Morgunblaðið - 25.09.2002, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 25.09.2002, Blaðsíða 4
FÓLK  Á lokahófi Knattspyrnufélags ÍA um helgina völdu leikmenn félagsins Reyni Leósson knattspyrnumann ársins. Garðar Gunnlaugsson var kjörinn efnilegastur og Ólafur Þór Gunnarsson var valinn Búnaðar- bankaleikmaður ársins.  STURLAUGUR Haraldsson hefur verið endurráðinn aðstoðarmaður Ólafs Þórðarsonar, þjálfara ÍA, og þá mun hann jafnframt þjálfa 2. flokk félagsins sem hampað hefur Íslands- meistaratitlinum undanfarin tvö ár.  BALDUR Bett var útnefndur leik- maður ársins hjá FH-ingum sem héldu lokahóf sitt um helgina. Ásgeir Gunnar Ásgeirsson var kjörinn efni- legasti leikmaður liðsins.  SINISA Kekic var kjörinn leik- maður ársins hjá Grindvíkingum og Alfreð Jóhannsson sá efnilegasti. Hjá kvenfólkinu varð Guðlaug Sunna Gunnarsdóttir valin leikmað- ur árins og Brynhildur Tyrfings- dóttir sá efnilegasti.  KRISTÓFER Sigurgeirsson var valinn knattspyrnumaður ársins hjá Breiðabliki á lokahófi Blikanna og hjá kvenfólkinu varð Margrét Ólafs- dóttir fyrir valinu.  GUNNAR Berg Viktorsson komst ekki á blað fyrir París SG sem tapaði fyrir Chambery, 28:27, í frönsku 1. deildinni í handknattleik á sunnu- daginn.  GUNNAR fékk ekkert að spreyta sig í sókninni heldur lék hann varn- arleikinn. Gunnar sagði í samtali við Morgunblaðið að samkeppnin um stöður væru hörð í liðinu og þó svo að hann hefði lítið fengið að spreyta sig í sókninni þá þýddi ekkert að leggja árar í bát. Samningur Eyjamannsins við París SG rennur út eftir þetta tímabil.  SOULEYMANE Oulare, Gíneu- maðurinn sem verið hefur á mála hjá Stoke, er farinn frá félaginu. Sam- komulag náðist á milli hans og fé- lagsins að rifta samningnum og er farinn til Belgíu þar sem hann er bú- settur. Oulare hefur átt við meiðsli og veikindi að stríða meira og minna frá því hann gekk í raðir Stoke og á tímabili var hann hætt kominn vegna lungnasjúkdóms.  SPÆNSKI landsliðsmaðurinn í knattspyrnu, Juan Carlos Valeron, mun ekki leika knattspyrnu næstu tvo mánuðina þar sem hann brotnaði á fæti í leik með liði sínu Deportivo La Coruna í gær. Valeron lenti í sam- stuði við leikmann Valladolid í leik liðanna um helgina.  ALEXANDER Zickler, leikmaður Bayern München, er að missa þol- inmæðina í herbúðum félagsins og ætlar hann að óska eftir því að verða settur á sölulista. Zickler, sem er 28 ára gamall, hefur mátt sætta sig við að verma varamannabekkinn ótt og títt hjá Bæjurum enda margir snjall- ir framherjar fyrir hjá félaginu. Hertha Berlin, lið Eyjólfs Sverris- sonar, og Bayer Leverkusen hafa sýnt áhuga á að fá Zickler í sínar rað- ir.  DENNIS Wise, knattspyrnumað- urinn óstýriláti sem Leicester rak í sumar, skrifaði í gær undir samning við enska 1. deildar liðið Milwall. Samningur Wise, sem er orðinn 35 ára gamall, er til loka tímabilsins.  GERARD Houllier, knattspyrnu- stjóri Liverpool, segir að Michael Owen verði vítaskytta liðsins áfram þó svo að honum hafi brugðist boga- listin á móti WBA um síðustu helgi. Reyndar hefur Owen ekki gengið sem skyldi af vítapunktinum því í 15 vítaspyrnum sem hann hefur tekið fyrir aðalliðið hefur hann klúðrað 7.  