Morgunblaðið - 15.12.2002, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 15.12.2002, Blaðsíða 2
FRÉTTIR 2 SUNNUDAGUR 15. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ BANNA TÓBAKSNOTKUN Íshokkísamband Íslands ákvað fyrir skömmu að banna alla tóbaks- notkun á æfingum og keppni lands- liðsins. Í kjölfarið skoraði tóbaks- varnarnefnd á önnur íþróttasam- bönd að gera slíkt hið sama og hafa viðbrögð verið góð, að sögn Þor- gríms Þráinssonar, formanns tób- aksvarnarnefndar. Fóstureyðingum fækkar Allt stefnir í að fóstureyðingum hér á landi fækki um 10% á þessu ári ef miðað er við meðaltalið árin fimm þar á undan. Í nóvember höfðu 707 fóstureyðingar verið gerðar á höfuðborgarsvæðinu og stefnir í að þær verði innan við 800 á árinu. Mun fækkunin vera mest hjá ungum konum, sem læknar segja mjög jákvætt. Yfir 2.000 fá hjálp um jólin Talið er að yfir tvö þúsund fjöl- skyldur, jafnvel kringum 2.400, leiti aðstoðar hjá hjálparsamtökum fyrir jólin samkvæmt upplýsingum hjá Hjálparstarfi kirkjunnar, Hjálp- ræðishernum, Mæðrastyrks- nefndum og Rauða krossi Íslands, sem eru meðal þeirra aðila sem veita slíka hjálp. Niðurstöðum fagnað Leiðtogar núverandi fimmtán að- ildarríkja Evrópusambandsins og hinna tíu sem nú er ljóst að munu ganga í það vorið 2004 héldu heim á leið frá Kaupmannahöfn í gær, eftir að hafa gengið frá sögulegu sam- komulagi um sameiningu álfunnar þrettán árum eftir fall járntjaldsins. Niðurstöðunum var fagnað í vænt- anlegu nýju aðildarríkjunum en í Tyrklandi ríktu vonbrigði með að ekki skyldi hafa verið tekin ákvörð- un um að bjóða þeim til aðild- arviðræðna fljótlega. Íslenzkukennsla vestanhafs Íslenzkukennsla hefst í janúar- byrjun á bandarísku sjónvarpsstöð- inni Scola, sem er einungis með fræðsluefni á dagskrá sinni og fer þar mest fyrir tungumálakennslu. Bandaríkjamanninum Mike Hand- ley, sem búsettur er hér á landi, tókst að vekja athygli forráða- manna Scola á íslenzkri tungu. Sjö- tíu bandarísk kapalkerfi eru í beinni áskrift hjá Scola-stöðinni auk þess sem 400 bandarískir háskólar og 6.000 aðrir ríkisskólar eru með samninga við stöðina. Sunnudagur 15. desember 2002 atvinnatilboðútboðfundirtilsölutilleigutilkynningarkennslahúsnæðiþjónustauppboð mbl.is/atvinna Gestir í vikunni 7.336  Innlit 13.556  Flettingar 58.410  Heimild: Samræmd vefmæling Þrettán bræður halda til byggða Jólasveinarnir eru að koma til byggða, einn af öðrum. Þeir skjótast á milli húsa og lauma glaðningi í skóinn hjá góðum börnum. Fyrstur kom hann Stekkjarstaur, svo bróðir hans Giljagaur, stubburinn Stúfur var þriðji og Þvörusleikir fjórði. Ragnhildur Sverrisdóttir fjallar um þessa fjóra og bræður þeirra níu, sem eru áreiðanlega farnir að hugsa sér til hreyfings. En foreldr- arnir, Grýla og Leppalúði, bíða heima í helli. /2 ferðalögKanaríeyjar um jólin sælkerarHreindýr börn Jólasveinarnir bíóGabriel Byrne Manst’ ekki eftir Stellu? Farsakennd framboðsmál Í barnamessu á lofti Dóm- kirkjunnar Prentsmiðja Morgunblaðsins Sunnudagur 15. desember 2002 Yf ir l i t Í dag Sigmund 8 Hugvekja 47 Hugsað upphátt B13 Myndasögur 48 Listir 28/31 Bréf 48/49 Af listum 28 Dagbók 50/51 Birna Anna 28 Krossgáta 53 Forystugrein 32 Leikhús 54 Reykjavíkurbréf 32 Fólk 54/61 Skoðun 34 Bíó 58/61 Minningar 36/41 Sjónvarp 52/62 Þjónusta 46 Veður 63 * * * AF þeim um 600 ökumönnum sem lögreglan í Reykjavík stöðvaði við Litluhlíð á Bústaðavegi frá klukkan 