Morgunblaðið - 03.01.2003, Síða 1
2003 FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR BLAÐ C
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
SPENNANDI LOKASPRETTUR Á HIGHBURY / C3
EKKERT verður úr því að Auðun Helgason
gangi liðs við sænska úrvalsdeildarliðið Halm-
stad. Auðun var til reynslu hjá liðinu í haust og í
kjölfarið hófust samningaviðræður milli hans
og forráðamanna félagsins. Þeim viðræðum
hefur nú verið slitið eftir því sem fram kemur í
sænska blaðinu Hallandsposten í gær. Blaðið
segir að Halmstad hyggist kaupa sterkan sókn-
armann og hafi þar með ekki ráð á að kaupa
fleiri leikmenn.
„Þetta eru vonbrigði enda taldi ég góðar lík-
ur á að við næðum saman. Það bar hins vegar
mikið á milli og þar sem liðið ætlar víst að
kaupa góðan framherja þá er þetta mál líklega
úr sögunni. Ég held áfram að kanna markaðinn
með mínum umboðsmanni og vonandi verður
okkur ágengt,“ sagði Auðun í samtali við Morg-
unblaðið.
Auðun Helgason
ekki til Halmstad
Ólafur sagði að verðlaunin trufl-uðu hann í rauninni dálítið við
undirbúninginn með íslenska lands-
liðinu sem tekur þátt í HM í Portú-
gal síðar í mánuðinum. „Flestir
íþróttamenn eru það klókir að þeir
nota svona viðurkenningu til að
halda áfram á sömu braut. Verðlaun
geta og eiga að hvetja menn til dáða,
auka sjálfstraustið sem eykur aftur
vellíðan manna í íþróttinni og hjálp-
ar manni að slaka á. Slökun er síðan
góð til að auka einbeitinguna, þannig
að verðlaun eru auðvitað af hinu
góða og þetta sýnir að maður hefur
verið að gera eitthvað af viti á
árinu,“ sagði Ólafur í samtali við
Morgunblaðið eftir að hann hafði
tekið við viðurkenningu sinni.
Hann bætti því við að það væri
augljóst að hann hefði alls ekki getað
gert neitt einn, strákarnir í landslið-
inu ættu sinn hlut í þessu öllu sam-
an. „Ég geri mér grein fyrir því að
það er erfitt að velja einhvern einn
íþróttamann ársins. Það er erfitt að
bera saman íþróttir og erfitt að taka
einhvern einn út úr hópi og velja
hann bestan. Ég hefði viljað taka við
þessu sem íþróttamaður ársins 2003,
þá vissi ég að ég hefði komist á Ól-
ympíuleika eða 2004 því þá vissi ég
að ég hefði gert eitthvað gott á Ól-
ympíuleikunum,“ sagði Ólafur og
bætti við að nú yrðu menn að leggja
sig alla fram og ná þessum mark-
miðum þannig að styttan góða yrði
áfram hjá einhverjum handknatt-
leiksmanni. „Það er kannski erfitt að
meta handboltann á alþjóðlega vísu.
Margir segja að það séu svo fáir sem
stundi hann og annað því um líkt, en
við leggjum jafnmikið á okkur og
aðrir íþróttamenn – og þjóðin hefur
gaman af handbolta og það er mik-
ilvægt fyrir þjóðarsálina eins og for-
setinn kom inn á hér í kvöld.“
Spurður um eftirminnilegasta
augnablikið í handboltanum á liðnu
ári sagði Ólafur: „Þegar við unnum
meistaradeildina, það er það stærsta
sem handboltamaður getur unnið
með félagsliði. Þar streðar maður
allt árið. Einnig verð ég að nefna ár-
angur landsliðsins í Svíþjóð.“
Hann sagðist ekki ætla að fara
með styttuna til Þýskalands, heldur
geyma hana hér heima. „Alfreð fær
ekkert að sjá hana,“ sagði Ólafur en
Alfreð Gíslason, þjálfari Ólafs hjá
Magdeburg, var kjörinn íþróttamað-
ur ársins 1989.
Ólafur viðurkenndi að hann hefði
vitað að hann ætti möguleika. „Það
komu margir til mín og þótti ekkert
sjálfsagðara en að ég yrði fyrir val-
inu. Ég hefði hins vegar ekki dáið þó
ég hefði orðið í öðru sæti á eftir ein-
hverjum betri íþróttamanni, til
dæmis Kristínu Rós. Það er alltaf
erfitt að meta þetta, hver hefur unn-
ið mesta og besta sigra á sjálfum
sér? Þetta er nefnilega fyrst og síð-
ast keppni mannsins við sjálfan sig
og það sem sést í blöðum og sjón-
varpi er auðvitað bara pínulítið brot
af því sem íþróttamaðurinn fæst við
á ferli sínum – bara smábrotabrot.“
Ólafur Stefánsson handknattleiksmaður íþróttamaður ársins 2002
Verðlaun
eiga að
hvetja
menn
„VERÐLAUN eru alltaf dálítið hættuleg,“ sagði Ólafur Stefánsson,
handknattleiksmaður hjá Magdeburg í Þýskalandi, eftir að hann tók
við viðurkenningu sinni sem íþróttamaður ársins 2002 í gærkvöldi.
Samtök íþróttafréttamanna kusu Ólaf íþróttamann ársins með fá-
heyrðum yfirburðum því hann fékk 410 atkvæði af 420 mögulegum.
Örn Arnarson sundkappi varð í öðru sæti með 183 atkvæði og Jón
Arnar Magnússon tugþrautarmaður þriðji með 157 atkvæði.
Morgunblaðið/Þorkell
Ólafur Stefánsson handknattleiksmaður er íþróttamaður ársins 2002. Hann fékk 410 stig af 420
mögulegum í kjöri Samtaka íþróttafréttamanna, sem völdu íþróttamann ársins í 47. sinn í gær.