Morgunblaðið - 07.12.2002, Qupperneq 82
DAGBÓK
82 LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Petrogradskiy kemur í
dag, Ásbjörn fer í dag.
Fréttir
Bókatíðindi 2002. Núm-
er laugardagsins 7. des-
ember er 90096.
Mannamót
Bólstaðarhlíð 43 . Dans-
að í kringum jólatréð
föstudaginn 13. desem-
ber kl. 14. Jólasveinninn
kemur í heimsókn.
Ragnar Leví leikur fyrir
dansi, mætið með afa- og
ömmubörnin. Skráning í
síma 568 5052 fyrir
föstudaginn 13.des
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. „Opið
hús“, jólafagnaður Fé-
lags eldri borgara í
Hafnarfirði verður
fimmtudaginn 12. des. kl
14. Ýmis skemmtiatriði
og tónlist, kaffi. Púttað
er í Hraunseli mánudaga
kl. 10, þriðjudaga kl. 13
fimmtudaga kl. 10 og
föstudaga kl. 13, .Nám-
skeið í mótun á leir verð-
ur föstudaga kl. 13–16,
vantar fleiri þáttak-
hendur. Billjardstofan er
opin virka daga frá kl.
13–16. Skráning og upp-
lýsingar í Hraunseli, sími
555 0142.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið opið
mánu- og fimmtudaga.
Mánud.: Kl. 16 leikfimi.
Fimmtud.: Kl. 13 tré-
skurður, kl. 14 bókasafn-
ið, kl. 15–16 bókaspjall,
kl. 17–19 æfing kórs eldri
borgara í Damos. Laug-
ard.: Kl. 10–12 bókband.
Korpúlfarnir, eldri
borgarar í Grafarvogi.
Fimmtud.: Kl. 10, aðra
hverja viku púttað á
Korpúlfsstöðum, hina
vikuna keila í Keilu í
Mjódd. Vatnsleikfimi í
Grafarvogslaug á
þriðjud. kl. 9.45 og
föstud. kl. 9.30. Uppl. í s.
5454 500.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Kaffistofan op-
in kl. 10–13. Morg-
unkaffi, blöðin og matur í
hádegi. Ljósaskreyt-
ingar á Akranesi, stutt
dagsferð 15. desember,
brottför frá Ásgarði,
Glæsibæ, kl. 14. Byggða-
safnið í Görðum o.fl.
Kaffihlaðborð. Upplýs-
ingar á skrifstofu FEB.
Skrifstofa félagsins er í
Faxafeni 12, sími.
588 2111.
Gerðuberg, félagsstarf.
Myndlistarsýning Árna
Stefánssonar stendur yf-
ir. Miðvikudaginn 18.
desember jólahlaðborð í
hádeginu í Kaffi Bergi,
skráning hafin. Föstu-
daginn 20. desember
skötuhlaðborð í hádeg-
inu, allir velkomnir. Allar
upplýsingar um starf-
semina á staðnum og í
síma 575 7720.
Digraneskirkja, kirkju-
starf aldraðra. Opið hús
á þriðjudag frá kl. 11,
leikfimi, léttur máls-
verður, helgistund,
fræðsluþáttur, kaffi. All-
ir velkomnir.
Gönguklúbbur Hana-nú.
Morgunganga kl. 10
laugardagsmorgna frá
Gjábakka. Krummakaffi
kl. 9. Allir velkomnir.
Gigtarfélagið. Leikfimi
alla daga vikunnar. Létt
leikfimi, bakleikfimi
karla, vefjagigtarhópar,
jóga, vatnsþjálfun. Einn
ókeypis prufutími fyrir
þá sem vilja. Uppl. á
skrifstofu GÍ, s.
530 3600.
Stuðningsfundir fyrr-
verandi reykingafólks.
Fólk sem sótt hefur
námskeið gegn reyk-
ingum í Heilsustofnun
NLFÍ í Hveragerði,
fundur í Gerðubergi á
þriðjud. kl. 17.30.
GA-fundir spilafíkla, kl.
18.15 á mánudögum í
Seltjarnarneskirkju
(kjallara), kl. 20.30 á
fimmtudögum í fræðslu-
deild SÁA, Síðumúla
3–5, og í Kirkju Óháða
safnaðarins við Háteigs-
veg á laugardögum kl.
10.30.
Samtök þolenda kyn-
ferðislegs ofbeldis,
fundir mánudaga kl. 20
að Sólvallagötu 12.
Stuðst er við 12 spora
kerfi AA-samtakanna.
Ásatrúarfélagið,
Grandagarði 8. Opið hús
alla laugardaga frá kl.
14.
Kattholt. Flóamarkaður
í Kattholti, Stangarhyl 2,
er opinn þriðjud. og
fimmtud. frá kl. 14–17.
