Morgunblaðið - 27.12.2002, Síða 1

Morgunblaðið - 27.12.2002, Síða 1
STOFNAÐ 1913 302. TBL. 90. ÁRG. FÖSTUDAGUR 27. DESEMBER 2002 mbl.is Striplast á fjölunum Leikdómur um Með fullri reisn í Þjóðleikhúsinu Listir 17 Falin undur í hrauninu Einstæðar hraunmyndanir í nýuppgötvuðum hraunhelli 20 KIRKJUSÓKN um jólin var mjög góð í Reykjavík og raunar víða um land að sögn sr. Jóns Dalbú Hróbjartssonar, prófasts í Reykjavíkurprófastsdæmi vestra. Segir hann sóknina jafnvel meiri en undanfarin ár og hafi gott veður alls staðar átt sinn þátt í því, svo og aukin fjölbreytni í hvers konar helgihaldi kirkjunnar um jólahátíðina. Á höfuðborgarsvæðinu voru nokkuð á annað hundrað athafnir í kirkjum og heilbrigðis- stofnunum um hátíðarnar. Sem dæmi um aukna fjölbreytni í helgi- haldi segir sr. Jón Dalbú að víða sé nú boðið upp á samverustund síðdegis á aðfangadag sem henti t.d. barnafjölskyldum. Mikil kirkjusókn ÍSRAELSKI herinn drap að minnsta kosti átta Palestínu- menn, særði 30 og handtók 20 í fyrrinótt og gær er ný átakaalda gekk yfir Vestur- bakkann og Gaza-svæðið, að því er haft var eftir palest- ínskum öryggisfulltrúum. Fjórir ísraelskir hermenn særðust, þar af einn alvar- lega. Yfirmaður palestínsku lög- reglunnar í bænum Nablus á Vesturbakkanum sakaði Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísr- aels, um að hafa tekið upp harkalega stefnu í því augna- miði að krækja í atkvæði í væntanlegum þingkosningum í Ísrael í næsta mánuði. Þegar Sharon hóf kosn- ingabaráttuna á miðvikudags- kvöldið sagði hann að „sigur“ á Palestínumönnum væri nauðsynlegur til þess að hægt væri að ná friðarsamningum við nýja kynslóð palestínskra leiðtoga. Átta Palest- ínumenn drepnir Ramallah. AFP.  Mikið forskot/14 SKÓLABÖRN í borginni Kandahar í Afganistan þáðu skömmu fyrir jól gjafir, liti, litabækur og lítil leikföng, sem bandarísk börn söfnuðu fyrir með því að gefa hvert um sig einn dollara, eða um 85 krónur, til að gleðja jafnaldra sína í Afganistan. Afgönsku börnin voru ánægð með gjafirnar, en það var Rauði kross Bandaríkjanna sem skipulagði verk- efnið. Alþjóða Rauði krossinn og Rauði hálfmáninn í Afganistan hafa séð um framkvæmdina og dreifingu gjafanna. Ætlunin er að koma gjöfum til barna alls staðar í Afganistan. Morgunblaðið/Þorkell Börn í Afganistan fá gjafir að vestan ÞRÓUN mála í Norður-Kóreu er „mjög alvarleg“, að sögn tals- manna Alþjóðakjarnorkumála- stofnunarinnar (IAEA) í gær, og enginn möguleiki á að N-Kóreu- menn hafi friðsamleg not fyrir það plútóníum sem þeir gætu fram- leitt í kjarnorkuvinnslustöð sem þeir hafa nýlega opnað aftur. Vika er síðan N-Kóreumenn hófu að taka niður eftirlitstæki IAEA í landinu og rjúfa innsigli á kjarnorkuvinnuslustöð í Yong- byon, skammt norður af Pyong- yang, en sérfræðingar segja að þar væri hægt að framleiða plút- óníum til vopnagerðar á nokkrum mánuðum. Mohamed ElBaradei, fram- kvæmdastjóri IAEA, sagði í gær að