Morgunblaðið - 24.12.2002, Side 64
FÓLK Í FRÉTTUM
64 ÞRIÐJUDAGUR 24. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
JOHN J. Soul sem notar listamans-
nafnið JJ Soul er mörgum að góðu
kunnur hér á landi sem tónlistarmað-
ur, en nokkuð er reyndar liðið síðan
heyrðist frá honum á plasti, síðasta
plata, „City Life“, kom út fyrir fimm
árum, en þess má geta að JJ Soul lék
með hljómsveit sinni á djasshátíðinni
á Egilsstöðum í sumar og einhverjum
tónleikum í kringum það.
Þessi nýja skífa JJ Soul Band, eins
og hljómsveitin er kölluð sem þeir
reka saman JJ Soul og Ingvi Þór Kor-
máksson, hefur verið í smíðum síðan
þarsíðasta sumar,
en þá var obbi lag-
anna tekinn upp og
fleirum síðan bætt
við í sumar. Þetta er
þriðja skífa sveitar-
innar, áður eru
komnar „Hungry For News“ fyrir
átta árum og „City Life“ sem áður er
getið og kom út 1997.
JJ Soul er með sérstaka rödd,
tomwaits-lega ráma og hráa sem
hann nýtir til að mynda vel í „Reach
for the Sky“, „Better“ og „Love is
Blind“, en hann getur líka sungið
mýkra eins og heyra má í laginu „The
Times We’re Living In“, sem er eitt
besta lag skífunnar, með skemmti-
lega mjúkri sveiflu, og í „Monlight -
Moonbright“.
Eðvard Lárusson gítarleikari stýr-
ir upptökum á skífunni og annast út-
setningar með hljómsveitinni. Út-
setningar eru nokkuð fjölbreyttari en
á síðustu skífu JJ Soul Band, sérstak-
lega finnst manni margt nýstárlegt
krauma undir, ekki síst í upphafslagi
skífunnar, „Reach for the Sky“ sem
skreytt er með skrámi DJ Intro sem
kemur vel út. Takturinn í því lagi er
líka létt fönkaður og skemmtilegur.
Annars spanna lögin allt frá djass-
skotnu poppi í „Monlight - Moon-
bright“ og „Angelique“, í stökk-
breytta suðræna sveiflu í „Cool
Tonight“, sem er eitt besta lag skíf-
unnar með frábærlega smekklegu
rafpíanóspili Davíðs Þórs Jónssonar.
Hann fer aftur á móti eilítið yfir strik-
ið á Hammondinn í næsta lagi „Can’t
Wait a Lifetime“ en er afbragðsgóður
í „Love is Blind“.
„Reach for the Sky“ er hin besta
skemmtun, söngur JJ Soul viðkunn-
anlegur og hlýr og tónlistin blús- og
djassskotin rólyndisleg sveifla vel
skreytt með sterkum hljóðfæraleik
þeirra Eðvards og Davíðs. Þegar við
bætist að lögin eru vel samin og text-
arnir yfirleitt góðir ætti þessi skífa að
höfða til allra þeirra sem hafa gaman
af vel pældri og fágaðri tónlist. Um-
slagið er ágætt, en nokkuð af staf-
setningarvillum í textum.
Viðkunnan-
leg og hlý
JJ Soul Band
Reach for the Sky
Hrynjandi
Reach for the Sky með JJ Soul Band sem
dregur nafn sitt af söngvaranum John J.
Soul.
Árni Matthíasson
VIVID Brain byrjar diskinn mjög
vel, textinn mergjaður og undirleik-
ur í góðum takti við innihald hans;
fléttuð saman minni úr ýmsum átt-
um, frá ýmsum menningaskeiðum af
mikill íþrótt – ógnvekjandi og dul-
úðugur vefur. Frá-
bærlega góður og
margslunginn
texti.
Þeir Kritikal
Mazz-félagar eiga
tvö lög á á diskin-
um, eitt í samvinnu við Celestial
Souljahz, þá Freestyle og Shabazz
the Disciple, Half Man Half Mic,
sem er býsna gott, undirspil
skemmtilega magnað, mjög þéttur
drungalegur hljómagrunnur og rím-
urnar í góðu lagi. Mikið líf er í þeim
Freestyle og Shabazz the Disciple
sem hrífur Kritikal Mazz félaga
greinilega með og þannig er framlag
Cyphers mjög gott.
