Morgunblaðið - 11.12.2002, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 11.12.2002, Qupperneq 15
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 2002 15 UMSVIF vopnaeftirlitsmanna í Írak hafa aukist mjög á síðustu dögum en Íraksstjórn sakar aft- ur Bandaríkjastjórn um að vilja spilla fyrir þeim með því að ein- oka skýrslu um vopnaeign og vopnatilraunir Íraka. Sakaði hún í gær Bandaríkjastjórn um „glæpsamlegt athæfi“, sem ætti ekki sinn líka í bandarískri sögu. Bandaríkjastjórn, sem hefur tekið að sér upp á sitt eindæmi að deila út skýrslunni, segir aft- ur á móti, að fyrir utan þau ríki, sem eiga fastafulltrúa í örygg- isráðinu, verði að takmarka að- gang annarra að mikilvægum kjarnorkuleyndarmálum. Full- trúi Norðmanna, sem ekki eiga fastafulltrúa, krafðist þess í gær að fá að sjá skýrsluna óritskoð- aða og mörg ríki eru mjög óánægð með framferði Banda- ríkjastjórnar í málinu. Kosningar „ógerlegar“ AHMED Qorei, forseti palest- ínska þingsins, sagði í gær að það væri í raun ógerlegt fyrir Palestínumenn að ganga til kosninga í næsta mánuði, eins og áætlað hafi verið. „Það er ógerlegt í skugga ísraelskra skriðdreka og því tel ég að það verði erfitt að skipuleggja kjör- fundi,“ sagði Qorei við frétta- menn. Palestínumenn tilkynntu í júní sl. að þingkosningar yrðu haldnar 20. janúar og sveitar- stjórnarkosningar í mars. Fleiri göt finnast ÞRJÚ göt til viðbótar hafa kom- ið í ljós á skrokki olíuskipsins Prestige sem liggur á hafsbotni úti fyrir norðvesturströnd Spán- ar og hafa þá alls fundist níu göt á skipinu sem olía flæðir úr. Sér- fræðingar efast um að vænlegt sé að reyna að dæla olíunni úr skipinu. Mariano Rajoy, aðstoð- arforsætisráðherra Spánar, sagði í gær að hátt í 125 tonn af olíu lækju úr skipinu á dag. Í byrjun vikunnar beindu suðlæg- ir og suðaustlægir vindar meng- uninni frá ströndum Spánar. Likud enn til hægri LIKUD-FLOKKURINN, sem verður að öllum líkindum yfir- gnæfandi í ísraelskum stjórn- málum eftir væntanlegar kosn- ingar í landinu í næsta mánuði, hefur enn sveigt til hægri í stefnu sinni. Hefur miðstjórn flokksins, sem er hlynnt Benjamin Netanyahu utanríkis- ráðherra, skipað fjölda harðlínu- manna á lista flokksins. Sumir helstu stuðningsmenn Ariels Sharons forsætisráðherra hafa verið settir neðarlega á lista. Tóbakslög staðfest ÆÐSTI dómstóll Evrópusam- bandsins, Evrópudómstóllinn, staðfesti í gær lög um tóbak er vísað var frá máli sem borið var fram af tveim tóbaksfyrirtækj- um. Staðfesti hann ESB-tilskip- un frá í fyrra þar sem m.a. er kveðið á um bann við merking- unum „létt“ og „milt“ því slíkar merkingar geti verið villandi. STUTT Deilt um vopna- skýrslu MIKIÐ var um dýrðir í Færeyjum í gær, er fyrstu neðansjávargöngin, sem þar hafa verið gerð, voru opnuð. Hin 4,9 km löngu göng undir Vest- mannasund tengja Straumey með höfuðstaðnum Þórshöfn við eyna Voga, þar sem eini flugvöllur Fær- eyja er. Síðdegis í gær klippti Barni Djur- holm, efnahags-, atvinnu- og sam- göngumálaráðherra í færeysku land- stjórninni, á borða við hátíðlega athöfn við gangamunnann og opnaði þar með fyrir bílaumferð um göngin, hálfu ári á undan áætlun. Skömmu áður hafði ferjan yfir Vestmanna- sund farið sína síðustu áætlunarferð. Opnun ganganna er svo stór við- burður í Færeyjum að færeyska út- varpið sendi út beint frá opnunar- athöfninni mestan hluta dagsins, og færeyska sjónvarpið var einnig með nokkurra tíma beina útsendingu. Vágatunnelin, eins og göngin heita á færeysku, voru