Morgunblaðið - 01.11.2002, Blaðsíða 21
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2002 21
OPNAÐ hefur verið þjónustuver á
Akranesi sem mun starfa fyrir
Verslunarmannafélag Reykjavíkur.
Markmiðið með þjónustuverinu er
að bæta símsvörun félagsins og að
auki nýta tíma sérfræðinga félags-
ins betur, þar sem starfsmenn þjón-
ustuversins verða allt að átta tals-
ins á álagstímum.
Í þjónustuverinu er fyrir hendi
nýr og öflugur gagnagrunnur sem
á að gefa yfirstjórn félagsins betri
yfirsýn yfir þá málaflokka sem
mest ber á í starfsemi félagsins á
hverjum tíma. Áður störfuðu tveir
starfsmenn á skiptiborði og í mót-
töku félagsins sem vísuðu fyr-
irspurnum til sérfræðinga. Eins og
áður segir eiga starfsmenn þjón-
ustuversins með hjálp gagnagrunns
félagsins að auðvelda félagsmönn-
um beint aðgengi að þeim sérfræð-
ingum sem þeir eru að leita eftir.
Sem dæmi má nefna fyrirspurnir
um fæðingarorlof, sumarhús og
tryggingamál. Félagið verður með
tvær starfsstöðvar hér eftir, á
Akranesi og í Reykjavík. Nýja þjón-
ustverið skapar ný störf á Akranesi
en alls verða fimm starfsmenn á
Akranesi í fullu stöðugildi en áður
var aðeins hálft stöðugildi á skrif-
stofu VR á Akranesi.
Starfsmenn þjónustuversins
vinna í tölvuviðmóti sem hannað er
af fyrirtækinu IM og sagði Heimir
Fannar Gunnlaugsson að hafist
hefði verið handa í mars á þessu
ári. „Hannað var nýtt upplýs-
ingakerfi á grunni þeirra kerfa sem
til voru hjá VR og það tók aðeins
fjóra mánuði að hanna þetta kerfi.
Starfsmenn þjónustuvers VR og
sérfræðingar þess þurfa nú aðeins
að vinna í einu forriti eins og sagt
er, og auðveldar það alla yfirsýn
um réttindi félaga í VR. Við vitum
nú þegar að þessi breyting skilar
meiri afköstum og er skilvirkari á
allan hátt enda er beitt nýjustu
tækni sem völ er á,“ sagði Heimir
Fannar.
Þjónustuver
skapar ný störf
Morgunblaðið/Sig. Elvar
Sigrún Esther Guðmundsdóttir, Dóra Björk Scott og Sigrún Svava Gísla-
dóttir starfa við þjónustuver VR á Akranesi.
Akranes
KARLMAÐUR á þrítugsaldri
á yfir höfði sér tvær kærur
fyrir ölvunarakstur á Selfossi.
Aðfararnótt miðvikudags var
hann stöðvaður við ölvunar-
akstur innanbæjar en í hinu
tilfellinu ók hann bifreið sinni
að lögreglustöðinni og gaf sig
þar fram, enn sem fyrr undir
áhrifum áfengis.
Erindi hans á lögreglustöð-
ina var ekki að játa á sig
brotið, heldur ætlaði hann að
ná í lyklana að bifreiðinni
sem lögregla hafði tekið af
honum um nóttina.
Þegar maðurinn kom á lög-
reglustöðina upp úr klukkan
átta á miðvikudagsmorgun
lagði af honum áfengislykt og
var hann tafarlaust látinn
gangast undir blóðrannsókn.
Rannsóknin leiddi í ljós að
áfengismagn í blóði var nokk-
uð yfir leyfilegum mörkum þó
það væri heldur minna en var
í blóði hans um nóttina.
Maðurinn hefur því fengið
á sig tvær kærur fyrir ölv-
unarakstur, annars vegar fyr-
ir ölvunaraksturinn en hins
vegar fyrir hina vanhugsuðu
heimsókn á lögreglustöðina
nokkrum klukkustundum síð-
ar.
Vanhugs-
uð heim-
sókn á lög-
reglustöð
Selfoss
Farðu beina leið í Frjálsa!
A
B
X
/ S
ÍA
www.fr jals i . is
Frjálsi fjárfestingarbankinn hefur á annað ár boðið hagstæðustu bílalánin.
Í tilefni af 20 ára afmæli bankans gerum við nú enn betur og bjóðum bílalán
án lántökugjalds, fram að næstu áramótum.1)
Algengasta lántökugjaldið er 3% af lánsupphæð. Miðað við milljón króna
lán eru það því 30.000 kr. sem þú losnar við að greiða í aukakostnað.
Þú getur reiknað dæmið og sótt um bílalán á www.frjalsi.is eða hjá bílaumboðunum. Þú
getur einnig komið í Sóltún 26, hringt í síma 540 5000 eða sent tölvupóst á frjalsi@frjalsi.is
og fengið allar nánari upplýsingar hjá ráðgjöfum okkar.
1) Bílalán með veði í bifreið getur numið allt að 75% af kaupverði til allt að 84 mánaða. Lánað er 100% af bílverði til allt að 96 mánaða ef
bílalánið er með veði í bifreið og bakveði í fasteign. Heildarveðhlutfall fasteignar með bílaláni má mest vera 90% af verðmæti fasteignar.
Sjá nánari skilyrði fyrir lántöku á www.frjalsi.is.
Lánsupphæð 60 mánuðir 72 mánuðir 84 mánuðir 96 mánuðir
1.000.000 kr. 20.401 kr. 17.612 kr. 15.620 kr. 14.126 kr.
Dæmi um mánaðarlega meðalafborgun af 1.000.000 kr.
miðað við jafnar afborganir án verðbóta:
FR
JÁ
LS
IF
JÁ
R
FE
ST
IN
GA
RBANKINN
1982–2002
ára
Hagstæðasta
bílalánið
og ekkert lántökugjald til áramóta