Morgunblaðið - 18.12.2002, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 296. TBL. 90. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2002 mbl.is
Harður heimur
eiturlyfja
Hljómsveitin Ampop sendir frá
sér skífu númer tvö Fólk 54
Sungið um
veturinn og lífið
Staddur í
Sturlungaöld
Sveigur heitir ný skáldsaga Thors
Vilhjálmssonar Bækur D4
SÍÐUSTU dagana fyrir jól er nóg að gera í verslunum landsins og
víða mikil örtröð. Unga fólkið á myndinni lét ekki mannþröngina
trufla sig en naut þess að versla. Nú eru aðeins fimm dagar til jóla og
því hver að verða síðastur að ljúka kaupum á jólagjöfum. Mikið var að
gera í verslunum um nýliðna helgi en það er mat verslunarmanna að
jólaverslunin nái hámarki þrjá síðustu dagana fyrir jól og væntanlega
verður það þannig fyrir þessi jól. Þá er reynslan sú að margir dragi
það fram á síðustu stundu að kaupa jólasteikina. Margt girnilegt er að
finna í kjötborðum verslana og fjölbreytnin sjaldan verið meiri.
Morgunblaðið/RAX
Fjör í jólasölunni
Frásögn móður unglingsstúlku
sem varð eiturlyfjum að bráð 10
HUGO Chavez, forseti Venesúela, hefur
neitað að verða við kröfum andstæðinga
sinna um að hann segi af sér og efni til for-
setakosninga í byrjun næsta árs til að binda
enda á allsherjarverkfall sem staðið hefur í
sextán daga. Forsetinn sagði í viðtali, sem
birt var í spænsku dagblaði í gær, að hann
hygðist gegna embættinu að minnsta kosti
þar til í ágúst á næsta ári þegar efnt verður
til þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort hann
eigi að segja af sér.
Olíuútflutningur Venesúela hefur stöðv-
ast og tekjutapið vegna þess nemur and-
virði 4,2 milljarða króna á dag. Venesúela er
fimmti mesti olíuútflytjandi heims og verk-
fallið hefur orðið til þess að heimsmarkaðs-
verðið á olíu hefur hækkað um rúm 4%.
Chavez neit-
ar að flýta
kosningum
GEORGE W. Bush Bandaríkjaforseti skýrði
frá því í gær að hann hefði fyrirskipað hernum
að hefjast handa við að koma upp gagnflauga-
kerfi til að verjast hugsanlegum eldflaugaárás-
um á Bandaríkin. Gert er ráð fyrir því að
fyrstu gagnflaugarnar verði teknar í notkun ár-
ið 2004. Stjórn Bush hefur ennfremur óskað
eftir afnotum af ratsjárstöðvum í Thule á
Grænlandi og í Bretlandi.
Bush lofaði að koma upp slíku gagnflauga-
kerfi áður en hann var kjörinn forseti og
Bandaríkjastjórn rifti í sumar ABM-samningn-
um við Rússa sem takmarkaði eldflaugavarnir.
Bandarískir embættismenn sögðu í gær að
stjórn Bush stefndi að því að tíu gagnflaugar
yrðu teknar í notkun í Fort Greely í Alaska ár-
ið 2004 og tíu gagnflaugar til viðbótar á ár-
unum 2005–2006.
Bandaríkjaher hefur gert átta tilraunir til að
skjóta niður eldflaugar með gagnflaugum frá
1999 og þrjár þeirra heppnuðust. Bandaríkja-
menn hafa einnig smíðað og prófað nema til að
leita að eldflaugum og byrjuðu í sumar að
byggja sex neðanjarðarbyrgi fyrir gagnflaugar
í Fort Greely í Alaska.
Danska stjórnin styður áformin
Bandaríkjastjórn hefur sent dönsku stjórn-
inni beiðni um að fá að nota ratsjárstöð í Thule
á Grænlandi til eldflaugavarna, að sögn Anders
Fogh Rasmussens, forsætisráðherra Danmerk-
ur.
„Við þurfum að kynna okkur þetta vandlega
áður en við svörum beiðninni,“ sagði forsætis-
ráðherrann og bætti við að stjórnin myndi hafa
samráð við grænlensku landstjórnina. Danir
fara með öryggis- og varnarmál Grænlands en
Grænlendingar vilja aukið forræði í þessum
málum.
Danska stjórnin og meirihluti þingsins styðja
áformin um eldflaugavarnakerfið. Per Stig
Møller, utanríkisráðherra Danmerkur, sagði að
beiðninni yrði svarað í vor.
