Morgunblaðið - 15.12.2002, Blaðsíða 1
AÐKOMUGÖNGIN sem NCC og
Íslenskir aðalverktakar eru að
sprengja við Kárahnjúka og
verða alls 720 metrar eru orðin
40 metra löng eftir fjögurra
daga vinnu við þau.
Að sögn Guðgeirs Sigurgeirs-
sonar, aðstoðarstaðarstjóra Ís-
lenskra aðalverktaka við Kára-
hnjúka, hefur vinna við ganga-
gerðina gengið vel. Unnið
verður stanslaust við göngin,
fyrir utan hálfs mánaðar jólafrí.
Unnið er allan sólarhringinn á
vöktum og eru áætluð verklok
15. apríl. Guðgeir segir að vet-
urinn leggist vel í menn á vinnu-
svæðinu enda viðri vel. Við-
bragðsáætlun vegna öryggis á
staðnum er góð þar sem reiknað
er með snjóbílum og þyrlu verði
slys á svæðinu.
Morgunblaðið/SigurðurAðstæðurnar eru stundum glæfralegar og vissara að fara varlega.
Aðkomugöng orðin
um fjörutíu metrar
Norður-Héraði. Morgunblaðið.
STOFNAÐ 1913 294. TBL. 90. ÁRG. SUNNUDAGUR 15. DESEMBER 2002 mbl.is
Engan
harðfisk
Íslandsvinirnir í Coldplay
aftur á ferð Fólk 56
Stella fer í
framboð
Ný íslensk gamanmynd
frumsýnd í vikulokin B14
Úr körfu í
kennslu
Leifur S. Garðarsson er nýr
skólastjóri Áslandsskóla 10
LEIÐTOGAR núverandi fimmtán aðildar-
ríkja Evrópusambandsins og hinna tíu sem
nú er ljóst að munu ganga í það vorið 2004
héldu heim á leið frá Kaupmannahöfn í gær,
eftir að hafa gengið frá samkomulagi um
sögulega sameiningu álfunnar 13 árum eftir
fall járntjaldsins. Þótt ýmis vandamál séu
enn óleyst í stækkunarferlinu var árangr-
inum af leiðtogafundinum sem lauk í dönsku
höfuðborginni seint á föstudagskvöld fagn-
að innan álfunnar sem utan.
„Ákvörðun ESB sameinar betur ný og
rótgrónari lýðræðisríki Evrópu og þokar
mótun einnar, frjálsrar og friðsamlegrar
Evrópu lengra áleiðis,“ sagði Ari Fleischer,
talsmaður Hvíta hússins, um niðurstöðuna.
Stemmningin í Tyrklandi var hins vegar
mörkuð vonbrigðum. Tyrkir sóttust eftir
því að fá loforð um að aðildarviðræður yrðu
hafnar við þá á næsta ári, en fengu ekki.
Niðurstöð-
um fagnað
Kaupmannahöfn, Ankara. AFP, AP.
Evrópudraumur/12
ALLT stefnir í að fóstureyðingum
hér á landi fækki um 10% á þessu ári
ef miðað er við meðaltalið árin fimm
þar á undan. Í nóvember höfðu 707
fóstureyðingar verið gerðar á höfuð-
borgarsvæðinu og stefnir í að þær
verði innan við 800. Reynir Tómas
Geirsson, yfirlæknir á Landspítalan-
um, segir það sérstaklega jákvætt að
fækkunin sé mest hjá ungum konum,
þ.e. 30% hjá konum á aldrinum 15 til
19 ára og 4% hjá konum 20 til 24 ára.
Íslenskar konur leita til útlanda
Hér eru sett læknisfræðileg og fé-
lagsleg skilyrði fyrir því að konur fái
fóstureyðingu og þurfa þær að leita
samþykkis tveggja lækna eða læknis
og félagsráðgjafa. Að sögn Reynis
Tómasar kemur fyrir að umsóknum
kvenna um fóstureyðingar sé neitað
vegna þess að þær falli ekki inn í
ramma laganna. Það gerist sjaldan
ef innan við tólf vikur séu liðnar af
meðgöngu, en oft sé umsóknum
hafnað þegar liðnar séu 12 til 16 vik-
ur þyki aðstæður „ekki knýjandi“.
Þá komi fyrir að konur leiti til ann-
arra sjúkrahúsa eða til útlanda.
