Morgunblaðið - 07.12.2002, Qupperneq 84
KVIKMYNDIR
84 LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
STEVEN Soderbergh er án efa
einn af virtari leikstjórum Holly-
wood, og virðist hann vera að skapa
sér virðingarstöðu í anda kvikmynda-
höfunda á borð við Robert Altman og
Woody Allen, sem birtist m.a. í því að
rándýrar stjörnur vilja ólmar leika í
myndum hans, og slá þá af verðkröf-
um í því skyni að ná sér í „listræna“
fjöður í hatt sinn.
En að mínu mati hefur Soderbergh
ekki einu sinni táneglurnar þar sem
hinir fyrrnefndu hafa hælana og eru
þær vonir sem bundnar voru við leik-
stjórann eftir að hann sendi frá sér
hina frábæru frumraun sex, lies and
videotapes árið 1989 enn óuppfulltar.
Myndir á borð við Erin Brockovich,
Traffic og Ocean’s Eleven eru lítið
annað en meðalmyndir þó svo að
stjörnufansinn sé mikill og Óskars-
vænleikinn nægilegur til að menn séu
farnir að tala um „meistara Soder-
bergh“. Ein athyglisverðasta mynd
Soderberghs sem ég hef séð síðan
sex, lies and videotapes er reyndar
The Limey með Terence Stamp í að-
alhlutverki.
Í Full Frontal virðist Soderbergh
hafa ákveðið að stilla sig inn á
„óháða“ og „listræna“ stigið (þó svo
að hann hafi ekki náð að hrista af sér
stjörnufansinn) nema hvað hér virð-
ist frumleikinn og innsæið á þrotum
hjá leikstjóranum. Þannig er í mynd-
inni sögð saga í anda Short Cuts Alt-
mans. Við kynnumst nokkrum per-
sónum, sem tengjast lauslega og
stundum á tilviljunarkenndan hátt.
Þær lifa dag sem er einn af mörgum í
lífi þeira og endurspeglar sagan átök
þeirra við skammvinn og langvarandi
vandamál tilveru sinnar. Margar
þessara persóna eru ágætlega skap-
aðar, og leikararnir sem túlka þær
fínir. En hér er Soderbergh ekkert
að gera sem ekki hefur verið áber-
andi og gert áður og betur á síðasta
áratug, s.s. að leika með margfaldar
sviðssetningar, fjalla um kvikmynd-
ina í kvikmyndinni, heiminn á bak við
Hollywood glansmyndina, og nota
hráa tökuvél sem veltir upp spurn-
ingum um réttu leiðina til að miðla
„veruleikanum“. Satt að segja held
ég að myndin hefði ekkert orðið verri
án hinna tilgerðarlegu tilrauna Sod-
erbergs til að búa til einhverja list-
ræna umgjörð utan um efnið. Sem
fyrr segir eru það persónurnar og
sögur þeirra, sem sagðar eru að hluta
til í gegnum þeirra eigin frásagnar-
raddir, sem gera myndina áhuga-
verða. Þær spanna reyndar allt frá
hinum tilgerðarlegu leikhúsmönnum
sem eru að setja upp tilraunakennt
verk um Hitler, til hinna öllu áhuga-
verðari Bright-hjóna (Catherine
Keener og David Hyde Pierce). Eig-
inkonan Lee Bright er reyndar sú
persóna sem hvað dýpst er kafað of-
an í og tekst reyndar vel að draga
upp sársaukafulla mynd af sálarlífi
hennar. Það má hins vegar spyrja sig
hvað innslag leikara á borð við Brad
Pitt og Juliu Roberts hefur fram að
færa fyrir heildina, annað en að vekja
forvitni stjörnuþyrstra áhorfenda.
Tengsl milli persónanna eru dreg-
in upp á nokkuð lipran hátt, og er það
einna helst í því púsluspili sem svið-
setningarflækjur Soderberghs ganga
upp. Full Frontal er því ágætismynd,
sem á sínar stundir, en þegar á heild-
ina er litið vantar talsvert upp á
næmi leikstjórans fyrir einhverju
sem er raunverulega frumlegt og
hefur eitthvað að segja.