Leið 10 og 110 ganga að
Kattholti.
Kvenfélag Grens-
ássóknar, jólafundurinn
verður mánudaginn 9.
desember og hefst kl. 20
í Grensáskirkju. Í safn-
aðarheimilinu verða síð-
an skemmtiatriði, happ-
drætti og veitingar. Allar
konur velkomnar.
Minningarkort
Minningarkort Barna-
heilla til stuðnings mál-
efnum barna fást af-
greidd á skrifstofu
samtakanna á Laugavegi
7 eða í síma 561 0545.
Gíróþjónusta.
Barnaspítali Hringsins.
Upplýsingar um minn-
ingarkort Barna-
spítalasjóðs Hringsins
fást hjá Kvenfélagi
Hringsins í síma
551 4080. Kortin fást í
flestum apótekum á höf-
uðborgarsvæðinu.
Bergmál, líknar- og
vinafélag. Minning-
arkort til stuðnings or-
lofsvikna fyrir krabba-
meinssjúka og langveika
fást í síma 587 5566, alla
daga fyrir hádegi.
Samúðar- og heilla-
óskakort Gídeonfé-
lagsins er að finna í
anddyrum eða safn-
aðarheimilum flestra
kirkna á landinu, í
Kirkjuhúsinu, á skrif-
stofu KFUM&K og víð-
ar. Þau eru einnig af-
greidd á skrifstofu
Gídeonfélagsins, Vest-
urgötu 40, alla virka
daga frá kl. 14–16 eða í
síma 562 1870. Allur
ágóði fer til kaupa á
Nýjatestamentum sem
gefin verða 10 ára skóla-
börnum eða komið fyrir
á sjúkrahúsum, hjúkr-
unarheimilum, hótelum,
fangelsum og víðar.
Minningarkort barna-
deildar Sjúkrahúss
Reykjavíkur eru af-
greidd í síma 525 1000
gegn heimsendingu gíró-
seðils.
Minningarkort Thor-
valdsensfélagsins eru til
sölu á Thorvaldsens-
bazar, Austurstræti 4, s.
551 3509.
Minningarspjöld
Kristniboðssambandsins
fást á skrifstofunni,
Holtavegi 28 (hús
KFUM og K gengt
Langholtsskóla), sími
588 8899.
Minningarkort Graf-
arvogskirkju.
Minningarkort Graf-
arvogskirkju eru til sölu í
kirkjunni í síma 587 9070
eða 587 9080. Einnig er
hægt að nálgast kortin í
Kirkjuhúsinu, Lauga-
vegi 31, Reykjavík.
Líknarsjóður Dómkirkj-
unnar, minningarspjöld
seld hjá kirkjuverði.
Minningarkort Stóra-
Laugardalssóknar,
Tálknafirði, til styrktar
kirkjubyggingarsjóði
nýrrar kirkju í Tálkna-
firði eru afgreidd í síma
456 2700.
Minningarspjöld Frí-
kirkjunnar í Hafnarfirði
fást í Bókabúð Böðvars,
Pennanum í Hafnarfirði
og Blómabúðinni
Burkna.
Minningakort Áskirkju
eru seld á eftirtöldum
stöðum: Kirkjuhúsinu,
Laugavegi 31, þjón-
ustuíbúðum aldraðra við
Dalbraut, Norðurbrún 1,
Apótekinu Glæsibæ og
Áskirkju, Vesturbrún 30,
sími 588 8870.
KFUM og KFUK og
Samband íslenskra
kristniboða. Minning-
arkort félaganna eru af-
greidd á skrifstofunni,
Holtavegi 28, í s.
588 8899 milli kl. 10 og 17
alla virka daga. Gíró- og
kreditkortaþjónusta.
Söngfélag Skaftfellinga.
Aðventustund verður
haldin sunnudaginn 8.
desember kl. 16 í Skaft-
fellingabúð, Laugavegi
178. Þar mun kórinn
flytja nokkur jólalög
undir stjórn Violetu
Smid. Kaffi og meðlæti.
Allir velkomnir.
Félag kennara á eft-
irlaunum, jólafundurinn
verður laugardaginn 7.
desember klukkan 13.30
í Húnabúð, Skeifunni 11.
Á dagskrá verður: Fé-
lagsvist, veislukaffi,
skemmti- og fræðsluefni
sem Ólafur Ásgeirsson
þjóðskjalavörður annast
og söngur Ekkókórsins
sem Jón Hjörleifur Jóns-
son stjórnar. Undirleik-
ari kórsins er Sólveig
Jónsson.
Í dag er laugardagur 7. desember,
341. dagur ársins 2002, Ambrósíu-
messa. Orð dagsins: Hinir óguð-
legu flýja, þótt enginn elti þá, en
hinir réttlátu eru öruggir
eins og ungt ljón.
