Morgunblaðið - 24.10.2002, Blaðsíða 41
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. OKTÓBER 2002 41
RÓBERT Rósmann, árnefndarmað-
ur í Tungufljóti fyrir SVFR, veiddi
18 punda sjóbirtingshæng í síðasta
kasti á síðasta veiðideginum, sl.
mánudag. Er það annar tveggja
stærstu fiska úr Fljótinu á þessari
vertíð.
Mjög kalt hafði verið í veðri, ís-
hröngl í ánni og skarir með bökkum
og hollið á undan árnefndinni, sem
var að loka ánni, hafði aðeins fengið
þrjá fiska við þessar kringumstæð-
ur. Árnefndinni gekk ívið betur, sér-
staklega Róberti, sem náði sex fisk-
um, m.a. þeim stóra í síðasta
kastinu.
„Ég var í Breiðufor og það var
komið að ljósaskiptum. Ég hefði lík-
lega verið með maðk nema að ég
hafði nýslitið í botni og átti enga
sökku. Það varð því úr að ég setti á
þyngda Black Ghost með keilu og í
miðjum hylnum á milli klettanna
tveggja, var tekið með þessum líka
hrikalega krafti.“
Svo surgaði hátt
„Síðan lét fiskurinn sig vaða niður
úr hylnum, fyrir utan neðri klettinn,
og línan lagðist yfir grjótið svo surg-
aði hátt í. Mér tókst að losa hana
með rykkjum og þá tók við rosalegur
sprettur ofan í smáhyl einhverjum
60 metrum neðar og þar varð honum
ekki haggað næstu 10 mínúturnar.
Hann bara lá eins og ég væri með
fast í botni. Mér var orðið svo kalt að
ég fór niður fyrir fiskinn og tók fast
á honum. Hann þokaðist þá aftur
upp í Breiðufor og ég á eftir og gat
vaðið að neðanverðu út á neðri klett-
inn þannig að línan festist ekki aftur.
Þarna paufaðist fiskurinn, en sneri
sér loks og leitaði niðurúr á ný. Þá
var hann svo þreyttur að ég gat stýrt
honum og rennt honum á ferðinni
upp á grynnra vatn þar sem hann
nánast strandaði. Þó var ég hræddur
um að línan myndi skerast á ísskör-
inni, en fiskurinn var svo stór
og þungur að hann bara braut
hana niður og fór yfir hana.
Þetta var mikill hængur, 88
cm og einhverjum grömmum
yfir 9 kg eða 18 pundum, en ég
hirti ekki um það og skráði
hann slétt 9 kg í veiðibókina.
Þessi fer upp á vegg, ég er bú-
inn að bíða lengi eftir svona
fiski,“ sagði Róbert í samtali
við Morgunblaðið.
Góð vertíð
Alls voru færðir til bókar
502 fiskar í Tungufljóti og er
það fjölbreytt veiði, sjóbirt-
ingar á niðurleið í maí, stað-
bundinn urriði og sjóbleikja
um hásumar og síðan sjóbirt-
ingur um haustið, auk nokk-
urra laxa. Birtingar voru alls
um 270–280 sem er nánast
sama talan og undangengin
ár. Tungufljótið hefur því
haldið sínu á meðan hinar
bergvatnsárnar í Skaftafells-
sýslum skiluðu lakari veiði.
Fékk 18 punda
birting í síðasta kasti
Ljósmynd/Hrafn Karlsson
Róbert Rósmann með níu kílóa sjóbirting
sem veiddist í Tungufljóti við veiðilok, 21.
október.
ERU
ÞEIR AÐ
FÁ’ANN?
AT V I N N U A U G LÝ S I N G A R
ATVINNA ÓSKAST
Trésmiður
Trésmiður óskar eftir atvinnu til lengri
tíma. Upplýsingar í síma 855 2691.
Arðbær aukavinna
Bandarískir dollarar, íslensk orka,
asískt hugvit og þýsk mynt
Byggðu upp þínar eigin lífeyristekjur. Hafið
samband við Björn, s. 820 5788 eða beg@isl.is
Blaðamennska
í Hafnarfirði
Óskum að ráða blaðamann/fréttastjóra til starfa
á nýju vikublaði sem er að hefja göngu sína
í Hafnarfirði. Útgefandi er traust, tuttugu ára
fjölmiðlafyrirtæki.
