Morgunblaðið - 03.01.2003, Síða 1
F Ö S T U D A G U R 3 . J A N Ú A R 2 0 0 3 B L A Ð B
MÆÐGURNAR ELLEN OG SIGRÍÐUR/2 DAGBÓK UM ÞAÐ HELSTA/3
AÐ STÍGA Á STOKK OG STRENGJA HEIT/4 HEIM Í ALVÖRU
FRELSI/5 HREYFIHÖMLUN/6 AUÐLESIÐ EFNI/8
SJÁLFSAGT hafa margir klætt sig í sitt fín-asta púss um nýafstaðin áramót og skund-að á galakvöld og aðrar hátíðarsamkomur
til að fagna nýju ári. Tími glæsiklæðnaðar er þó
rétt að byrja því framundan eru árshátíðir og
fagnaðir ýmis konar þar sem öllu er til tjaldað
hvað klæðnað varðar.
Kvöldklæðnaður karla við slík tækifæri er
hefðbundinn, oftast dökk jakkaföt með tilheyr-
andi hálsbindi eða hinn sígildi „smóking“ með
þverslaufu. Nokkur tilbrigði má þó finna við hinn
dæmigerða kvöldklæðnað karla og fer það vita-
skuld eftir tilefninu hverju sinni.
Sævar Karl Ólason kaupmaður og klæð-
skerameistari hefur um árabil fylgst með þróun-
inni í herrafatatískunni og kappkostað að bjóða
upp á vandaðan kvöldklæðnað fyrir karla. Í versl-
un hans í Bankastræti er heldur ekki í kot vísað í
þeim efnum, en þar má meðal annars finna smók-
ingföt frá Armani svo fátt eitt sé nefnt. Að sögn
Sævars Karls eru svo-
kölluð „tvíhneppu-
horn“ í tísku varðandi
smókingfötin, hvort
heldur fötin sjálf eru
einhneppt eða tví-
hneppt. „Þegar ég var
að læra klæðskurð í
kringum 1970 lærði
ég að breyta svona
tvíhneppukrögum,
sem þá þóttu gam-
aldags, í rúnnaða
smókingkraga sem
voru í tísku. Nú eru
hins vegar þessir
hornskörpu kragar
komnir aftur, en hinir
rúnnuðu hafa látið
undan síga. Aðal-
atriðið er þó auðvitað
að fötin passi mönn-
um og fari vel, en mér
finnst alltaf dálítið
sorgleg sjón að sjá
þegar herramenn
hafa troðið sér í
smóking, sem passaði
þeim kannski þegar þeir tóku stúdentspróf, en
gera það ekki lengur,“ sagði Sævar Karl.
Hinn hefðbundni kvöldklæðnaður karla getur
þó boðið upp á ýmis tilbrigði, einkum hvað háls-
tau varðar. Sævar Karl benti á að þverslaufur
mættu gjarnan vera í lit og mælti með grárri
slaufu. „Grái liturinn sameinar svörtu fötin og
hvítu skyrtuna og þetta er ágæt lausn ef menn
vilja aðgreina sig frá þjónunum, sem oft eru í
smóking með svarta slaufu. Eins finnst mér alltaf
fara vel dökk jakkaföt, hvít skyrta og grátt háls-
bindi, en auðvitað geta ýmsir aðrir litir á slauf-
unni komið til greina.“
Sævar Karl sagði að tilefnið hverju sinni ætti
að ráða klæðaburðinum. Í sumum tilvikum henta
smókingfötin ekki þótt veislan sé vegleg. „Í nýár-
sveislu á Perlunni er smóking auðvitað rétti
klæðnaðurinn. Ef þú vilt hins vegar ekki vera al-
veg svo formlegur getur þú klætt þig í smóking
og haft fallegt bindi við. Ef veislan er óformlegri,
þar sem klæðnaður er frjálslegri og ekki krafist
hefðbundins kvöldklæðnaðar, er til dæmis hægt
að klæðast brúnum velúr-fötum, með silkiháls-
klút og skyrtu í stíl. Þannig geta menn verið vel
klæddir og glæsilegir þótt þeir séu ekki í smók-
ing eða dökkum jakkafötum,“ sagði Sævar Karl
Ólason.
Vel klæddir
herrar
Einhnepptur smóking með tvíhneppukraga,
grárri silkislaufu og silkiklút í brjóstvasa.
Brún velúrföt með
silkihálsklút. Dökk jakkaföt og grátt hálsbindi.
Morgunblaðið/Jim Smart
Tvíhnepptur smóking með svartri slaufu.
Vasarnir eru með lóðréttu opi.