Morgunblaðið - 27.09.2002, Síða 14
AKUREYRI
14 FÖSTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Brimborg Reykjav ík Br imborg Akureyr i br imborg. is
Það er margt sem kemur á óvart
Fáðu meira en áður - fyrir minna en áður.
Komdu. Kauptu nýjan Ford Fiesta.
er dæmi um meiri bíl.
Aksturseiginleikar Fiesta
Ford sendir frá sér tákn um nýjan staðal - nú í hönnun smábíla:
Stærri og betur búinn Ford Fiesta! Glæsilegur Fiesta skartar því
allra besta frá verðlaunabílunum Focus og Mondeo. Keyrðu hann...
SIGRÚN Guðnadóttir er 6 barna
móðir, fædd og uppalin á Raufar-
höfn þar sem hún býr enn. Hún hef-
ur verið 75% öryrki í rúman áratug,
en hún er með hryggikt og vefja-
gigt. Hún hafði gengið milli lækna í
leit að orsökum þeirra verkja sem
hún fann fyrir án árangurs, en var
svo greind með fyrrnefnda sjúk-
dóma á Kristnesi þar sem hún hefur
tvívegis áður dvalið um lengri tíma,
’95 og ’99.
„Þetta er í þriðja sinn sem ég er
hér og mér finnst þessi verkjaskóli
mikil framför. Við hlustum á fyr-
irlestra og verðum meðvitaðri um
líkamann, uppbyggingu hans og
hvernig hann vinnur. Svo er farið í
gönguferðir, leikfimi, æfingar og
svo er sundleikfimi einu sinn á dag.
Það er mikill munur að fá sund-
laugina, en hún var ekki tilbúin
þegar ég var hér áður. Það er gott
og notalegt að komast í vatnið,“
sagði Sigrún.
Hún sagði einnig gott að tilheyra
ákveðnum hóp, fólk fyndi sam-
kennd og vinátta myndaðist. „Það
er gott að geta borið sig saman við
aðra, vera ekki alltaf einn að
basla,“ sagði Sigrún. „Það er mjög
gott að vera hérna, þetta er eins og
stórt heimili, fólk er hjálpsamt og
reiðubúið að gera allt fyrir okkur.
Maður skiptir máli og það hjálpar
mjög til að efla jákvæða andann.“
Gott að vera með öðrum í hóp
Morgunblaðið/Kristján
Sigrún Guðnadóttir frá Raufarhöfn, sem hér gerir fótaæfingar á Krist-
nesi, segir að verkjaskólinn sé jákvætt framfaraspor.
Tónlistarvettvangurinn Ferðalög
mun hefja starfsemi á Norður-
landi nú um helgina þegar þau
Anna Sigríður Helgadóttir
mezzósópran, Daníel Þorsteins-
son píanóleikari og Sigurður
Halldórsson sellóleikari flytja
verk eftir bæheimsku tónskáldin
Bohuslav Martinu og Antonin
Dvorák í Laugaborg á laugardag,
28. september, kl. 17 og í Dalvík-
urkirkju á sunnudag, 29. septem-
ber, kl. 17.00.
Eftir Dvorák verða flutt Sí-
gaunaljóðin op 55. Þá verða leik-
in Tilbrigði við stef frá Slóvakíu,
Tilbrigði við stef eftir Rossini og
Sónata nr. 3 fyrir selló og píanó
eftir Bohuslav Martinu.
Ferðalög er röð tónleika þar
sem efnisskráin er byggð á land-
fræðilegum forsendum. Afmarkað
svæði er tekið fyrir og sérkenni
þess dregin fram í dagsljósið. Þar
eru kammertónlist og ljóða-
söngur síðustu 100 ára í öndvegi.
Nemendum tónlistarskólanna á
Eyjafjarðarsvæðinu býðst ókeypis
aðgangur að hvorum tveggja tón-
leikunum.
Sigurður Halldórsson, Daníel Þorsteinsson og Anna Sigríður Helga-
dóttir koma fram á tónleikum í Laugaborg og Dalvík um helgina.
Ferðalög í Lauga-
borg og Dalvík
VERKJASKÓLI sem hóf starfsemi
á endurhæfingardeild Fjórðungs-
sjúkrahússins á Akureyri á Kristnesi
fyrir skömmu hefur að markmiði að
kenna fólki að bjarga sér sjálft og að
lifa með þeim verkjum sem hrjá það.
Verkjaskóli hefur ekki verið starf-
ræktur á Kristnesi áður, en gefið góð
raun á Reykjalundi.
Ingvar Þóroddsson deildarlæknir
á endurhæfingardeildinni á Krist-
nesi sagði að verkjaskólinn væri ætl-
aður fólki með langvinna verki, en
þeir væru skilgreindir sem verkir
sem truflað hefðu fólk í daglegu
starfi í tvo mánuði hið minnsta. Áður
er búið að ganga úr skugga um að al-
varlegar orsakir liggi ekki að baki
verkjunum, s.s. krabbamein.