FULL FRONTAL
(ALLT LÁTIÐ FLAKKA)
Regnboginn, 101 bíófélag
Leikstjórn: Steven Soderbergh. Handrit:
Coleman Hough. Kvikmyndataka: Steven
Soderbergh. Aðalhlutverk: Blair Under-
wood, Julia Roberts, David Hyde Pierce,
Catherine Keener, Mary McCormack.
Lengd: 103 mín. Bandaríkin, Miramax
Films, 2002.
Heiða Jóhannsdóttir
Í „list-
rænum“
stellingum
Í umsögn um mynd Stevens Soderberghs, Allt látið flakka, segir að hana
skorti tilfinnanlega frumleika en bjóði upp á lipur persónutengsl.
UM síðustu helgi hófust loksins
reglubundnar sýningar í Bæjarbíói í
Hafnarfirði. Bíóið sögufræga hefur
verið í umsjá Kvikmyndasafns Ís-
lands undanfarin ár og eru sýning-
arnar einnig fyrir tilstuðlan safns-
ins. Til að byrja með verður sýnt á
laugardögum og standa nú yfir sýn-
ingar á kvikmyndum sem tengjast
með einum eða öðrum hætti
heimabæ bíósins og safnsins, Hafn-
arfirði, gerast þar, voru teknar þar
eða skarta hafnfirskum leikurum.
Í dag verður sýnd verðlauna-
mynd Ágústs Guðmundssonar
Mávahlátur en hún er gerð eftir
sögu Kristínar Marju Baldursdóttur
sem á sér stað í Hafnarfirði og dreg-
ur upp skýra og spennandi mynd af
bænum eftir miðbik síðustu aldar.
Næsta laugardag verður svo sýnd
Punktur, punktur, komma, strik
sem Þorsteinn Jónsson gerði eftir
sögu Péturs Gunnarssonar, mynd
sem frumsýnd var 1980.
Á undan sýningunum verða auka-
myndir eða myndbútar úr fórum
safnsins sem teknir voru í Hafn-
arfirði um 1920 af Bíó-Petersen,
brautryðjanda í bíósýningahaldi á
Íslandi. Mávahlátur verður sýnd í
Bæjarbíói í dag kl. 16. Miðaverð 500
kr. Miðasala verður opnuð í bíóinu
kl. 15.30 en einnig er hægt að fá
miða hjá Kvikmyndasafni Íslands.
Reglulega kvikmyndasýningar í Bæjarbíói
Margrét Vilhjálmsdóttir og Hilmir Snær Guðnason í Hafnarfjarðar-
myndinni Mávahlátri sem sýnd verður í Bæjarbíói í dag.
Hafnarfjörður er algjört bíó
"Grettissaga er stórkostleg leikhúsupplifun."
S.S og L.P. Rás 2
Grettissaga saga Grettis
leikrit eftir Hilmar Jónsson byggt á Grettissögu
Í kvöld kl. 20, nokkur sæti, þri 17. des, UPPSELT,
sun 29. des kl. 20, HÁTÍÐARSÝNINING, nokkur sæti
Sellófon eftir Björk Jakobsdóttur
mið 11. des, Félagsheimilinu Klifi, ÓLAFSVÍK,
föst 13. des, LOKASÝNING FYRIR JÓL, nokkur sæti
Sýningarnar á Sellófon hefjast kl 21.00
Kvöldverður fyrir og eftir sýningar
Miðasala er opin frá kl. 10-16 virka daga,
kl. 14-17 um helgar, frá kl. 19 sýnd.
Ósóttar pantanir seldar 4 dögum fyrir
sýningar. Sími 562 9700
Munið gjafakortin!
Fös. 13/12 kl. 21 Nokkur sæti,
síðasta sýning fyrir jól
Veisla í Vesturporti!
Allra síðustu sýningar
í Vesturporti
lau. 7. des. kl. 23
mið. 11. des. kl. 21
Vesturport, Vesturgata 18
Miðasala í Loftkastalanum,
Sími 552 3000 - www.senan.is
Stóra svið
SÖLUMAÐUR DEYR e. Arthur Miller
Lau 28/12 kl 20
HONK! LJÓTI ANDARUNGINN
e. George Stiles og Anthony Drewe
Gamansöngleikur fyrir alla fjölskylduna
Í kvöld kl 20, Su 8/12 kl 14,Su 29/12 kl 14
MEÐ VÍFIÐ Í LÚKUNUM e. Ray Cooney
Fi 12. des kl kl 20 - AUKASÝNING
ALLRA SÍÐASTA SÝNING
Nýja svið
Þriðja hæðin
Litla svið
Forsalur
Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga.
Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is
Miðasala: 568 8000
HERPINGUR e. Auði Haralds og
HINN FULLKOMNI MAÐUR e.Mikael Torfason
í samstarfi við DRAUMASMIÐJUNA
Lau 28/12 kl 20, Fö 10/1 kl 20
RÓMEÓ OG JÚLÍA e. Shakespeare
í samstarfi við VESTURPORT
Su 8/12 kl 20, UPPSELT,
Lau 14/12 kl. 20, Má 30/12 kl 20
SÓL & MÁNI Nýr íslenskur söngleikur
eftir Sálina hans Jóns míns og Karl Ágúst Úlfsson
FORSALA AÐGÖNGUMIÐA STENDUR YFIR TILBOÐSVERÐ KR. 2.800 GILDIR TIL JÓLA
Frumsýning 11. janúar
BROT AF ÞVÍ BESTA - UPPLESTUR
OG TÓNLIST
Jól í Kringlusafni og Borgarleikhúsi:
Rithöfundar lesa - léttur jazz
Fi 12/12 kl 20 Arnaldur Indriðason, Einar Már
Guðmundsson, Einar Kárason, Guðrún Eva
Mínervudóttir, Stefán Máni og Þórarinn Eldjárn.
JÓN OG HÓLMFRÍÐUR e. Gabor Rassov
frekar erótískt leikrit í þrem þáttum
Í kvöld kl 20, Su 29/12 kl 20
JÓLAGAMAN
Jólasveinakvæði Jóhannesar úr Kötlum í leikbúningi ofl.
Í dag kl 15:00, Lau 14/12 kl 15:00
Su 15/12 kl 15:00 - Aðeins kr. 500,
ELEGIA - FJÖGUR DANSVERK
Pars pro toto - Rússibanar - Benda
Fö 13/12 kl 20:00,Lau 14/12 kl 20:00
GJAFAKORT Í LEIKHÚSIÐ - FRÁBÆR JÓLAGJÖF
7. des. kl. 14 laus sæti
Sérstakar jólasýningar!
26. des. kl. 14 laus sæti
29. des. kl. 14 laus sæti
5. jan. kl. 14 laus sæti
12. jan. kl. 14 laus sæti
19. jan. kl. 14 laus sæti
JÓLARÓSIR
SNUÐRU OG TUÐRU
eftir Iðunni Steinsdóttur
Lau. 7. des. kl. 13 og 15.15 uppselt
Sun. 8. des. kl. 14. laus sæti
Mán. 9. des. kl. 9.30 og 10.40 upp-
selt
Fim. 12. des. kl. 10 uppselt
Fös. 13. des. kl. 10 og 13.30 uppselt
Sun. 15. des. kl. 14 laus sæti
HVAR ER STEKKJARSTAUR?
eftir Pétur Eggerz
Mið. 11. des. kl. 10 uppselt
Fim. 12. des. kl. 10 og 16.30 uppselt
Fös. 13. des. kl. 10 og 14 uppselt
Miðaverð kr. 1.100.
Netfang: ml@islandia.is
ww.islandia.is/ml
Lau. 7. des. UPPSELT
Lau. 14. des. kl. 20.30
Aukasýning
Smurbrauðsverður innifalinn
Miðasala Iðnó í síma 562 9700
Hin smyrjandi jómfrú
sýnt í Iðnó
Lau. 7. des. kl. 20
Sun. 8. des. kl. 15 og 20
Lau. 14. des. kl. 20
Sun. 15. des. kl. 15 og 20
Veisla í Vesturporti
Allra síðustu sýningar
í Vesturporti
lau. 7. des. kl. 23 síðast sýning í
Vesturporti
Vesturport, Vesturgata 18
Miðasala í Loftkastalanum,
Sími 552 3000 - www.senan.is