Bandaríkjastjórn hefur einnig óskað eftir því
að fá að nota ratsjárstöð breska flughersins í
Fylingdales í Norður-Englandi en breska
stjórnin hefur ekki ákveðið hvort verða eigi við
beiðninni.
Bush hleypir eldflauga-
vörnum af stokkunum
Washington, Kaupmannahöfn. AP.
Óskað eftir afnotum af
ratsjárstöðvum á Græn-
landi og í Bretlandi
FISKAFLINN á fyrstu 11 mánuðum
ársins var kominn yfir tvær millj-
ónir tonna og stefnir í að árið sem
nú er að líða verði eitt mesta aflaár
sem um getur.
Heildarafli íslenskra skipa á
tímabilinu janúar til nóvember var
orðinn um 2.028.000 tonn sem er um
7% meiri afli en á sama tímabili í
fyrra. Þar af hafa veiðst 1.036.000
tonn af loðnu sem er 14% aukning
frá sama tímabili síðasta árs. Þorsk-
afli á tímabilinu hefur hinsvegar
dregist saman um rúm 12%, var
rúm 188 þúsund tonn.
Árið 2001 veiddust samtals um
1.986.000 tonn. Þá var fiskaflinn í desembermánuði tæp 92 þúsund tonn,
þar af var loðnuaflinn um 16 þúsund tonn. Loðnuveiðar hafa gengið
ágætlega nú í desember, þegar hafa veiðst um 20 þúsund tonn og ef
fram heldur sem horfir má ætla að árið verði eitt mesta aflaár sögunnar.
Í desember á síðasta ári veiddust um 11 þúsund tonn af kolmunna en kol-
munnakvótinn fyrir árið 2002 kláraðist í nóvember. Þá hafa síldveiðar
gengið afar treglega í desember en síldarafli desembermánaðar í fyrra
var um 28 þúsund tonn. Fiskaflinn hefur tvisvar sinnum áður farið yfir
tvær milljónir tonna, árið 1996 þegar aflinn varð 2.055.000 tonn og árið
1999 þegar aflinn varð 2,2 milljónir tonna og hefur aldrei orðið meiri.
!
!
"
Fiskafli í nóvember minnkar/15
Fiskafli yfir tvær
milljónir tonna
Yfir 100.000
Svíar skráð-
ir leynilega
KOMIÐ hefur í ljós að sænsk yfirvöld
stunduðu umfangsmikla skráningu á
kommúnistum þegar kalda stríðið
stóð sem hæst, að sögn sænska dag-
blaðsins Dagens Nyheter í gær. Blað-
ið segir að yfir 100.000 Svíar hafi verið
skráðir leynilega á sjöunda áratug
aldarinnar sem leið.
Dómsmálaráðherra Svíþjóðar,
Thomas Bodström, fékk í gær skýrslu
frá leyniþjónustunefnd stjórnarinnar
þar sem hún kemst að þeirri niður-
stöðu að öryggislögreglan hafi oft
brotið bann við slíkri skoðanaskrán-
ingu. Nefndin telur að enn sé veruleg
hætta á því að bannið sé brotið.
VERKEFNIÐ „Destination Vik-
ing – Sagas and Storytelling“ fékk
nýverið 50 milljóna króna styrk frá
Evrópusambandinu. Um er að
ræða samstarf átján „víkingaverk-
efna“ frá sex löndum: Íslandi,
Grænlandi, Færeyjum, Noregi,
Skotlandi og Svíþjóð, og grunnur
þess er Íslendingasögurnar.
Þá hefur ferðaþjónustan á eynni
Mön og í Leifsbúðum (L’Anse aux
Meadows) á Nýfundnalandi óskað
eftir að fá að taka þátt í verkefninu
á eigin kostnað. Þetta er stærsti
styrkurinn sem Evrópusambandið
hefur veitt til slíks verkefnis hér á
landi, en heildarkostnaður þess
verður um 85 milljónir. Íslending-
ar munu leiða verkefnið.
„Styrkurinn á vafalítið eftir að
efla menningartengda ferðaþjón-
ustu hér á landi til muna og gera
hana sýnilegri og draga um leið
fram gildi Íslendingasagnanna fyr-
ir okkur,“ segir Rögnvaldur Guð-
mundsson verkefnisstjóri.
ESB-styrkur til menn-
ingarferðaþjónustu
Víkingaverkefni/24
ANDSTÆÐINGAR Hugo Chavez, forseta
Venesúela, halda á Chavez-grímum með
asnaeyru á mótmælafundi í miðborg
Caracas, höfuðborgar landsins, þar sem
krafist var afsagnar forsetans.
AP
Afsagnar krafist
♦ ♦ ♦