Í hlekkjum feðraveldisins
Dr. Henry Morgentaler, ötull bar-
áttumaður fyrir rétti kvenna til fóst-
ureyðinga, gagnrýnir íslensku lög-
gjöfina um fóstureyðingar í blaðinu í
dag. „Mér finnst að konur eigi sjálfar
að ákveða hvort þær vilji halda
áfram með sína óléttu eða ekki. Fyr-
ir mér er það augljóst. Íslendingar
virðast því ekki vera alveg lausir úr
hlekkjum feðraveldisins.“
Fóstureyðing-
um fækkar
Kanadískur sérfræðingur segir ís-
lensku lögin í hlekkjum feðraveldis
Hugsjónirnar/14
TALIÐ er að yfir tvö þúsund fjöl-
skyldur, jafnvel kringum 2.400,
leiti aðstoðar hjá hjálparsamtökum
fyrir jólin samkvæmt upplýsingum
frá Hjálparstarfi kirkjunnar,
Hjálpræðishernum, Mæðrastyrks-
nefndum og Rauða krossi Íslands
sem eru meðal þeirra aðila sem
veita slíka hjálp. Hugsanlegt er að
sumir leiti aðstoðar víðar en á ein-
um stað og fjöldinn sé því nokkru
minni.
Margir leggja lið
Aðstoð þessara samtaka eru
matargjafir, úttektarkort í stór-
mörkuðum og fatnaður. Kostnaður
er talinn í nokkrum tugum millj-
óna, bæði bein fjárútlát og varn-
ingur sem ýmsir aðilar gefa þess-
um aðilum, auk vinnu.
Deildir Rauða krossins, 51 um
allt land, verja árlega í kringum
tólf milljónum króna til aðstoðar
einstaklingum í erfiðleikum. Stór
hluti þeirrar aðstoðar er veittur í
desember, gjarnan í gegnum
mæðrastyrksnefndir og Hjálpar-
starf kirkjunnar á hverjum stað,
segir Þórir Guðmundsson, upplýs-
ingafulltrúi Rauða krossins.
Hjálparstarf kirkjunnar veitti
um 900 fjölskyldum aðstoð fyrir
síðustu jól. Jónas Þ. Þórisson
framkvæmdastjóri telur að fleiri
muni jafnvel leita aðstoðar nú.
Fyrir helgina höfðu verið afgreidd-
ar hjálparbeiðnir 600 fjölskyldna.
Hjálparstarfið er einnig með útibú
á Akureyri og þar er búist við um
50 umsóknum.
Hjá Mæðrastyrksnefnd í
Reykjavík höfðu 550 fjölskyldur
fengið aðstoð fyrir helgina og er
búist við öðrum eins fjölda í næstu
viku en þá verður opið frá mánu-
degi til fimmtudags. Munu því um
1.100 fjölskyldur fá aðstoð hjá
nefndinni. Mæðrastyrksnefnd
Kópavogs aðstoðaði 83 fjölskyldur
í fyrra og er búist við fleirum í ár.
Um 300 einstaklingar nutu að-
stoðar hjá Hjálpræðishernum í
Reykjavík í fyrra. Sagði talsmaður
Hjálpræðishersins aðstoð veitta í
hlutfalli við það sem inn kæmi í
söfnunarbaukana.
Yfir 2.000 fjölskyld-
ur leita sér aðstoðar
BÚIZT er við því að George W. Bush
Bandaríkjaforseti verði fljótur að tilnefna
nýjan formann nefndar sem falið hefur ver-
ið að leita að veilum í
bandarísku stjórnkerfi í
kring um hryðjuverka-
árásirnar 11. september
í fyrra, eftir að Henry
Kissinger fyrrverandi
utanríkisráðherra, sem
tekið hafði starfið að sér,
sagði skyndilega af sér á
föstudag.
Tilgreindi Kissinger
meinta hagsmuna-
árekstra sem ástæðu afsagnarinnar. Hann
tilkynnti hana hálfum mánuði eftir að hafa
verið skipaður í formennskuhlutverkið og
tveimur dögum eftir að varaformaður
nefndarinnar, fyrrverandi öldungadeildar-
þingmaðurinn George Mitchell, sagði af sér.
Óvænt afsögn
Kissingers
Washington. AP.
Henry Kissinger
♦ ♦ ♦