Seinna lagið Kritikal Mazz á plöt-
unni, Handz Off, er aftur á móti
síðra, rímurnar ekki eins sterkar og
ekki fluttar af sömu íþrótt og und-
irspilið ekki eins fjölbreytt. Upp-
hafs- og eftirspil að því lagi verður
líka leiðigjarnt til lengdar.
Antlew og Maximum eiga einnig
tvö lög á disknum, hvort öðru betra.
Sérstaklega er fyrra lagið skemmti-
legt, rímur góðar, lagið líflegt og
skankið í lokin gefur góða stemn-
ingu. Gaman hefði ferið að fá að vita
hver á bakraddir í seinna laginu, en í
því er hljóðfæraleikur líka mjög
skemmtilegur, hvort sem hann er
lifandi að einhverju leyti eða fenginn
úr hljóðsmala.
Andspyrna á líka gott lag, Celest-
ial Fingerprints, þar sem kallast á
ensk ríma og íslensk, sú enska vel
flutt en sú íslenska enn betur, kveð-
ið af mikilli tilfinningu. Mindtrap,
sem er helmingur Andspyrnu að því
ég fæ best séð, er síðan með ágæta
rímnalausa stemmu á eftir, hitar
upp fyrir þá Forgotten Lores-félaga
sem fara hreinlega á kostum í laginu
Munið þetta.
Mindtrap og MAT eiga saman eitt
rímnalaust lag með skemmtilegum
takti og bassagangi og fyrirtaks
hugmyndaríku skanki en það er ein-
mitt undanfari annars Forgotten
Lores lags, Raiders of the Lost Art.
Það er líka gott, flutt á ensku. Þar
eru rímurnar góðar en flutningur
ekki eins lifandi og Munið þetta,
flæðið ekki eins letilega svalt enda
eru mönnum mislagðar hendur í
framburði. Útsetningin er aftur á
móti mjög góð.
Mezzías MC á eitt lag á diskinum,
Leitin, sem er geysigott, það besta
sem ég hef heyrt með Mezzíasi og er
þá miklu til jafnað. Rímurnar eru
góðar, viðfangsefnið veigamikið og
útsetningin hreint afbragð.
Dizorder – Óreiða í Reykjavík er
mjög skemmtilegur diskur og fróð-
legur, sýnir nýja og alþjóðlega hlið á
íslensku hiphopi. Ef eitthvað er út á
þennan disk að setja þá er það að
ekki séu fyllri upplýsingar um flytj-
endur, til að mynda nöfn þeirra, en
ekki bara gælu- eða listamannsnöfn.
Umslag plötunnar er annars af-
bragð og umbúðir allar reyndar.
Kraftmikið
og kjarn-
gott
Ýmsir
Dizorder – Óreiða í Reykjavík
Dizorder
Dizorder – Óreiða í Reykjavík, safndiskur
með ýmsum flytjendum. Á diskinum
koma fram Vivid Brain, Kritikal Mazz,
Celestial Souljahz, Antlew og Maximum,
Andspyrna, Mindtrap, Forgotten Lores,
MAT og Mezzías MC. Dizorder gefur út.
Árni Matthíasson
ÞAÐ er mjög sérstakt fyrirbæri þeg-
ar uppdiktaðar persónur fara að lifa
sjálfstæðu lífi. Þetta er auðvitað til
vitnis um að höfundum og leikurum
hefur tekist vel upp. Kaffibrúsakarl-
arnir eru gott dæmi um slíkt. Kar-
akterarnir hafa lifað í minni þjóðar-
innar í þrjá áratugi, þó að þeir hafi
hvorki sést í sjónvarpi né á sviði í
næstum heilan mannsaldur. Þetta er
nokkuð sérstakt sé tekið tillit til þess
hve upphaflegur ferill þeirra kump-
ána var stuttur. Þeir komu fyrst
fram í sjónvarpi veturinn 1972–73 en
næstu tvö árin geystust þeir um
landið þvert og endilangt til að
skemmta aðdáendum sínum.
