Morgunblaðið - 24.12.2002, Qupperneq 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. DESEMBER 2002 9
Óskum viðskiptavinum okkar
og landsmönnum öllum
gleðilegra jóla, árs og friðar
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
s. 557 1730 s. 554 7030
Opið í dag, frá kl. 10-12.
Gleðileg jól!
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið í dag frá kl. 10.00—12.00
Auðbrekku 14, Kópavogi.
Símar 544 5560 og 820 5562,
www.yogastudio.is
Við óskum
viðskiptavinum okkar
gleðilegrar hátíðar
og friðar á komandi ári.
Neðst við Dunhaga, sími 562 2230 Opið í dag kl. 10-12
Óskum ykkur gleðilegra jóla
nær og fjær
Minkapelsar
Ný
sending
Glæsileg jóladress
og jólagjafir í nýjum Glæsibæ
Gleðileg jól
Álfheimum 74, Glæsibæ, Reykjavík, s. 553 2347
sérverslun. Sérhönnun st. 42-56
Fataprýði
ÞAÐ er ekki nema von að logskurð-
urinn gangi þetta líka glimrandi vel
hjá þeim í Stálsmiðjunni, eins og
veðrið hefur verið. Öll útiverk hafa
unnist eins og best lætur um há-
sumar. Það er þó vissara að standa
klár á því að það er jólafríið sem er
að hefjast, en ekki sumarfríið, ef
einhver skyldi ruglast í ríminu í
sumarblíðunni í skammdeginu.
Morgunblaðið/Golli
Bátaviðgerð í blíðunni
ÁRLEGUR kostnaður vegna um-
ferðarslysa samkvæmt opinberum
tölum er ca. 20 milljarðar á ári eða
álíka upphæð og kostaði að reka
Landspítala–háskólasjúkrahús á
árinu 2001. Þetta var á meðal þess
sem fram kom í erindi Jóns Sigurðs-
sonar svæfingalæknis á jólafundi
læknaráðs Landspítala–háskóla-
sjúkrahúss sem haldinn var fyrir
helgina. Yfirskrift fundarins var
Liggur þér lífið á.
Í erindi sínu fjallaði Jón á almenn-
um nótum um slys í umferðinni, tíðni
þeirra eftir löndum og hlutfall
mænuskaddaðra í umferðinni en Jón
skaddaðist sjálfur alvarlega á mænu
í umferðarslysi fyrir fjórum árum.
Fram kom í máli hans að 85%
slysa sem verða á ári hverju eru í
umferðinni. Af þeim sem skaddast á
mænu má rekja hátt í 60% tilvika til
umferðarslysa en um 80 manns eru
mænuskaddaðir hér á landi. Jón
benti á að stærstur hópur þeirra sem
slasast í umferðinni væri ungt fólk á
aldrinum 20–29 ára. Af þeim sem
hlytu mænuskaða væru 75% karl-
menn. Hann minnti á að til að draga
úr hættu á umferðarslysum væri
ekki nóg að huga að öryggisbúnaði
bílsins heldur þyrftu ökumenn að
draga úr hraðanum. „Það sem af er
þessu ári hafa 29 látist í umferðinni.
Þeir voru það líka í morgun þegar ég
hlustaði á fréttir og við skulum vona
að þeir verði ekki fleiri,“ sagði Jón.
Kostnaður vegna um-
ferðarslysa færður í tal
á fundi læknaráðs LSH
Álíka mikill
og rekstrar-
kostnaður
LSH 2001
BANKASTJÓRN Seðlabankans
fundaði á föstudag með forystu-
mönnum Alþýðusambands Íslands,
ASÍ, um vaxtamál en ASÍ hafði farið
fram á þennan fund vegna lítilla við-
bragða viðskiptabankanna við lækk-
un stýrivaxta Seðlabankans. Að
fundi loknum var það samdóma álit
beggja aðila að viðskiptabankarnir
hefðu frekara svigrúm til að lækka
verðtryggða vexti. Lýstu menn yfir
ánægju með að Búnaðarbankinn
hefði gripið til slíkrar lækkunar og
sparisjóðirnir sýnt sömu viðleitni.
Birgir Ísleifur Gunnarsson seðla-
bankastjóri sagði fundinn hafa verið
gagnlegan. Ýmsum gögnum og upp-
lýsingum hefði verið komið á fram-
færi við forystumenn ASÍ, m.a. að al-
mennt væri vitað að óverðtryggðir
vextir tækju hraðari breytingum en
hinir verðtryggðu. Þetta væri ein
skýringin á því að langtímavextir
lækkuðu ekki jafn hratt og skamm-
tímavextir.
„Í þeim gögnum sem við lögðum
fyrir fundinn kemur fram að enn sé
svigrúm til að lækka verðtryggðu
vextina. Búnaðarbankinn hreyfði sig
um þrjátíu punkta í dag [föstudag],
sem ég er mjög ánægður með, en
sparisjóðirnir hefðu kannski mátt
stíga stærri skref en þeir lækkuðu
vextina um fimm punkta. Ég hef
ekki fregnað hvað aðrir bankar
gerðu,“ sagði Birgir Ísleifur.
Hann sagði seðlabankastjórnina
einnig hafa komið því á framfæri við
forystumenn ASÍ að þeir gætu haft
áhrif á að lækka markaðsvexti á
skuldabréfamarkaðnum. „Þar hafa
þeir tök í gegnum lífeyrissjóðina um
að sjóðirnir auki kaup á íslenskum
skuldabréfum, til dæmis húsbréfum,
enda ekki í kot vísað,“ sagði Birgir
Ísleifur.