tilbúin til notkunar hálfu ári á undan áætlun; fram- kvæmdin, sem var með sambæri- legum hætti og við Hvalfjarðargöng- in, gekk einfaldlega hraðar en búizt hafði verið við í upphafi. Byrjað var að bora Straumeyjarmegin í lok september 2000 en Vogamegin í lok febrúar 2001. Um 2.500 manns nýttu sér á sunnudag tækifæri sem þá var gefið til að fara fótgangandi – eða hlaup- andi – í gegn um göngin. Ekki er vit- að til þess að svo margir Færeyingar hafi áður sameinazt í einni göngu. Reyndar stefndi í að úlfúð vegna gjaldskrár, sem stjórn Vágatunnelin birti fyrir hálfum mánuði, yrði til að spilla hátíðarstemmningunni í kring um opnun ganganna. Verðið sem sett var upp fyrir eina ferð fyrir fólksbíl fram og til baka um göngin var 250 d.kr., 2.850 ísl.kr., og gjaldið fyrir stærstu gerð bíla fór allt upp í andvirði 25.000 ísl.kr. skv. gjald- skránni. Einkum voru það íbúar Voga sem sýndu hörð viðbrögð við þessu og hótuðu að sameinast um að sniðganga hátíðahöldin. Í kjölfarið var gjaldskráin endurskoðuð og nú er hægt að komast fram og aftur í fólksbíl fyrir sem nemur 1300 ísl.kr. Þórshöfn. Morgunblaðið.                                                                     Fyrstu neðan- sjávargöng Færeyja opnuð Reiknað er með að gangatollurinn borgi framkvæmdina upp á 15–20 ár- um. Göng til Klakksvíkur áformuð Kostnaður við borun og frágang ganganna er kominn í alls um 240 milljónir danskra króna, andvirði 2.750 milljóna íslenzkra króna. Fjár- mögnun og rekstur ganganna er með sama hætti og við Hvalfjarðargöng- in. Stjórn rekstrarfélags Vágatunn- elin kynnti sér vel hvernig staðið var að gerð Hvalfjarðarganganna og rekstri þeirra. Færeyska lögþingið hefur ákveðið að ráðast í gerð annarra slíkra neð- ansjávarganga, sem ætlað er að tengja Austurey og Borðey, en á henni er annað stærsta bæjarfélag Færeyja, Klakksvík. Áætlaður kostnaður við það verk er um 4,7 milljarðar ísl.kr., en með gerð þess- ara ganga komast Norðureyjar Fær- eyja í mun betra samband við kjarnabyggðina á Austurey og Straumey. MIKIÐ úrhelli og aurskriður urðu að minnsta kosti 36 að bana á ferða- mannaeynni Angra dos Reis í Bras- ilíu að því er greint var frá í fyrra- dag. Þá er um 40 manns enn saknað. Hér er einn íbúanna í sam- nefndu þorpi að bjarga hundinum sínum en jafnmikið rigndi á þessum slóðum á einum sólarhring og að jafnaði á tveimur mánuðum. Um 1.500 manns hafa misst heimili sín af völdum skriðnanna er byrjuðu á sunnudaginn og hefst fólkið nú við í bráðabirgðaskýlum í skólahúsum. Angra dos Reis er um 180 km vest- ur af Rio de Janeiro. Algengt er, að aurskriður verði fólki að fjörtjóni í Brasilíu, einkum þar sem fátækt fólk hefur hrófað upp húsum í bröttum hlíðum. Brasilískir veð- urfræðingar spáðu í gær áfram- haldandi rigningu næsta sólar- hringinn en bjuggust þó við, að heldur drægi úr henni. Reuters Mannskæðar aurskriður HÆSTIRÉTTUR í Ástralíu felldi tímamótaúrskurð í gær og óttast þeir sem gefa út efni á Netinu að dóm- urinn muni hefta tjáningarfrelsi og gera þá veika fyrir meiðyrðamáls- höfðunum hvaðanæva úr heiminum, burtséð frá því hvar í veröldinni hin meiðandi skrif voru rituð. Rétturinn samþykkti einróma að vísa frá áfrýjunarbeiðni frá Dow Jon- es-fréttaþjónustunni um að meið- yrðamál, sem námueigandinn Joseph Gutnick hefur höfðað á hendur henni, verði tekið fyrir í Bandaríkjunum, fremur en Ástralíu. Komst rétturinn að þeirri niðurstöðu að hægt væri að höfða mál á hendur netútgefendum í því landi þar sem efni þeirra er