Leitum eftir duglegum einstaklingi sem þarf
að vera tilbúinn að leggja sig fram í krefjandi
starfi, geta unnið sjálfstætt og undir álagi.
Kostur ef viðkomandi býr í Hafnarfirði eða
nágrenni. Umsækjandi þarf að geta hafið störf
sem fyrst.
Umsóknir sendist á netfangið pket@vf.is .
Eftirtalin kennarastörf
eru laus til umsóknar
fyrir vorönn 2003
Heil staða í rafiðnadeild.
Heil staða á sjúkraliðabraut.
Ráðið verður í stöðurnar frá 1. janúar 2003.
Ekki þarf að sækja um starfið á sérstökum eyðu-
blöðum, en í umsókn þarf að greina frá menntun
og fyrri störfum.
Öllum umsóknum verður svarað. Laun sam-
kvæmt samningum viðkomandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til 5. nóvember 2002.
Nánari upplýsingar veita skólameistari og
aðstoðarskólameistari í síma 570 5600.
Veffang: www.fb.is
Netfang: fb@fb.is
Skólameistari.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
HÚSNÆÐI ÓSKAST
Sundfélagið
Ægir
óskar eftir einstaklingsíbúð til leigu fyrir aðal-
þjálfara félagsins. Skilvísum greiðslum og
reglusemi heitið.
Upplýsingar veitir formaður félagsins í síma
892 1951 eftir kl. 17.00 á daginn. Einnig er hægt
að senda tilboð á skrifstofu félagsins, Engja-
vegi 6, Reykjavík, fyrir 1. nóvember nk.
UPPBOÐ
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum sem hér segir:
Bjarg, Selfossi, fastanr. 218-7740, þingl. eig. Guðbjörg Edda Árnadótt-
ir, gerðarbeiðendur Íslandsbanki hf. og sýslumaðurinn á Selfossi,
fimmtudaginn 31. október 2002 kl. 9.30
Grænamörk 1C, Hveragerði, þingl. eig. Jón Magnús Harðarson,
gerðarbeiðandi Hveragerðisbær, fimmtudaginn 31. október 2002
kl. 13.30.
Heiðmörk 42, Hveragerði, fastanr. 221-0438, þingl. eig. Steindór
Gestsson, gerðarbeiðendur Gróðurvörur ehf., Hveragerðisbær og
sýslumaðurinn á Selfossi, fimmtudaginn 31. október 2002 kl. 14.00.
Jörðin Þórustaðir 2, Ölfushreppi, þingl. eig. Gamalíel ehf., gerðarb-
eiðendur Landsbanki Íslands hf., aðalstöðv. og Lánasjóður landbú-
naðarins, fimmtudaginn 31. október 2002 kl. 11.45.
Laufhagi 14, Selfossi, eingarhl. gerðarþ., fastanr. 218-6683, þingl.
eig. Gunnar Emil Árnason, gerðarbeiðandi sýslumaðurinn á Selfossi,
fimmtudaginn 31. október 2002 kl. 11.00.
Sýslumaðurinn á Selfossi,
23. október 2002.
SMÁAUGLÝSINGAR
EINKAMÁL
42 ára Spánverji, 165 cm á
hæð og 75 kg, óskar eftir að
kynnast íslenskri konu, 22—
30 ára, með alvöru og stofn-
un fjölskyldu á Spáni í huga
(helst barnlausa). Tala dálitla
ensku. Mynd æskileg.
Sendið bréf til: Section Post
office, N 22 Briviesca,
Burgos, Spain.
FÉLAGSLÍF
Landsst. 6002102419 VIII
I.O.O.F. 11 18310248½ Bk.
Í kvöld kl. 20.00:
Lofgjörðarsamkoma.
Umsjón: Majór Inger Dahl.
Allir hjartanlega velkomnir.
Almenn samkoma í Þríbúðum,
Hverfisgötu 42, kl. 20:00.
Mikill söngur og vitnisburðir.
Prédikun: Jón Þór Eyjólfsson.
Allir hjartanlega velkomnir.
www.samhjalp.is
SAFNARAR
Bítlarnir, Stones, Elvis og
fleiri, popp, rokk og þungarokk,
breiðskífur, smáskífur og plaköt
frá ca 1950—'70. Sérstaklega
söfn. Gott verð í boði.
Tölvup. leariderz@hotmail.com .
ATVINNUAUGLÝSINGAR
sendist á augl@mbl.is