Morgunblaðið - 15.12.2002, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 15.12.2002, Blaðsíða 55
VINSÆLASTA uppákoman á Menningarnótt Reykjavíkur var at- riði sem kallaðist Rímur og rapp þar sem rímnamenn og rapparar leiddu saman hesta sína. Það var haldið í Landsmiðjuhúsinu og kom- ust færri að en vildu, fróðir segja að upp undir átta þúsund manns hafi þurft frá að hverfa. Sú uppá- koma var tekin upp og gefin út á disk og eitt lag af þeim disk er nú eitt vinsælasta lag á Rás 2 ef ekki það vinsælasta. Hugmyndasmiður þessa verkefn- is er Hilmar Örn Hilmarsson sem kallaði til liðs við sig meðal annars þá Steindór Andersen og Erp Ey- vindarson, en þeir þrír standa ein- mitt að laginu „Stikluvik“ sem nýt- ur svo mikilla vinsælda á Rás 2 um þessar mundir. Hugljómun Hilmars á Snæfjallaströnd Hilmar Örn segir að hugmyndin hafi kviknað á Snæfjallaströnd á Jónsmessu þar sem Hilmar Örn og Steindór sátu saman með öðru fólki og biðu eftir Erpi. Hilmar var þá búinn að flytja ræðu sína um að Ís- lendingar hefðu fundið upp rappið eins og hjólið, brauðristina, eldinn og fleira gott og það væri kominn tími til að fá rappið heim. Fyrst Erpur ekki mætti var samhljóða samþykkt að hann yrði tekinn í þetta verkefni nauðugur viljugur. Erpur segir að þegar hann var kallaður á fyrsta fundinn um þetta mál, sem haldinn var með stjórn- endum Listahátíðar í Reykjavík, hafi hann ekki haft hugmynd um hvað væri á seyði en strax litist vel á hugmyndina. „Ég er alltaf til í að prófa eitthvað nýtt og sagðist vera til í þetta, en ég vildi líka fá að vera með mínar eigin pælingar, „slam“ og „bítbox“, enda veit ég að það klikkar ekki, það er alltaf gott að vera með eitthvað öruggt líka. Það sem bar þó hæst þegar við fórum að vinna þetta var það sem við gerðum svo saman ég, Hilmar og Steindór, það heppnaðist ótrúlega vel.“ „Ég var ekki hrifinn af þessu frekar en öðru sem ég tek þátt í,“ segir Steindór að bragði og þeir skella allir upp úr, „læt draga mig út í hvað sem er. Mér fannst þó ekkert að því að kveða mínar rím- ur, Hilmar var með þetta allt í hausnum, var löngu búinn að heyra þetta lag fyrir sér og skipulagði svo ég þurfti ekkert annað að gera en bara kveða rímu eins og gert var fyrr á öldum.“ „Ég vissi að ég var ekki að fara út í neitt bull, en það er gaman að heyra Steindór segja þetta því áður en við fórum á svið var hann að tauta fyrir munni sér: „Hvað er Hilmar nú búinn að draga okkur út í“,“ segir Erpur við mikla kátínu fé- laga sinna og heldur svo áfram: „Ég mætti á æfingu, sem var tekin upp fyrir Sjónvarpið, þannig að það var ekki raunveruleg æfing, bara upptaka,“ segir Erpur. „Þar heyrði ég taktinn í fyrsta sinn og flutti mína rímu við hann. Svo tókum við þetta um kvöldið á menningarnótt- inni þannig að þetta var ekki mikið mál.“ Rappið skyldara þulum en rímum „Mitt hlutverk var að vera ákveðinn efnahvati á milli þeirra, þekki þá báða og það sem þeir hafa verið að gera. Ég hugsaði lagið því út frá því hvar þeir myndu samein- ast. Ég hafði tekið þessa rímu upp með Steindóri áður í öðru samhengi og þekkti hana því vel og hvað það er mikill taktur í henni. Ég vissi líka að Erpur væri með svo mikinn takt í sér að hann gæti rappað yfir hvað sem er og svo gekk þetta upp nákvæmlega eins og ég heyrði þetta fyrir mér.“ Ekki sýnist öllum að rétt sé að setja samasemmerki á milli rímna og rapps og Steindór segir að að sínu viti sé tómt bull að tengja rím- ur saman við rapp, þetta séu engir ættingjar. „Pabbi er sammála þér,“ segir þá Erpur, „finnst rapp og rímur ekkert eiga sameiginlegt, en hann segir aftur á móti að þulur séu skyldari rappinu“, og Steindór kinkar kolli við þau orð. „Ég flutti dagskrá á sínum tíma með Björk og Gulla Óttars þar sem þulur eftir Theodóru Thoroddsen voru rapp- aðar svo ég tek undir þetta,“ segir Hilmar, „að þylja er mjög skylt því að rappa. Rímurnar eru svo nið- urnjörvað form en rappið skríður út fyrir formið, út fyrir kassann og kubbana sem rímurnar eru í. Rím- urnar eru líka með ákveðna fram- setningu og skipulag og sækja mik- ið í dróttkvæðin þótt þær séu fyrst og fremst skemmtiefni en ekki með fimm lögum af meiningum eins og dróttkvæðin. Þær eiga það kannski sameiginlegt með rappinu að þær voru samdar öðrum þræði til að hía á hámenninguna líkt og rappið sem er alltaf að hía á þessa hámenn- ingu. Fólk vill alltaf fá sitt „sex & drugs & rock’n roll“.“ Erpur segist ekki lesa rímur sér til skemmtunar, hann hafi helst kynnst þeim í skóla eða að pabbi hans hafi sýnt honum rímur og far- ið með þær. „Áhugi minn á rímum hefur verið fræðilegur ef svo má segja, ég vil þekkja formið og gjarnan sjá þær fluttar, en þær falla ekki að því sem ég er að pæla og gera. Um rappið má segja að það getur verið svo margt, það er svo opið form að það er hægt að nota alla stuðla og höfuðstafi ef menn vilja en það má slíka sleppa þeim öllum. Ég myndi ekki nenna að semja rímur vegna þess að þær veita mér ekki það frelsi sem ég er að leita að, með fullri virðingu fyrir forminu.“ Þeir þremenningar segja allt óljóst um hvort frekara samstarf verði á þessu sviði, eru þó greini- lega allir til í það. „Ég er alltaf til í tuskið þegar þessir menn hringja í mig, þótt það sé ekki nema til þess að detta í það,“ segir Erpur að lok- um. Rappið komið heim Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson „Ég er alltaf til í tuskið þegar þessir menn hringja í mig,“ segir Erpur um Hilmar Örn tónkuklara og Steindór kvæðamann. Á plötunni Rímur og rapp kveðast á Steindór Andersen og Erpur Eyvindsson Geislaplatan Rímur og rapp er komin út. FÓLK Í FRÉTTUM MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. DESEMBER 2002 55 Yfirhafnir Laugavegi 53 Mörkinni 6, sími 588 5518 Jólagjöfin hennar langömmu, ömmu mömmu og ungu stúlkunnar Pelsar stuttir og síðir frá kr. 12.900 Opið alla sunnudaga í desember Ullarkápur 47.900 Hattar og húfur 29.900 26.900 Mikið úrval Mörkinni 3, sími 588 0640 Glæsilegar jólagjafir Mörkinni 3, sími 568 7477 www.virka.is Opið mán.-fös. frá kl. 10-18 og laugard. frá kl. 10-14 Gjafabréf til saumakonunnar nýtist vel þar sem efnaúrvalið er mikið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.