Nú, þegar þrjátíu ár eru liðin frá
því að félagarnir komu fyrst fram á
sjónarsviðið hafa
þeir verið særðir
upp úr gröfum sín-
um og hafa síðan
gengið ljósum log-
um aftur í elstu
samkomuhúsum
borgarinnar, fyrst í Gamla bíói en
síðan hafa þeir löngum sést í Iðnó,
helst í hádeginu á föstudögum, og í
einstaka skipti úti á landsbyggðinni.
Að vísu eru þeir núna komnir í jólafrí
– svona til að hliðra til fyrir hefð-
bundnari jólasveinum – en mæta
tvíefldir aftur við Tjarnarbakkann í
janúar. Það má nefna að aðrir
skemmtikraftar sem hófu ferilinn í
ríkisreknum ljósvakamiðlum á svip-
uðum tíma eru líka áberandi í þjóðlíf-
inu nú um stundir; þannig hafa Halli
og Laddi gert það gott í Loftkast-
alanum undanfarið en Matthildingar
skemmta þjóðinni á annan hátt á
öðrum vettvangi. Gísli Rúnar Jóns-
son og Júlíus Brjánsson, mennirnir á
bak við þessa óborganlegu karla,
héldu upp á 30 ára leikafmæli sitt
mánaðamótin maí–júní sl. Upptaka
frá þessari skemmtun þeirra hefur
nú verið gefin út á geisladiski. Gömlu
góðu brandararnir eiga sinn sess í
dagskránni, enda hafa þeir lifað með
þjóðinni sem hefur hlustað gagntek-
in á þá af hljómplötu allar götur frá
útgáfudegi árið 1973 en hljóðritun sú
var endurútgefin á geisladiski 1992.
Á nýja geisladisknum eru í bland við
eldra efni nýir brandarar sem stund-
um beinast að þekktum stjórnmála-
mönnum eða almennt neðan þindar.
Þetta er svolítið á skjön við gamla
stílinn þar sem Kaffibrúsakarlarnir
sögðu sögur af sjálfum sér, konum
sínum og kunningjum. Húmorinn
einkennist af algjörum andstæðum;
hvernig þessir sauðmeinlausu hvers-
dagsmenn lenda æ ofan í æ í fárán-
legustu aðstæðum og reynast luma á
hugsunarhætti sem er svo út í hött
að leitun yrði að öðru eins. Það er
ótrúlegt hvað Gísli Rúnar og Júlíus
eiga auðvelt með að taka upp þráð-
inn aftur eins og ekkert hefði í skor-
ist í millitíðinni sem er lýsandi fyrir
hve rækilega karakterar Kaffibrúsa-
karlanna voru mótaðir í upphafi.
Það undarlegasta við þetta allt
saman er að eftir því sem árin færast
yfir Júlíus og Gísla Rúnar er eins og
þessar persónur hafi elt þá uppi.
Karlarnir hafa ekki alveg náð yf-
irhöndinni ennþá en það stefnir í
það. Það fréttist einu sinni frá Ítalíu
að þar væru persónur að leita höf-
undar en það mun vera fáheyrt að
persónur sem einu sinni fundu sér
skjól hjá sprækum leiklistarnemum
leiti þá aftur uppi þrjátíu árum síðar
og komist að því að þeir hafi hvað út-
litið varðar a.m..k. færst hægt en
örugglega í átt til gervisins sem þeir
sköpuðu persónunum forðum daga.
Eins og í viðsnúningi á Myndinni af
Dorian Gray eftir Oscar Wilde er út-
lit sköpunarverks þeirra óbreytt en
þeir líkjast því æ meir. Það er að
vona að hin undarlega lyndiseinkunn
þessara „aulalegu – en bráðfyndnu –
almúgamanna“, eins og Guðni Ein-
arsson lýsti Kaffibrúsakörlunum í
viðtali fyrr á árinu hér í blaðinu, fylgi
ekki með í kaupbæti.
