Morgunblaðið - 08.12.2002, Síða 1

Morgunblaðið - 08.12.2002, Síða 1
STOFNAÐ 1913 288. TBL. 90. ÁRG. SUNNUDAGUR 8. DESEMBER 2002 mbl.is Hundarnir gelta aftur XXX Rottweilerhundar senda frá sér nýja plötu Fólk 56 Lífið í sókn og vörn Sigurbjörn biskup situr ekki auðum höndum Sunnudagur 1 Heima á Hlemmi Ólafur Sveinsson ræðir um nýja heimildamynd um Hlemm 10 ÍRAKAR gáfu erlendu fjölmiðlafólki í gær tækifæri til að skoða skýrslu sem þeir hafa tekið saman um vopnabúr sín. Í kjölfarið var gert ráð fyrir að skýrslan yrði afhent erind- rekum Sameinuðu þjóðanna. Nokkra daga mun taka að þýða efni hennar fyrir fulltrúa í öryggisráði SÞ en George W. Bush Bandaríkja- forseti ítrekaði í gær að skýrslan yrði að vera trúverðug ef komast ætti hjá því að ráðast á Írak. Í ályktun öryggisráðs SÞ frá því í nóvember var gerð krafa um að Írakar gerðu grein fyrir vopnaeign og vopnaáætlunum í síðasta lagi 8. desember. Verður skýrslan þýdd yf- ir á öll opinber tungumál samtak- anna (ensku, kínversku, rússnesku, spænsku og frönsku) áður en örygg- isráðið tekur hana til umfjöllunar. Meginhluti skýrslunnar, sem er um 12 þúsund síður á lengd, er sagð- ur á ensku. Ýmsir viðaukar og ít- arefni eru þó líklega á arabísku og segir al-Jazeera-sjónvarpsstöðin að þetta efni fylli um 24 þúsund síður. Bush harðorður Írakar hafa þegar lýst því yfir að ekki verði að finna í skýrslunni stað- festingu ásakana um að þeir hafi stundað ólöglega framleiðslu ger- eyðingarvopna. Bandaríkjamenn segjast hins vegar hafa gögn sem sýni svart á hvítu að Írak búi yfir sýkla-, eiturefna- og kjarnorkuvopn- um, jafnvel þó að vopnaeftirlits- mönnum SÞ hafi enn ekki tekist að finna þau. Bush Bandaríkjaforseti sagði í vikulegu útvarpserindi sínu í gær að það myndi taka nokkra daga að meta efni skýrslunnar og kveða upp úr um heilindi Íraka. Varaði hann við því að ekki væri endilega víst að sá sam- starfsvilji, sem Írakar hafa sýnt vopnaeftirlitsmönnum SÞ fram til þessa, nægði til að koma í veg fyrir stríð: „Skýrslan verður að vera trú- verðug og nákvæm og tæmandi, ella hefur íraski einræðisherrann sýnt umheiminum enn á ný að hann hefur kosið að breyta ekki hegðun sinni.“ Írak afhendir skýrslu um vopnaeign sína Bagdad, Washington. AFP. MYNDIR eins og birst hafa á Netinu af fá- eða óklæddum ung- lingsstúlkum gætu fallið undir skilgreiningu á barnaklámi, enda teljast allir yngri en 18 ára börn í skilningi laga. „210. grein hegningarlaganna kveður á um að þegar efni sýnir börn á kynferðislegan eða klám- fenginn hátt geti refsing orðið fangelsi allt að tveimur árum,“ segir Anna Sigríður Arnardóttir, lögfræðingur í dómsmálaráðu- neytinu. „Mynd af 16 eða 17 ára stelpu sem t.d. berar á sér brjóstin hlýtur að falla undir þessa skilgreiningu.“ Birting gæti talist barnaklám  Lög hunsuð/22  Reykjavíkurbréf/32 BÍRÆFNUM þjófum tókst að stela tveimur málverkum eftir Hollend- inginn Vincent Van Gogh af safni sem kennt er við listmálarann fræga í Amsterdam í gærmorgun. Annað verkanna heitir Horft til sjávar frá Scheveningen og hitt málverkið er af kirkju í þorpinu Nuenen. Fullyrt var að þjófarnir hefðu farið inn um þak- glugga á safnhús- inu, en stigi fannst við vegg hússins að utanverðu. Van Gogh- verkum stolið Amsterdam. AFP, AP. Kirkjan í Nuenen. AÐ minnsta kosti fimmtán biðu bana og tvö hundruð særðust þegar sprengjur sprungu á fjórum stöðum í Bangladesh í gær. T́alið var líklegt að tala látinna myndi hækka. Sprengjurnar sprungu allar í kvik- myndahúsum sem voru troðfull af fólki, enda höfðu margir gert sér glaðan dag í tilefni trúarhátíðar múslima, Eid-al-Fitr. Sprengjurnar sprungu í bænum Mymensingh, sem er um 110 km norður af höfuðborginni Dhaka. Ein sprakk er stór hópur fólks var að koma út úr kvikmyndahúsi, hinar sprengingarnar urðu meðan á sýn- ingum stóð í öðrum kvikmyndahús- um bæjarins. Sprengj- ur fella fjölda manns Dhaka í Bangladesh. AP. Bangladesh JÓLASVEINAR, silfurguttar, ljótur andarungi og varasamur kisi eru meðal þeirra sem verða á kreiki á Austurvelli í dag þegar ljósin verða tendruð á Óslóartrénu klukkan 16:00. Þetta er í 51. skipti sem Óslóbúar gefa Reykvíkingum jólatré en hið fyrsta var reist á Austurvelli fyrir jólin 1952. Gullfoss, sem þá var flaggskip íslenska flotans, sótti tréð og flutti það ókeypis til landsins en verkfall varð til þess að uppskipun tafðist. Verkfallinu var ekki aflýst fyrr en fjórum dögum fyrir jól, laugardaginn 20. desember. Tréð var reist samdægurs og skreytt fram á nótt og var hið glæsilegasta þegar ljósin voru tendruð daginn eftir. Í Velvakanda Morgunblaðsins var sagt frá því að athöfnin hefði verið falleg og lát- laus en fáir hefðu heyrt ávörpin þar sem „engum gjallarhornum hafði verið komið fyrir á vellinum“. Væntanlega verða næg gjallarhorn eða há- talarar á Austurvelli í dag svo borgarbúar og aðrir geti notið þess sem boðið er upp á. Dag- skráin í dag hefst klukkan 15:30 með lúðra- blæstri Lúðrasveitar Reykjavíkur og um hálf- tíma síðar flytur Dómkórinn tvö lög áður en Erling Lae, forseti borgarstjórnar Óslóar, færir borgarstjóra og öðrum Reykvíkingum tréð að gjöf. Norskur drengjakór, Silfurgutt- arnir, syngur nokkur lög, ljóti andarunginn Honk, andamamma og kisi koma fram, auk þess sem flutt verða atriði úr jólasýningu Þjóðleikhússins, sem er söngleikurinn Með fullri reisn. Óslóartréð fært í jólabúning Morgunblaðið/Sverrir Sigurður Björn Guðmundsson, starfsmaður Orkuveitu Reykjavíkur, hafði í nógu að snúast við að setja perur á Óslóarjólatréð í gær. Tréð er um 15 metra hátt og var fellt í Norðurmerkurskógi, sem er innan borgarmarka Óslóar. ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.