Morgunblaðið - 24.10.2002, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 24.10.2002, Blaðsíða 49
FÓLK Í FRÉTTUM MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. OKTÓBER 2002 49 mbl.is og Evrópska kvikmyndaakademían bjóða Íslendingum í fimmta sinn að taka þátt í atkvæðagreiðslunni í þrem eftirsóttustu verðlaunaflokkum Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna 2002. Greiðir þú atkvæði á mbl.is eða fyllir út neðangreindan atkvæðaseðil áttu möguleika á að vera við verðlaunaafhendinguna sem fer fram í Róm 7. desember nk. Myndir sem koma til greina verða að hafa verið frumsýndar á tímabilinu 1. nóvember 2001 til 31. október 2002. TAKTU ÞÁTT MEÐ ÞVÍ AÐ FYLLA ÚT MEÐFYLGJANDI ATKVÆÐASEÐIL EÐA FARÐU Á NETIÐ: www.mbl.is BESTI EVRÓPSKI LEIKSTJÓRINN 2002: FYRIR HVAÐA MYND: BESTI EVRÓPSKI LEIKARINN 2002: Í HVAÐA MYND: BESTA EVRÓPSKA LEIKKONAN 2002: Í HVAÐA MYND: NAFN (NAME): HEIMILISFANG (ADDRESS): PÓSTNÚMER (POSTCODE): STAÐUR (CITY): SÍMI (DAYTIME PHONE): SENDIÐ ATKVÆÐASEÐILINN FYRIR 31. OKTÓBER Á EFTIRFARANDI HEIMILISFANG THE PEOPLE’S CHOICE AWARDS 2002, C/O ERNST & YOUNG LLP, BECKET HOUSE, 1 LAMBETH PALACE ROAD, LONDON, SE1 7EU, UK GREIDDU ATKVÆÐI UM: BESTA EVRÓPSKA LEIKSTJÓRANN 2002 PEDRO ALMODOVAR - HABLE CON ELLA MARCO BELLOCCHIO - L’ORA DI RELIGIONE CRISTINA COMENCINI - IL PIU BEL GIORNO DELLA MIA VITA JEAN-PIERRE & LUC DARDENNE - LE FILS ANDREAS DRESEN - HALBE TREPPE PAUL GREENGRASS - BLOODY SUNDAY AKI KAURISMAKI - MIES VAILLA MENNEISYYTTA CEDRIC KLAPISCH - L’AUBERGE ESPAGNOLE MIKE LEIGH - ALL OR NOTHING ANNETTE K. OLESEN - SMA ULYKKER FRANCOIS OZON - HUIT FEMMES SILVIO SOLDINI - BRUCIO NEL VENTO BESTA EVRÓPSKA LEIKARANN 2002 HUGH BONNEVILLE - IRIS JIM BROADBENT - IRIS ADRIEN BRODY - LE PIANISTE JAVIER CAMARA - HABLE CON ELLA VINCENT CASSEL - SUR MES LEVRES SERGIO CASTELLITTO - L’ORA DI RELIGIONE ALAIN CHABAT - ASTERIX & OBELIX: MISSION CLEOPATRA MARTIN COMPSTON - SWEET SIXTEEN RALPH FIENNES - SPIDER OLIVIER GOURMET - LE FILS LUIGI LO CASCIO - LUCE DEI MIEI OCCHI ULRICH TUKUR - AMEN BESTU EVRÓPSKU LEIKKONUNA 2002 VICTORIA ABRIL - SIN NOTICIAS DE DIOS FANNY ARDANT - HUIT FEMMES ARIANE ASCARIDE - MARIE-JO ET SES 2 AMOURS JUDI DENCH - IRIS EMMANUELLE DEVOS - SUR MES LEVRES ISABELLE HUPPERT - HUIT FEMMES HELEN MIRREN - GOSFORD PARK PARMINDER NAGRA - BEND IT LIKE BECKHAM MAGGIE SMITH - GOSFORD PARK PAPRIKA STEEN - OKAY EMILY WATSON - GOSFORD PARK KATE WINSLET - IRIS VAL FÓLKSINS 2002 - ATKVÆÐASEÐILL TAKTU ÞÁTT Í VALI FÓLKSINS! „THE PEOPLE’S CHOICE AWARDS“ Í I I ! Greiddu atkvæði um: Besta evrópska leikstjórann árið 2002 Besta evrópska leikarann 2002 Bestu evrópsku leikkonuna 2002 mbl.is Stuð í sumarbúðum (Happy Campers) Gamanmynd Bandaríkin 2001. Myndform VHS. (90 mín.) Öllum leyfð. Leikstjórn og handrit Daniel Walters. Aðalhlutverk Brad Renfro, Dominique Swain. UM SÖGUÞRÁÐ þessarar ung- lingamyndar þarf ekki að fara mörg- um orðum, krakkar í sumarbúðum og ungir leiðbeinendur þeirra fá sig full- södd á harkalegri og íhaldssamri stjórn yfirmanns búðanna, sem er vægast sagt kenjóttur náungi. En það er ekki bara hann sem er kenjóttur heldur myndin öll. Hún er eiginlega stórskrítin. Á að vera opinská stúdía á því er unga fólkið uppgötvar náttúr- una … þ.e.a.s. í sér og hvað í öðru. Ringulreiðin er tak- markalaus, boðskapurinn brenglaður og vægast sagt vafasamur og leikstíll- inn allur hinn ýktasti, rétt eins og krakkarnir hafi ekki fengið neina leið- sögn, heldur verið látið eftir að stjórna sér sjálf. Allt á þetta eflaust að vera voðalega flippað og fríkað, voða- lega John Waters-legt. Í örfáum til- vikum gengur það líka eftir, og maður brosir út í annað, en lengst af hristir maður einfaldlega hausinn yfir öllum hamaganginum. Svo er það reyndar hitt, kannski er maður bara orðinn of gamall fyrir þetta - og myndi ég nú seint teljast í hópi eldri manna?  