(Orðskv. 28, 1.)
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 loftkastalar, 8 afkom-
andi, 9 gervallur, 10 skip,
11 japla, 13 æða yfir, 15
vinna, 18 heimshlutinn,
21 hrós, 22 kyrrsævi, 23
ránfugls, 24 viðskotaill-
ur.
LÓÐRÉTT:
2 lítils björns, 3 maðkur,
4 stór steinn, 5 geng, 6
hæðum, 7 þrjóska, 12
meis, 14 bókstafur, 15
vers, 16 ilmur, 17 ferða-
lög án markmiðs, 18
skellur, 19 hittu, 20 líf-
færi.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 gegnt, 4 gegna, 7 ilmur, 8 leifa, 9 fet, 11 apar,
13 vill, 14 eyðni, 15 gróf, 17 tómt, 20 hrá, 22 eimur, 23
kuggs, 24 parts, 25 finna.
Lóðrétt: 1 geiga, 2 gemla, 3 torf, 4 gölt, 5 geiri, 6 aðall,
10 eiður, 12 ref, 13 vit, 15 greip, 16 ólmar, 18 ólgan, 19
tuska, 20 hrós, 21 áköf.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI komst að þeim ósköp-um í gær að hann væri plebbi.
Það var ákveðið áfall fyrir Víkverja
að komast að þessum sannleika um
sjálfan sig og enn verra að ábend-
ingin kom þaðan sem síst skyldi,
nefnilega úr blaði allra landsmanna.
Og Mogginn lýgur aldrei … eða
hvað?
Í gær birti Morgunblaðið sumsé
viðtal við Jón nokkurn Gnarr sem
staðhæfði að Víkverji væri hvorki
meira né minna en persónugervingur
plebbans og rökstuddi það á eftirfar-
andi hátt: „Hann er alltaf að lenda í
einhverjum fáránlegum aðstæðum,
er oftast nöldrandi og svekktur. Það
er alltaf verið að handtaka hann fyrir
umferðarlagabrot. Milli þess sem
hann er að leggja fólki lífsreglurnar
eða skammast yfir einhverju þá lend-
ir hann sjálfur í einhverju klandri,
sem hann þarf að atyrðast út í …“ og
svo mætti lengi telja.
x x x
VÍKVERJI verður eiginlega aðsegja að hann botnar ekkert í
vinnuveitanda sínum að birta slíkar
fullyrðingar bara sisona! Það er
greinilegt að blaðamaður hefur ekki
ómakað sig við að fletta upp í nýút-
kominni orðabók til að glöggva sig á
málinu, því það er ljóst að hefði hann
gert það, hefðu hinar gnarrísku full-
yrðingar aldrei komist á prent.
Þar er plebbi hreinlega skilgreind-
ur sem „ómenningarlegur eða lág-
kúrulegur maður“. Að vera plebba-
legur er í bókinni útskýrt sem að
vera „lágkúrulegur, flatneskjulegur,
ódrengilegur“. (Skáletrun Víkverja.)
Þarna skýtur Gnarr sig heldur
betur í fótinn og kemur upp um stað-
reynd málsins sem er sú að ef ein-
hver er plebbi þá er það Gnarr sjálf-
ur. Annan eins ódrengskap og
rakalausar fullyrðingar Gnarrsins
eru hefur Víkverji aldrei upplifað
fyrr. Gnarr er greinilega maður sem
kastar steinum úr glerhúsi.
x x x
VISSULEGA kemur það fyrir aðVíkverji bendir á það sem betur
mætti fara í þjófélaginu. En að kalla
það nöldur er hrein og klár svívirða. Í
raun er mikill akkur í ábendingum
Víkverja og hann er sannfærður um
að fjöldi þeirra hefur orðið til þess að
umbætur hafa komist á í þjóðfélaginu.
Vissulega kemur það fyrir að Vík-
verji er af einhverjum óskiljanlegum
ástæðum stöðvaður fyrir umferðar-
lagabrot. En eins og Víkverji hefur
verið iðinn við að benda á eru þau
sjaldnast honum sjálfum að kenna.
Víkverji kannast hins vegar ekkert
við það að hafa lent í klandri. Hann
hefur kannski þurft að takast á við
áskoranir í lífinu sem hafa falið í sér
mannlega árekstra en Víkverji hefur
aldrei skorast undan slíkri ábyrgð.
x x x
AF ofantöldu má ljóst vera að Vík-verji er síður en svo plebbi og
vísar hann, sem fyrr segir, þeim
ásökunum til föðurhúsanna. Ekki
nema litið sé til upprunalegrar skýr-
ingar orðsins sem er sú að plebbi (e.
plebeian) var sá kallaður á tímum
Rómaveldis sem ekki var aðalborinn.