Tónlist
Kaffibrúsakarlarnir
Kaffibrúsakarlarnir snúa aftur
Skífan
Gísli Rúnar Jónsson og Júlíus Brjánsson
fara með gamanmál í Gamla bíói 31.
maí og 1. júní 2002 í tilefni 30 ára leikaf-
mælis þeirra beggja. Edda Björgvins-
dóttir miðlar málum. Hljóðupptaka og
eftirvinnsla: Hafþór Karlsson.
Sveinn Haraldsson
Persónur
elta uppi
leikara
Óskum viðskiptavinum
og velunnurum
gleðilegra jóla
og farsæls nýs árs.
Þökkum liðið
Starfsfólk og eigendur
Restaurant
Pizzeria
Gallerí - Café
Hafnarstræti 15, sími 551 3340
Sérstök jólasýning!
29. des. kl. 14. örfá sæti laus
5. jan. kl. 14 laus sæti
12. jan. kl. 14. laus sæti
19. jan. kl. 14. laus sæti
Grettissaga
saga Grettis
leikrit eftir Hilmar Jónsson byggt
á Grettissögu
sun 29. des kl. 20,
HÁTÍÐARSÝNING, nokkur sæti
föst 10. jan, kl 20, laus sæti
lau 18. jan, kl 20.
Miðasala í síma 555 2222 0g á www.hhh.is og midavefur.is
Miðasala er opinn alla virka daga frá 15.00 til 19.00.
Nánari upplýsingar um Grettissögu og máltíð á Fjörukránni
fyrir sýningu á www.hhh.is
Stóra svið
SÖNGLEIKURINN SÓL & MÁNI
eftir Sálina og Karl Ágúst Úlfsson
Frumsýning lau 11/1kl. 20 UPPSELT
2. sýn su 12/1 kl 20 gul kort, UPPSELT
3. sýn fö 17/1 kl. 20 rauð kort 4.sýn lau 18/1 græn kort
SÖLUMAÐUR DEYR e. Arthur Miller
Lau 28/12 kl 20, Su 29/12 kl. 20
Sýningum fer fækkandi
HONK! LJÓTI ANDARUNGINN
e. George Stiles og Anthony Drewe
Gamansöngleikur fyrir alla fjölskylduna
Su 29/12 kl 14, Su 12/1 kl 14,
Nýja svið
Þriðja hæðin
Litla svið
Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga.
Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is
Miðasala: 568 8000
HERPINGUR e. Auði Haralds og
HINN FULLKOMNI MAÐUR e.Mikael Torfason
í samstarfi við DRAUMASMIÐJUNA
Lau 28/12 kl 20, Fö 10/1 kl 20
Síðustu sýningar
RÓMEÓ OG JÚLÍA e. Shakespeare
í samstarfi við VESTURPORT
Má 30/12 kl 20, UPPSELT,
Fö 3/1 kl. 20
SÓL & MÁNI eftir Sálina hans Jóns míns og Karl Ágúst Úlfsson
FORSALA AÐGÖNGUMIÐA STENDUR YFIR - GJAFAKORT Á TILBOÐSVERÐI TIL JÓLA
MIÐASALAN ER OPIN FRÁ 10:00 TIL 12:00 Í DAG
JÓN OG HÓLMFRÍÐUR e. Gabor Rassov
frekar erótískt leikrit í þrem þáttum
Su 29/12 kl 20, Fö 3/1 kl. 20
GJAFAKORT Í LEIKHÚSIÐ - FRÁBÆR JÓLAGJÖF
JÓLAGAMAN BORGARLEIKHÚSSINS
Jólasveinakvæði Jóhannesar úr Kötlum í leikbúningi ofl.
Su 5/1 kl 14 og 15 - Kr 500
e. neil labute
EGG-leikhúsið sýnir
Í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi
28.12.02 Frumsýning - uppselt
29.12.02 Frumsýning
Næstu sýningar 4. og 5. janúar.
Aðeins 10 sýningar.
Ath! sýningar hefjast kl. 16:00
Miðasala í Hafnarhúsi
alla daga kl. 11-18. S: 590 1200