Morgunblaðið - 24.10.2002, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 24.10.2002, Blaðsíða 9
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. OKTÓBER 2002 9 RÚMLEGA tvítugur maður var í Héraðsdómi Reykjavíkur á mánudag dæmdur í 15 mánaða fangelsi fyrir of- beldisrán í söluturni í Reykjavík í mars, þjófnað í íbúð í Árbæjarhverfi í janúar og hótanir í garð eiganda hennar vegna skýrslu um innbrotið til lögreglu. Sannað þótti að í ráninu í söluturn- inum hafi maðurinn ráðist með of- beldi að stúlku sem var þar ein við af- greiðslu, en hann hafði á brott með sér um 16.700 krónur í reiðufé, 20 inn- stæðusímakort að andvirði 10.500 krónur, 33 kveikjara að verðmæti 3.300 krónur, 5 vindlapakka og 53 síg- arettupakka að verðmæti kr. 26.795. Þá hafði hann á brott með sér far- tölvu, myndbandstæki, fjarstýringu, tvö hleðslutæki, matarvigt, 9 geisla- diska, tréstyttu, snyrtivörur og per- sónulega muni, samtals að verðmæti um 245.400 krónur, úr íbúð kunn- ingjakonu sinnar í Árbæjarhverfi í janúar og sendi henni síðan nokkur SMS-skilaboð með hótun um að beita hana ofbeldi vegna skýrslu hennar til lögreglu um þjófnaðinn. Refsing mannsins var skilorðs- bundin til þriggja ára og fellur hún niður að þeim tíma liðnum haldi hann almennt skilorð. Var honum gert að greiða allan sakarkostnað, þar með talin 60.000 króna málsvarnarlaun verjanda síns. Pétur Guðgeirsson héraðsdómari kvað upp dóminn. Verjandi ákærða var Hreinn Pálsson hrl. Málið sótti Kolbrún Sævarsdóttir saksóknari hjá ríkissaksóknara. Dæmdur í 15 mán- aða fangelsi fyrir rán og þjófnaði ELDUR kom upp í kofa á bænum Kolbeinsstöðum í Kolbeinsstaðahreppi í Hnappadal í fyrrakvöld. Sverrir Björnsson, bóndi á Kolbeinsstöðum, var að reykja kjöt þegar glóðin læsti sig í kofann. „Þetta var nú eiginlega bara gamalt kofaræskni, sem ég notaði meðal annars til reykingar, sem brann. Eina tjónið er að þarna var smá- vegis af kjöt sem ætlað var til jólanna,“ sagði Sverrir. Sverrir sagði að nágrannar sínir hefðu komið sér til hjálpar og slökkt eldinn. Kof- inn var langt frá öðrum hús- um á bænum og því var engin hætta á frekara tjóni. Jólakjötið eldi að bráð Alltaf á þriðjudögum Kringlunni, sími 588 1680, v. Nesveg, Seltjarnarnesi, sími 561 1680. iðunn tískuverslun Glæsilegt úrval af ullarkápum frá Ný sending Jólalínan frá Engjateigi 5, sími 581 2141. Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—15.00. Mörkinni 6, sími 588 5518 Nýjar vörur Opið virka daga frá kl. 9-18. Laugardaga frá kl. 10-15. Úlpur, ullarstuttkápur, hattar, húfur og kanínuskinn Ullar síðbuxur og peysur Laugavegi 56, sími 552 2201 NÚ KÓLNAR ÚTIGALLAR ÚLPUR OG KULDABUXUR KULDASKÓR HÚFUR OG VETLINGAR FRÁBÆR GÆÐI FALLEGIR LITIR LAUGAVEGI 53, SÍMI 551 4884 Peysur Gott úrval 100% Merino ull Sængurgjafir í miklu úrvali Ítölsk barnafataverslun Laugavegi 53, s. 552 3737 Mikið úrval af ullarpeysum fyrir krakka frá 0-12 ára Jólafötin streyma inn Laugavegi 84, sími 551 0756 Stuttar og síðar ullarkápur www.oo.is Opið alla laugard. frá kl. 11-16 Mikið úrval af ungbarnafatnaði BARNAVÖRUVERSLUN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.