Morgunblaðið - 01.11.2002, Blaðsíða 68
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
ÞAÐ hefur verið mikið að gera
síðustu vikurnar í fjósinu á Stein-
um undir Eyjafjöllum. Þar er
stórbýli og hafa á nokkrum dög-
um fæðst þar um 15 kálfar. Það
óvenjulega við þennan burð er að
með tveggja daga millibili fædd-
ust tvennir tvíburakálfar. Í báð-
um tilvikum var um að ræða
kvígur sem voru að bera í fyrsta
skipti, en Sigurjón Pálsson, bóndi
á Steinum, segir mjög sjaldgæft
að fyrstakálfskvígur eigi tvo
kálfa.
Sigurjón var ekki allt of hrif-
inn af þessum óvenjulega burði
því hann segir þetta reyna mikið
á kýrnar og geti leitt til þess að
þær mjólki minna en ella. Tvíbur-
arnir voru í báðum tilvikum
kvíga og boli. Þegar það gerist
eru um 99% líkur á að kvígan sé
ófrjó og geti ekki sjálf eignast
kálfa.
En þótt Sigurjón hafi ekki
verið allt of hrifinn af þessum
burði var frændi hans, Snorri
Geir Ríkharðsson, yfir sig
ánægður með kálfana. Snorri er
sex ára og stundar nám í Sel-
ásskóla í Reykjavík. Þar er nú
vetrarfrí og Snorri, sem er mik-
ill sveitamaður, gat ekki beðið
með að komast í sveitina. Hann
tók sér því far með vörubíl frá
Reykjavík að Steinum. „Snorri
er nánast búinn að vera í fjósinu
síðan hann kom,“ sagði Sig-
urjón. Á myndinni eru þeir Sig-
urjón, bóndi á Steinum, og
Snorri Geir, frændi hans, með
tvíburakálfa.
Morgunblaðið/RAX
Tvennir tvíbur-
ar á Steinum
BAUGUR Group hf. mun auka hlut
sinn í Bonus Stores Inc. í Bandaríkj-
unum á næstu vikum um 9 milljónir
Bandaríkjadala, eða sem svarar til
um 800 milljóna íslenskra króna.
Hlutur félagsins eykst við það úr 55%
í 65%. Frá þessu var greint í
tengslum við birtingu 6 mánaða upp-
gjörs Baugs Group í gær. Í tilkynn-
ingu frá félaginu segir að áætlanir
geri ráð fyrir að Bonus Stores muni
skila hagnaði á næsta ári.
Hagnaður Baugs Group á fyrri
helmingi fjárhagsárs félagsins, frá 1.
mars 2002 til loka ágústmánaðar, var
minni en áætlanir gerðu ráð fyrir.
Nam hagnaðurinn 159 milljónum
króna eftir skatta. Meginástæðurnar
fyrir lakari afkomu en áætlað var eru
annars vegar mikið tap á rekstri Bon-
us Stores í Bandaríkjunum og hins
vegar lægri framlegð hjá Baugi Ís-
land en gert var ráð fyrir, að því er
segir í tilkynningu félagsins.
Baugur Ísland tapaði
166 milljónum
Heildarvelta Baugs Group á tíma-
bilinu frá mars til loka ágúst 2002
nam 26 milljörðum króna en á fyrstu
6 mánuðum síðasta árs var veltan
13,7 milljarðar. Veltuaukning er því
um 90%.
Tap Baugs Ísland nam 166 millj-
ónum króna eftir skatta á tímabilinu
frá mars til ágúst á þessu ári og tap
Baugs USA nam 614 milljónum.
Hagnaður Baugs ID nam hins vegar
939 milljónum eftir skatta. Segir í til-
kynningu Baugs að rekstur Baugs ID
hafi gengið vel á síðustu þremur mán-
uðum og hafi tekjur af hlutdeildar- og
dótturfélögum verið 1,7 milljarðar
króna fyrir skatta. Þar vegi þyngst
hlutdeild í hagnaði Arcadia. Bókfært
verð eignarhluta Baugs í Arcadia í
árshlutareikningnum fyrir fyrstu sex
mánuði þessa rekstrarárs er um 12,5
milljarðar króna, en eignarhluturinn
hefur verið seldur og kemur sölu-
hagnaðurinn fram á 3. ársfjórðungi
hjá félaginu. Jón Ásgeir Jóhannes-
son, stjórnarformaður Baugs Group
hf., segist vera sérstaklega ánægður
með afkomuna af fjárfestingarstarf-
semi félagsins, þ.e. Baug ID. Þótt af-
koman í Bandaríkjunum hjá Baugi
USA hafi ekki verið eins og vonir hafi
staðið til þá hafi hann trú á því að
reksturinn þar muni snúast við á
næsta ári. Þá sé jafnframt ástæða til
að vera bjartsýnn varðandi rekstur-
inn hér á landi hjá Baugi Ísland.
Hann segir að rekstrarhorfur Baugs
Group á næstu sex mánuðum séu því
mjög góðar.