skoð- að fremur en í því landi þar sem það er sett á Netið. Lögspekingar segja að úrskurður- inn í Ástralíu, sem talinn er sá fyrsti sinnar tegundar í heiminum, gæti neytt útgefendur til að meðhöndla efni á Netinu af meiri varkárni og hindra frjáls skoðanaskipti þar. Úrskurðaði rétturinn að höfða megi málið í Victoria-fylki í Ástralíu, heimafylki Gutnicks, þar sem meið- yrðalöggjöf er mjög ströng og engin ákvæði sambærileg við fyrsta viðauka bandarísku stjórnarskrárinnar, sem kveður á um tjáningarfrelsi, og Dow Jones hefði getað vísað til hefði málið verið tekið fyrir í Bandaríkjunum. Michael Gawenda, ritstjóri blaðs- ins Age, sem gefið er út í Melbourne, segir að hafi dómurinn fordæmi ann- ars staðar í heiminum verði útgefend- ur að fara að taka með í reikninginn hættu á lögsókn, en ekki aðeins í heimalandi sínu heldur í öllum lönd- um þar sem möguleiki er á að efnið verði skoðað á Netinu. Gutnick höfðaði mál vegna greinar um skattamál hans er birtist á vefsíðu er tengist vef blaðsins Wall Street Journal, sem er í eigu Dow Jones. Fulltrúar Dow Jones héldu því fram að greinin hefði verið skrifuð af bandarískum blaðamanni, fyrst og fremst ætluð bandarískum lesendum og þar sem hún hefði verið sett á Net- ið í Bandaríkjunum ætti málshöfðun- in vegna hennar að fara fram þar í landi. „Hrollvekjandi“ Damian Sturzaker, meiðyrðalög- fræðingur í Sydney, sagði að úrskurð- urinn væri „hrollvekjandi“ fyrir þá sem stunduðu útgáfu á Netinu. Litlir útgefendur, sem hefðu takmörkuð ráð á lögfræðiaðstoð, ættu einkum á hættu að mál yrðu höfðuð gegn þeim. „Þetta á ekki bara við um fjölmiðla – háskólar og fyrirtæki sem birta upp- lýsingar á Netinu verða einnig að taka þetta með í reikninginn.“ Rétturinn sagði að einungis væri hægt að höfða meiðyrðamál ef ein- staklingurinn sem höfðaði málið hefði getið sér orð í því lögsagnarumdæmi þar sem efnið, sem sagt væri meið- andi, hefði birst. Sturzaker sagði að þetta þýddi að hætt væri við að Ástr- alía yrði heimsmiðstöð fyrir meið- yrðamál og fólk, sem teldi sig ekki eiga möguleika á að fá dæmt sér í hag í heimalandi sínu, myndi höfða mál á grundvelli strangrar meiðyrðalög- gjafar Ástralíu. „Ef til dæmis breskur miðill segir eitthvað sem móðgaði Cherie Blair gæti hún höfðað meiðyrðamál í Ástr- alíu, samkvæmt þessum úrskurði, því að hún er vel þekkt í Ástralíu,“ sagði Sturzaker. Gutnick kvaðst himinsæll yfir úr- skurðinum sem sýndi að „Netið er ekkert öðru vísi en hvert annað dag- blað“ og útgefendur yrðu að með- höndla útgefið efni í samræmi við það. Dow Jones kvaðst harma niðurstöð- una en mundu mæta Gutnick fyrir rétti í Victoria-fylki. Dómur er gæti haft áhrif á tjáningar- frelsi á Netinu Meiðyrðamál má höfða í viðtöku- landi fremur en útgáfulandi Melbourne. AFP. Fasteignasala Lögmanna Suðurlandi, Austurvegi 3, 800 Selfossi, sími 480 2900 - fax 482 2801- fasteignir@log.is Vorum að fá í einkasölu fallegt og mikið endurnýjað 141,6 m² timbur einbýlishús ásamt 22,2 m² geymslu. Elsti hlutinn er byggður árið 1910. Eignin telur m.a. stofu m/uppteknu panilklæddu lofti, eldhús m/eldri innréttingu, þrjú svefnherbergi og baðherbergi m/sturtu og innréttingu. Húsið stendur innst í botnlanga og möguleiki er á að fá leigða tæplega 6 ha lands sem liggur að lóðinni. Ef þú vilt vera svolítið út af fyrir þig þá er þetta kjörin eign!. Verð 11,3 m. Nánari uppl. á skrifstofu og á www.log.is Tjarnarstígur 9 (Helgastaðir) - Stokkseyri

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.