Morgunblaðið - 24.10.2002, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 24.10.2002, Blaðsíða 51
TÓNLEIKAR til styrktar þeim sem urðu illa úti í flóðunum í Tékklandi fyrr á árinu verða haldnir á Broadway næstkomandi sunnudag, 27. október, en það er útvarpskonan kunna, Anna Krist- ine Magnúsdóttir, sem stendur fyrir þessari söfnun. Yfir 200 listamenn muna koma fram á tónleikunum, bæði frá Ís- landi og Tékklandi, þar á meðal Stuðmenn, Geir Ólafsson og Big Band, Páll Óskar Hjálmtýsson og Monika Abendroth, Milljónamær- ingarnir, Gospelsystur Reykjavík- ur undir stjórn Margrétar Pálma- dóttur, Petr Muk, Michaela og Olga Barduhka og fleiri. Undirbúningur fyrir tónleikana hefur staðið síðan um miðjan sept- ember en Anna Kristine, sem er hálfur Tékki, segir að henni renni blóðið til skyldunnar að rétta fram hjálparhönd en þetta er í annað sinn sem hún stendur fyrir styrktartónleikum fyrir Tékkland. „Neyðin er miklu stærri en nokkurn óraði fyrir þegar flóðin brutust út. Núna beinum við sjón- um okkar að framtíð Tékklands, unga fólkinu, og þá sérstaklega því sem býr í litlu þorpunum en það á eiginlega enga von um að koma undir sig fótunum að nýju án hjálpar. Við þurfum að sjá til þess að Tékkar haldi áfram að njóta þeirrar menntunar sem þeir hafa haft og endurbyggja grunn- skóla sem fóru illa út úr flóð- unum,“ segir Anna. Allir sem koma að þessum tón- leikum gefa vinnu sína, „þannig að það er víða gott fólk í sam- félaginu,“ segir Anna. Styrktartónleikarnir hafa vakið mikla athygli í Tékklandi en ásamt tékknesku tónlistarfólki koma til landsins fjölmiðlamenn sem ætla að taka upp heimild- armynd um land og þjóð og fjöldi tímarita hefur óskað eftir grein- um um Ísland. Tónleikarnir hefjast klukkan 20.30 en miðasalan hefst kl. 15 sama dag og miðinn kostar 1.500 kr. „Þegar neyðaróp kemur ein- hvers staðar frá þá vaknar neyð- arhjálp úr norðri. Íslendingar eru fljótir að átta sig á að margt smátt gerir eitt stórt,“ segir Anna. Þeim sem vilja styrkja þetta málefni er bent á bankabók 702000 í aðalbanka Búnaðarbank- ans. Morgunblaðið/Árni Sæberg Anna Kristine Magnúsdóttir, þriðja til hægri, ásamt lista- mönnum fyrir utan gistihúsið Kríunes við Elliðavatn. Neyðar- hjálp úr norðri Styrktartónleikar vegna flóðanna í Tékklandi ORGELKVARTETTINN Apparat hefur framið sín orgelverk hér heima og erlendis um nokkurt skeið og getið sér gott orð fyrir. Fyrstu breiðskíf- unnar hefur því verið beðið með nokkurri eftir- væntingu. Org- elkvartett er í sjálfu sér frum- legt fyrirbæri en það fyrsta sem grípur athyglina er samt umslagið sem er með því flottara sem sést hefur lengi: glæsileg malerísk túlkun á meðlimum sveitar- innar sem Playmo-karlar – góð hug- mynd (með kraftwerskri tilvísun?) og á Markús Þór Andrésson heiðurinn af útfærslunni. Einhvern veginn býst maður við hátíðlegum lagasmíðum þegar maður heyrir orðið „orgel- kvartett“ en hér er þvert á móti farið óhátíðlegum en fimum fingrum um ýmsar rokkklisjur sem fá óneitanlega sérstakt yfirbragð vegna orgelhljóm- sins. Sveitin hefur notað sér græjur sem aðrir hafa fyrir löngu hent út í geymslu, gamla heimilisskemmtara o.fl., og knýja út úr þessu dóti glymj- andi fín stef sem eru skrítin blanda af klisjum og tilraunamennsku. Tékk- neskar teiknimyndir, lélegar SF-bíó- myndir og „prog“rokk kemur upp í hugann þegar hlustað er á diskinn, hljómurinn