Hlutur Baugs í Bonus Stor-
es aukinn um 800 milljónir
Hagnaður/22
„EF ég kom á bensínstöð og sá
súkkulaði átti ég til að segja við
afgreiðslufólkið að ég ætlaði að
fá eitt stykki. Svo var eins og ég
myndi allt í einu eftir einhverju
og sagði að ekki mætti gleyma
strákunum í vinnunni og keypti
mörg súkkulaðistykki til viðbót-
ar. Auðvitað var þetta allt
handa mér.“
Með þessum hætti m.a. end-
urspeglaðist blekking og
skömm karls um fertugt, sem
um árabil átti við átfíkn og offitu
að stríða. Tuttugu og sex ára
kona hafði svipaða sögu að
segja. Hún var í bullandi ofáti
og með ranghugmyndir, en
leyndi vanlíðan sinni.
Bæði hafa náð tökum á vanda
sínum með hjálp OA-samtak-
anna, en starf þeirra byggist á
tólf spora kerfi AA-samtak-
anna.
Heildstæð meðferðarstefna
við átvanda er ekki til, en tillaga
til þingsályktunar var lögð fram
á Alþingi í lok síðasta árs. Lagt
er til að þverfagleg þjónusta
þeirra sem hafa sérþekkingu á
átröskunum verði sameinuð og
boðið upp á sérhæfða meðferð
fyrir átröskunarsjúklinga.
Átfíkn og offita
Skömm
og lygar
Hömlulaust át/B6
HAGNAÐUR Eimskipafélags Ís-
lands eftir skatta nam 3.844 millj-
ónum króna fyrstu níu mánuði ársins
en tapið nam 4.085 milljónum króna
á sama tímabili í fyrra. Rekstrar-
hagnaður fyrir afskriftir og fjár-
magnsliði var 2.052 milljónir króna
en á sama tímabili í fyrra var rekstr-
arhagnaðurinn 797 milljónir króna.
Það sem einkum skýrir mikil um-
skipti í afkomu félagsins er gengis-
hagnaður lána í erlendri mynt vegna
styrkingar íslensku krónunnar og
óinnleystur gengishagnaður hluta-
bréfa í eigu samstæðunnar.
Fjármunatekjur Eimskips námu
1.675 milljónum króna fyrstu níu
mánuði ársins en á sama tímabili í
fyrra námu fjármunagjöld samstæð-
unnar 1.506 milljónum króna.
Í gær voru starfsmönnum sam-
stæðunnar kynntar skipulagsbreyt-
ingar sem munu formlega taka gildi
um áramót. Í þeim felst að reknar
verða þrjár sjálfstæðar einingar inn-
an félagsins, þ.e. flutningaeining,
sjávarútvegseining og fjárfestingar-
eining. Um tvær þessara eininga,
flutningastarfsemi og sjávarútvegs-
starfsemi verða stofnuð sjálfstæð
hlutafélög sem verða að fullu í eigu
Eimskipafélagsins. Fyrir er Burðar-
ás, fjárfestingareining Eimskips,
sjálfstætt hlutafélag.
Erlendur Hjaltason verður fram-
kvæmdastjóri Eimskips ehf., flutn-
ingaeiningar Eimskipafélagsins.
Guðbrandur Sigurðsson verður
framkvæmdastjóri sjávarútvegsein-
ingar Eimskipafélagsins og Friðrik
Jóhannsson er framkvæmdastjóri
Burðaráss.
Eimskip með 3.844
milljónir í hagnað
Eimskip/14
SÝSLUMAÐURINN í Kópavogi
hefur að kröfu útgerðar flutninga-
skipsins Estime sett lögbann á að-
gerðum, sem forysta samtaka sjó-
manna hafði boðað til að hindra
losun og lestun skipsins, þegar það
kemur til hafnar í Kópavogi í dag.
Með lögbanninu er tryggt að
engin töf verður á siglingum og af-
greiðslu skipsins og að þjónusta
Atlantsskipa við viðskiptavini sína
raskast ekki, að sögn Stefáns
Kjærnested, framkvæmdastjóra
Atlantsskipa. Hann segir að útgerð
skipsins hafi krafist lögbanns,
vegna þess að forystumenn sam-
taka sjómanna hafi lýst því yfir í
fjölmiðlum og auglýsingum, að þeir
ætluðu að reyna að hindra upp-
skipun, en undanfarin fjögur ár hafi
sjómannasamtökin reynt að hindra
afgreiðslu skipa Atlantsskipa með
ólögmætum aðgerðum, síðast við
komu skipsins Bremer Uranus í lið-
inni viku.
Lögbann
á boðaðar
aðgerðir
sjómanna
OLÍUFÉLÖGIN ákváðu í gær að
lækka verð á lítranum af bensíni um
0,50 kr. og tekur lækkunin gildi frá
og með deginum í dag.
Þá mun verð á gasolíu, svartolíu
og dísilolíu lækka um 1,50 kr. Fram
kemur í tilkynningum frá olíufélög-
unum að ástæða verðbreytinga sé
lækkun á heimsmarkaðsverði.
Bensínlítr-
inn lækkar
um 0,50 kr.