Morgunblaðið - 07.12.2002, Síða 22
ERLENT
22 LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
TVEIR stærstu stjórnmála-
flokkarnir í Grænlandi, jafnað-
armannaflokkurinn Siumut og
vinstriflokkurinn Inuit Ataqat-
igiit, IA, komu sér saman um
stjórnarmyndun í fyrrinótt.
Einn þingmanna IA, Kuupik
Kleist, sagði í viðtali við Berl-
ingske Tidende, að viðræðurn-
ar hefðu gengið vel og var jafn-
vel búist við því í gær, að skipan
stjórnarinnar yrði kynnt fyrir
kvöldið. Siumut fékk 10 menn
kjörna í kosningunum síðastlið-
inn þriðjudag og IA átta. Hafa
flokkarnir því 18 menn af 31 á
landsþinginu. Helsta stefnumál
beggja flokka er aukið sjálf-
stæði og hefur IA lagt til, að
efnt verði til þjóðaratkvæða-
greiðslu um það á árinu 2005.
Flugumferð
samræmd
SAMÞYKKT var á fundi sam-
gönguráðherra Evrópusam-
bandsins, ESB, í Brussel á
fimmtudag, að búið yrði að
samræma alla flugumferðar-
stjórn innan sambandsins árið
2005. Að auki voru samþykktar
tillögur um aukin réttindi flug-
farþega.
Tilgangur samræmingarinn-
ar er að greiða fyrir flugumferð
innan ESB en hún hefur dreg-
ist nokkuð vegna þess, að
ganga þurfti einnig frá reglum
um réttindi herflugvéla. Þar að
auki var nokkur andstaða við
samræminguna í sumum aðild-
arríkjanna, einkum í Frakk-
landi þar sem stéttarfélög
flugumferðarstjóra ætla að
mótmæla henni með verkföll-
um.
Með lögunum verða réttindi
flugfarþega aukin frá því, sem
nú er. Á það við er fólki með
farmiða er vísað frá vegna of-
bókunar, þegar ferðir eru felld-
ar niður eða þegar áætlanir
fara verulega úr skorðum.
13% styðja
bin Laden
UM tvær milljónir múslíma
búa í Bretlandi en fimmti hver
þeirra auðsýnir landinu enga
hollustu. Meira en 10% múslím-
anna eru sammála hryðju-
verkaherferð Osama bin Lad-
ens gegn vestrænum ríkjum.
Kemur þetta fram í skoðana-
könnun, sem dagblaðið Daily
Telegraph birti í gær, en sam-
kvæmt henni taldi meirihluti
múslímanna, að hryðjuverka-
árásirnar í Bandaríkjunum 11.
september fyrir rúmu ári væru
með öllu óréttlætanlegar. 8%
vildu þó ekki fordæma þær,
13% voru sammála morðárás-
um bin Ladens og 21% hélt því
fram, að múslímar hefðu ekki
staðið að þeim.
Meirihluti múslíma hefur
áhyggjur af framferði ísl-
amskra öfgamanna og óttast,
að það muni sverta ásýnd ísl-
ams í augum umheimsins.
Persson
að skilja
GÖRAN Persson, forsætisráð-
herra Svíþjóðar, og Annika,
kona hans, hafa ákveðið að
skilja. Segist Persson harma
það í yfirlýsingu, sem hann
sendi frá sér, en Annika segir í
viðtali við Expressen, að ástæð-
an sé sú, að Persson hafi tekið
starfið fram yfir hjónabandið.
STUTT
Ný stjórn á
Grænlandi
ÞÝZKI sagfræðingurinn Jörg
Friedrich hefur með nýrri bók um
hið skipulagða sprengjustríð
bandamanna gegn þýzkum borg-
um í síðari heimsstyrjöld hleypt af
stað nýrri umræðu, bæði heima
fyrir en þó ekki sízt í Bretlandi,
um eðli þess hluta stríðsrekstrar-
ins og hvort bandamenn hafi þar
gert sig seka um stríðsglæpi.
Á bilinu 420.000 til 570.000
óbreyttir borgarar létu lífið í
sprengjuárásum Breta og Banda-
ríkjamanna á þýzkar borgir á ár-
unum 1940–1945 og þúsundir sögu-
legra bygginga og önnur
menningarverðmæti eyðilögðust.