er skemmtilega gamal- dags sem helgast væntanlega af eðli og aldri hljóðfæranna. Trommuleik- urinn er líka ómissandi, gefur þessu þéttari grunn og drifkraft. Upphafslagið „Romantika“ gefur tóninn, ýmis furðuleg tíst og ýl hljóma yfir föstum takti, mjög þétt og skemmtilegt lag, og stuðið heldur áfram í „Stereo Rock & Roll“ þar sem næstum hallærislega einfalt en mjög grípandi stef nær tökum á manni og fær mann til að taka undir með vél- röddinni sem biður kurteislega um meira tvírásarokk – þetta lag hlýtur að verða klassík. Orgelið sýnir á sér grófari hliðar í „Cruise Control“ sem er óhefluð, blússandi keyrsla með rifnum undirtóni og mjög kröftugt. Af öðrum meiði en engu síðra er „Global Capital“. Það gæti orðið framtíðarsöngur orgeleigenda allra landa en í því syngur vélröddin um hina ýmsu hópa þjóðfélagsins sem meðlimir sveitarinnar eru fulltrúar fyrir, t.d. aristókrata, próletara o.fl., og síðan koma menn og vélar saman í hátíðlegu og upphöfnu viðlagi sem gæti sómt sér vel í auglýsingu fyrir tryggingafélag. Orgelhljómnum er beitt af fullum þunga í „Seremonia“ sem virkar eins og undirspil við got- neska kastala„hrollvekju“ og hér ákallar vélmennið Apparat (Alpha – Party – Party – Alpha – Radio – Alpha – Tango) með dramatískum áhrifum. Stemmningin dettur nokkuð niður í „Charlie Tango #2“, sem er fremur þunglamalegt, og einnig verð- ur vélraddarhljómurinn dálítið leiði- gjarn þegar á líður. Góð tilbreyting frá honum er reyndar í „The Anguish of Space-Time“ þar sem Adda Ing- ólfsdóttir leggur til engilbjarta rödd sem myndar skarpa andstæðu við vélrænan hljóminn og hæga stígand- ina. Í það heila er þetta mjög heilsteypt og fín plata, sem dregur fram allar þær hliðar á orgelum sem maður get- ur kært sig um – organdi stuð á köfl- um og fínlegri fingralipurð þess á milli. Tónlist Orgelvélin vaknar Orgelkvartettinn Apparat Apparat Organ Quartet Thule/TMT Meðlimir eru Hörður Bragason, Jóhann Jóhannsson, Sighvatur Ómar Kristinsson og Úlfur Eldjárn orgelleikarar og Arnar Geir Ómarsson trommuleikari. Upptökur fóru fram í Thulestúdíói og NT&V 1999– 2002. Upptökustjórn Jóhann Jóhannsson og Orgelkvartettinn, hljóðblöndun Viðar Hákon Gíslason. Steinunn Haraldsdóttir MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. OKTÓBER 2002 51 Mörkinni 3, sími 588 0640 Opið mán.-fös. kl. 11-18, lau. kl. 11-15 Húsgögn Sérpantanir www.regnboginn.is Sýnd kl. 8 og 10.40. B.i. 14. Hverfisgötu  551 9000 Einn óvæntasti spennutryllir ársins! 1/2 Kvikmyndir.is Sýnd kl. 5.40 og 8. Sýnd kl. 6, 8 og 10. B. i. 16. . 1/2HL MBL SG DV ÓHT Rás2 „ARFTAKI BOND ER FUNDINN!“  HK DV Frábær spennutryllir með Heather Graham úr Boogie Nights og Joseph Fiennes úr Enemy at the Gates. Sýnd kl. 6, 8,30 og 10.50. B. i. 16. . Sýnd kl. 5.30. Forsýnd kl. 10. Frá leikstjóra American Beauty. Eitt mesta meistaraverk sem þú munt nokkurn tíman sjá. Gott popp styrkir gott málefni betri innheimtuárangur www.laugarasbio.is Sýnd kl. 8 og 10. Sýnd kl. 6. SK. RADIO-X SV Mbl FYRSTI OG SKELFILEGASTI KAFLINN Í SÖGU HANNIBAL LECTER 2 VIKUR Á TOP PNUM Í USA Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B. i. 16. . Sýnd kl. 6, 8 og 10. 1/2 Kvikmyndir.is  Kvikmyndir.com  HK DV  SK RadíóX  SV Mbl Orgelkvartettinn Apparat dregur fram „allar þær hliðar á orgelum sem maður getur kært sig um“.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.