Morgunblaðið - 01.11.2002, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
2 FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Íslendingar lögðu Júgóslava
í Borlänge / C3
Keflavík skoraði 137 stig
í Hveragerði / C2
8 SÍÐUR Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is
4 SÍÐUR
Staðið í boxi / B1
Rokkað í anda Jerry Lee Lewis / B2
Í klóm heilsudrekans / B3
Hugfangin af nýsköpun / B4
Hömlulaust át / B6
Auðlesið efni / B8
Sérblöð í dag
Morgunblaðinu
í dag fylgir aug-
lýsingablaðið
„Vísindadagar“.
Blaðinu verður
dreift um allt
land.
um og hvíldist þess vegna ekki
nokkurn skapaðan hlut. Ég var
skipstjóri á vinnsluskipi sem var
alla jafna úti um 30 daga í einu
og þetta var orðið alveg afleitt.“
Guðmundur segir að hann hafi
ákveðið að leita sér lækninga og
honum hafi verið vísað til Ágústs
Kárasonar, bæklunarlæknis í
Álftamýrinni. „Hann tók mér vel
í upphafi og ég fór í „utan kvóta“
skoðun hjá honum og borgaði
sjálfur fyrir hana. Ef ég hefði
ekki gert það hefði ég vænt-
anlega þurft að bíða fram yfir
áramót og jafnvel fram í febrúar
GUÐMUNDUR Kjalar
Jónsson, skipstjóri og
aflakló til áratuga, gerir
sér vonir um að verða
orðinn vinnufær mjög
fljótlega. Hann fór í axl-
araðgerð hjá bækl-
unarlækni á mið-
vikudagsmorguninn og
segist strax vera orðinn
betri.
Guðmundur greiddi
sjálfur fyrir skoðunina
til þess að stytta biðina
en aðgerðin sjálf var
gerð „innan kvóta“. Guð-
mundur segist hafa verið
svo heppinn að sjúkling-
ur hafi „dottið út“ og
hann komist að í staðinn.
Hefði það ekki gerst
segist Guðmundur hafa
greitt fyrir aðgerðina
sjálfur til þess að komast
aftur til sjós í stað þess
að bíða langt fram á
næsta ár eftir aðgerð.
„Ég er búinn að vera
skipstjóri í 32 ár og var
skipstjóri á Málmeynni,
sem gerð er út frá Sauð-
árkróki, þangað til í
sumar þegar ég gat ekki
lengur verið til sjós. Á
þeim tíma, sem liðinn er,
er tvisvar sinnum búið að bjóða
mér að koma um borð í skip en
ég gat ekki þegið það vegna axl-
arinnar. Ef ég hefði þurft að bíða
lengur hefði ríkið orðið af tals-
verðum tekjum með mig óvinnu-
færan í landi.“
Var hættur að geta sofið á
sjónum vegna veltingsins
„Ég er sjómaður og fyrir um
tveimur mánuðum var ég ekki
lengur fær um að vinna til sjós
vegna meiðslanna; ekki síst
vegna þess að ég gat ekki sofið
við þær aðstæður sem eru á sjón-
eftir að komast í skoð-
un. Síðan hefði ég til
viðbótar þurft að bíða í
tvo til fjóra mánuði eft-
ir aðgerðinni þannig að
þá hefði kannski verið
komið fram á vor. En
síðan var ég svo stál-
heppinn að það féll nið-
ur tími þannig að ég
komst að fyrir klára
heppni.“
Fræst úr
axlarliðnum
Guðmundur segir að
læknirinn hafi síðan
gert aðgerðina „innan
kvóta“ á miðvikudags-
morguninn. „Það þurfti
að fræsa burt bein-
hryggi í axlarliðnum til
þess að fá hann á
hreyfingu. Ég finn
strax mun á því hvað
ég get lyft hand-
leggnum hærra frá síð-
unni og ég er viss um
að ég verð vinnufær
eftir viku. Ég er alveg
gáttaður á þeim bata
sem ég hef fengið
svona fljótt eftir að-
gerðina.“
Guðmundur segir að
öfugt við marga aðra sé hann í
þeirri stöðu hafa efni á að greiða
fyrir aðgerðina sjálfur ef annar
kostur hefði ekki boðist en það
eigi vissulega ekki við um alla.
„Ég hefði meira að segja hiklaust
slegið mér lán fyrir aðgerðinni ef
því hefði verið að skipta bara til
þess að komast til vinnu aftur. En
það má heldur ekki gleyma því
að ef læknum væri gert ókleift að
vera með einkareknar stofur,
hefði verið tómt mál að tala um
að kaupa sér aðgerð, sá mögu-
leiki væri einfaldlega ekki fyrir
hendi.“
„Hefði slegið lán
fyrir aðgerðinni“
Morgunblaðið/Golli
UM helgina verður afmælisveisla
Volkswagen á Íslandi í höfuð-
stöðvum Heklu. Meðal annars
verður nýr jeppi frá Volkswagen,
Volkswagen Touareg, frumsýnd-
ur en Hekla er fyrsti umboðsaðili
Volkswagen í heiminum til að
sýna þennan nýja jeppa.
„Touareg er lúxusjeppi með
torfærueiginleika jafnt á við
sporteiginleika. Á hátíðinni í
Reykjavík verður nýr sýningar-
salur Volkswagen tekinn í notkun
og verður gestum boðið upp á af-
mælistertu og ýmsar veitingar.