23.30 í fyrrakvöld og til um 1.30 í fyrrinótt var einn grunaður um ölv- un við akstur og tveir voru réttinda- lausir. Nokkrir höfðu gleymt öku- skírteinunum heima eða ökuréttindi þeirra voru útrunnin. Mega þeir bú- ast við sektum. Ragnar Árnason, varðstjóri í um- ferðardeild lögreglunnar, segir afar ánægjulegt hversu fáir voru undir áhrifum áfengis og telur að aðgerðir lögreglu í desember hafi haft mikið forvarnargildi. Bílar á leið vestur Bústaveginn voru stöðvaðir og ræddu lögreglumenn við ökumenn þeirra og létu þá blása í áfengismæli ef þeim þótti ástæða til. Ragnar seg- ir að ekki hafi orðið teljandi umferð- artafir af þessu átaki lögreglunnar. Hann segir að átak lögreglu gegn ölvunarakstri muni halda áfram óslitið út desember. Hæsta sekt 100.000 krónur Auk hættunnar sem skapast af ölvunarakstri eru sektirnar háar. Fjárhæðin miðast við áfengismagn í blóði og er sú lægsta 50.000 krónur en sú hæsta 100.000 krónur. Þá eru ökumenn sviptir ökuréttindum í tvo mánuði hið minnsta en allt upp í heilt ár. Þessi viðurlög miðast við fyrsta brot ökumannsins. Einn grunaður um ölv- un og tveir án réttinda Morgunblaðið/Júlíus Þetta var þriðja helgin í röð sem lögreglan í Reykjavík stendur fyrir átaki gegn ölvunarakstri. Ökumenn fengu dreifirit um hættuna af ölv- unarakstri og viðurlög. UM hvaða könnu er verið að tala um í jólalag- inu Jólasveinar ganga um gólf, þar sem segir „uppi’ á stól stendur mín kanna“? Líklegt er að þessi dularfulla kanna sé frekar könnun á ein- hverju. „Uppi á hól stend ég og kanna,“ syngja því krakkarnir í Hjallaskóla í Kópavogi við undirleik Guðrúnar Magnúsdóttur tón- menntakennara. Hún fær ekki alveg botn í lagið eins og það hefur verið kennt um langt árabil og leggur áherslu á rökrétt samhengi textans. Hún kennir nemendum sínum að syngja um „gildan“ staf jólasveinanna en ekki „gylltan“. Svo syngja allir saman í kór: „Móðir þeirra hrín við hátt og hýðir þá með vendi.“ Í Hjalla- skóla er því lítið um að móðir þeirra „sópi gólf“. Guðrún byggir kennslu lagsins á heimildum úr Morgunblaðsgrein fyrir nokkrum árum auk þess sem hún segist aldrei hafa botnað neitt í umræddri könnu og því hvernig íslensku jóla- sveinarnir hafi getað leyft sér munað á borð við gyllta stafi. Það er ekki síður á yngri skólastigum sem börnum er markvisst kennt að syngja lagið í þessum anda. Hildur Skarphéðinsdóttir deild- arstjóri leikskóladeildar hjá Leikskólum Reykjavík segir upprunalega útgáfu lagsins sungna mjög víða eftir að Ólína Þorvarð- ardóttir skólameistari Menntaskólans á Ísafirði sendi öllum leikskólum upprunalegu útgáfuna með skýringum á textanum. Ólína sagðist í samtali við Morgunblaðið hafa sent leikskól- unum fyrri helming vísunnar, sem er svona: Jólasveinar ganga um gátt með gildan staf í hendi. Móðir þeirra hrín við hátt og hýðir þá með vendi. Tekið skal fram hér, að um seinni helming vísunnar, þar sem hóllinn eða stóllinn kemur fyrir og síðan kannan margumrædda, sagðist Ólína ekki hafa skrifað. Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Börnin í 1. og 2. bekk Hjallaskóla syngja um jólasveinana sem ganga um gátt með gildan staf í hendi. „Uppi’ á hól stend ég og kanna“ MISMUNANDI er eftir grunn- skólum hvaða tilboð bráðger börn fá til að þróa námshæfileika sína innan skólans. Aðjúnkt í stærð- fræði og kennslufræði við Kenn- araháskóla Íslands telur þörf á meiri sveigjanleika í skólastarfinu þannig að bráðger börn fái ríkari tækifæri í námi en nú er. Þau séu oft alltof bundin við að fylgja hraða samnemendanna. Morgunblaðið greindi í gær frá 11 ára pilti, Baldri Björnssyni, sem lauk fyrir jól prófi í tveimur stærðfræðiáföngum við Fjöl- brautaskólann við Ármúla. Fram kom í samtali við piltinn og for- eldra hans, að þeir síðarnefndu hafi að miklu leyti stutt við bakið á honum en um fjarnám er að ræða. Aðdragandi stærðfræðinámsins hafi verið sá, að of lítið var að gera fyrir Baldur í skólanum sem hann gekk í. Stærðfræðikeppnir og aukaverkefni Margir kannast við tilboð sem Háskóli Íslands og Fræðslumið- stöð Reykjavíkur eru með í sam- vinnu við Landssamtökin Heimili og skóla og gengur undir nafninu Bráðger börn. Um er að ræða ým- is námskeið sem bjóðast 2-3 pró- sentum barna, sem skara fram úr á miðstigi og unglingastigi grunn- skóla, og eru verkefnin á sviði ým- issa greina, allt frá eðlisfræði til viðskipta og lögfræði. Námið er síðan stundað óháð grunnskóla- skyldunni sjálfri. Verkefnastjóri Bráðgerra barna er Meyvant Þórólfsson en hann gegnir jafnframt stöðu að- júnkts í stærðfræði og kennslu- fræði við Kennaraháskóla Ís- lands. Hann segir að fyrir utan verkefnið Bráðger börn fari tilboð til þeirra, sem skara fram úr í námi, mikið eftir þeim skólum sem þau ganga í. „Sumir skólar eru með mjög góð aukatilboð fyrir þessa krakka, eins og t.d. Mýrar- húsaskóli sem hefur verið með til- boð innan skólans af svipuðu tagi og gerist í háskólanum. Þá hafa sumir skólar tekið þátt í Kapp Abel-verkefninu svokallaða, en það er stærðfræðikeppni þar sem krakkar þurfa að vinna sam- an að því að leysa þrautir og ýmis stærðfræðileg viðfangsefni. Svo hafa verið stærðfræðikeppnir á vegum framhaldsskólanna fyrir unglinga í grunnskólunum. Þar fyrir utan hef ég spurnir af ýmsu, t.d. veit ég að í Stykkishólmi er merkileg tilraun í gangi með svona keppni á staðnum og auka- verkefni sem krakkarnir fá.“ Áhuginn hugsan- lega kæfður Meyvant segir talsverða þörf fyrir slík úrræði. „Það þarf að vera svolítið meiri sveigjanleiki í skólastarfinu þannig að þessir krakkar fái tækifæri. Ég held að þeir séu oft alltof bundnir við að fylgja hraða samnemendanna,“ segir hann. „Það eru dæmi um það erlendis frá, að fólk með háa greindarvísitölu hverfur brott frá námi af einhverjum ástæðum. Kannski það sé vegna þess að það sé búið að kæfa þennan áhuga.“ Að sögn Meyvants er ekki al- gengt að jafn ung börn og Baldur stundi stærðfræðinám á fram- haldsskólastigi. Hins vegar séu dæmi um krakka sem séu um tveimur árum á undan í stærð- fræði. „Krakkar í Hjallaskóla hafa t.d. fengið að taka stærðfræði- áfanga í Menntaskólanum í Kópa- vogi,“ segir hann. Meyvant telur að það sé tals- verð hvatning fyrir þessi börn að fá að spreyta sig á erfiðari verk- efnum en þeim býðst í skyldunám- inu. „Ég hef ekki heyrt annað og það er t.d. mjög mikil ánægja með þetta verkefni sem við erum með í samvinnu við háskólann. Þó held ég að menn séu sam- mála um að heimilið sé stærsti áhrifavaldurinn í þessu. Stuðning- ur, hvatning og alls konar örvun til náms í gegn um skólagönguna eða frá því að börnin eru mjög ung skiptir mestu máli og rannsóknir sýna það. Þá er jákvæður stuðn- ingur við starf skólanna ekki síður mikilvægur.“ Tilboð til bráð- gerra barna mis- jöfn eftir skólum Sérfræðingur telur þörf á meiri sveigjanleika í skólastarfi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.