Síðasta hálfa ár stríðsins, þegar
enginn vafi lék lengur á hernaðar-
legum fullnaðarsigri bandamanna
á „Þriðja ríkinu“, var sprengj-
uregnið með tilheyrandi íkveikju-
efnum látið dynja skipulega á
þýzkum borgum af meiri krafti en
nokkru sinni fyrr, og var það gert
vísvitandi í refsingarskyni fyrir
framferði herja Adolfs Hitlers.
Þekktasta árásin af þessu tagi
er þegar Dresden, barokkborgin
við Saxelfi sem hafði litla sem enga
hernaðarlega þýðingu og var full
af flóttafólki, var lögð í rúst á einni
nóttu í febrúar 1945.
En í bók sinni, „Der Brand“,
sem útgefandinn Propyläen segir
vera fyrstu heildarsamantektina á
sögu sprengjustríðsins í Þýzka-
landi frá sjónarhóli þeirra sem
sprengjurnar féllu á, rekur höf-
undurinn mörg fleiri dæmi. Eitt
þeirra er hvernig Pforzheim, um
60.000 manna borg skammt vestur
af Stuttgart sem sannanlega hafði
enga hernaðarlega þýðingu, var
jöfnuð við jörðu í einni árás
skömmu fyrir stríðslok, hinn 24.
febrúar 1945. Þriðjungur íbúanna,
um 20.000 manns, dó.
Tabúbrot
Með því að skrifa um þjáningar
Þjóðverja í hörmungum stríðsins,
sem lítið hefur verið gert af til
þessa, fetar Friedrich að vissu
leyti í fótspor nóbelsrithöfundarins
Günters Grass, sem í nýjustu
skáldsögu sinni, Krabbagangi (Im
Krebsgang), fjallar um örlög þýzks
flóttafólks frá Austur-Prússlandi,
en opinber umfjöllun um þjáningar
Þjóðverja í stríðinu sem Hitler hóf
hefur verið hálfgert „tabú“ þessa
rúmu hálfu öld sem liðin er frá
stríðslokum. Einkum hafa þýzkir
sagnfræðingar haldið sig fjarri
slíkum umfjöllunarefnum af ótta
við að lenda í þeirri aðstöðu að
vera ásakaðir um að vega stríðs-
þjáningar Þjóðverja upp á móti
þjáningum fórnarlamba nazista.
Í viðbrögðum við bók Friedrichs
hefur brezki sagnfræðingurinn
Anthony Beever sagt, að Þjóðverj-
ar hafi verið upphafsmenn að
sprengjustríði gegn óbreyttum
borgurum. Réttmætt sé að það sé
rætt hvort hernaður af því tagi
hafi yfirleitt átt einhvern rétt á
sér. En ef einhver vilji halda því
fram nú, að Winston Churchill hafi
verið stríðsglæpamaður, í hlut-
verki sínu sem sá maður sem bar
yfirábyrgð á stríðsrekstri Breta,
þá gangi slíkt of langt.
Í viðtali við þýzka dagblaðið Die
Welt er Friedrich spurður hvort
hann vilji halda því fram að
Churchill hafi gerzt sekur um
stríðsglæpi. Því svarar Friedrich
neitandi. En bætir við: „Churchill
var ábyrgur fyrir eyðingu hálfrar
milljónar óbreyttra borgara, með
það að markmiði að brjóta bar-
áttuþrek þeirra á bak aftur.“
Að sögn Friedrichs vissu Bretar
þó mætavel af eigin reynslu af
sprengjuárásum á borgir eins og
Coventry og Lundúnir, að slíkar
árásir væru sízt til þess fallnar að
spilla fyrir baráttuvilja þjóðarinn-
ar. Arthur „Bomber“-Harris, yfir-
maður sprengjuflugflota Breta,
hafi að vísu trúað því að hægt væri
að vinna stríð með því að demba
bara nógu miklu magni af sprengj-
um á borgir óvinarins, en það
breyti því ekki að mönnum hafi
verið það ljóst að skipulagðar
„teppasprengjuárásirnar“ á þýzk-
ar borgir í lok stríðsins gegndu
öllu meira refsingar- en hernaðar-
legu hlutverki. Hvort árásir eins
og þá á Pforzheim beri að telja
stríðsglæpi eftirlætur sagnfræð-
ingurinn lesendum að dæma um.