N-Kórea gæti ekki haft nein lögmæt, friðsamleg not fyrir plút- óníum nú. Það væri alvarlegt áhyggjuefni að ráðamenn væru að undirbúa að opna kjarnavinnslu- stöðvar á ný, án nauðsynlegra var- úðarráðstafana, og hefja vinnslu plútóníums. Þetta sýndi að þeir einnig hefðu þeir rofið innsigli á átta þúsund notuðum stöngum í kælitanki þar, en úr þeim sé hægt á nokkrum mánuðum að ná plút- óníum til kjarnaoddagerðar. N-Kóreustjórn hefði „engin not“ fyrir plútóníum í friðsamlegum til- gangi. „Það bendir til þess að þeir kunni að hafa eitthvað í hyggju.“ Mark Gwozdecky, talsmaður IAEA, sagði í gær að stofnunin gæti „ekki fullvissað umheiminn um að það sem framleitt er án okkar eftirlits verði ekki notað í kjarnorkuvopn“. Bætti hann því við að þróun mála í N-Kóreu væri „mjög alvarleg“. Vísbendingar væru um að N-Kóreumenn ætluðu sér að ræsa kjarnaofninn í Yong- byon eftir einn eða tvo mánuði. Bandaríkjamenn og Bretar lýstu í gær áhyggjum af þróun mála og sagði talsmaður Banda- ríkjastjórnar aðgerðir N-Kóreu- manna í Yongbyon benda til að þeir væru að „auka“ brot sín á þeim loforðum sem þeir hefðu gef- ið á alþjóðavettvangi. væru vísvitandi að „tefla á tæp- asta vað í kjarnorkumálum“. ElBaradei greindi frá því að N-Kóreumenn hefðu flutt eitt þús- und nýjar kjarnorkueldsneytis- stangir inn í bygginguna sem hýs- ir kjarnaofninn í Yongbyon og Þróunin í N-Kóreu „mjög alvarleg“ Vín, Washington, London. AFP. Reuters ElBaradei ræðir við fréttamenn. GÓÐUR árangur hefur verið af jarðhitaleit víða á landinu á árinu á vegum orkufyrir- tækja og sveitarfélaga. Óvæntar orkulindir hafa komið í ljós, ekki síst á þeim landsvæð- um sem skilgreind hafa verið sem „köld“. Meðal þessara staða eru Hjalteyri við Eyjafjörð og Eskifjörður, en þar standa hitaveituframkvæmdir fyrir dyrum. Stóru orkufyrirtækin, eins og Orkuveita Reykja- víkur og Hitaveita Suðurnesja, hafa staðið fyrir umtalsverðum tilraunaborunum, m.a. vegna fyrirhugaðra stóriðjuframkvæmda. Guðmundur Þóroddsson, forstjóri OR, segir að árangur tilraunaborana á Hellisheiði á árinu styrki fyrirtækið í þeirri trú að þar geti risið góð virkjun. Þá hefur félagið Þeistareykir ehf. fundið öflugt háhitasvæði við Þeistareykjabungu í S-Þingeyjarsýslu. Góður árangur af jarðhitaleit  Óvæntar/6 SELUR vakti athygli göngumanna inn- arlega í Fossvogi í gær. Hafði hann skriðið upp úr fjöruborðinu og virtist hálfgerður strandaglópur. Komst hann hvorki lönd né strönd eða kunni bara svona vel við sig á þurru landi og vildi hvergi fara. Vegfar- endur reyndu að leiðbeina honum til eðli- legra heimkynna eftir að hafa skoðað hann í krók og kring enda ekki á hverjum degi sem selir gera sig heimakomna á göngu- stígum höfuðborgarsvæðisins. Morgunblaðið/Þorkell Selur í landkönnun ♦ ♦ ♦ Áramótakjólar og sparigreiðslur Kjólar og samkvæmishárgreiðslur fyrir áramótadansleikina Daglegt líf 26

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.