Morgunblaðið - 15.12.2002, Side 51

Morgunblaðið - 15.12.2002, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. DESEMBER 2002 51 DAGBÓK Síð pils og pífublússur Engjateigi 5, sími 581 2141. Opið í dag, sunnudag, frá kl. 13.00—18.00. Samkvæmiskjólar Bankastræti 11 • sími 551 3930 Dagana 12. til 15. des. bjó›um vi› 20 % afslátt af öllum Ecco skóm. dagar 20% Afsláttur af öllum ecco skóm Opi› í dag frá 13-18 olsen Tískuverslun fyrir konur Laugavegi 25, sími 533 5500 Náttfatnaður Náttkjólar — náttföt — sloppar stærðir S — XXXL Meyjarnar, Austurveri, Háaleitisbraut 68, sími 553 3305. STJÖRNUSPÁ eft ir Frances Drake BOGMAÐUR Afmælisbörn dagsins: Þú ert skilningsrík(ur), átt gott með að setja þig í spor annarra og vilt öllum gott gjöra. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Það er upplagt að eyða smá tíma í það að sýna sig og sjá aðra í dag. Skoðaðu málið vandlega svo þú hafir það á hreinu. Naut (20. apríl - 20. maí)  Það er að æra óstöðugan að vera alltaf að semja nýjar og nýjar leikreglur eftir því sem leiknum vindur fram. Það heldur manni líka ungum að breyta til. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Þú ert full(ur) af krafti og ið- ar í skinninu eftir að koma öllu því í verk sem hefur ver- ið á biðlistanum. Sýna ber varkárni í viðkvæmum fjöl- skyldumálum. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Farðu varlega í að dæma gjörðir annarra. Synjaðu ekki beiðni góðs vinar um að- stoð í neyð. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Þér kann að finnast þú eiga erfitt með að gera nokkurn skapaðan hlut. Einn dagur úti í náttúrunni gæti verið nóg til að byggja þig upp. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Láttu ekki óvæntar aðstæð- ur slá þig út af laginu. Reyndu að vera við sem flestu búin(n), þótt það kosti átak. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Nú er kominn tími til að hlusta á sína innri rödd og hræðast ekki að fylgja henni eftir. Dirfska þín í verkefna- vali vekur aðdáun annarra. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Þú þarft ekki að berja bumb- ur og tilkynna hvert framlag þitt er. Láttu ekki fólk fara í taugarnar á þér heldur sýndu því skilning. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Lát ekki metnaðinn leiða þig í gönur. Flýttu þér samt hægt því margt er að varast í þessum efnum. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þótt hlutirnir freisti skaltu skoða vandlega hvort þú haf- ir einhverja þörf fyrir þá. Og ekki kaupa nema þörfin sé brýn. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Þér væri hollt að íhuga per- sónuleg málefni þín. Gættu þess þó að þú gangir ekki of nærri sjálfri/sjálfum þér í þeim efnum. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Einhver orð, sem vinur læt- ur falla, særa þig djúpt. Vertu bara sátt(ur) við sjálfa(n) þig og undirbúðu þig vel og vandlega. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. ÞAÐ hefur löngum gefist vel að taka slagina á langlit- inn sinn fyrst. Hver veit – andstæðingarnir gætu hent vitlaust af sér, óvart eða til- neyddir. Suður gefur; allir á hættu. Norður ♠ Á ♥ 1082 ♦ ÁKDG754 ♣Á5 Vestur Austur ♠ G10987 ♠ K643 ♥ D943 ♥ Á6 ♦ 103 ♦ 962 ♣63 ♣G874 Suður ♠ D52 ♥ KG75 ♦ 8 ♣KD1092 Spilið kom upp í hrað- sveitakeppni BR fyrir rúmri viku. Sex grönd í suður var algengur samningur, en margir fóru niður eftir út- spil vesturs í spaða. Sagn- hafi á 11 toppslagi og virðist þurfa þann tólfta á lauf og margir byrjuðu á því að kanna laufleguna. Hin tæknilega rétta íferð í lauf- litinn er að taka þrjá efstu, en þegar það dugði ekki til að veiða gosann var spilið tapað. En auðvitað kostar ekk- ert að þjarma svolítið að andstæðingunum og taka sjö slagi á tígul áður en lauf- ið er prófað. Það er aldrei að vita hvað gæti gerst. Norður ♠ – ♥ 1082 ♦ 4 ♣Á5 Vestur Austur ♠ 109 ♠ K ♥ D9 ♥ Á ♦ – ♦ – ♣63 ♣G874 Suður ♠ D ♥ K ♦ – ♣KD109 Í þessu tilfelli gerist það að austur hendir tilneyddur „vitlaust“ af sér í síðasta tíg- ulinn. Hann þarf að valda þrjá liti og getur það ekki. Væntanlega hendir hann laufi og þá kemur gosinn sjálfkrafa í slaginn. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson ALLOFT hefur á liðnum árum verið vikið að svo- nefndri veikri beygingu kvk.nafnorða, sem enda á -a í nefnifalli eintölu, en mörg hver aftur á móti á -na í eignarfalli fleirtölu. Má þar taka sem dæmi no. leiga, sem á samkv. regl- unni að enda á -na í ef. fl. Í Bl.ob. eru no. leignapeli og leignasmjör. Síðarnefnda no. er einnig í OM (1983) og svo aftur í nýju útgáfunni (2002), sem mun væntan- lega verða kölluð Eddu-út- gáfan. Er það haft um smjör, sem greitt var í jarð- arafgjald. Í seðlasafni OH eru mörg dæmi frá liðnum öldum, svo sem leigna- gjalddagi, leignaskipti og leignaútsvar. Mjólkursam- salan (MS) hefur um all- mörg ár í samvinnu við Ís- lenzka málnefnd m.a. minnt á íslenzkt mál á fern- um sínum. Eitt sinn stóð þar í fyrirsögn: Þágna og leigna. Fylgdu svo eftirfar- andi dæmi: Hann fór á milli myndbandaleigna. Hún leitaði undanþágna. Síðan sagði orðrétt: „Orðið myndbandaleiga beygist eins og hjáleiga, endar í eignarfalli fleirtölu á -na.“ Þessu bætti ég svo við um- mæli MS: Því miður held ég margt af því, sem þar er sagt, fari fyrir ofan garð og neðan hjá of mörgum. Sama má víst segja um þessa pistla í Mbl. Sú virð- ist enn vera raunin. Ég held fréttamenn RÚV mættu t.d. að ósekju íhuga þetta ef. Nýlega mátti heyra háttsettan embættis- mann tala um virkjunar- mál, sem nú eru mjög til umræðu. Taldi hann óþarft, að andstæðingar virkjunarinnar þyrftu „að grípa til rangfærsla“, eins og hann komst að orði. Samkv. reglunni hefði hér átt að segja: rangfærslna. Einkum á na-endingin heima í orðum, sem hafa g eða k í stofni. Má nefna orð eins og bylgja, þar sem ef. er bylgna, og svo kirkja, þar sem ef. er kirkna, sbr. kirknamáldagi. Þessi dæmi verða látin duga, en menn skulu minntir á að halda þessa beygingu í heiðri. – J.A.J. ORÐABÓKIN Færsla – færslna LJÓÐABROT ÚTI Nú tjaldar foldin fríða sinn fagra blómasal; nú skal jeg ljettur líða um lífsins „táradal“. Mjer finst oss auðnan fái þar fagra rósabraut, þótt allir aðrir sjái þar aðeins böl og þraut. Þorsteinn Erlingsson Árnað heilla 70 ÁRA afmæli. Ámorgun, mánudag- inn 16. desember, er sjötug- ur Gunnar Hjartarson, fyrrverandi skólastjóri í Ólafsvík. Hann og eiginkona hans, Guðrún L. Guð- mundsdóttir, verða að heim- an á afmælisdaginn. 70 ÁRA afmæli. Mánu-daginn 16. desem- ber verður sjötug Elsa Guðsteinsdóttir, Lyngmó- um 9, Garðabæ. Eiginmað- ur hennar er Margeir Ing- ólfsson, húsameistari. Þau hjónin verða stödd á heimili sínu á Spáni á afmælisdag- inn (sími 00-34-968-574806) en taka á móti gestum í Lyngmóum 9, 22. des. e.h. 1. e4 c5 2. Rc3 Rc6 3. Rf3 e5 4. Bc4 d6 5. d3 Be7 6. O-O Rf6 7. Rg5 O-O 8. f4 exf4 9. Bxf4 h6 10. Rf3 Be6 11. Rd5 Bxd5 12. exd5 Ra5 13. Rh4 b5 14. Rf5 bxc4 15. Bxh6 gxh6 16. Rxh6+ Kh7 17. Rf5 cxd3 18. Dxd3 Kh8 19. Hae1 Db6 20. Dh3+ Rh7 21. Hxe7 c4+ 22. Kh1 Dxb2 23. He4 Hg8 Staðan kom upp á ísr- aelska meistaramótinu sem lauk fyrir skömmu í Tel Aviv. Hinn sókndjarfi Emil Sutovsky (2.657) hafði hvítt gegn Ilya Smirin (2.683) og lauk fléttuskákinni á að fórna vígfimasta liðsmanni sínum. 24. Dxh7+! og svartur gafst upp enda verður hann mát eftir 24...Kxh7 25. Hh4+ Kg6 26. Hh6+ Kg5 27. h4+ Kg4 28. Re3+ Kg3 29. Hf3#. Loka- staða efstu manna varð þessi: 1.–3. Ilya Smirin, Boris Avrukh og Zvulun Gofshtein 6½ vinninga af 9 mögulegum. 4.–5. Emil Sutovsky og Michael Roiz 6 v. Pizzumót hjá Skákfélagi Akureyrar í dag, 15. des- ember. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. STJÖRNUSPÁ mbl.is 70 ÁRA afmæli. Í dag,sunnudaginn 15. des- ember, er sjötug Guðrún Hafliðadóttir, Dísukoti í Þykkvabæ. Hún tekur á móti gestum á afmælisdag- inn í Samkomuhúsinu í Þykkvabæ kl. 14–18.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.