Morgunblaðið - 07.12.2002, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 07.12.2002, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 287. TBL. 90. ÁRG. LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2002 mbl.is Höfundurinn örlöglausi Um ungverska nóbelsskáldið, Imre Kertész Lesbók 8 Benedikt búálfur lifnar við Verður þrívíddarteiknimynd eins og lirfan ljóta Fólk 88 Meistaraverk Atla Heimis Geisladiskurinn Tíminn og vatnið fær afburðadóm Listir 37 GIORGIO Scaglia, fulltrúi ítalska fyrirtækisins Impregilo SpA við opnun tilboða í gerð Kára- hnjúkastíflu og aðrennslisgöng, er bjartsýnn á að fyrirtækið muni fá verkin. Hann segir að niðurstaða útboðsins hafi ekki komið sér á óvart. Mikil vinna hafi legið að baki tilboðsgerðinni og allt verið gert til að leggja fram tilboð sem yrði sem næst áætlun Landsvirkjunar. Innlent og erlent vinnuafl „Við höfum bæði mannafla og tæki tilbúin í þetta verkefni hér á Íslandi, um leið og ákveðið verður að taka okkar tilboði,“ segir Scaglia. Fram kom í máli hans að ef gengið verði að tilboði Impregilo muni það verða sér úti um íslensk- an samstarfsaðila. Kvaðst Scaglia reikna með að vinnuafl yrði bæði innlent og erlent. Þó yrðu Ítalir allsráðandi við gerð aðrennsl- isganganna. Impregilo er stærsta verktaka- fyrirtæki Ítalíu og taldist fyrir tveimur árum meðal 20 stærstu slíkra fyrirtækja í Evrópu í tekjum talið. Aðstoð Keflavíkurverktaka Ítalska fyrirtækið naut aðstoðar Keflavíkurverktaka við undirbún- ing ákveðinna þátta í tilboðsgerð- inni. Kári Arngrímsson, yfirverk- fræðingur hjá fyrirtækinu, segir ekki útilokað að Impregilo muni bjóða í fleiri verkþætti virkjunar- innar. Útboð á stöðvarhúsinu og fleiri stíflum og jarðgöngum sé til dæmis eftir. Höfum mannafla og tæki tilbúin ÍTALSKA fyrirtækið Impregilo SpA átti lægsta tilboð í bæði stíflu og aðrennslisgöng Kárahnjúkavirkjun- ar. Tilboð í verkin voru opnuð í stjórnstöð Landsvirkjunar í gær. Tilboð Impregilo var undir kostn- aðaráætlun í bæði verkin sem boðin voru út. Fyrirtækið bauð alls rúma 44 milljarða í verkin, sem er um 6 milljörðum kr. lægri upphæð en kostnaðaráætlun ráðunauta Lands- virkjunar. Bauð fyrirtækið 19,6 milljarða í stífluna og 24,5 milljarða í aðrennslisgöngin, sem er 93,9% af kostnaðaráætlun. Auk þess bauð það 3% afslátt af heildarupphæðinni, ef það fær bæði verkin. Önnur tilboð yfir áætlun Önnur tilboð sem bárust í verkin voru öll yfir kostnaðaráætlun. Sam- eiginlegt tilboð frá Ístaki hf., E. Pihl & Søn AS og AF Gruppen ASA í stífluna hljóðaði upp á 27 milljarða kr. og tilboð Ístaks og E.Pihl & Søn AS í aðrennslisgöngin hljóðaði upp á 46,3 milljarða. Eurohydro JV, en að því standa Hochtief Construction AG og Íslenskir aðalverktakar, lagði fram 34,4 milljarða tilboð í stífluna og 36,1 milljarðs kr. tilboð í að- rennslisgöngin. Jákvæð áhrif á álviðræður Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar- ráðherra segir að niðurstaða útboðs- ins sé ákveðinn léttir. Ávallt sé óvissa um niðurstöðu útboða, hún hefði í þessu tilfelli t.d. getað verið sú að allir verktakar hefðu verið langt yfir kostnaðaráætlun. Valgerður segir að ljóst sé að Impregilo sé stórt alþjóðlegt fyrirtæki með mikla reynslu í virkjanaframkvæmdum. Hún segir einnig að niðurstaða út- boðsins eiga að geta haft jákvæð áhrif á þær viðræður sem fram fara nú vegna fyrirhugaðs álvers Alcoa. Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, segir að nú verði lagst yfir tölurnar í tilboðunum með ráðgjöfum fyrirtækisins. Það geti jafnvel tekið 2–3 vikur, þar sem um flókið verkefni sé að ræða. Um leið þurfi að skoða aðra þætti málsins áð- ur en endanleg ákvörðun verði tekin, eins og raforkuverð til álversins og fleira því tengt. „Miðað við það sem á undan hefur gengið og brottfall fyrirtækja sem við höfum talsvert traust lagt á í gegnum tíðina, þá tel ég það bæri- lega útkomu að hafa fengið þrjú til- boð,“ segir Friðrik. Lægsta boð 6 millj- örðum undir áætlun Impregilo SpA bauð 44 millj- arða í stíflu og aðrennslisgöng Morgunblaðið/RAX Beðið var með eftirvæntingu opnunar tilboða í Kárahnjúkavirkjun. Giorgio Scaglia, fulltrúi Impregilo, í forgrunni.                          !   "#   $ %& '  (   ) " #   * # "#     !   +,)       -  )! .   -  !  # /0123 4 522163 557173  67163 588153 57/153 4 '  #   '  #    Impregilo/10 GEORGE W. Bush Bandaríkjafor- seti stokkaði í gær upp í æðsta ráð- gjafarliði sínu í efnahagsmálum, er Paul O’Neill fjármálaráðherra og Larry Lindsey, efnahagsmálaráð- gjafi forsetans, sögðu af sér að beiðni Hvíta hússins. Stjórnmálaráðgjafar Bush hafa haft vaxandi áhyggjur af því að sam- dráttur í bandarísku efnahagslífi gæti spillt fyrir möguleikum hans á endurkjöri og er afsögn þeirra O’Neill og Lindseys álitin tengjast þessum áhyggjum. Atvinnuleysi í Bandaríkjunum jókst til muna í nóvembermánuði og var þá skráð 6%, sem er það mesta í átta ár, að því er stjórnvöld í Wash- ington greindu frá í gær. Ráðgjafar Bush kváðu ekki kenna O’Neill um þá erfiðleika sem banda- rískt atvinnulíf á í um þessar mundir, en þeir hafa lengi gert sér grein fyrir að uppstokkun í ráðgjafaliði forset- ans í efnahagsmálum myndi styrkja trú kjósenda á því að Bush væri að gera það sem í hans valdi stæði til að mjaka málum til betri vegar. O’Neill er fyrsti ráðherrann í rík- isstjórn Bush sem fer úr henni. Eft- irmaður hans hefur enn ekki verið tilnefndur. „Forsetinn ætlar að fá til liðs við sig menn sem eru sérfræð- ingar í efnahagsmálum og njóta trausts fjármálamarkaðanna,“ sagði Ari Fleischer, talsmaður Hvíta húss- ins, um þetta. Bush stokkar upp Reuters Bush Bandaríkjaforseti ásamt Paul O’Neill, fráfarandi fjármálaráð- herra Bandaríkjanna. Washington. AP, AFP.  Hreinskilni/20 Æðstu efnahagsráðgjafar Bandaríkjaforseta segja af sérYFIRVÖLD í rússnesku borg- inni Volgograd og hundruð þúsunda fyrrverandi her- manna er börðust í seinni heimsstyrjöld hafa sent beiðni til Vladimírs Pútíns forseta um að nafni borgarinnar verði breytt til fyrra horfs, Stal- íngrad. Frá þessu greinir breska blaðið The Observer. Breytingin yrði „í virðing- arskyni við þær milljónir manna sem létu lífið í barátt- unni gegn nasismanum“, sagði Vladimír Andropov, aðstoðar- forseti borgarstjórnarinnar í Volgograd. „Stalíngrad er heimsþekkt tákn fyrir sigur mannkynsins á nasistum og við viljum að hans verði minnst um alla framtíð, [markmiðið] er ekki að minnast Stalíns.“ Aftur til Stalíngrad
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.