Plebbi var sumsé skilgreindur sem
almúgamaður. Í því ljósi getur Vík-
verji bara verið nokkuð sáttur við að
vera kallaður plebbi enda vandfund-
inn sá maður (eða dálkur) sem endur-
ómar rödd almúgans jafnvel og Vík-
verji gerir.
Kaffisetrið
ÉG fékk mér að borða í
Kaffisetrinu á Laugavegi
103 nýlega. Vil ég þakka
fyrir góðan mat og frá-
bæra þjónustu. Takk fyrir
mig.
Jóhann Guðmundsson.
Dýrahald
Hvít kisa í óskilum
HVÍT, ómerkt kisulóra
hefur verið á sveimi í Bú-
staðahverfinu seinastliðna
viku. Nánar tiltekið í
Logalandi. Höldum henni
gangandi með mjólk en er-
um að verða uppiskroppa.
Hringjum bráðum í Katt-
holt. Eigandi vinsamlegast
hringi í síma 568 5169.
Kanínur fást gefins
TVÆR kanínur (karlkyns)
fást gefins. Upplýsingar í
síma 554 2602.
Tapað/fundið
Gleraugu týndust
GLERAUGU í ljósbrúnu
leðurhulstri týndust á́ leið
frá Hæstarétti niður á
Hverfisgötu sl. miðviku-
dag. Skilvís finnandi hafi
samband í síma 554 5960.
Diesel-gallabuxur
týndust
DIESEL-gallabuxur týnd-
ust hjá JSB Lágmúla sl.
laugardag. Þeir sem vita
um afdrif buxnanna hafi
samband í síma 848 9493.
Verkfærataska og
geisladiskar týndust
SVÖRT Fagor-verkfæra-
taska með verkfærum og
11 geisladiskar týndust í
Salahverfi 5. desember sl.
Töskunnar og verkfær-
anna er sárt saknað því
eigandi notar þau við
vinnu sína. Þeir sem vita
um þessa muni eru vin-
samlega beðnir að hringja
í síma 893 5852. Fundar-
laun.
Gyllt gleraugu
týndust
GYLLT gleraugu, gætu
verið í svörtu hulstri,
týndust fyrir mánuði. Skil-
vís finnandi hafi samband í
síma 561 5682.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
ÞESSARAR spurningar
hafa ýmsir spurt mig, frá
því að bók mín Ísland í
hers höndum kom út fyrir
skömmu. Svar mitt er:
„Ég veit það því miður
ekki.“ En vissulega væri
gaman að fá það upplýst,
hvaða drengur það er,
sem þarna hvílir í hönd-
um bandaríska her-
mannsins klæddur í
svarta gúmmíregnkápu
heldur stúrinn á svip. Ég
tel líklegast að myndin sé
tekin við Reykjavík-
urhöfn haustið 1941, þeg-
ar Bandaríkjaher var að
koma sér fyrir í landinu.
Ég heiti þeim, sem tekst
að nafngreina snáðann
rétt, ókeypis eintaki af
bók minni. Þar sem ég
starfa erlendis á þessu
háskólamisseri, verð ég
að biðja hlutaðeigendur
að senda mér upplýsingar
um nafn drengsins í bréfi
(póstfang er: Háskóli Ís-
lands, Nýja garði, 101
Reykjavík) eða tölvupósti
(thorw@hi.is).
Ég vil líka nota þetta
tækifæri til að biðja les-
endur bókarinnar að
hyggja að því, hvort þeir
geti nafngreint fleira fólk
á myndum bókarinnar
eða leiðrétt þau nöfn, sem
þar er að finna. En at-
huga þarf að nöfn koma
ekki aðeins fram í
myndatextum heldur
einnig í ítarefni á bls.
258–265. Öll nöfn, sem
nefnd eru í bókinni, á líka
að vera hægt að finna í
nafnaskrá aftast í verk-
inu. Ég hef reynt að afla
upplýsinga um nöfn sem
flestra, er birtast á mynd-
unum, en margir eru enn
ónafngreindir. Ef til þess
kæmi, að bókin yrði síðar
gefin út endurskoðuð,
mætti bæta þessum nöfn-
um við í textum og ít-
arefni. Það mundi auka á
heimildagildi verksins, og
ég væri lesendum mjög
þakklátur fyrir hjálpina.
Að lokum vil ég nefna
að ég hef reynt eftir ýms-
um leiðum að afla upplýs-
inga um bandaríska her-
manninn, Otto Strait, sem
heldur á drengnum á
kápumyndinni. Ég hef
m.a. spurst fyrir um það,
hvort hann hafi lifað af
stríðið og hvort hann
kunni að vera enn á lífi.
En því miður hefur eng-
inn getað sagt mér neitt
um manninn, hvað svo
sem síðar verður.
Þór Whitehead.
Hver er drengurinn á kápumyndinni?