Morgunblaðið - 24.10.2002, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 24.10.2002, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. OKTÓBER 2002 53 www.sambioin.is Sýnd kl. 4 og 6. Vit 441. Kvikmyndir.is Roger Ebert  DV  Kvikmyndir.com 1/2 SK.RadioX Sýnd kl. 8 og 10.10. B.i. 12. Vit 427 GH Kvikmyndir.com  SG. DV HL. MBL  Kvikmyndir.is Sýnd kl. 4 og 6. B.i. 12. Vit 433 FYRSTI OG SKELFILEGASTI KAFLINN Í SÖGU HANNIBAL LECTER.  Kvikmyndir.com 1/2 Kvikmyndir.is  SV. MBL 2 VIK UR Á T OPP NUM Í US A Frábær gamanmynd gerð eftir samnefndri metsölubók Rebekku Wells sem sló svo rækilega í gegn í Bandaríkjunum. Leyndarmálið er afhjúpað Leyndarmálið er afhjúpað anthony HOPKINS edward NORTON ralph FIENNES harvey KEITEL emily WATSON mary-louise PARKER philip seymour HOFFMAN Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 16. Vit 457 E I N N I G S Ý N D Í L Ú X U S V I P Sýnd í lúxussal kl. 5.30, 8 og 10.30. B. i. 16. Vit 458 1/2 Kvikmyndir.is 1/2 HK. DV  Kvikmyndir.com  Ó.H.T. Rás2 1/2 SV. MBL  HJ Mbl 1/2 HK DV 1/2 Kvikmyndir.is Sýnd kl. 8 og 10.10. B.i. 14. Vit 427 Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.20. Vit 455 1/2 Kvikmyndir.is MBL Sýnd kl. 3.50. Ísl tal. Vit 429 Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.20. B.i. 12. Vit 444 Sýnd kl. 10.15. Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 16 ára. Sýnd kl. 8 og 10. Sýnd kl. 8 og 10.15. Vit 455  DV Kl. 6 og 8. B.i. 12. Vit 433 1/2 Kvikmyndir.is  Kvikmyndir.com  HK DV  SK RadíóX  SV Mbl ANNA Rún Atladóttir, Inga Stef- ánsdóttir og Valgerður Guðnadóttir kalla sig Myrkar rósir. Þær standa fyrir óvenjulegum tónleikum í Kaffi- leikhúsinu næstu daga þar sem þær munu m.a. syngja og spila lög úr söngleiknum Kabarett og taka valin lög úr myndum um spæjarann geð- þekka James Bond. „Fyrir hlé erum við með lög úr Kabarett en eftir hlé verðum við að- allega með James Bond og aðra kvikmyndatónlist. Síðan munum við taka lög úr söngleikjum eftir Cole Porter og Steven Sondheim,“ segir Valgerður. Anna Rún Atladóttir, píanóleikari, spilar undir lögin en þær Inga og Valgerður syngja. Við lögin úr James Bond-myndunum bætist und- irleikur strengjakvartetts sem Hrafnkell Orri Harðarson, sellóleik- ari, hefur útsett lögin fyrir. Valgerð- ur segir að upprunalega séu strengir mjög áberandi í Bond lögum. „Bond- þemað á vel við núna því myndirnar eiga 40 ára afmæli og ný Bond-mynd er síðan væntanleg svo það verður stemmning yfir þessu.“ Valgerður segir það heldur ekki ólíklegt að þær Inga skiptist á einhverjum skemmti- legum hljóðfærum. „Við ætlum að sprella svolítið með það, til dæmis í einu lagi þá eru smá syrpur og það getur vel verið að ég taki í hristur sem ég keypti handa systur minni í Mexíkó. Síðan verðum við í ferlega flottum fötum, með smá props og spor,“ segir Valgerður hlæjandi og greinilegt er að þær stöllur ætla að skemmta sjálfum sér um leið og þær skemmta áhorfendum. En sitthvað fleira óvenjulegt mun gerast á þessum tónleikum. „Á hverju kvöldi koma leynigestir, ann- aðhvort þekktir söngvarar eða fólk sem kann að syngja en er kannski þekkt fyrir eitthvað allt annað.“ Val- gerður vildi þó ekki ljóstra meiru upp um það. Inga og Valgerður eru ekki óvanar söngskemmtunum því í byrjun sept- ember héldu þær tvenna tónleika, með svipaðri dagskrá, sem slógu svo rækilega í gegn að þær ákváðu að endurtaka leikinn sex sinnum til við- bótar. Tónleikarnir verða haldnir dagana 25. og 26. október og 1., 2., 8., og 9. nóvember. Hægt verður að koma klukkan sjö og panta sér mat áður en skemmtunin hefst klukkan níu. Gestir og gangandi geta því komið sér vel fyrir í Kaffileikhúsinu á kom- andi kvöldum undir söngskemmtun Myrku rósanna. Morgunblaðið/Jim Smart Anna Rún situr við píanóið og Valgerður og Inga standa fyrir miðju ásamt meðspilurum sínum. Þær eru að undirbúa tónleika í Kaffileikhúsinu. Kabarett og James Bond LAGAKEPPNI framhalds- skólanna var haldin í fyrsta sinn í Austurbæj- arbíói við Snorrabraut á þriðjudagskvöldið. Að sögn Jóns Gunnars Þórð- arsonar, skipuleggjanda kvöldsins, var ríflega hús- fyllir á keppninni en um 650 manns mættu á stað- inn. Góð stemning var í húsinu og mættu klapplið framhaldsskólanna tíu, sem tóku þátt í keppninni, til að hvetja sitt fólk. Fjöl- breytnin var í fyrirrúmi en fönkhljómsveitin Hanz úr Verzlunarskóla Íslands vann keppnina, í öðru sæti varð rapphljómsveit úr Menntaskólanum í Kópa- vogi og þriðja sætið vermir trúbador úr Menntaskólanum við Sund, sem söng óð til tómatsós- unnar með spænsku ívafi. Keppnin var vel heppnuð í alla staði, að sögn Jóns Gunnars, en stefnt er á að keppnin verði fram- vegis árviss viðburður. Hann segir að skemmtiatriði milli laga hafi lífgað upp á keppnina en m.a. voru Beyglur með öllu á staðnum. Stjörnur úr Evróvision jafnt og óperuheimi sátu í dómnefndinni og má nefna Eyjólf Kristjánsson, Einar Bárðarson, Valgerði Guðnadóttur og Óttar Felix Hauksson en sá síð- astnefndi sér um rekstur hússins. Skólóvision er liður í Unglist, listahátíð ungs fólks, sem Hitt húsið stendur fyrir. Hátíðinni er ekki lok- ið enn því í kvöld fer fram keppnin Leiktu betur. Þar skora lið frá tólf framhaldsskólum á hvert annað í leikspuna og er hægt að grípa til eins fjölbreytilegra tjáningarforma og óperusöngs, söngleikja og ball- etts. Keppnin hefst stundvís- lega klukkan 20 í Tjarn- arbíói og hvetur Jón Gunnar áhugasama til að mæta snemma því aðeins eru 240 sæti í boði. Ekkert kostar inn á keppnina fremur en aðra viðburði Unglistar. Framhaldsskólar keppa á Unglist Keppendur MR voru í mjög góðu stuði. Morgunblaðið/Golli Verzló vann Skólóvision ingarun@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.