Morgunblaðið - 15.12.2002, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 15.12.2002, Blaðsíða 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 15. DESEMBER 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. ÍSLENSKUKENNSLA hefst í janúarbyrjun á bandarísku sjón- varpsstöðinni Scola, sem er einungis með fræðsluefni á dagskrá sinni og fer þar mest fyrir tungumálakennslu auk þess sem Scola býður upp á tungumálakennslu á Netinu. Sjötíu bandarísk kapalkerfi eru í beinni áskrift hjá Scola-stöðinni auk þess sem fjögur hundruð bandarískir há- skólar og sex þúsund aðrir ríkisskól- ar eru með samninga við stöðina. Bandaríkjamanninum Mike Handley, sem búsettur er hér á landi, tókst að vekja athygli forráða- manna Scola á íslenskri tungu fyrir um sjö árum en tókst ekki að fá ís- lensk stjórnvöld til samstarfs um verkefnið með því að standa að gerð kennsluefnis. Það var ekki fyrr en Handley kynntist Jóni Hermannssyni kvik- myndagerðarmanni að hjólin fóru að snúast, en Jón og fyrirtæki hans Tefra-films hafa nýlokið framleiðslu á 22 tuttugu mínútna löngum kennsluþáttum í íslensku, sem Rík- issjónvarpið ætlar, auk bandarísku stöðvarinnar, að taka til sýninga í ársbyrjun. Átak fjölda fólks Af þeim sautján milljónum, sem Jón hefur þurft að kosta til fram- leiðslunnar til þessa, hafa fengist rúmlega sex milljónir í styrki. Jón segist vongóður um að ná endum saman að lokum og bætir við að margfalt auðveldara hafi verið að fjármagna þær sjö bíómyndir, sem hann hafi framleitt til þessa, en fræðslu- og kennsluefni á borð við þetta. Hvorki íslenska né bandaríska sjónvarpið greiðir fyrir sýningar- rétt. Um 100 manns komu að gerð þátt- anna enda segir Jón að verkefni af þessari stærð verði ekki til nema með samstilltu átaki fjölda fólks. Verkefninu sé þó hvergi nærri lokið því fyrir liggi framleiðsla á tíu þátt- um til viðbótar. Íslenskt mál kennt í bandarísku sjónvarpi  „Ég vil geta talað…/B12 LÍKLEGA hefur það verið hann Stekkjarstaur sem heimsótti börn- in á leikskólanum Jörfa á jólaballi á föstudag. Að minnsta kosti virð- ist hann ekki sérlega lágvaxinn í samanburði við þessar hnátur sem mæna í hálfgerri forundran upp til sveinka íklæddar sínu fínasta pússi í tilefni dagsins. Það er ekki laust við að var- kárni gæti þegar þær stuttu nálg- ast þann rauðklædda og er það vel skiljanlegt í ljósi þess að ekki er langt síðan að þeir bræður jóla- sveinarnir gerðu lítið annað en að hrekkja börn og ótuktast á allan mögulegan máta. Nú á dögum eru þeir þó þekktari fyrir að lauma einhverjum glaðningi í skótau litla fólksins, þannig að sennilega er þeim vinkonunum alveg óhætt. Morgunblaðið/Árni Torfason Andspænis hávöxnum herramanni ÍSHOKKÍSAMBAND Íslands ákvað fyrir skömmu að banna alla tóbaksnotkun á æf- ingum og í keppni landsliðsins. Í kjölfarið skoraði tóbaksvarnarnefnd á önnur íþrótta- sambönd að gera slíkt hið sama og hafa við- brögð verið góð, að sögn Þorgríms Þráins- sonar, framkvæmda- stjóra tóbaksvarnar- nefndar. Þorgrímur segir ljóst að ekki fari saman að iðka íþróttir og nota tóbak og síst af öllu þegar um landslið