Skoðanir svipaðar
Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ,
segir að fundurinn í Seðlabankanum
hefði verið sérlega ánægjulegur og
gagnlegur. Fyrir hafi legið að skoð-
anir ASÍ og bankans væru á svip-
uðum slóðum gagnvart viðbrögðum
viðskiptabanka í lækkun verð-
tryggðra vaxta á langtímalánum.
Það sé samdóma álit að umtalsvert
svigrúm sé til lækkunar verð-
tryggðra vaxta.
„Þarna erum við að tala um vaxta-
kjör sem skipta mestu máli fyrir
heimilin og fyrirtækin í landinu. Um
er að ræða stærstu skuldbindingarn-
ar í upphæðum talið og lengstu lánin
þannig að allra hluta vegna er mjög
brýnt og eðlilegt að bankarnir
bregðist hratt og vel við lækkunum
stýrivaxta Seðlabankans. Þetta er
ekki síður mikilvægt vegna aukins
atvinnuleysis í landinu,“ sagði Grét-
ar. Hann taldi líklegt að á næstunni
yrði farið fram á viðræður við við-
skiptabankana um vaxtamálin ef
þeir myndu ekki bregðast frekar við.
Bankastjórn Seðlabankans fundaði
með forystumönnum ASÍ
Samdóma álit að
meira svigrúm sé
til vaxtalækkana
HÉRAÐSDÓMUR Vestfjarða hefur
dæmt fertugan karlmann í árs fang-
elsi fyrir að nýta sér þroskahömlun
konu til að hafa við hana samræði
sem hún gat ekki spornað við sökum
andlegra annmarka sinna.
Konan kærði málið til lögreglu en
sagðist hún þekkja hinn ákærða
mjög vel og hafa heimsótt hann öðru
hverju til að sjá börnin hans.
Þegar maðurinn hafi komið á
heimili hennar hafi lagt af honum
áfengislykt og hún verið hrædd við
að sporna við kynferðislegum til-
burðum hans. Hann hafi síðan haft
við hana samræði gegn vilja hennar
en hún kvaðst til þess dags ekki hafa
átt samræði við nokkurn mann.
Reikull og tvísaga
Við fyrstu yfirheyrslu neitaði mað-
urinn alfarið að hafa haft við hana
samræði og kvaðst aldrei hafa komið
inn í íbúð hennar en dró þennan
framburð til baka daginn eftir. Sagði
hann lögreglu þá að konan hefði
komið honum til kynferðislega og
hann síðan átt samræði við hana en
það hafi verið með hennar vilja og
hann ekki notfært sér þroskahömlun
hennar. Taldi dómurinn að fram-
burðurinn nyti ekki stuðnings í
gögnum málsins. Tveir vinir manns-
ins höfðu þó borið að konan hefði
margsinnis sóst eftir kynlífi með
þeim og verið tíðrætt um kynferð-
ismál en dómurinn tók lítið mark á
framburði þeirra, sagði þá hafa ým-
ist verið tvísaga eða reikula í fram-
burði. „Þykir vitnisburður þeirra að
þessu leyti ótrúverðugur og ber
hann þess glögg merki að vera gef-
inn af hreinu skeytingarleysi og/eða
til að fegra hlut ákærða og sverta
mannorð [konunnar] að sama skapi,“
segir í dómnum. Önnur gögn voru
talin hnekkja þessum framburði þ.á
m. frásögn þriggja kvenna sem
höfðu kynnst konunni við störf sín
hjá svæðisskrifstofu fatlaðra en þær
báru allar að ástundun kynlífs væri
henni þvert um geð.
Skýr og greinargóð
Héraðsdómur taldi að konan hefði
verið staðföst í vitnisburði sínum,
frásögn hennar skýr og greinargóð
þrátt fyrir þroskahömlun hennar.
Þótti ekki varhugavert að leggja
hann til grundvallar, enda framburð-
ur mannsins ótrúverðugur að sama
skapi. Það var ennfremur álit dóms-
ins að engum meðalgreindum manni
gæti blandast hugur um að hún væri
greindarskert en maðurinn hafði
þekkt konuna um nokkurt skeið áður
en þetta mál kom upp. Því væri hafið
yfir skynsamlegan vafa að maðurinn
hefði notfært sér andlega annmarka
konunnar til að koma fram vilja sín-
um. Í dómnum segir að konan hafi
talið manninn vera vin sinn og í
barnslegri einfeldni sinni bundið við
hann traust. Þetta traust hafi hann
haft að engu og komið fram við hana
á niðurlægjandi hátt og engu skeytt
þótt hún hafi af veikum mætti reynt
að ýta honum frá sér. Maðurinn ætti
sér engar málsbætur og ekki kæmi
til greina að skilorðsbinda refs-
inguna að neinu leyti. Hann var einn-
ig dæmdur til að greiða konunni
300.000 kr. miskabætur en fram kom
fyrir dómi að atferli konunnar hefði
breyst og hún verið hrædd við að
fara út meðal fólks.
Einn vildi þyngri refsingu
Dómurinn var kveðinn upp af Er-
lingi Sigtryggssyni sem dómsfor-
manni og héraðsdómurunum Ingv-
eldi Einarsdóttur og Jónasi
Jóhannssyni. Jónas tók fram að
hann teldi refsingu mannsins hæfi-
lega 18 mánaða fangelsi, miðað við
sakarferil mannsins og hversu alvar-
legt brotið var en frá 1978 hefur
maðurinn sex sinnum verið dæmdur
fyrir ýmis afbrot og hlotið samtals
fimm ára fangelsi.
Arnar Geir Hinriksson hdl. var
réttargæslumaður konunnar en
Björn Jóhannesson hdl. var mann-
inum til varnar. Sigríður Friðjóns-
dóttir saksóknari, sótti málið.
Dæmdur fyrir að nýta
sér þroskahömlun konu
Framburður vina
hins ákærða tal-
inn ótrúverðugur