Morgunblaðið - 15.12.2002, Blaðsíða 29
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. DESEMBER 2002 29
Listasafn Íslands Leiðsögn um
sýninguna Íslensk myndlist 1980–
2000 verður kl. 15–16 í umsjón Rak-
elar Pétursdóttur.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn
Guðbjörg Kristjánsdóttir verður
með leiðsögn um sýninguna Kyrr
birta kl. 15
Hafnarborg Leiðsögn um sýn-
inguna Samspil verður kl. 15. Það
eru listakonurnar Kristín Geirs-
dóttir, Þorgerður Sigurðardóttir,
Magdalena Margrét Kjartansdóttir,
Bryndís Jónsdóttir og Ása Ólafs-
dóttir sem leiða gesti um samsýn-
ingu sína.
Kammerkórinn Vox Gaudiae verð-
ur með aðventutónleika í Hjalla-
kirkju kl. 20. Einsöngvari er Hrafn-
hildur Björnsdóttir. Söngstjóri er
Jón Ólafur Sigurðsson. Flutt verk
eftir m.a. Hugo Distler, Benjamin
Britten, Anton Bruckner, Atla
Heimi Sveinsson, Francis Poulenc.
Inn á milli les sr. Íris Kristjánsdóttir
spádóma fyrir fæðingu Frelsarans.
Kvennakórinn Léttsveit Reykja-
víkur heldur jólatónleika í Tjarn-
arsalnum kl. 16. Hljómsveit Að-
alheiðar Þorsteinsdóttur sér um
undirleik. Auk Aðalheiðar er sveitin
skipuð Tómasi R. Einarssyni og
Stínu Bongó. Stjórnandi er Jóhanna
V. Þórhallsdóttir.
Háteigskirkja Hinir árlegu að-
ventusöngvar við kertaljós verða kl.
20. Árni Bergmann, rithöfundur
fjallar um „Hátíðir í lífi okkar“, Páll
Óskar Hjálmtýsson og Monika
Abendroth flytja tónlist og kirkju-
kór Háteigskirkju flytur aðventu-
tónlist undir stjórn Douglasar
Brotchie.
Gospelsystur Reykjavíkur halda
tónleika undir yfirskriftinni Jóla-
stjarna kl. 20:30 í Langholtskirkju
Einsöngvari er Hanna Björk Guð-
jónsdóttir sópransöngkona. Undir-
leikari er Agnar Már Magnússon pí-
anóleikari. Stefán S. Stefánsson sér
um blásturshljóðfæraleik.
Bíósalur MÍR, Vatnsstíg 10 Rúss-
neska kvikmyndin Fávitinn frá
árinu 1958 verður sýnd kl. 15. Fávit-
inn, er byggð á fyrri hluta sam-
nefndrar skáldsögu Fjodors Dostoj-
evskís. Leikstjóri er Ívan Pyriev.
Íslenskur texti er með myndinni og
aðgangur er ókeypis.
Jólasveinninn og töfratrumban er
finnsk jólateiknimynd fyrir börn
sem sýnd verður í Norræna húsinu
kl. 14. Myndin er frá árinu 1996 og
tekur 51 mín. í flutningi.
Myndin er gerð er eftir vinsælum
jólasveinateikningum og sögum
Mauri Kunnas. Leikstjóri er Pekka
Lehtosaari. Aðgangur er ókeypis.
Næsti bar, Ingólfsstræti Skáld-
kvennakvöld hið síðara verður kl. 21.
Skáldkonurnar Ingibjörg Haralds-
dóttir, Sigurbjörg Þrastardóttir,
Halldóra Thoroddsen og Elísabet
Ólafsdóttir lesa úr nýjum bókum
sínum. Kynnir er Hjalti Rögnvalds-
son leikari.
Í DAG
Jólatónleikar Tónlistarskólans í
Reykjavík verða haldnir í Dóm-
kirkjunni kl. 20. Málmblásarsveit
Tónlistarskólans undir stjórn Kjart-
ans Óskarssonar mun opna tón-
leikana, en þeim lýkur með verkum
eftir W. A. Mozart í flutningi Klarín-
ettukórs skólans undir stjórn Sig-
urðar I. Snorrasonar. Þar á milli
mun fjöldi nemenda úr skólanum,
yngri sem eldri, flytja einleiks- og
kammerverk frá sautjándu öld og
fram á þá tuttugustu. Einnig mun
flautuhópur skólans koma fram í líf-
legri sveiflu með jóladjass.
Á MORGUN
HINIR árlegu jólatónleikar
kammerkórsins Vox academ-
ica verða í Háteigskirkju í
dag, sunnudag, kl. 17. Á efnis-
skránni á þessari aðventu
verða þekkt íslensk og erlend
jólalög og jólasálmar, en auk
þeirra andleg tónlist eftir m.a.
Mikhail Glinka, Hans Nyberg,
W.A. Mozart og Maurice Du-
ruflé.
Vox academica er blandaður
kammerkór sem hefur verið
starfandi frá 1996. Kórinn var
upphaflega einkum skipaður
fyrrverandi félögum úr Há-
skólakórnum en hefur undan-
farin ár fengið til liðs við sig
söngfólk úr ýmsum áttum,
sem allt á það sameiginlegt að
hafa umtalsverða kórreynslu.
Um þessar mundir hefur kór-
inn á að skipa 30 söngvurum
undir stjórn Hákonar Leifs-
sonar. Orgelleikari á tónleik-
unumm er Jörg Sondermann.
Kórinn mun syngja aftan-
söng í Seljakirkju á aðfanga-
dagskvöld eins og undanfarin
ár.
Miðar verða seldir við inn-
ganginn og kosta 1.000 kr.
Aðventu-
tónleikar
Vox aca-
demica
Full búð af glæsilegum
dömufatnaði
í stærðum 38-52
Nýárskjólar
Franskar dragtir í stærðum 38-52.
Opið frá kl. 14-22.
Næs
Hlaðhömrum 1 • Grafarvogi • sími 577 4949
Norðlenskt hangikjöt!
895-pr.kg.
HANGIFRAMPARTUR
úrbeinaður
pr.kg.1395-
HANGILÆRI
úrbeinað
LYNGHÁLSI 4 OG SKÚTUVOGI 2 Ódýrt fyrir alla!
LÁGT OG
STÖÐUGT
VÖRUVERÐ!
Ódýrt fyrir alla! Ódýrt fyrir alla!
Ódýrt fyrir alla!
79-
JÓLAKAFFI
250gr.
pr.kg.398-
KJÚKLINGAR 1/1
ferskir og ófrosnir
JÓLATRJÁASALA
á lifandi trjám við báðar
verslanirnar á
Lynghálsi 4 og Skútuvogi 2
Í Europris bjóðum við
eingöngu svínakjöt
frá Síld og fisk!
Aðeins það besta!
Nýtt svínakjöt
í úrvali!
Leikföng
Í MIKLU ÚRVALI!
2575-
„ACTION“ DÚKKA
5 gerðir
4425-
1690-
JÓLATRÉ 180cm- 210cm
sígrænt gervitré
199-
PIPARKÖKUR
400 gr.
Frá pr.kg.799-
HAMBORGARHRYGGIR
nýreyktir 1. fl. gæði
4500-
BRUNABÍLL
fjarstýrður
299-pr.kg.
SVÍNABÓGAR
1.fl. nýir og ófrosnir
JÓLAOPNUN
10-22
ALLA DAGA
LAUGAVEGI 15 • Sími 511 1900
www.michelsen.biz
Kíktu á úrvalið á
Stórglæsilegir
skartgripir