Morgunblaðið - 27.09.2002, Qupperneq 54
54 FÖSTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Sýnd kl. 8 og 10.15 B.i. 14. Sýnd kl. 6. með ísl. tali.
HK DV
„ARFTAKI
BOND ER
FUNDINN!“
Hvað gerist þegar þú tekur
smábæjargaurinn, gefur honum 40
milljarða dollara og sleppir honum
lausum í stórborginni?
Adam Sandler fer á kostum
í geggjaðri gamanmynd!
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
ADAM
SANDLER
WINONA
RYDER
Miðasala opnar kl. 15.30 HUGSAÐU STÓRT
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Sýnd kl. 4 og 6. með ísl. tali.
HL Mbl
Sýnd kl. 8.
Sýnd kl. 5.50, 8, 10.10 og 12.20.
The Sweetest Thing
Sexý og Single
miðaverð aðeins 350 kr!
STUTTMYND HJ Mbl
ÓHT Rás 2
Sýnd kl. 4 og 5.
Sýnd með íslensku tali.
Yfir 20.000 MANNS
Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 12 ára.
kl. 4.45, 7.30 og 10.10.
Kvikmyndir .com
DV
HK DV
„ARFTAKI
BOND ER
FUNDINN!“
Ný Tegund Töffara
Sýnd kl. 4 og 6. með ísl. tali.
Sýnd kl. 5.15, 8, 10.40 og powersýning kl.12. B.i. 14.
ADAM
SANDLER
Hvað gerist þegar þú tekur
smábæjargaurinn, gefur honum 40
milljarða dollara og sleppir honum
lausum í stórborginni?
Adam Sandler fer á kostum
í geggjaðri gamanmynd!
Powersýning
kl. 12.
WINONA
RYDER
Kátasta kráin
í bænum!
um helgar
Opið til
kl. 5.30
H A F N A R S T R Æ T I 4
Ruth
Reginalds
alla
helgina
STÓRSVEITARTÓNLIST
og sveifla eru ástríða
Geirs Ólafssonar, svo ekki
sé talað um þegar þetta
tvennt rennur saman.
Lengi hefur blundað í
herra „Ice Blue“, eins og
hann á til að kalla sig, að
láta þann draum sinn ræt-
ast. Mun það gerast í
kvöld, er hann stendur
fyrir söngskemmtun á
Broadway, studdur sér-
staklega samsettri 20
manna stórsveit sem flytja
mun eftirlætissveiflulög
Geirs í útsetningum Þóris
Baldurssonar.
Þórir er bestur
„Ég fékk Þóri til verksins, einfald-
lega vegna þess að hann er sá besti
hér á landi og þótt víðar væri leit-
að,“ segir Geir.
Þórir Baldursson útsetti lögin á
plötu Geirs sem kom út fyrir jólin
síðustu þannig að þeir félagar eru
vel kunnugir hvor öðrum. Þórir hef-
ur útsett fyrir stórsveit þessa helstu
sveiflustandarda, lög sem áður voru
sungin af Sinatra, Sammy Davis
yngri, Dean Martin, Judy Garland
o.fl. þeim líkum en rúsínan í pylsu-
endanum er nýtt lag eftir Ólaf Gauk
sem hann samdi sérstaklega fyrir
Geir, lag sem heitir „Farvel Frans“
og er minningaróður til Franks Si-
natra. „Ólafur Gaukur samdi þetta
eftir að hafa fengið fregnir af and-
láti Sinatra árið 1998,“ útskýrir
Geir.
Þórir segir útsetningarnar beggja
blands eigin smíðar og stælingu á
upprunalegum útsetningum. Hann
hafi t.a.m. þurft að færa eldri útsetn-
ingar á standördunum svolítið í stíl-
inn, laga þær að raddsviði Geirs sem
liggur mun ofar en raddsvið Sinatra
og annarra raulara.
„Það er ægilega gaman að fá að
útsetja fyrir stórsveit,“ segir Þórir.
„Þetta er svo stór hljómur, mögu-
leikarnir svo margir. Andstaðan er
þannig algjör við plötuna sem við
gerðum t.d. þar sem við notuðum
einungis þrjá blásara.“
Geir verður ekki eini söngvari
skemmtunarinnar í kvöld heldur
mun hann njóta fulltingis þeirra
Ingu Backman, Jóhönnu Linnet og
Harold Burr. Aðspurður hvers
vegna hann hafi kallað til söngkonur
sem vanari eru óperusöngnum en
sveiflunni segir Geir að það geti allir
góðir söngvarar sungið sveifluna,
svo fremi sem þeir séu góðir söngv-
arar. Geir setti stórsveitina síðan
saman og hafa æfingar staðið alla
vikuna. „Þær hafa gengið afar vel.
Þessir hljóðfæraleikarar eru enda
það færir að þeir eru fljótir að til-
einka sér vel útfærðar og skil-
greindar útsetningar Þóris,“ segir
Geir og er greinilega stoltur af því
fólki sem hann hefur hóað saman til
samstarfs við sig.
Frank Sinatra og stórsveitar-
tónlist var mál málanna um miðbik
síðustu aldar og allt fram að rokk-
byltingunni ógurlegu. Tónlistin nýt-
ur enn mikillar hylli og seljast plötur
Sinatra enn jafnt og þétt. Blaða-
manni leikur því forvitni
á að vita hvers vegna svo
lítið beri á slíkri tónlist
hér á landi, hvers vegna
svo sjaldan sé boðið upp á
stórsveitartónleika. Þórir
er fyrri til að svara: „Ég
held að sökin sé ljós-
vakamiðlanna. Þrátt fyrir
klárar vinsældir tónlistar
á borð við stórsveit-
artónlist þá sér nánast
engin útvarpsstöðvanna
ástæðu til að sinna henni.
Slík er einhæfnin í tón-
listarvali. Gamla gufan er
langbesta stöðin af því að
þar má greina einhverja
fjölbreytni. En þessi tónlist er
algjörlega sniðgengin, þessi gull-
náma af plötum og diskum sem er
fáanleg út um allt. En það er við
dagskrárgerðarfólkið að sakast því
það vinnur ekki heimavinnuna
sína.“
Hvar er sveiflan?
Og blaðamaður bendir á hversu
sárasjaldan Sinatra heyrist orðið í
íslensku útvarpi, það hafi einna helst
verið í þartilgerðum þætti Geirs sem
var á dagskrá Rásar 1 í sumar.
„Dagskrárstjórar hinna stöðv-
anna þykjast vita hvað fólk vill
heyra en mín reynsla er önnur því
það er alltaf að koma til mín fólk til
að segja mér hversu mikið því líkar
sveiflan,“ bætir Geir við.
En ástæðan fyrir því að svo fáir
stórsveitartónleikar eru haldnir er
þó að hluta til af öðrum toga. Það er
nefnilega engin smáframkvæmd að
koma slíku í kring og telur Þórir
Geir því vera að lyfta ákveðnu
Grettistaki með því að efna til slíkra
tónleika. „Það þarf svona stórhuga
og kjarkmikla menn til,“ segir Þórir
að lokum.
Geir Ólafsson býður til söngskemmtunar á Broadway ásamt stórsveit
Geir, Þórir og Inga Backman í góðri sveiflu á æfingu.
skarpi@mbl.is
Stórhuga sveiflusöngvari
Morgunblaðið/Golli
MENNINGARMÁL