Í hverjum hópi eru 6–7 manns og
tekur meðferð hvers hóps 7 vikur,
þannig að fram að ára-
mótum verða tveir hóp-
ar í skólanum. Endur-
hæfingardeildin er 10
ára gömul og sagði
Ingvar að allan þann
tíma hefði fólk komið á
deildina vegna margvís-
legra verkja. „En með
því að setja upp þennan
verkjaskóla komum við
hlutunum í fastara
form, við bjóðum upp á
heilsteypta dagskrá
með þátttöku fagfólks,
sjúkraþjálfara, iðju-
þjálfara, lækna, hjúkr-
unarfólks og félagsráð-
gjafa svo eitthvað sé
nefnt,“ sagði Ingvar.
Fólkið dvelur á Kristnesi meðan
það sækir verkjaskólann og á þeim
tíma fær það viðtöl við fagfólkið, tek-
ur þátt í endurhæfingaræfingum og
stundar almenna líkamsþjálfun bæði
úti og inni, vatnsleikfimi er í boði alla
daga. Auk þess eru fluttir fyrirlestr-
ar um margvísleg málefni og þá lær-
ir fólkið streitustjórnun.
Lykilatriði að losa
fólk við verkjalyfin
„Lykilatriðið hvað varðar það að
vinna með verki er að losa fólk við
verkjalyfin,“ sagði Ingvar. Hann
sagði lyfin virka á miðtaugakerfið og
í kjölfar mikillar neyslu þeirra fyndi
fólk fyrir sljóleika og væri slappt.
Því fylgdi svo svefnleysi og margir
lentu í vítahring sem erfitt væri að
komast út úr.
Ingvar nefndi að til væru tvær
gerðir verkja, skyndilegur skamm-
vinnur sárauki, sem kalla mætti
venjulegan verk og svo hinir lang-
vinnu sem fólk lifði oft með árum
saman. Í þeim tilfellum væri það
ekki verkurinn sjálfur sem væri að-
alvandamálið heldur afleiðingar
hans; aukin neysla verkjalyfja, meiri
sljóleiki og aukið svefnleysi. Ingvar
nefndi að neysla verkjalyfja hefði
einkum tvo galla. Við aukna neyslu
lyfjanna ykist þolið og
fólk þyrfti sífellt meira
magn til að ná fram
sömu áhrifum og þeim
fylgdu aukaverkanir.
„Skólinn gengur út á
að reyna að kenna fólki
að lifa með verkjunum,
að benda á ýmis úr-
ræði sem fyrir hendi
eru til að draga úr
þeim og fá fólk til að
bjarga sér sjálft án
þess að nota verkja-
lyf,“ sagði Ingvar. „Við
komum fólkinu af stað,
gefum því hugmyndir
um hvernig það sjálft
getur bætt líf sitt og
með því getur það komist út úr sín-
um vítahring. Ef okkur tekst að út-
skrifa fólk héðan þannig að það
treysti sér til að halda áfram sjálft án
þess að taka verkjalyf er það stór
áfangi.“
Árangur næst með því
að auka verkjaþolið
Ingvar sagði til að ná árangri væri
unnið að því að auka verkjaþol fólks,
en það væri m.a. gert með því að
koma vöðvum í betra ástand. „Ef
ástand vöðva er gott þá eykst verkja-
þolið. Vöðvarnir framleiða sjálfir en-
dorfín, en það slær á verki.
Taki fólk hins vegar inn verkjalyf
draga vöðvarnir úr eigin framleiðslu
efnisins og sagði Ingvar það eina af
ástæðum þess að nauðsynlegt væri
að fá fólk til að minnka lyfjaneyslu.
Þá væri reynt að draga úr bólgum í
vöðvum og vöðvafestingum og loks
nauðsynlegt að fólk gerði hlutina
rétt, rangar vinnustellingar gætu
aukið verki. „Þá er líka mikilvægt að
kenna fólki að slaka á,“ sagði Ingvar.
Tæplega 100 manns eru á biðlista
eftir meðferð á endurhæfingardeild-
inni og sagði Ingvar að í þeim hópi
væru um 70 manns sem hefðu gagn
af því að sækja verkjaskólann. Gert
er ráð fyrir að 6 hópar komist að á
ári, eða um 50 manns.
Morgunblaðið/Kristján
Hólmfríður Jónsdóttir gerir æfingar í bekkpressu á Kristnesi.
Lykilatriðið að losa
fólk við verkjalyfin
Ingvar
Þóroddsson
Vonir bundnar við verkjaskóla á Kristnesi