Brende um-
hverfisráðherra, að það sé forgangs-
verkefni að olían um borð verði
fjarlægð. „Það myndi þýða stórvægi-
legt umhverfisslys ef olía læki úr flak-
inu fyrir sjófugl, fiskeldi, viðkvæm
strandsvæði og útivist. Við höfum
samband við útgerðina til að fullvissa
okkur um að hún geri sér grein fyrir
ábyrgð sinni og fari að skilyrðum okk-
ar,“ segir Brende.
Guðrún Gísladóttir sökk hinn 19.
júní síðastliðinn og liggur nú á 40
metra dýpi. Um borð í skipinu voru
um 300 tonn af olíu og tæplega 900
tonn af frystri síld.
Norska umhverfisráðuneytið úrskurðar um Guðrúnu Gísladóttur KE 15
Olían skal fjarlægð fyrir 15.
október og flakið fyrir 1. maí
FLÓKIN ástamál leystust á sviði Ís-
lensku óperunnar í gærkvöldi þeg-
ar óperan Rakarinn frá Sevilla var
frumsýnd.
Ólafur Kjartan Sigurðarson barí-
tónsöngvari fer með hlutverk rak-
arans ráðsnjalla sem er margt til
lista lagt annað en hárskurður.
Hann sést hér lengst til hægri á
myndinni en frá vinstri eru Signý
Sæmundsdóttir, Davíð Ólafsson,
Sesselja Kristjánsdóttir, Gunnar
Guðbjörnsson og Stanislav Shvets.
Leikstjóri er Ingólfur Níels Árna-
son en hljómsveitarstjóri er Helge
Dorch.
Morgunblaðið/Kristinn
Flókin
ástamál
á sviði
óperunnar
RÁÐIST var á mann í Seljahverfi í
Breiðholti um klukkan hálftvö í
fyrrinótt og honum veittir áverkar í
andliti. Hann var m.a. nefbrotinn og
nokkrar tennur í honum brotnar.
Árásarmenn voru tveir og var hinn
slasaði fluttur á slysadeild þar sem
gert var að sárum hans. Lögreglan
sagði að svo virtist sem fórnarlambið
þekkti til árásarmannanna en væri
tregt til að segja til þeirra.
Lögreglan telur líklegt að árásin
tengist fíkniefnaskuldum og maður-
inn hafi orðið fórnarlamb handrukk-
ara. Maðurinn sem ráðist var á er
fæddur 1971. Hann vildi ekki leggja
fram kæru vegna árásarinnar á
þessu stigi.
Ráðist harka-
lega á mann
í Breiðholti
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