Skarphéðinn Guðmundsson Taumlausar hvolpaástir Wish You Were Dead (Vildi að þú værir dauður) Gamanmynd Bandaríkin, 2000. Skífan VHS. (92 mín). Bönnuð innan 16 ára. Leikstjórn: Valerie McCaffrey. Aðalhlutverk: Cary Elwes, Eileen Hendrix, Mary Steenburgen og Christopher Lloyd. VILDI að þú værir dauður er al- veg hreint kolbikasvört kómedía. Það sem gerir hana hvað svartasta er hins vegar ekki endilega megin- söguþráðurinn, sem fjallar um leigu- morðingja sem drepur eiginmenn eftir pöntun, heldur persónusköpun- in. Þar kynnumst við nefnilega al- gjörum ruslaralýð, einkum mæðgun- um Sally og Tönyu sem búa í hjólhýsi. Ein af mörgum til- raunum þeirra til þess að eignast ein- hverja peninga felst í því að setja á svið innbrot, sem reynist þó ekki mjög sannfærandi í augum trygg- ingarannsóknarmannsins Macbeth Wilson. En mæðgurnar svífast einskis og fellur hinn góðhjartaði Wilson fyrir Sally. Sú ræður síðan eina af helstu aðalpersónum sögunn- ar, leigukarlamorðingjann Melody Malloy til þess að drepa Macbeth greyið. En þessi velviljaði og ljóð- elski enskukennarasonur reynist svo ljúfur að Melody fer að endurskoða hið hatramma viðhorf sitt til karl- manna. Þetta er kostuleg kvikmynd, sem ber þess þó skýr merki að vera gerð fyrir mjög litla peninga. En það yfirbragð myndarinnar fellur alveg ágætlega saman við hið sjoppulega umhverfi sem farsinn gerist í. Myndbönd Kostu- legur rusl- aralýður Heiða Jóhannsdóttir BRESKA dægurtónlistartímartit- ið Q er eitt virtasta blað þess bransa og á mánudaginn veitti blaðið árleg tónlistarverðlaun sín. Þeir sem ráða valinu eru mestan part lesendur en sum verðlaunin voru veitt af dómnefndum. Leikar fóru þannig að Radio- head var valin besta hljómsveit í heimi annað árið í röð á meðan besta platan var kosin ný plata Coldplay, A Rush Of Blood To The Head. Bestu nýliðarnir voru valdir The Electric Soft Parade, besta smáskífan var valin „Freak Like Me“ með poppprinsessunum í Sugababes en besta myndbandið var „Get The Party Started“ með Pink. Íslandsvinirnir í Hives voru þá valdir besta tónleikabandið. Nokkuð var um að gamlir og gildir lista- menn fengju heið- ursverðlaun. Þannig fékk Tom Jones verðleika- verðlaun, Depeche Mode fékk uppátektar- verðlaun og Echo And The Bunnymen fengu innblástursverðlaun. Þá var reggíhetjan Jimmy Cliff valin sem sígildur lagasmiður. Oasis var tilnefnd í flestum flokkum, þremur, en fékk engin verðlaun. Radiohead: Besta band í heimi samkvæmt Q. Q-verðlaunin bresku Radiohead enn bestir … Rappararnir í Public Enemy hafa aflýst Evrópuhluta tónleikaferðalags síns – og mögulega því sem er eftir af ferðalaginu. Þetta gera þeir af ótta við þá hryðjuverkaöldu sem riðið hefur yfir heiminn að undanförnu … Garb- age ætlar að hefja upptökur á fjórðu breiðskífu sinni í janúar næstkomandi … Marilyn Manson semur tónlistina fyrir endurgerð myndarinnar The Texas Chainsaw Massacre. Næsta breiðskífa Mansons, The Golden Age Of Grotesque, kemur út á næsta ári … Mariah Carey er búin að hljóðrita dúett með Justin Timberlake. Lagið heitir „Yours“ og mun væntanlega verða á næstu plötu dívunnar sem út kemur í desember . POPPkorn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.