PORTSMOUTH, toppliðið í ensku 1. deildinni, hefur sýnt áhuga á að fá ítalska framherjann Fabrizio Rav- anelli til liðs við sig. Þetta er haft eft- ir umboðsmanni „silfurrefsins“, sem er á mála hjá Derby. Enska knattspyrnusambandið ættiað útbúa styttu af Íslendingnum og gefa afsteypur til menntastofnana vítt og breitt um landið, því Guðni Bergsson er fyrirmynd þeirra sem telja sig ekki geta sameinað atvinnu- mennsku og nám. Hann er afreks- maður á báðum sviðum,“ segir Gar- side m.a. í grein sinni um Guðna, sem er sá erlendi leikmaður sem lengst hefur verið á mála hjá enskum liðum, í fjórtán ár. Í sjö ár hefur hann verið hjá Bolton Wanderers en hann kom fyrst til Tottenham frá Val árið 1988. Guðni segir að hugarfarið sé mis- munandi í löndunum tveimur. „Hér á Englandi eru ungir knattspyrnu- menn með hugann við að komast á samning hjá atvinnumannaliðum, 15– 16 ára gamlir, sem svokallaðir lær- lingar. Fátt annað kemst að í þeirra huga og námið situr oft á hakanum komist þeir á samning og byrja að leika með liðum sínum. Á Íslandi er þessu öfugt farið, knattspyrnan er áhugamálið og ungir knattspyrnu- menn hafa ekkert val, þeir verða að mennta sig. Atvinnumennskan er ekki sjálfsögð, eins og hér á Eng- landi. Ég stóð í þessum sporum á Ís- landi, valdi lögfræðina og ákvað að klára námið eftir að ég gerðist at- vinnumaður,“ segir Guðni og bætir því við að hann hafi reynt að miðla af reynslu sinni til yngri leikmanna Bolton liðsins. „Tölfræðin sýnir að að- eins 1⁄10 hluti þeirra leikmanna sem komast á samning sem lærlingar ná alla leið og gera samninga sem at- vinnumenn. Þessar tölur sýna að menn verða að hafa varaplan og þar er menntunin mikilvægust,“ segir Guðni. Miklar breytingar hafa verið á liði Bolton frá því að Guðni kom til liðsins og er fyrirliðinn ánægður með þró- unina hjá félaginu. „Ég hef átt góðar stundir hjá Bolton, dóttir mín fæddist hér, sonur minn gekk í skóla hér og það er nánast fyndið að heyra þau tala ensku með sama hreim og inn- fæddir borgarbúar,“ segir Guðni, en eiginkona hans og börnin tvö hafa bú- ið á Íslandi undanfarin misseri og beðið þess að Guðni lyki sínum ferli hjá Bolton. „Ég var glaður að eitthvað lið sýndi mér áhuga eftir að ég hafði lítið leiki með Tottenham vegna bakmeiðsla. Er ég kom til Bolton voru ekki marg- ir þekktir leikmenn í liðinu, Alan Stubbs og Jason McAteer voru þeir þekktustu. Það er því ótrúlegt að sjá breytinguna sem Sam Allardyce hef- ur gert sem knattspyrnustjóri félags- ins. Hver hefði trúað því að Bolton myndi mæta til leiks með leikmann úr heims– og Evrópumeistaraliði, Youri Djorkaeff, og fyrrum Evrópumeist- ara frá Real Madrid, Ivan Campo? Knattspyrnunni hefur fleygt fram frá því ég kom hingað fyrst. Erlendir leikmenn hafa komið inn með meiri tækni og hraða sem ungir enskir leik- menn verða nú að tileinka sér ætli þeir sér að ná langt. Við erum með nokkra slíka hér í Bolton og framtíðin er því björt fyrir félagið,“ segir Guðni. Guðni Bergsson, lögfræðingur og fyrirliði enska úrvalsdeildarliðsins Bolton, er fyrirmynd ungra Englendinga um að sameina atvinnumennsku og nám Reuters Guðni Bergsson, fyrirliði Bolton (t.h.), á hér í höggi við Hollendinginn Ruud Van Nistelrooy, Man. Utd., á dögunum. Guðni fékk níu í einkunn fyrir leik sinn og sagt var að hann hafi haft Van Nistelrooy í vasanum þegar Bolton skellti United eftirminnilega, 1:0. Vill styttur af Guðna um allt England ÞEIR sem hafa atvinnu af því að leika knattspyrnu á Bretlands- eyjum eru í sviðsljósinu nánast um hverja helgi og hafa fæstir lagt grunninn að framtíð sinni utan við knattspyrnuvöllinn er ferli þeirra lýkur. Í grein enska blaðamannsins Kevin Garside sem birtist á dögunum í Daily Mirror er Guðni Bergsson nefndur til sögunnar sem „mjög sérstakt“ tilfelli en Guðni lauk lögfræðinámi samhliða atvinnu- mennskunni og hyggst snúa til Íslands næsta vor til þess að starfa við fagið. Fyrirsögnin á greininni um Guðna Bergsson í Daily Mirror.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.