sé að ræða. „Fulltrúar þjóðarinnar á þess- um vettvangi eru hetjur og fyrirmyndir ungra íþróttamanna og það er ekki gott til afspurnar ef íþróttamenn eru úttroðnir af tóbaki í munni sem leiðir til fíknar og oft og iðulega til reykinga síðar meir,“ segir Þor- grímur. „Íshokkísambandið reið á vaðið og í kjöl- farið sendum við öllum sérsamböndum ÍSÍ bréf þar sem við skorum á þau að taka ábyrga afstöðu gegn tóbaki og vera trúverð- ug í forvarna- og uppeldismálum með því að hafa landsliðin tóbakslaus.“ Í bréfi tóbaksvarnarnefndar kemur með- al annars fram að nikótín er eitt öflugasta fíkniefni sem til er. „Í einum skammti af munntóbaki er áþekkt magn af nikótíni og í 3-4 sígarettum. Hjarta þess sem notar munntóbak að staðaldri slær 15.000 auka- slög á dag með tilheyrandi æðasamdrætti og áreynslu líkamans (en deyfingu heilans). Erlendir aðilar halda því fram að munntób- aksnotendur skerði afreksgetu sína um allt að 10% sökum æðasamdráttar. Fremstu íþróttamenn sérsambandanna eru fyrir- myndir æsku landsins. Sumir af okkar bestu íþróttamönnum eru nikótínfíklar og þar af leiðandi slæmar fyrirmyndir.“ Þorgrímur segir að sérsamböndin hafi brugðist vel við áskoruninni og meðal ann- ars hafi stjórn Glímusambands Íslands ákveðið að banna alla tóbaksnotkun þegar úrvalshópur GLÍ komi saman til æfinga og sýninga og Körfuknattleikssamband Ís- lands hafi samþykkt að öll notkun landsliðs- manna á tóbaki í landsliðsferðum sé bönnuð. Sérsam- bönd banna tóbaks- notkun Jákvæð viðbrögð við áskorun tóbaks- varnarnefndar „HÉR hefur verið stöðug bræla í meira en þrjár vikur og á meðan svo er eru aflabrögðin treg,“ segir Örn Stefánsson, skipstjóri á rækjuskip- inu Pétri Stefánssyni RE sem nú stundar veiðar á Flæmingjagrunni. „Miðað við aðstæður höfum við feng- ið ágætan afla og hér fer vel um okk- ur, enda á góðu skipi.“ Örn segir að aflabrögð á Flæm- ingjagrunni hafi verið svipuð á þessu ári og þau hafa verið undanfarin ár. Samkvæmt upplýsingum Fiskistofu hafa íslensk skip veitt um 5.350 tonn af rækju á Flæmingjagrunni í ár og því ljóst að kvóti Íslands næst ekki, en heildaraflamark íslenskra skipa í rækju á Flæmingjagrunni er 9.067 tonn á árinu 2002. Þrjú íslensk skip hafa stundað veiðar á Flæmingjagrunni á þessu ári. Auk Péturs Stefánssonar hafa Sunna SI og Rauðinúpur ÞH verið þar. Afurðaverð á rækju er lágt um þessar mundir og því hefur dregið úr arðsemi veiðanna. Örn segist ætla að leggja af stað heim til Íslands eftir helgi og þá fái áhöfnin langþráð jólafrí en haldið verði aftur á miðin á Flæmingjagrunni upp úr áramótum. Bræla hamlar veiðum Kvótinn næst ekki á Flæmingjagrunni FJÖLDI Íslendinga leggst í ferðalög um jól og nýár og segja forsvars- menn ferðaskrifstofanna aukningu á ferðum fólks til útlanda um jólin frá því í fyrra. Flestir fara til Kanaríeyja eða á annað þúsund manns. Stór hópur sem ferðast á þessum árstíma er að fara að heimsækja fjölskyldu eða vini og er Kaupmannahöfn vinsæl- asti áfangastaðurinn hjá Flugleiðum yfir jólin. Fleiri á faraldsfæti  Á annað þúsund/B20
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.