Mikið verður um að vera fyrir
börn, s.s. hoppkastali, leiktækja-
bílar, veltibíllinn og fleira. Alla
helgina verður keppni þar sem
hitta þarf með boltum inn í nýjan
Volkswagen Polo,“ segir m.a. í
fréttatilkynningu.
Auglýsingamenn frá Volkswag-
en-fyrirtækinu taka í dag og á
morgun myndefni á Íslandi fyrir
markaðssetningu á nýjum Volks-
wagen-jeppa, Touareg. Starfs-
menn frá íslenska kvikmyndafyr-
irtækinu Pegasus aðstoða þá við
verkefnið.
Myndefnið frá Íslandi verður
tekið upp á hálendinu og er til-
gangurinn að sýna vegi og lands-
lag sem nýi jeppinn, Touareg, á að
geta farið um. Magnús Ragnars-
son, framkvæmdastjóri Pegasus,
segir myndefnið því ekki síst tekið
í brekkum og ám. Verður það not-
að í auglýsingaherferð fyrir
Touareg í Evrópulöndum en bíll-
inn verður markaðssettur næstu
vikur og mánuði.
Á sunnudag verður dreginn út
einn sýningargestur og gefst hon-
um færi á að vinna bifreiðina með
því að hitta með 5 boltum í röð inn
í bílinn. Í Heklu verður opið hús
þar sem gestum gefst kostur á að
kynna sér starfsemi bílaverk-
stæðis og bílavarahlutadeilda. Af-
mælisveislan fer einnig fram hjá
umboðsmönnum Heklu á Selfossi,
í Reykjanesbæ, á Reyðarfirði, Ak-
ureyri og Borgarnesi.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sverrir Sigfússon, framkvæmdastjóri Heklu, til vinstri, og Stephan
Wollenstein, einn af framkvæmdastjórum Volkswagen í Þýskalandi,
afhjúpuðu nýja jeppann í gær að viðstöddu fjölmenni.
Heimsfrumsýn-
ing á Volks-
wagen-jeppa
TÍU heimilislæknar hjá Heilbrigðis-
stofnun Suðurnesja létu af störfum í
gær og höfnuðu tilboði heilbrigðis-
ráðherra um að fresta uppsögnum
sínum í tvo mánuði og að viðræður
um þjónustusamning yrðu hafnar.
Var tilboðinu hafnað á þeim grund-
velli að kröfu þeirra um starfsréttindi
til jafns við aðra sérfræðilækna væri
ekki mætt.
Félag íslenskra heimilislækna,
FÍH, lýsir fullri ábyrgð á hendur
stjórnvöldum vegna þeirrar stöðu
sem upp er komin.
Jón Kristjánsson heilbrigðisráð-
herra sagði á Alþingi í gærdag að að-
gerðir lækna, sem tekið hefðu sig
saman og sagt upp störfum, væru
þvingunaraðgerðir sem bitnuðu helst
á þriðja aðila. Sagði hann það ein-
læga von sína að þeir íhuguðu stöð-
una og tækju aftur uppsagnir sínar.
Heilsugæslan þarf
vítamínsprautu
Rætt var um stöðu heilsugæslunn-
ar utan dagskrár á Alþingi að ósk
Guðmundar Árna Stefánssonar,
þingmanns Samfylkingarinnar.
Sagði Guðmundur að heilsugæslan
þyrfti nýja vítamínsprautu og því
yrði að opna þá gátt að heilugæslu-
læknar fengju að reka eigin stofur að
einhverju marki.
Jón Kristjánsson sagði að læknum
í Reykjanesbæ hefði verið boðið upp
á ýmsa kosti til að reyna að leysa deil-
una en svar þeirra væri jafnan það
sama: „Við erum hætt ef við fáum
ekki leyfi til að senda Trygginga-
stofnun ríkisins reikninga fyrir unnin
læknisstörf á einkastofum.“
Jón sagðist einnig vonast til að
læknar í Hafnarfirði, sem hafa sagt
upp frá og með 1. desember, sjái sig
um hönd og fari yfir úrskurð kjara-
nefndar sem færði heilsugæslulækn-
um í mörgum tilvikum meiri kjara-
bætur en menn hefðu almennt séð í
þjóðfélaginu á þessu og síðasta ári.
Sagði Jón að samkvæmt útreikning-
um heilbrigðisráðuneytisins væru
viðbótarútgjöld ríkisins vegna samn-
ingsins um 400 milljónir á ári en
heilsugæslulæknar eru innan við 200.
Þótt læknamóttaka á heilsugæslu
Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja sé
lokuð munu læknar á sjúkrahúsi
stofnunarinnar áfram sinna slysa-
móttöku og neyðartilfellum allan sól-
arhringinn.
Enginn heilsugæslulæknir
starfandi á Suðurnesjum
Ráðherra skorar á/6
Höfnuðu viðræðum/20
BÆÐI íslensku liðin skildu jöfn í
viðureignum sínum á Ólympíu-
mótinu í skák í gær. Karlaliðið gerði
jafntefli við Indónesa og kvennaliðið
við lið Bangladesh. Eftir sex um-
ferðir hefur karlaliðið 13,5 vinninga
en konurnar 9,5 vinninga. Rússar
leiða í karlaflokki með 18,5 vinn-
inga. Karlaliðið teflir við Portúgala í
dag og kvennaliðið við Makedóníu-
menn.
Ingvar Ásmundsson vann í gær
Vladimir Karasev á heimsmeistara-
móti öldunga sem fram fer í Þýska-
landi. Er Ingvar í 2.–10. sæti þegar
tvær umferðir eru eftir.
Jafnt hjá
skáklands-
liðunum
Góður sigur/55