Friedrich vitnar reyndar í bók
sinni einnig í þýzka Nóbelsskáldið
Thomas Mann, sem eftir sprengju-
árás bandamanna á fæðingarborg
hans Lübeck 29. marz 1942 sagði í
útvarpsræðu í útlegð í Bandaríkj-
unum: „Það tekur mig sárt að sjá
fyrir mér Maríukirkjuna og
Schiffergesellschafts-húsið eyði-
lögð. En ég hugsa einnig til Cov-
entry og hef ekkert við þá kenn-
ingu að athuga, að æ sjái gjöf til
gjalda.“
Churchill
sekur um
stríðsglæpi?
Lübeck eftir sprengjuárás Breta í lok marz 1942. Rústir Maríukirkj-
unnar fyrir miðju.
Ný bók þýzks sagnfræðings um
sprengjuárásir á þýzkar borgir í síðari
heimsstyrjöld hefur, að sögn Auðuns
Arnórssonar, vakið nýja umræðu um
þá atburði, ekki sízt í Bretlandi.
auar@mbl.is
SAKSÓKNARI í New York hefur
farið fram á að felldir verði niður
dómar yfir fimm mönnum sem
dæmdir voru fyrir að hafa nauðgað
konu og barið til óbóta í Central
Park árið 1989. Önnur játning liggur
fyrir í málinu og hefur DNA-rann-
sókn staðfest að þar er hinn eiginlegi
sökudólgur á ferðinni.
Ellefu mánuðir eru síðan maður,
sem nú afplánar lífstíðardóm fyrir
þrjár nauðganir og fyrir að hafa
nauðgað og myrt þungaða konu, lýsti
því yfir að hann hefði nauðgað kon-
unni, sem um ræðir. Hafði maðurinn,
Matias Reyes, ekki verið meðal
grunaðra í málinu á sínum tíma held-
ur var hópi unglinga kennt um.
Unglingarnir, sem voru 14–16 ára
þegar atburðurinn átti sér stað, hafa
þegar afplánað dóma vegna árásar-
innar en fórnarlambið var hvít kona
sem starfaði hjá fjárfestingarbanka í
New York. Þykir líklegt að ef dómar
yfir mönnunum, sem áttu heima í
Harlem-hverfi og eru svartir og af
rómönskum uppruna, verða felldir
niður muni þeir fara í skaðabótamál.
„Ég var algert villidýr“
Atburðurinn vakti á sínum tíma
mikinn óhug meðal íbúa New York.
Verjendur mannanna frá Harlem
hafa í gegnum tíðina haldið því fram
að lögreglan hafi þvingað þá til að
játa á sig glæpinn. Þar til í janúar,
þegar Reyes játaði á sig verknaðinn,
voru hins vegar litlar líkur á að dóm-
ur yfir þeim yrði felldur niður.
Reyes, sem er 31 árs, gerðist ný-
lega trúaður og segir hann það
ástæðu þess að hann ákvað að segja
frá sínum þætti í málinu. Hann seg-
ist hafa nauðgað konunni, barið hana
í höfuðið með steini og skilið eftir í
blóði sínu. „Ég var algert villidýr,“
sagði Reyes nýverið í viðtali.
Fórnarlamb árásarinnar, sem nú
er 41 árs, gat á sínum tíma ekki að-
stoðað við að þekkja árásarmanninn/
mennina enda man hún ekki hvað
gerðist.
Saksóknari í New York vill að dómar í frægu nauðgunarmáli verði felldir niður
Annar hefur játað á sig verknaðinn
New York. AP.
RECEP Tayyip Erdogan, leiðtogi
stjórnarflokksins í Tyrklandi, hafn-
aði í fyrrakvöld tillögu Frakka og
Þjóðverja um að viðræður um Evr-
ópusambandsaðild Tyrkja hæfust
árið 2005.
„Tyrkir hafa beðið við fótskör
Evrópumanna í 40 ár og fresti þeir
viðræðunum enn, mun sagan seint
fyrirgefa þeim,“ sagði Erdogan en
tillagan gerir ráð fyrir, að aðildarvið-
ræður geti hafist 2005, hafi Tyrkir
uppfyllt öll skilyrði þar að lútandi.
Mikill ágreiningur er með ESB-
ríkjunum um hugsanlega aðild
Tyrkja og líklegt, að hún verði eitt
aðalmálið á leiðtogafundinum í
Kaupmannahöfn í næstu viku. Í við-
tali við CNN sakaði Erdogan leið-
toga ESB um tvískinnung og sagði,
að Tyrkir væru komnir lengra í að
uppfylla aðildarskilmálana en sum
þeirra ríkja, sem nú væri verið að
bjóða aðild.
Tyrkir og ESB
Hafna við-
ræðutillögu
Ankara. AFP.