Morgunblaðið - 07.12.2002, Síða 63
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2002 63
skipulag. Þannig getur starfið verið
hálflamað í allt að þrjá mánuði.
Auðvitað er sumarafleysingafólk en
það þekkir ekki endilega þitt barn
og þess þarfir. Stöðugleiki er hluti
af gæðum og hann er best hægt að
tryggja með sumarlokunum.
Hver vill borga?
Fyrirtæki í samfélaginu sem
kvarta undan lokunum eru sjálfsagt
ekki tilbúin að greiða t.d. þann
aukakostnað sem af sumaropnunum
hefur hlotist. Til dæmis kostnað
sem fylgir því að ráða afleysinga-
fólk, bæði inn á deildir og í ræst-
ingar, fyrir utan að hafa eldhús op-
in með því sem fylgir. Jafnframt
má benda á að mönnun verður oft-
ast að vera rúm, ekki er tækifæri til
að samnýta mannahald á sama veg
og annars.
Það er í góðu að krefjast meiri
þjónustu, en viðkomandi verða þá
líka að gera sér grein fyrir þeim
kostnaði sem henni fylgir og vera
tilbúnir að greiða hann. Er atvinnu-
lífið tilbúið til þess? Því samkvæmt
þeim fregnum sem mér berast er
eins og það sé aðalatriðið; óþægindi
fyrirtækja. Steininn tók úr þegar
ég heyrði frá Landspítalanum að
þar væri 80% starfsfólks konur og
það væri bara þannig að konur beri
ábyrgð á börnunum. Ég reikna ekki
með að allar þessar konur sem
starfa á Landspítalanum eigi börn,
hvað þá á leikskólaaldri. Er vinnu-
staðurinn virkilega svo illa settur
að ekki sé hægt að hliðra til í 3-5 ár
með sumarleyfi fólks sem jafnvel
vinnur þar alla sína starfsævi?
Vinnustaður sem jafnvel er með
deildir þessa sama starfsfólks lok-
aðar.
Saman í fríi
Að lokum ætla ég að benda á að
víða þar sem ég þekki til erlendis
er leikskólaárið sambærilegt við
skólaárið, þannig eru leikskólar lok-
aðir alla þá daga sem skyldunáms-
skólinn er lokaður. Enginn hefur
enn gert svo byltingarkenndar
kröfur hér heima, eina krafan er að
starfsfólk, börn og foreldrar fái að
vera á sama tíma í fríi. Á þeim tíma
sem ég var leikskólastjóri fylgdi til-
hlökkun því að fara í sumarfrí, á
deildum pakkaði starfsfólk saman
efniviði og gerði upp veturinn,
starfsfólk, börn og foreldrar ræddu
það sem gera átti í fríinu, fara í úti-
legu, reyna að sóla sig heima, hvað
það nú var. Á fyrsta degi eftir frí
kom fólk endurnýjað á líkama og
sinni og allir glaðir að hittast á ný.
Tilbúnir að takast saman á við ný
verkefni. Er það til of mikil mælst?
Höfundur er fyrrverandi leik-
skólastjóri í Reykjavík.
Ódýrt fyrir alla!Ódýrt fyrir alla!
4425-
1690-
JÓLATRÉ 180cm- 210cm
sígrænt
LYNGHÁLSI 4 OG SKÚTUVOGI 2
Jólaá
vextir
nir
safarí
ku!
Ódýrt fyrir alla!
LÁGT OG
STÖÐUGT
VÖRUVERÐ!
3990-
4990-
JÓLATRÉ
120 cm.m/ fiberljósum jólatré
150 cm m/ fiberljósum
nýslátrað og ófrosið
LAMBAKJÖT
pr.kg.799-
LAMBALÆRI
OPIÐ
11-20
ALLA DAGA
1299-
KJÚKLINGABRINGUR
skinnlausar
pr.kg.
Ódýrt fyrir alla! Ódýrt fyrir alla!
79-
JÓLAKAFFI
250gr.
Gott á jólum!
30%AFSLÁTTUR
20%
AFSLÁTT
UR
Nýtt kortatímabil!